Vísir - 06.09.1974, Blaðsíða 8
Visir. Föstudagur 6. september 1974.
Visir. Föstudagur 6. september 1974.
Umsjón: Hallúr Símonarson
íslandsmótið í körfuknattleik:
Enginn tilkynnir
þótttöku í mótið!
Ekki er nema rétt mánuður þar
til körfuknattleiksvertiðin hefst
af fullum krafti — þ.e.a.s. ef ein-
hver félög senda þá liö til keppni i
vetur.
Gylfi Kristjánsson, formaður
mótanefndar KKl, sagöi, er við
spjölluðum við hann i gær, að
íþróttaþing
um helgino
tþróttaþing tþróttasambánds
tslands veröur haldið I Reykjavik
dagana 7. — 8. sept. n.k. I húsa-
kynnum Slysavarnafélags Is-
lands við Grandagarð og hefst kl.
2 e.h. laugardaginn 7. sept.
öllum félögum sem tóku þátt i Is-
landsmótinu i fyrra og nokkrum
þar fyrir utan, hafi verið send
bréf fyrir nokkrum vikum, og þau
beöin um að tilkynna þá flokka
sem þau ætluðu að senda i Is-
landsmótið.
,,í bréfinu stóð að fresturinn
væri til 10. september en nú.þegar
kominn er 5. september og aðeins
5 dagar eftir, hefur ekkert
félag tilkynnt þátttöku i íslands-
mótinu. Við vitum um nokkur
sem eru að senda svar i dag eða á
morgun, en það er ákveðið mál,
að þau félög, sem ekki senda þátt-
tökutilkynningar fyrir lO.septem-
ber, verða ekki með i vetur.
Það á eftir að fá hús, raða niður
leikjum og gera leikskrá, og það
er ekki endaíaust hægt að biða
Tugþrautarkeppnin
byrjuð ó EM í Róm!
Fridagur var á Evrópumeist-
aramótinu I Róm i gær, en I dag
verður tekið til við keppnina á ný
og þá keppt I mörgum skemmti-
legum greinum, Meðal annars
hófst keppnin I morgun kl. sjö
eftir islenzkum tima i tugþraut-
inni. Þar er Stefán Hallgrimsson
meðal keppenda og fyrsta greinin
i tugþrautinni var 100 m hlaup.
Klukkan átta hófst svo keppni i
langstökki tugþrautarinnar — en
kl. 9:30 keppnin i kúluvarpi
þrautarinnar. Hástökkið hefst I.
dag kl. 3:50 og siðasta greinin i
dag i tugþrautinni, 400 metra
hlaupið kl. 7:20.
Keppt verður til úrslita I
nokkrum greinum i dag —
stangarstökki, kúluvarpi karla,
kringlukasti kvenna, 200 metra
hlaupi karla og 200 metra hlaupi
kvenna. Auk þess verður for-
keppni I sleggjukasti, hástökki
kvenna, riðlakeppni i 100 m
grindahlaupi kvenna 1500 metra
hlaupi karla og 5000 metra hlaupi
karla.
SOLI
7
Siðasta opna golfkeppnin á
Hvaleyrarvellinum I Hafnarfirði
á þessu sumri — Ron Rico keppn-
in — fer fram um næstu helgi.
Þetta er 36 holu keppni og hefst
hún á laugardaginn kl. 9 fyrir há-
degi og siöan haldið áfram daginn
eftir. Mikil þátttaka hefur venju-
lega verið i þessari keppni Hafn-
firðinga — oft hátt á annað
hundrað manns — og má búast
við að þannig verði það um þessa
helgi, þvi fyrir utan að vera stórt
opið mót, gefur það stig til lands-
liös GSt, og verða þvi margir af
beztu golfleikurum landsins
meðal keppenda.
Báðar þessar myndir eru teknar á golfvellinum á Hvaleyrarholti, en
siðasta opna mótið þar á þessu sumri fer fram um næstu helgi.. Ljós-
myndir MHH.
eftir að félögin sendi inn til-
kynningar um að þau ætli að vera
með, enda er ekki nema rúmlega
mánuður I fyrstu leikina”
—klp—
Norður-Kórea
sœkir ó!
Skipting verðiauna eftir fjórða
keppnisdaginn á Asiuleikunum i
Teheran var þannig — en I gær
hafði verið lokið við að keppa i
67 greinum.
G S B
Japan 34 15 18
N-Kórea 13 8 5
Kina 7 18 8
íran 7 16 5
S-Kórea 5 4 8
Burma 122
Filippsey- 0 16
Thailand 0 14
Singapore 0 13
Indland 0 10
trak 0 0 4
tsrael 0 0 2
Pakistan 0 0 1
Mongólia 0 0 1
ÍBK til Júgó-
slovíu 17. sept.
— enn eru örfó sœti
laus í hópferðina
Keflvikingar halda til Evrópu-
keppni meistaraliða I knattspyrn
unni hinn 17. þessa mánaöar — og
leika báða leiki sina i Júgóslviu
við júgóslafnesku meistarana
Hadjuk Split. Borgin Split er við
Adriahafið — á einum fegursta og
eftirsóttasta stað Júgóslaviu.
IBK efnir til hópferðar i sam-
bandi við leikina — hefur tekið
flugvél á leigu hjá Sunnu i þvi
sambandi. Nú eru aðeins örfáir
miðar eftir i feröina — og eftir-
spurn mikil. Lagt verður af stað
17. september og komið heim
aftur 30. september. Flugferðin,
hótel og matur (morgun- og ein
máltið að auki) kostar milli 32 —
33 þúsund á mann, svo hér er um
kostakjör að ræða. Nánari upp-
lýsingar um ferðina gefa Haf-
steinn Guðmundsson, formaður
IBK, og Zakarias Hjartarson, for-
maður Sportmanna i Keflavik.
West Ham
kaupir
Hinn nýi framkvæmdastjóri
West Ham, John Lyall, keypti tvo
nýja leikmenn nú I vikunni. Fyrst
Billy Jennings frá 3. deildarliöinu
Watford (borg I norðurjaðri
Lundúna) fyrir 110 þúsund
sterlingspund og siðan Keith Rob-
son frá Newcastle fyrir 40 þúsund
pund.
Jennings er ungur leikmaður —
var einn af markhæstu leikmönn-
um 3. deildar á siðasta keppnis-
timabili. West Ham sigraði i
kapphlaupinu um leikmanninn —
bauð mun betur en önnur félög
t.d. Portsmouth, sem bauð Wat-
ford 60 þúsund pund. Annar leik-
maður, sem bar Jenningsnafn,
lék eitt sinn með Watford áöur en
Tottenham keypti hann — sá
markvörðurinn, sem nú er talinn
beztur á Bretlandseyjum, Pat
Jennings.
Landsliðsþjálfarinn Tony Knapp var eins og prestur að messa yfir söfnuði sinum þegar Bjarnleifur Ijósmyndari kom út á KR-völl I gærkvöldi, en þá var allur
landsliðshópurinn á æfingu. A myndinni eru frá vinstri: GIsli Torfason, Þorsteinn Ólafsson, Atli Þór Héðinsson, Björn Lárusson, Matthias Hallgrimsson,
Marteinn Geirsson, Guðgeir Leifsson, Magnús Guðmundsson, Jóhannes Eðvaidsson, Karl Hermannsson, Grétar Magnússon, Jón Pétursson,' Teitur
Þórðarson, Asgeir Sigurvinsson og Ásgeir Eiiasson. Eirikur Þorsteinsson kom skömmu siðar en hann hafði verið á æfingu hjá Víking fyrr um kvöldið.
Leikirnir eru of fáir og of
margir dómaranna slakir!
— Eru atriði af mörgum, sem að er í íslenzkri knattspyrnu, segir Jack Johnson,
sem þjálfað hefur 1. deildar lið Akureyrar í sumar.
„tslenzk knattspyrna hefur tekið
miklum framförum að undanförnu, og
með tilkomu erlendu þjálfaranna má
greinilega sjá atvinnumannablæ á
henni, enda æfa þau lið, sem þeir
stjórna, nánast eins og atvinnumanna-
liðin gera erlendis.
Þessar framfarir má glögt sjá með
þvi að horfa á islenzku dómarana. Þeir
standa gjörsamlega I stað og hafa eng-
um framförum tekið, enda æfa þeir sig
ekkertog hafa engan hug á að fylgjast
með.
Ofan á þetta bætist, að þeir eru svo
ósjálfstæðir i gjörðum sinum, að þeir
dæma nær eingöngu eftir hrópum og
köllum leikmanna. Ég er mjög
óánægður með þá flesta, ef ekki alla,
enda höfum við Akureyringar orðið
verulega fyrir barðinu á þeim i sumar
og stórtapað á þeim hvað eftir annað.
Þessum mönnum er hægt að lýsa
með einni setningu, sem knattspyrnu-
unnendur skilja, eftir að hafa séð til
þeirra i sumar..„Þeir hafa stór eyru
en litil augu”.
Þannig komst hinn danski þjálfari
Akureyringa, Jack Johnson að orði, er
undirritaður ræddi við hann á Akur-
eyri um siðustu helgi. Og eins og
glöggt má sjá hér að framan, var hann
engu minna hrifinn af islenzku dómur-
unúm en kollegar hans hjá öðrum lið-
um hér.
Johnson, sem rekur endurhæfinga-
stöð fyrir fatlaða og fólk, sem vill
halda sér i góöri likamsæfingu, i
Odense i Danmörku, lék fjórum sinn-
um i landsliði Dana og var um skeið
hálf-atvinnumaður hjá skozka liðinu
FC Dundee. Hér hefur hann dvalið
siðan i vor og verið mjög vel liðinn af
leikmönnum Akureyrar og öðrum,
sem hafa kynnzt honum.
— Hvernig hefur þér svó likað dvölin
hér?
„Mjög vel enda er ekki annað hægt,
þegar maður er inn um svona
vingjarnlegt fólk og hér á Akureyri.
Strákarnir hafa lika staðið sig með
sóma, æft vel og vandlega, en ekki
fengið það út, sem þeir áttu skilið.
Þeir leika betri knattspyrnu en tvö
eða þrjú önnur lið i 1. deild, sem öll
hafá fengið fleir stig en þau áttu skilið
að fá miðað við getu og þá knatt-
spyrnu, sem þau hafa sýnt.
Það nær heldur ekki nokkurri átt, að
lið eins og Akureyrarliðið skuli ekki fá
að leika nema 17 eða 18 leiki yfir allt
sumarið, og er brýn nauðsyn hjá ykkur
að fjölga liðum i 1. deild eða breyta
keppnisfyrirkomulaginu þannig, að
liðin fái fleiri leiki.
Leikmennirnir æfa 5 til 6 sinnum i
viku frá þvi snemma vors og langt
fram á haust, fyrir utan vetrar-
æfingar, og eftir allt þetta erfiði fá þeir
aðeins örfáa leiki til að spreyta sig á.
Finnst mér þvi ekkert undarlegt, þótt
leikmennirnir verði bæði leiðir og
svekktir á þessu.
Að minu mati var Akranesliðið tvi-
Jack Johnson
— ekki ánægður.
mælalaust bezta liðið hér á landi i
sumar, og skil ég ekki þá ráðstöfun
landsliðsnefndar að velja ekki fleiri
menn úr þvi liði i landsliðið. Þar er að
finna tvo af beztu knattspyrnumönn-
um landsins, Karl Þórðarson og Jón
Alfreðsson, en auk þeirra skarar
Jóhannes Eðvaldsson, Val, fram úr
öðrum leikmönnum hér.
Annars er margt annað en dómara-
málin, sem þarf að koma i betri farveg
i knattspyrnunni hér. Reglureru ekki
nógu ákveðnar og þær brotnar á alla
vegu, ef þær eru fyrir einhverjum. Af
þessu leiðir óþarfa kærumál og alls
konar vandræði fyrir lið og leikmenn,
eins og fram hefur komið, og þannig
mun þetta halda áfram ár eftir ár, ef
ekkert er gert I málunum annað en
biða og sjá hvað setur.”
-ey-
Fá 15 þúsund kr.
fyrir hvert mark
á móti íslandi!
— íslenzki atvinnumaðurinn i Belgíu, Ásgeir Sigurvinsson,
segir, að Belgarnir muni gera allt, sem þeir geta til að
vinna nógu stóran sigur á sunnudaginn.
Belgisku landsliðsmennirnir
sem leika gegn íslandi á sunnu-
daginn, fá sem svarar 42 þúsund
krónum islenzkum á mann, ef
þeir sigra I leiknum, og fyrir
hvert mark sem þeir skora fær
hver maður 15 þúsund krónur.
Þetta kom fram I viðtali, sem við
áttum við Asgeir Sigurvinsson,
sem leikur með bclgiska liðinu
Standard Liege, skömmu fyrir
æfingu hjá islenzka landsiiðinu á
KR-veilinum i gærkvöldi, en Ás-
geir var mættur þar tveim tím-
um eftir að hann kom út úr flug-
vélinni frá meginlandinu.
„Þeir ætla sér að gera stóra
hluti hérna á sunnudaginn, og
tala um að ná sér I mikla peninga.
Það hljóti að vera létt verk gegn
áhugamönnum langt uppi á
norðurhjara veraldar.
Samt sitja enn i þeim leikirnir
gegn Islandi I undankeppni
heimsmeistarakeppninnar, þar
sem þeim tókst ekki aö vinna
meira en 4:0 eöa samtals 8:0 i
tveim leikjum á heimavelli. Þetta
sviður þeim sártenda segjast þeir
hafa misst af þvi að komast i
lokakeppninni i Vestur-Þýzka-
land á leikjunum við Island.
Þeir tala nú um að skora ekki
færri en tiu mörk i leiknum á
Stan Bowles
á sölulista
Stan Bowles, hinn skapmikli
innherji hjá Lundúnaliðinu
Queens Park Rangers, var i gær
settur á sölulista hjá félaginu
samkvæmt eigin ósk. QPR hefur
sett upp 250 þúsund sterlingpund
fyrir hann.
Bowles sagði. „Það var af
einkaástæðum, að ég fór fram á
að verða settur á sölulista, og
framkvæmdastjóri QPR, Gordon
Jago, varð við þeirri bón minni”.
Bowies, sem er 25 ára, lék með
enska landsliðinu I vor, en hvarf
eftir að hafa verið tekinn út af i
einum leiknum. Mætti ekki i
næsta leik gegn Skotum og var
settur i leikbann með enska
landsliöinu fyrir vikið. Hann hóf
feril sinn hjá Manch. City, en
vegna óreglu, einkum ,þó i sam-
bandi við veðmáiastarfsemi,
hvarf hann frá þvi félagi. Siðar
sló hann I gegn með Carlisle og
QPR keypti hann frá þvi félagi
fyrir 115 þúsund sterlingspund,
þrátt fyrir vafasama fortið leik-
mannsins.
sunnudaginn, minnugir úrslit-
anna i undankeppninni. Liðið,
sem þeir senda hingað, er mjög
gott lið — þó ekki það sterkasta,
enda a.m.k. þrir fastamenn i lið-
inu meiddir, þar á meðal
Lambert, sem er einn þeirra bezti
maður.
Um islenzka liðið veit ég litið,
en ég held að það sé nokkuð gott.
Ég hef ekki spilað með nema
örfáum mönnum i liðinu fyrr, en
ég vona að það komi ekki að sök
og að okkur vegni vel i leiknum á
sunnudaginn.”
Ásgeir sagði okkur þær fréttir
af sjálfum sér, að hann væri
búinn að leika fjóra leiki i
deildinni með Standard Liege, og
væri hann orðinn fastur maður i
liðinu, og léki sem tengiliöur.
Hann sagði, að þeim heföi ekki
vegnað vel i byrjuninni — þeir
væru komnir með 3 stig út úr
þessum fjórum leikjum, en næsti
leikur þeirra væri við efsta liðið i
deildinni, Racing White, á
miðvikudagskvöldið.
Ekki sagðist hann hafa skorað
nema eitt mark i þessum þremur
leikjum, og hefði það verið i þeim
fyrsta, en það hefði jafnframt
verið fyrsta mark Standard i 1.
deildinni i ár. -klp-
Badminton
Vetrarstarf Badmintondeildar
Vals hefst um miðjan september.
Æfingatimar verða leigðir út
þriðjudags og miövikudagskvöld,
10.og ll. seDt kl. 8.30-10 á skrif-
stofu Vals. Þeir, sem hófðu velli á
leigu i fyrra og vilja halda þeim
áfram, þurfa að gera skil áofan-
greindum timum, annars verða
vellirnir leigðir öðrum.
Stjórnin.
Ásgeir Sigurvinsson var mættur á æfingu hjá landsliðinu tveim timum
eftir að hann kom frá Belgiu og öslaði pollana á KR-vellinum ásamt
hinum strákunum langt fram á kvöld.
Ljósmynd Bj. Bj.
■ í
B i
O
M
M
1
0 í