Vísir - 06.09.1974, Síða 4
4
Vlsir. Föstudagur 6. september 1974.
Reglur um innborganir við
gjaldeyrisafgreiðslur
Á grundvelli 1. gr. reglugerðar nr. 162 frá
27. október 1967, með heimild i 1. gr. laga
nr. 30/1960 um skipan innflutnings- og
gjaldeyrismála o.fl., og með hliðsjón af
auglýsingu um sama efni frá 17 mai sl.,
hefur viðskiptaráðuneytið, i samráði við
Seðlabankann, ákveðið eftirfarandi reglur
um innborganir til banka til greiðslu inn á
bundna reikninga við Seðlabankann
Timabilið 6. til 30. september n.k. 20%
októbermánuðn.k. 15%
nóvembermánuð n.k. 10%
desembermánuð n.k. 5%
af fjárhæð skjala
Allar aðrar reglur um innborganir þessar,
skv. ofangr. auglýsingu frá 17. mai sl. eru
óbreyttar. Er innborgunarhlutfall fyrir 6.
til 30. september lækkað úr 25% i 20%, og
innborgunarskylda fyrir næstu þrjá mán-
uði þar á eftir lækkuð stig af stigi skv
ofanskráðu.
Reykjavik, 5. sept. 1974
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ,
SEÐLABANKI ÍSLANDS.
FASTEIGNAMAT RÍKISINS
óskar að ráða, nú þegar, stúlku til sima-
vörslu og vélritunarstarfa. Laun samkv.
launakerfi rikisins.
Skriflegum umsóknum sé skilað á skrif-
stofu fasteignamatsins að Lindargötu 46.
Keflavík
BLAÐBURÐARBÖRN
ÓSKAST
Vinsamlegast hafið samband
við afgreiðsluna.
Sími 1349
ÚTVEGUM ALLAfíli
FÁANLEGAR BÆKUR
SÍMAR 14281 1313311936 Jl
Bókaverzlun
SNÆBJARNAR
Hafnarstræti
Bókaverzlun
SNÆBJARNAR
Hafnarstræti
ap/ntEbR útlöndé morgun útlönd í morgun útlönc
Chou kominn aftur
á sjúkrahús
Chou En-Lai, forsætis-
ráðherra Kina, er sagð-
ur liggja á sjúkrahúsi,
alvarlega veikur, eftir
að honum hrakaði, til-
tölulega nýkomnum
heim af sjúkrahúsi.
J. William Fulbright, öldunga-
deildarþingmaður, greindi frá þvl
i gær, að honum hefði verið sagt,
að Chou En-Lai, forsætisráðherra
Klna, væri á sjUkrahúsi.
Fulbright fer fyrir bandariskri
þingnefnd, sem er I heimsókn I
Klna, og var nefndarmönnum
sagt, að Chou gæti ekki tekið á
móti gestum.
Hubert Humprey, einn
nefndarmanna, sagði frétta-
manni, að aðstoðarforsætisráð-
herrann, Teng Hsiao-Ping, hefði
tjáð honum, að Chou, sem hefur
verið heilsutæpur að undanförnu,
hefði hrakað mjög.
Chou hefur átt við hjartaveik-
indi að stríða og hefur verið með
annan fótinn á sjúkrahúsi siðustu
fjóra mánuðina.
Chou En-Lai — honum hefur
hrakað.
Hann tók ekki á móti Eya-
dema, hershöfðingja frá Afríku--
rikinu, Togo, en Eyadema fór frá
Klna I gær. Er það I fyrsta sinn, á
slöari árum. að Chou hefur ekki
veitt viötöKu erlendum þjóðar-
leiðtoga.
Mosambique fœr
sjólfstteði í dag
Portúga Isst jórn og
Frelimo (frelsishreyfing
Mozambique) munu að lík-
indum undirrita í dag
samninga, sem formlega
tryggja Mozambique sjálf-
stæði eftir 10 ára blóðugt
nýlendustríð og 400 ára
yfirráð Portugals.
Undirritunin verðu hápunktur-
inn i þriggja mánaða erfiðum
samningaumleitunum Mario
Soares, utanrikisráðherra PortU-
gals, og æðsta manns Frelimo,
Samora Machel.
Létu báðir vel af gangi viö-
ræðnanna, og þóttust fréttamenn
skilja á þeim i gærkvöldi, að Ur
þessu mundi ekkert geta spiilt
samningunum.
Hreinn appelsínusafi
í Tropicana er ekki blandað sykri, rotvarnar- eða bragðefnum.
Tropicana er hreinn safi úr Flórída appelsínum.
Verðið á Tropicana þolir allan samanburð.
sólargeislinn frá Florida
JROPICANA
kr.92,-
til kr.107-
2,Akg.appelsínur
kr. 220,-
til kr.279,-