Vísir - 11.09.1974, Blaðsíða 8
Visir. Miðvikudagur 11. september 1974.
Visir. Miðvikudagur 11. september 1974.
Umsjón: Halltfr Símonarson
Vaclav Nedomansky, kona hans Vera og sonurinn Vaciav yngri, eru öll mjög
ánægð með lifið i Toronto i Kanada, þar sem þessi mynd var tekin af þeim fyrir
skömmu.
Flóttamaðurinn
fœr 130 milli.
í laun í Kanada
— Tveir af beztu ísknattleiksmönnum
Tékkóslóvakíu flúðu í peningana fyrir vestan
Eitthvert mesta áfall,
sem Tékkar hafa orðið fyrir
i iþróttum á undanförnum
mánuðum, átti sér stað fyrir
nokkrum vikum, er fyrirliði
landsliðs þeirra i isknatt-
leik, Vaclav Nedomansky,
sem talinn er einn bezti ís-
knattleiksmaður heims,
strauk úr landi ásamt fjöl-
skyldu sinni og gerðist at-
vinnumaður i Kanada.
Það þarf ekki að vera með neinar
getgátur um hvað það var sem glapti
fyrir Nedomansky — það var það sem
hann fékk ekki i heimalandi sinu,
a.m.k. ekki nóg af miðað við það sem
hann gat fengið i hinum vestræna
heimi... peningar, og það miklir pen-
ingar.
Forráðamenn bandariska liðsins At-
lanta Flames komu til Prag sl. vetur
og buðu tékkneska isknattleikssam-
bandinu mikla upphæð i Nedomansky,
og skömmu siðar komu forráðamenn
Toronto Toros þangað og buðu enn
hærra. En svarið sem þeir fengu var
blákalt nei — a.m.k. frá sambandinu.
En Nedomansky var á annarri skoð-
un, þótt hann léti það ekki uppi við
neinn nema eiginkonu sina, enda ann-
að talið hættulegt að hans áliti, eins og
hann orðaði það við komuna til Kan-
ada. Hann sóttu um leyfi tii að fá að
fara f sumarfri til Sviss ásamt konu
sinni og 6 ára syni sinum og fékk það —
aö sagt er bak við tjöldin vegna þess að
tékknesk yfirvöld óttuðust að hann
myndi „hoppa af”.
Ótti þeirra reyndist á rökum reistur,
þvi við komuna til Basel i Sviss, sótti
hann um landvistarleyfi sem pólitisk-
ur flóttamaður og var veitt það sam-
stundis.
Álitiðerað „flótti” þeirra hjóna hafi
verið skipulagður af Kanadamönnum,
þvi einni klukkustund eftir að þau
hjónin og sonurinn voru búin að fá
landvistarleyfi i Sviss, var tilkynnt að
Nedomansky fjölskyldan væri búin að
fá rikisborgararétt i Kanada og að
hann myndi leika með Toronto Toros i
WHA-ligunni næstu fimm árin a.m.k.
Jafnframt kom fram, að Nedo-
mansky fengi 130 milljónir islenzkra
króna i árslaun hjá Toronto toros og
ýmiss önnur hlunnindi, sem eru metin
á fleiri milljónir króna.
Þetta er einn stærsti samningur sem
geröur hefur verið i isknattleik til
þessa, og enn stærri þegar þess er gætt
að Nedomansky neitaði að undirrita
samninginn fyrr en félagið hafði gert
samning við félaga hans úr landslið-
inu, Richard Farda, sem stakk af um
likt leyti og hann, og komst yfir til
Austurrikis, þar sem hann sótti um
landvistarleyfi.
Það gerðu forráðamenn Toronto
með glöðu geði, þvi þótt Farda sé ekki
eins frægur og Nedomansky i isknatt-
leiksheiminum, var samvinna þeirra i
siðustu heimsmeistarakeppni oft á tið-
um slik, að jafnvel hinir sovézku á-
horfendur, sem jafnan láta litið i sér
heyra, stóðu upp og fórnuðu höndum af
hrifningu.
Farda fær ekki eins stóra upphæð og
Nedomansky frá Toronto Toros, enda
vildi hann ekki skrifa undir nema 3ja
ára samning. En honum eru þó
tryggðar um 100 milljónir islenzkra
króna I árslaun þessi þrjú ár.
Flótti þessara tveggja leikmanna er
mikið áfali fyrir isknattleikinn i
Tékkóslóvakiu, sérstaklega þó missir
Nedomanskys, sem verið hefur mátt-
arstólpi liðsins undanfarin ár, og sá
maður sem gert hefur Tékka að stór-
veldi i isknattleik á undanförnum ár-
um.
Talið er, að það taki Tékka nokkra
mánuði að komast yfir missi hans. I
fyrsta lagi missir liðið þarna sinn
bezta mann, og „flótti” hans og Farda
hefur valdið glundroða meðal ann-
arra leikmanna.sem sagt er að nú vilji
einnig komast i aurana fyrir vestan
járntjaldið. Þá kemur þetta einnig til
með að hafa mikil áhrif á áhorfendur,
sem litu á Nedomansky sem einskonar
guð. Verður erfitt fyrir tékknesk yfir-
völd að sverta hann i augum þeirra
eins og oft er gert með frægar persón-
ur, sem hverfa úr landi án leyfis, enda
hafa þau enn ekki lagt út i að gera það.
—klp-
ÞRJÚ fSLANDSMET OG
HIÐ FJÓRÐA JAFNAÐ!
— ÍR sigraði í stigakeppni Reykjavíkurfélaganna — Erlendur setti
met í sleggjukasti — Lóra í langstökki og Sigfús í 2ja mílna hlaupi
islandsmetin féllu eitt af
ööru á 30. Reykjavíkur-
meistaramótinu í frjálsum
iþróttum í gær. Fyrst bætti
Lára Sveinsdóttir met sitt i
langstökki um 12 sendi-
metra — stökk 5,68 metra.
Millitími var tekinn á Sig-
fúsi Jónssyni eftir tvær
mílur í 5000 m. hlaupinu og
Sigfús setti islandsmet í
2ja mílna hlaupinu. Hljóp á
9:31,6 mín. en eldra ís-
landsmetið átti Kristján
Jóhannsson, ÍR, sett 1957,
og var þaö 9:35,2 mín. Þar
meö hvarf nafn hins ágæta
hlaupara, Kristján Jó-
hannssonar, af islenzku
metaskránni. Þetta var á
LaugardaIsvelli og frá
Melavelli bárust þær frétt-
ir, aö Erlendur Valdimars-
son hefði bætt íslandsmet
sitt í sleggjukasti um sjötiu
Lára Sveinsdóttir brosandi eftir
metstökkið i langstökkinu I gær —1
og margfaldur Reykjavlkur
meistari. Ljósmynd Bjarnleifur.
í>
sentimetra — kastað 60,74
m. i síðustu grein mótsins
jafnaði Ármanns-sveitin í
4x100 m. boðhlaupi ís-
landsmet sitt — hljóp á 50,3
æk.
1 stigakeppni félaganna á mót-
inu sigraði IR með nokkrum mun
— hlaut samtals 42.793 stig sam-
kvæmt stigatöflu. Ármann hlaut
33.130 stig og KR 2648 stig. Sára-
fáir KR-ingar tóku þátt i keppn-
inni. 1 karlagreinum hlaut 1R
langflest stig — en Ármann i
kvennagreinum.
Veður var frekar gott til keppni
meðan sólar naut — en þegar hún
hætti að skina, varð mjög kalt, og
var það ástæðan til að fleiri Is-
landsmet voru ekki sett. Frjálsi-
þróttafólkið naut sin vel i sólinni
árangur bara allgóður viða.
Ungi Ármenningurinn Sigurður
Sigurðsson bætti fjórða meistara-
titlinum i safn sitt frá mótinu,
þegar hann varð Reykjavíkur-
meistari i 200 m hlaupinu á 22,4
sek. — sem sagt við sinn bezta á-
rangur á vegalengdinni. Björn
Blöndai, KR, varð annar á 24,2
sek. — skorti úthald siðari hluta
hlaupsins. og Gunnar Páll
Jóakimsson, tR. var 3ji á 24,5.
Ágúst Ásgeirsson, IR, varð
meistari i tveimur greinum.
Fyrst hljóp hann 400 m. grinda-
hlaup á 59,3 sek. — Sigfús Jónsson
annar á 63,6 sek. — og siðan 800
m. á 1:58,7 sek. Þar náði Erlingur
Þorsteinsson, Stjörnunni, sem
keppti sem gestur, sinum bezta á-
rangri 2:00,6mln. Einnig i 5000 m.
hlaupinu siðar um kvöldið — hljóp
á 15:50,2 min. Sigfús varð meist-
ari á 15:14,4 min. en hann dró
mjög úr hraðanum eftir að hafa
sett íslandsmetið i 2ja milna
hlaupinu.
Elias Sveinsson, IR, varð
meistari i hástökki með 1,95 m —
felldi 2,02 m — og körfuknatt-
leiksmaðurinn Jón Sigurðsson
Reykjavikurmeistari i þristökki
með 13,15 m. Óskar Jakobsson,
IR, varð meistari i kringlukasti
með 47,84 m en Erlendur einbeitti
sér að sleggjunni. Þar — i
sleggjukastinu — varð Óskar
Sigurpálsson, Á, annar með 47,52
m og Óskar kastaði 44,92 m.
Eins og áður segir sigraði Lára
Sveinsdóttir i tangstökki. Hún
varð einnig Reykjavikurmeistari
i 100 m. hlaupi á 12,5 sek. en Erna
Guðmundsdóttir, Á, hljóp á 12,6
sek. I kúluvarpi kvenna sigraði
Ása Halldórsdóttir, Á, með 9,69
m. og i spjótkasti Björk Eiriks-
dóttir, 1R. með 28,32 m.
•
Ingunn Einarsdóttir keppti i
Stokkhólmi i gær, en þrátt fyrir
ýmsar tilraunir hefur blaðinu
ekki tekizt að fá fréttir af árangri
hennar. Þá má geta þess að lok-
um. að Vilmundur Vilhjálmsson,
KR. er nú erlendis. Hann keppti
nýlega i 400 m. hlaupi i Danmörku
og náði sinum bezta tima á vega-
lengdinni — hljóp á 48,5 sekúnd-
um. —hsim.
Lee Trevino, sem sigraði I meistarakeppni meistaranna, f golfi I heiminum um siðustu helgi, er talinn
einhver litrikasti golfmaður, scm nú er uppi. Hann nýtur óhemju vinsælda og fylgja honum eftir i hvcrju
móti að jafnaði 15 til 20 þúsund manns. Hann gerir ótrúlegustu hluti og lcikur jafnan við hvern sinn
fingur, eins og t.d. á þessum myndum, þar sem hann hefur rekið niður langt pútt og fagnar þvi á 'sinn
sérstæða hátt.
Trevino
vann á
sjöundu
holu
Meistarakeppni meistaranna
þar sem þeir fjórir, sem hafa
sigrað i stærstu golfmótum
ársins i heiminum, mætast með
kúlur sinar og kylfur, fór fram
um siðustu helgi.
Þeir fjórir, sem þarna mættu
— og kepptu m.a. um 50 þúsund
dollara fyrstu verðlaun, nær 6
milljónir islenzkar — voru Gary
Player, sem vann brezku, opnu
keppnina og meistarakeppnina i
USA, Hale Erwin, sem vann
bandarisku opnu keppnina, Lee
Trevino, sem sigraði I PGA
keppninni og Bobby Nichols,
sem vann kanadisku opnu
keppnina.
Þeir léku 36 holur og að þeim
loknum var staðan þannig, að
Hále Erwin var á 148 höggum —
4 yfir par — Bobby Nichols á 143
höggum ’ og þeir Lee Trevino og
Gary Player á 139 höggum — 5
undir pari vallarins.
Hófu þeir þá aukakeppni um
titilinn og dollarana fimmtíu
þúsund og lauk henni ekki fyrr
en á sjöundu holu með sigri
Trevino, Er þetta með lengri
aukakeppnum um sigur i golf-
keppni atvinnumanna, þvi að
úrslitin hafa oftast verið ráðin á
annarri eða þriðju holu.
Sigurður Sigurðsson, ungi Ármenningurinn, sem er aðeins 16 ára, varð
Reykjavikurmeistari i fjórum greinum og náði stórgóðum árangri. Hér
kemur hann i mark i 200 m. á 22.4 sek. Björn Blöndal er I öðru sæti.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Valur eða Vík-
ingur í úrslit?
Púll Björgvinsson brotnaði ó œfingu hjó
Víking ígœrkvöldi
Vikingar urðu fyrir miklu áfalli
i gærkvöldi, en þá voru þeir með
siðustu æfinguna fyrir leikinn við
Val, sem fram fer i kvöld, er einn
þeirra bezti maður, Páll Björg-
vinsson, ristarbrotnaði á miðri
æfingunni.
Það þýðir að sjálfsögðu að hann
verður ekki með i þessum þýð-
ingarmikla leik í kvöld — leik,
sem getur úr þvi skorið hvort liðið
komst i úrslit i Bikarkeppni KSÍ
og einnig i Evrópukeppni bikar-
meistara á næsta ári.
Þá verða Vikingarnir einnig án
Þórhalls Jónassonar, sem verið
hefur þeim drjúgur i sumar, en
hann er farinn utan til náms.
Valsmenn verða með sitt sterk-
asta lið i kvöld, að undanskildum
Jóni Gislasyni, sem hefur átt
mjög góða leiki að undanförnu, en
hann er einnig farinn til útlanda
til náms.
Leikurinn i kvöld, sem er annar
leikur þessara aðila i undanúr-
slitum bikarkeppninnar, hefst kl.
17.30 — klukkan hálf sex — og
hefst hann þetta snemma til að
hægtverði að framlengja, ef liðin
verða jöfn að venjulegum leik-
tima loknum.
I fyrri leiknum þurfti að fram-
lengja um 2x15 minútur eftir að
staðan var 1:1 i leikslok. I fram-
lengingunni skoruðu Valsmenn
mark og höfðu þeir yfirhöndina,
þar til aðeins 40 sekúndur voru
eftir, að Vikingar jöfnuðu aftur.
Liðið, sem sigrar i kvöld, mætir
Akurnesingum i úrslitaleik
keppninnar, en sá leikur fer fram
á Laugardalsvellinum n.k.
laugardag. —klp—-
Gull tekið af
kraftakörlum
Tveir lyftingamenn á Asíuleikunum sviptir
gullverðlaunum vegna lyfjanotkunnar
Tveir lyftingamenn, sem unnið
höfðu til gullverðlauna á sjöundu
Asiu-leikunum i Teheran, voru i
gær sviptir verðlaununum, þar
sem það kom fram i læknisskoð-
un, að þeir höfðu neytt örvandi
lyfja i keppninni — ephedrine.
Það voru Kim Joong-il frá
Norður-Kóreu, sem hlaut þrenn
gullverðlaun I þungavigt, og Jap-
aninn Masashi Ohuchi, sem hlaut
gullverðlaun i milliþungavigt.
Það var aðalframkvæmdastjóri
alþjóðalyftingasambandsins,
Oscar State, sem tilkynnti, að
þessir tveir lyftingamenn hefðu
verið sviptir verðlaunum sinum.
Jafnframt sagði hann, að ekki
hefði komið fram við læknisskoð-
un að aðrir lyftingamenn hefðu
notað örvandi lyf i keppninni.
Tveir japanskir læknar skoðuðu
Ohuchi og niðurstaða þeirra var
samþykkt af Japönum.
I frjálsiþróttakeppninni i leik-
unum i gær stóð keppnin sem áð-
ur milli Japan og Kina. Hsiao
Chieh-Ping, Kina, sigraði i lang-
stökki kvenna á undan Kang
Þau „stóru"
byrjuð!
Stóru liðin i 1. og 2. deild hófu
keppni i deildabikarnum enska i
gærkvöldi. Þá voru margir leikir
háðir —og margir verða I kvöld.
Úrslit i gærkvöldi.
Arsenal-Leicester 1-1
Bolton-Norwich 0-0
Bury-Doncaster 2-0
Coventry-Ipswich 1-2
C.Palace-Bristol C. 1-4
Huddersfield-Leeds 1-1
Liverpool-Brentford 2-1
Manch.City-Scunthorpe 6-0
Northampton-Blackburn 2-2
Nottm. For.-Newcastle 1-1
Preston -Sunderland 2-0
QPR-Orient 1-1
Sheff.Utd.-Chesterfield 3-1
Southampton-Notts Co. 1-0
WBA-Millvall 1-0
en Japaninn
titli sinum i
i gær — niunda
skiptust verð-
G S B
Hópferð Fram ó
leikinn við Real
Knattspyrnufélagið Fram mun
efna til hópferðár i sambandi við
leik þeirra i Evrópukeppni bikar-
hafa við hið fræga spánska lið
Real Madrid, en það hefur á að
skipa einum af þekktustu leik-
mönnum heims i dag t.d. Gúnter
Netzer og Paul Breitner.
Farið verður beint til Madrid
30. sept. og strax daginn eftir
spilar Fram við Real á einum
stærsta leikvangi Evrópu
Santiago Bernadeu, sem tekur
um 125.000 áhorfendur. Miðviku-
daginn 2. okt mun svo verða farið
til Torremolinos á Malaga, sem
er einn þekklasti baðstaður á
Spáni, og dvalið þar til 10. okt.
Siðan flogið beint heim.
Ferðin mun kosta um 29.000 kr.
og er innifalið i henni hótel i
Madrid, mjög nálægt knatt-
spyrnuleikvanginum, og fæði þar
að hálfu. I Torremolinos verður
búið i hótel-ibúðum, sem eru
mjög miðsvæðis og er þar m.a.
einka-sundlaug.
Flogið verður með Air Viking
og mun vélin fylgja hópnum
meðan á dvölinni á Spáni stendur
yfir. Nú þegar er byrjað að taka á
móti pöntunum og munu þeir,
sem áhuga hafa á þessari ferð
snúa sér til ferðaskrifstofunnar
Sunnu.
Yueh-Li, Kina,
Murpfushi hélt
sleggjukasti.
Eftir keppnina
keppnisdaginn -
laun þannig:
Japan
Kina
Iran
N-Kórea
S-Kórea
Thailand
Burma
Israel
Filippseyjar
Indland
Singapore
Indónesia
Mongólia
Irak
Pakistan
Malasia
Afganistan
Týndi EM-
gullunum
Irena Szewinska, hlaupa-
drottningin pólska, seni
sigraði i 100 og 200 m
hlaupum á EM i Róm, hefur
tapað gullverðlaunum sinum
i þessum greinum. Ilún týndi
þeim á leið til Helsinki, þar
sem hún keppti i gær. \
flugvellinum I Róm á mánu-
dag lagði hún handtösku frá
sér á rangan stað og i henni
voru gullverðlaunin. „Það er
undir heiðarleik finnandans
komið hvort ég fæ gullið
aftur”, sagði lrena við
blaðamenn i llelsinki.
Hún keppti i 200 m hlaupi
a alþjóðamótinu i gær og
sigraði auðveldlega á 22.4
sek. Riita Salin. sem hlaut
gull fvrir Finnland i 400 m á
EM. varð önnur á 22.8 sek. og
i 3ja sæli var Mona-Lisa
Pusiainen, Finnlandi. á 23.00
sek. en hnn varð 3ja i þessari
grein á EM— á eftir Irenu og
Renötu Steicher.
Olympiumeistarinn Lasse
V'iren sigraði i 5000 m i
Helsinki á 13:26.0 min.. en
næstur var Anders
Gærderud, Sviþjóð, á 13:26.6
min. Þá kom Steve
Prefontaine, USA, á 13:27.4
min. og siðan EM-meistar-
inn i hindrunarhlaupi,
Bronislaw Malinowski, Pól-
landi, á 13:28.0 mín. i kúlu-
varpi sigraði A1 Feuerbach,
USA, með 20.77 m. — lang-
b e z t u r. E M - m e i s t a r i n n
Pentti Kahma sýndi fram á,
að það var engin tilviljun að
hann sigraði i Róm. Hann
kastaði 63.12 m en Danek,
Tékk. varð annar með 61.04
m. i 800 m sigraði Pekka
Vasala á 1:48.7 min. og
finnska stúlkan Pirjo Wilmi
hljóp 400 ni á 52.8 sek. Ossi
Karttuenen sigraði i 200 m á
21.1 sek. tveimur sekúndu-
brotum á undau Raimo
Vilen. .—hsim.