Vísir - 06.09.1974, Qupperneq 5
Vfsir. Föstudagur 6. september 1974.
I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND I MORG Umsjón Guðmundur Pétursson
Ætla loksins
að leysa
vanda
flóttafólks
Leiðtogar tyrknesku f^ú si^.ast.gær£vöidi sakaði
og grisku þjoðarhlut- hafa myrt að minnsta kosti 130
anna á Kýpur hittast griskættaða Kýpurbúa.
„Keisarinn
er þjófur!7
— hrópaði múgurinn
í Addis Ababa, og
útvarpið kallar hann
orðið kóng.
— Byltingaröflin saka
Haile Selassie um
að hafa dregið
sér fé.
Her Eþíópíu, sem ráðið
hefur lögum og lofum í
landinu síðustu mánuðina,
hefur nú loks mannað sig
upp í að vega að keisaran-
um, Heile Selassie. Hefur
þessi 82 ára gamli þjóð-
höfðingi verið sakaður um
að hafa varið almannafé f
eigin þágu.
Eftir að byltingaröflin tóku til
við að svipta keisarann öllum
raunverulegum völdum i febrúar
siðastliðnum, hefur mönnum þótt
aðeins vera spurning um tlma,
hvenær þau teldu sig nógu trygg i
sessi til að láta til skarar skriða
gegn keisaranum.
Fréttaskýrendur hafa álengdar
fylgzt með þvi, hvernig smám
saman hefur verið veitzt að keis-
aranum, rétt eins og til aö kanna
undirtektir almennings og ganga
úr skugga um, hversu vinsæll
keisarinn væri i rauninni.
En það var fyrst I gær, að út-
Ljónið af Júda situr enn i há-
sætinu en er rúið völdum og er
nú sakað um að hafa dregið sér
af almannafé.
Móðgaði
Luns
Joseph Luns, framkvæmda-
stjóri NATO, sakaði f gær
Henk Vredeling, varnarmála-
ráðherra Hollands, um að
hafa spillt áliti Hollands innan
bandalagsins með blaðavið-
tali, þar sem Vredeling drótt-
aði persónulega að Luns.
Skrifaði Luns hollenzka ráð-
herranum bréf, og hefur hluti
þess kvisazt út, eins og t.d.
þetta: „Mér er það gersam-
lega huliö, hvernig hægt er að
halda þvl fram, að þér hafið
ekki ætlað að vera særandi,
þegar þér völduð mér þessi
ruddalegu og meiðandi orð.”
Hollenzka timaritið, Vrij,
haföi eftir Vredeling, að
honum fyndist Luns „hræði-
legt hugarfar. Mér gremst
hann óumræðilega.” — Ef
hann þvælist fyrir mér aftur,
þá mun ég sparka i beint á
milli markstanganna.”
Dr. Joseph Luns gegndi um
skeið embætti varnarmála-
ráðherra Hollands.
loks i dag til viðræðna
um vanda þeirra 200
þúsunda, sem bardagar
siðasta mánaðar létu
eftir heimilislaus.
Viðræðufundi þessum haföi
veriö frestað fyrr I vikunni,
meðan aðilar voru önnum kafnir
við að saka hvor annan um hin
hryllilegustu fjöldamorð og
ódæðisverk.
Að flestra mati verður næsta
litið gert til að létta á ákomu
þessara 200 þúsund flóttamanna
eyjarinnar, fyrr en þessir aðilar
hafa komið sér saman um
hvernig að skuli farið.
Tyrkir og Grikkir á Kýpur eru
þó naumast til viðræðna eftir að
fundizt hafa fjöldagrafir með
likum i tugatali — aö minnsta
kosti tvær með tyrkneskum
fórnardýrum,, og Grikkir halda
fram að fundizt hafi aðrar tvær
með grlskum fórnarlömbum.
Þunglyndi sœkir
að Richard Nixon
Vinir Richards Nixons,
fyrrverandi forseta, segja,
að hann sé orðinn „hræði-
lega þunglyndur", þar
sem hann hefst við á
heimili sínu i San Clemente
í Kaliforníu.
Washington Post hermir
það upp á vini Nixons, að
hann sé niðurdreginn og
honum hætti orðið til að
vera viðutan.
„Hann er hræðilega þunglynd-
ur, enda ærnar ástæður til þung-
lyndis,” hefur Lou Cannon,
fréttamaður Washington Posts,
eftir ónafngreindum vini for-
setans fyrrverandi.
Annar vinur var sagður lýsa
Nixon, sem utan við sig og fjar-
huga, og bætti þvi við, að honum
væri ómögulegt að bera fram
nafn Watergatesaksóknarans,
Leon Jaworski.
Nixon hefur haldið sig i San
Clemente, siðan hann sagði af sér
9. ágúst. — Post heldur þvi fram,
að dætur Nixons leggi að honum
að flytja til New York, meðan
vinur hans Bebe Robozo leggi til,
að hann fari til Key Biscayne i
Flórida en þar á Nixon annað
hús.
varp Eþiópiu og sjónvarp kölluðu
hann „kóng” en ekki keisara, en
það var i fréttafrásögnum af
„hneykslinu”.
Nefnd byltingarmanna segir,
að keisarinn hafi rakað að sér 15
milljónum Eþiópiudala (825
milljónir kr.) af tekjum brugg-
verksmiðju sem stofnuð var i
landinu fyrir 50 árum, en þá var
hann krónprins Teferi Makonnen.
— A hann að hafa leyft byggingu
verksmiðjunnar og með þeim
skilyrðum, sem gerðu honum
kleift að draga sér fé úr verk-
smiðjunni að eigin vild. — Brugg-
verksmiðjan hefur nú verið þjóð-
nýtt.
I útvarpi Eþiópiu var talað um
eyðslu kóngsins, meðan þegnar
landsins væru að farast úr hungri.
Fyrr I vikunni fóru nokkur
þúsund manna múgur um götur
Addis Ababa og hrópaði: „Hengið
keisarann!.... Keisarinn er
þjófur!”
Maður myrtur á 27
mínútna fresti
í ársskýrslu FBI — al-
rikislögreglunnar i
Bandarikjunum —
kemur fram, að alvar-
legum afbrotum fjölgaði
um 6% i fyrra. — Þar i
landi er einhver myrtur
á 27 minútna fresti.
Fórnarlömb morðingja voru
19.510 á árinu 1973, en voru 18.550
árið áður. — Tveir af hverjum
þrem morðingjum notuðu byssu.
Skýrsla FBI kom út i dag, og
kemur þar fram, að fleira kven-
fólk var viðriðið alvarleg afbrot á
þessu siðasta ári en verið hefur
hingað til. Þannig fjölgaði t.d. um
10% konum, sem teknar voru
fyrir vopnað rán.
Þessi 6% aukning kemur nú á
árinu eftir að glæpum hafði
fækkað um 4% i Bandarikjunum
1972. — Höfðu margir fyllzt bjart-
sýni á, að baráttan gegn glæpa-
öldunni ætlaði að færa þjóðfélag-
inu sigur.
FBI segir, að mestöll fjölgunin
eigi sér stað I útborgum og dreif-
býli. Aukningin hafi aðeins verið
1% i stórborgum, en 9% i útborg-
um og til sveita.
A BIFHJOLI YFIR GLJUFUR
Evel Kievel heitir niótorhjóiakappi I Bandarikjunum, sem
auögazt hefur á sýningum á fimi sinni á bifhjólum. Hann lét ný-
lega hafa sig út i veðmál um, að hann gæti stokkið á bifhjóli slnu
fyrir gjúfur Snakafljóts skammt frá Tviburafossum. — Hann
ætlar að gera tilraunina á sunnud. og beita eldflaug til aö skjóta
sér og hjólinu á loft, en lenda i fallhlif. — Myndin er tekin af skot-
pallinum i smiðum.