Vísir - 06.09.1974, Page 7
Vísir. Föstudagur 6. september 1974.
7
Umsjón: Erna
V. Ingólfsdóttir
EKKI AÐEINS BAR
..heldur líka skópur sem,fer litið fyrir í einu horninu
Pulsur og vin minna aðeins
hvort á annað á einn hátt. Þessa
skal notiö i réttu umhverfi.
Það virðist vera alveg sama á
hvaða hátt pulsur eru eldaðar
heima, þær eru alltaf betri i
pulsuvagninum. Og sömu sögu
er að segja um drykk, það er
eins og hann sé öðruvisi á
bragðið og mun ljúffengari við
barinn.
Læknar geta lika bent okkur
á, að bar sé aldeilis ekki
smiöaður á hagkvæman hátt, og
engan veginn hannaður með
tilliti til þess að fólki liði vel
likamlega. Það geta lika verið
orð að sönnu, en andlega séð þá
passar hann okkur ágætlega.
Hvort sem það er gott fyrir
mann eða ekki, sitjum við samt
sem áður eða stöndum, við bar-
inn, og ef til vill kemur stemmn-
ingin i og með út af þvi, að fólk
er ekki i of miklum stellingum.
Kannski ætti ekki að reyna að
flytja barinn úr sinu venjulega
umhverfi og inn á heimilin. Fólk
kæmist kannski ekki ,,i stuð”
eins og unglingarnir segja, viö
að drekka við barinn heima hjá
sér. En við ætlum nú samt sem
áður að kynna bar, sem gæti
hentað hvar sem væri á heimili.
Ef barinn er fylltur, áður en
veizlan hefst, ætti ekki að vera
þörf á að vera meira á þönum
frá eldhúsi og stofu. Það er
staður fyrir hvern hlut i barn-
um. Flöskurnar geta bæði verið
á hlið og staðið uppréttar, og
tvær neðstu hillurnar passa
undir kassa með gosi eða sóda-
vatni. A einni hillunni eru
glösin, á annarri hristari og
sitrónupressa, og i skúffum eða
grindum væri hægt að geyma
annað sem tilheyrir. Það þarf
heldur ekki endilega að vera
veizla til þess að opna barinn,
þvi að mjög auðvelt er að
komast i hann til þess að fá sér
einn drykk.
Ef til vill fellur mörgum það
illa að hafa bar inni hjá sér.
Þess vegna er þessi hér á sið-
unni með hjólum undir, og
þegar búið er að loka honum,
tekur hann ekki mikið rúm og
litur ekki út fyrir að vera bar
frekar en venjulegur skápur.
Auðvitað má búa hann til úr öllu
mögulegu efni, hann þarf ekki
að vera málaður eins og þessi á
myndinni, sem er rauður að
ofan en að öðru leyti svartur og
hvitur.
Hvort hægt væri að flytja
pulsuvagn inn til sin á sama hátt
og fá þá þetta ekta bragð af
pulsunum, sem við erum að
sækjast eftir, þvi látum við
ósvarað.
—EVl
Æáðhorra-
°stólar tíl
ráðstöfunar
strax
Nú er einstakt tækifæri til að tryggja sér hina
eftirsóttu ráðherrastóla, sem svo margir hafa
dáðst að.
Einstök gjöf fyrir fólk
með framtíðardrauma.
MFAtf 15
j ■mfm MltLAAMUr
JtCUFAl/B
HUSGAGIMAVERZLUN
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
Skeifan 15 Simi 82898
OPIÐ I DAG
KL 9 — 12 OG
I - 10 e.h.
Opið laugardag kl. 9 -
Engin sparikort
Engin afsláttarkort
12
Kaupgarður
m Smiöjuvegi 9 Kópavogi