Vísir - 06.09.1974, Síða 16
LANDHELGISBRJOTURINN
FORESTER MISSTI EKKI
VEIÐIHEIMILDINA
— og veiðir enn hér við land. — „Braut ekki samkomulagið
milli íslands og Bretlands," segir lögfrœðingur
Landhelgisgœzlunnar
Það vakti furðu
þeirra, sem voru á sigl-
ingu um Skagagrunn
innan 50 milnanna sið-
astliðinn laugardag, að
sjá þar að veiðum
brezka landhelgis-
brjótinn Forester, Það
er togarinn, sem
Richard Taylor var
tekinn á innan 12 miln-
anna fyrir skömmu sið-
an.
Rannsóknarskipiö Bjarni
Sæmundsson sá til Forester og
heyröist til yfirmanna skipsins
leita upplýsinga um það hjá
næsta varðskipi, hvort land-
helgisbrjóturinn væri enn með
veiðiheimild hér við land eftir
fyrrnefnt landhelgisbrot.
Svar varðskipsmanna var: —
Já.
Visir sneri sér til lögfræðings
landhelgisgæzlunnar Gísla Is-
leifssonar, og spurði hann, hvort
Forester skoðaðist ekki hafa
brotið landhelgissamninginn og
hvort hann ætti þá ekki um leið
að missa veiðiheimildina.
„Forester braut ekki sam-
komulagið,” svaraði Gisli.
„Forester framdi hreint land-
helgisbrot og því mundi ég állta
að hann þurfi ekki að strikast út
af skrá. Samkvæmt samkomu-
laginu er ekki talað um. að þeir
sem fremja landhelgisbrot þurfi
að hverfa af skrá, heldur þeir
sem brjóta samkomulagið. For-
ester fór inn fyrir 12 mllurnar,
sem viðurkenndar eru af bæði
Bretum og Vestur-Þjóðverjum
og verður þvi að skoða afbrot
frá þeim sjónarhóli og burtséð
frá samningnum.” —ÞJM
Þær kunna vel að meta það að hittast Islenzku flugkonurnar hjá Edith L. Denny. Að visu vantaöi tvær sem hafa réttindi, Astu Hallgrlmsdóttur
en hún nálgast atvinnuréttindi, og Sunnu Sigurðardóttur. Edith hefur yfir 3 þúsund tlma, en hinar (frá h.) Jytta, atvinnuréttindi, Ingunn,
sóló-próf, Hólmfriöur, sóló-próf, Margrét einkaflugmannspróf og Svanhvit lika og Edda, sóló-próf.
„VILDI AÐ ÉG LÆRÐI AÐ LENDA - KOM
EKKI TIL HUGAR AÐ ÉG GÆTI MEIRA"
— Fékk flugréttindi 49 ára, er nú um sextugt — íslenzkar flugkonur 8 að tölu
VISIR
Föstudagur 6. september 1974.
Útvarps
stöðín
„gerð
upptœk"
— segir yfirmaður
tœknideildar
Landssímans.
—„Á eftir að fá
tœkin mín aftur"
segir útvarps-
stjórinn
„Það var einfalt mál að hafa
uppi á leyniútvarpsstööinni, sem
þið sögðuð frá I VIsi á mánudag.
Nafn útvarpsstjórans kom fram I
fréttinni og þar þekktum við
aftur þann, er stjórnaði útsend-
ingum leyniútvarpsstöðvarinnar,
sem stöðvuð var I fyrra.” Þetta
sagði yfirmaður tæknideildar
Landssimans, Siguröur Þor-
steinsson, I viðtali við VIsi i morg-
un.
„Við höfðum heimilisfangið og
þurftum þvl engra miðana við.
Fórum viö á staðinn I gærmorgun
og geröum tækjaútbúnaö út-
varpsstöðvarinnar upptækan,”
sagði Sigurður ennfremur.
„Ég var ekki heima, þegar þeir
komu og hirtu tækin,” sagði
Arnar Hákonarson, þegar Visir
talaði við hann i morgun. „Það
hefur ekki verið haft tal af mér,
en ég hef þá trú, að ég eigi eftir að
fá tækin mín aftur. Mér sýnist
skorta öll sönnunargögn fyrir
notkun tækjanna og þar af leið-
andi heimild til að taka þau af
mér.”
Arnar, sem er um tvitugt og er
til heimilis við Háaleitisbraut,
starfar sem aðstoðarmaður
hljómsveitarinnar EIK. Er, sem
kallað er, rótari hljómsveitar-
innar.
„Ef til átaka kemur,” sagði
hann, „á ég eftir aö draga fram
undirskriftalistana, sem gengu i
fyrrasumar. Þá skrifuðu nokkur
þúsund manns undir áskorun til
yfirvalda þess efnis, að rekstur
útvarpsstöövar meö léttri tónlist
yrði levföur.”
Og Visir hefur fengið nasasjón
af þeim áhuga, sem rikjandi er
fyrir útvarpsrekstri af þessu
tagi: Eftir að fréttin um útsend-
ingar Arnars birtist I blaðinu á
mánudag, voru stööugar upp-
hringingar til blaðsins og spurt
um rásina, sem stöðin næðist á.
Lltið mun hafa verið um útsend-
ingar stöðvarinnar I vikunni.
—ÞJM
Þaö er vægast sagt afar sjald-
gæft, að kvenmenn, sem komnir
eru yfir fertugt, skelli sér út I
það að læra að fljúga. En það
gerði hún Edith L. Denny frá
Toronto i Kanada. 49 ára náði
hún sér I réttindi og nú er hún
um sextugt.
„Maðurinn minn keypti sér
flugvél. Hann vildi, að ég kynni
að lenda henni, ef liða skyldi
yfir hann eða eitthvað kæmi
fyrir. Honum datt ekki I hug, að
ég gæti gert meira en það. En
það fór á annan veg, þvi ég lærði
að lenda og hélt svo áfram”.
Þetta sagði Edith meðal
annars, þegar hún bauð
flugkonum i Reykjavik á sinn
fund I gær. Ekki er nú beinlínis
hægt að segja, að þær séu marg-
ar, en hvað um þaö, 8 eru þær,
og einhverjar verða að byrja.
Edith ferðast mjög mikið
ásamt manni sinum. Hann er
háttsettur I skátahreyfingunni.
Þau komu hingað einmitt til
þess að vera við skátaráð-
stefnuna, en fara aftur I fyrra-
málið. Og hvert sem hún kemur
segist hún reyna að safna
saman flugkonum hvers staðar.
„Mér finnst óskaplega gaman
að þessu, enda likar mér ekki
jafn vel að tala um nokkurn hlut
eins og flugvélar”, segir hún.
„Ég á sjálf tveggja hreyfla
flugvél og maðurinnn minn
aöra, þvl að hann flýgur lika. Ég
flý mjög mikið og hlakka til að
koma heim til þess að fljúga. Ég
hefði kannski skellt mér I loftið
núna, ef ekki væri þetta
hvasst.”
Edith er komin ;neð yfir þrjú
þúsund tlma, sem þykir mjög
mikiö meðal flugmanna. En
hefurhenni aldrei komið til hug-
ar að sækja um vinnu?
„Nei, mér hefur aldrei dottið
það I hug. Ég vil fljúga svo
mikið og fljúga svo margt, að
það ætti ekki við mig. Enda er
ekkert vist, að þeir litu við
mér”, segir hún og hlær. „En I
Kanada er ein kona orðin flug-
stjóri.”
Edith á þrjú börn og nokkur
barnabörn, og það er áreiðan-
lega ekkert amalegt að eiga
fljúgandi ömmu.
Atta konur I Reykjavik hafa
réttindi til þess að fljúga, að
vlsu eru þær komnar misjafn-
lega langt. Aðeins ein hefur at-
vinnuréttindi. Að þessum átta
undanskildum, eru svo þrjár að
læra.
Edith hefur sannarlega komið
mörgu góðu til leiðar með því að
safna saman flugkonum á
hverjum stað. 1 Finnlandi eru
þær til dæmis mjög margar, en
flestar höfðu ekki sézt áður en
hún kallaði þær saman.
„Kannski við stofnum bara
klúbb,” sögðu þær íslenzku lika
I gær....
—EA
Gamli maðurinn var fjötraður:
Beðið eftir niðurstöðum krufningar
Rannsóknarlögreglan
vinnur enn að rannsókn á
dularfullum dauða 74 ára
gamals manns á Vestur-
götunni i fyrrakvöld.
Krufning hefur enn ekki
farið fram og getur rann-
sóknarlögreglan lítið sagt
um málið fyrr en niður-
stöður hennar liggja fyr-
ir.
Eins og sagt var frá I VIsi I
gær var maöurinn bundinn og
voru tveir gestir hans, kona og
karl, settir I gæzluvarðhald.
Karlmaðurinn er enn I haldi, en
konunni hefur verið sleppt.
Drykkjuskapur var á staön-
um, þegar lögreglan kom
þangað. Þegar viðstöddum varð
ljóst aö ekki var allt með felldu
um ’ liðan gamla mannsins,
skáru þeir á handfjötrana.
Þegar lögreglan kom á staðinn
var maðurinn látinn og band-
spottar enn um úlnliði hans.
t frétt Visis I gær var mis-
hermt, að maðurinn, sem lézt,
hafi starfað hjá sorphreinsun
borgarinnar. Hinn látni lifði á
ellilifeyri sinum, og aö sögn
ættingja hans, var hann viö
beztu heilsu og hafði ekki fundiö
fyrir æðakölkun eða hjartasjúk-
dómum.
Konan, sem var I ibúð gamla
mannsins. bjó heldur ekki hjá
honum heldur I næsta húsi
þarna á Vesturgötunni. —JB—
ASf OG RIKIS-
STJÓRNIN A FUNDI
Fyrsti fundur rikisstjórnar-
innar með viðræðunefnd
Alþýðusambands tslands hófst i
morgun klukkan tiu. Var búizt
við, að ályktun ASt og formanna
sérsambanda, sem svo mjög
hefur verið I fréttum að undan-
förnu, hafi verið fyrsta mál á
dagskrá.
Þessum fyrsta fundi rikis-
stjórnarinnar með leiðtogum
verkalýöshreyfingarinnar var
ekki lokið, þegar Vísir fór I
prentun, og má öruggt telja, að
enn fleiri fundir fylgi I kjölfarið.
Samkvæmt upplýsingum
Clafs Hannibalssonar, sem varð
fyrir svörum á skrifstofu ASI I
morgun, hefur enn ekki orðið
vart neinna viðbragða hjá
verkalýðsfélögunum við
ályktun ASt og áskorunum til
þeirra um að segja upp
samningum. „Alyktunin er
tæpast komin til þeirra allra
ennþá og því vart við þvi að
búast, að undirtekta verði vart
fyrr en upp úr helginni,” sagði
Ölafur.
-ÞJM.