Tíminn - 28.04.1966, Blaðsíða 2
2
KONI
KONI
HÖGGDEYFAR
FYRIRLIGGJANDI
í EFTIRTALDAR
BIFREIÐIR:
Chevrolet fól'ksbíla . 1949—‘64
Ohevrolet Chevelle . 1964—‘65
Chevrolet vörubíla . 1955—‘58
Dodge fólksbíla 19551—‘63
Ford fólksbíla . 1949—‘62
LandRover . 1954—‘64
Mercedes Benz . 1956—‘61
Opel Karavan . 1955—‘63
Opel Rekord . 1955—‘63
Opél Kapitan . 1958—‘63
Rambler Classic . 1962—‘65
Scania Vabis
Skoda Oktavía ................... 1956—‘64
Volkswagen 1200 ................. 1960—‘64
Volga
Willys Jeep ..................... 1941—‘52
SMYRILL
S
Laugavegi 170, sími 1-22.60.
VERZLUN TIL SOLU
í gamla bænum, lítill lager, góð húsakynni, ný
innrétting. Hefur verzlað með barnafatnað,
stykkjavöru og vefnaðarvöru. Ágætt fyrir tvær
konur sem vilja vinna sjálfstætt. Þeir sem vilja fá
nánari upplýsingar sendi tilboð sem fyrst eða fyr-
ir 10. maí, merkt „1877”.
Lausar stöður hjá
Rafmagnsveitunni
Staða bókhaldara
— aðstoðarmanns í söludeild
— aðstoðarmanns í gjaldskrárdeild
Upplýsingar hjá fjármálafulltrúanum, Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu.
Ekki svarað í síma.
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR.
NORRÆN KVOLDVAKA
í Tjarnarbúð niðri fimmtudaginn 28. apríl kl.
20.30. Prófessor dr. phil. Hakon Stangerup flytur
erindi: Menningarsamvinna Norðurlanda.
Litkvikmynd frá Færeyjum verður sýnd að er.
indinu loknu.
Félagsmenn, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Dansk-íslenzka félagið, Norræna félagið.
TIMINN FIMrwTUDAGUR 28. apríl 1966
Guðión Jónsson
18. apríl síðastliðinn,' andaðist
að Elliheimilihu Grund Guðjón
Jónsson, fyrrum bóndi í Tóarseli
í Breiðdal.
Guðjón var fæddur 23. ágúst
1874, að Flögu í Skriðdal. For-
eldrar hans voru hjónin Guðrún
Rannveig Guðmundsdóttir og Jón
Sölvason bóndi þar. Móður sína
missti Guðjón við komu sína í
þennan heim og föður _ sinn er
hann var barn að aldri. Ólst hann
upp hjá afa sínum Guðmundi og
Halldóru móðursystur sinni, er
gekk honum í móður stað og
dvaldi hjá henni öll sín uppvaxt-
arár. Síðar, er hann hóf búskap
dvaldi Halldóra hjá honum og and
aðist á heimili hans að Tóarseli
í hárri elli.
Árið 1902 giftist Guðjón sinni
ágætu konu, Jónínu S. Eiríksdótt-
ir frá Djúpavogi, og byrjuðu þau
búskap að Borg í Skriðdal og
bjuggu þar til ársins 1911, er þau
keyptu Tóarsel í Breiðdal og
fluttu þangað.
Árið 1944 brugðu þau búi og
seldu jörðina tengdasyni sínum,
Pétri Guðmundssyni. Hugðust þau
þá flytja að Hvammi í Dölum
vestur til Unnar dóttur sinnar og
séra Péturs Oddssonar prests þar,
en hér fór sem oftar að enginn
ræður sínum næturstað. Jónína
varð eftir í Reykjavík er þau voru
á vesturleið og lagðist inn á
Landakotsspítala til læknisaðgerð-
ar, sem allir vonuðu að væri hættu
laus, en eftir fáa daga var Jón-
ína dáin. Þetta var mikið áfall
fyrir Guðjón, er unni konu sinni
mjög, og var nú þar að auki að
setjast að í ókunnu héraði.
Árið 1957 fluttist Guðjón aftur
til Austurlands, fyrst til Ásgerðar
dóttur sinnar að Egilsstöðum, en
1959 til Borghildar dóttur sinnar
heim að Tóarseli og dvaldi þar
síðustu árin við sæmilega heilsu,
þar til fyrir tveim mánuðum að
hann veiktist hastarlega og var
fluttur til Reykjavíkur til
lækninga.
Jónína og Guðjón eignuðust 10
myndarleg og velgefin börn, er
öll hafa reynzt hinir nýtustu borg-
arar. Er það mikil gæfa að geta
skilað slíku dagsverki, sem hlýtur
að veita birtu og yl, er litið er
að leiðarlokum fyrir farinn veg.
Börn þeirra eru þessi Eiríkur
Karl, bóndi Skarði Breiðdal,
giftur Björgu Ólafsdóttur. Guðrún
Tóarseli
dáin, var gift Pétri Guðjónssyni,
útgerðarmanni Vestmannaeyjum.
Borghildur, gift Pétri Guðmunds-
syni, Tóarseli _ Breiðdal. Hansína
gift Sveini Ólafssyni, járnsmið
Reykjavík. Guðmundur hárskeri,
giftur Ragnheiði Sigfúsdóttur
Reykjavík. Katrín, gift Helga Sig
urjónssyni bifreiðastjóra, Reykja-
vík. Sigurbjörg gift Guðmundi
Sölvasyni, fsafirði. Ásgerður, gift
Einari Ölasyni rafvirkameistara
Egilsstöðum. Óskar dó ungur. Unn
ur ekkja séra Péturs Oddsonar,
prests í Hvammi. Auk þess ólu
þau upp Óskar Jónsson trésmið
Seltjarnarnesi og reyndust hon-
um sem beztu foreldrar.
Ég, sem þessar línur rita, hafði
þekkt Guðjón frá því ég man
fyrst eftir mér sem lítill drengur.
Hann var næsti nágranni okkar,
og einlægur vinur foreldra minna.
Fæ ég og mitt fólk seint fullþakk-
að þá vináttu og góðvild, er þau
hjón sýndu okkur bæði fyrr og
síðar, og dýrmætar eru mér allar
þær ljúfu minningar, sem ég á um
þau frá uppvaxtar-árum mínum.
Guðjón bjó góðu búi í Tóarseli
og notadrjúgu, enda voru þau
þau hjón mjög samhent um að
fara vél með og nýta allt sem
bezt. Umgengni öll var til slíkrar
fyrirmyndar bæði utan húss og
innan að þess eru fá dæmi. Hirð-
ing hans á gripahúsum og hey-
stæðum var slík, að ég hef hvergi
séð jafn snyrtilega umgengið hVar
sem litið var.
Guðjón var fríður sýnum, meðal
maður á vöxt, kvikur í hreyfing-
um og fullur af þrótti, sístarfandi.
Og árrisull var hann svo af bar,
„morgunstund gefur gull í mund.“
Hann var greindur vel, en dulur
nokkuð og vissu fáir að hann
hafði það til að kasta fram vísum,
m.a. um hesta sína, sem hann átti
marga góða, og hafði af þeim
mikið yndi. Guðjón tók nokkurn
þátt í félagsmálum og var einlæg-
ur samvinnumaður, ekki bara í
orði, heldur einnig á borði, enda
var svo um næstu nágranna hans.
Þeir bundust samtökum að leysa
þau mál, er ekki voru ahðleyst
af einum, en urðu léttara unnin,
er fleiri komu til. „Þeir áttu sam-
an jarðvinnslutæki, spunavél og
fleira. Ekki mun algengt að fjórir
dalabændur kaupi saman bát og
geri út á vorvertíð í hjáverkum,
en það gerðu þeir nágrannarnir.
Á árunum milli 1920 og 1930 kom
göngufiskur, oftast í kringum sum
armál, og var þá góð veiði út af
suðurfjörðum. Þá keyptu þeir sam
an bát Guðjón, Jón á Þorvalds-
stöðum, Björgvin á Hlíðarenda og
Lárus á Gilsá og gerðu út á vor-
fisk. Réru þeir sjálfir á bátnum
og fiskuðu vel, var fiskurinn bæði
hertur og saltaður svo sem þurfti
til heimilanna, en hitt lagt í Kaup-
félagið. Reyndist þetta góð búbót,
enda þurfti mikið til heimilanna,
þar sem þessir 4 menn áttu fyrir
að sjá 35 börnum samtals. AUtaf
gekk þetta snurðulaust og aldrei
kom til neinna leiðinda út af sam-
vinnu þessara manna. Þeir studdu
hver annan með ráði og dáð, og
undu svo glaðir við sitt.
Tóarsel er eini bærinn í Norð-
urdal, þar sem sér yfir alla byggð-
ina í dalnum og veit ég, að það
hefur glatt Guðjón að horfa yfir
ræktun og uppbyggingu dalsins
okkar og verða vitni að henni á
þessum flóttatímum úr sveitunum.
Þessi litli dalur, sem áður taldi
aðeins sex bæi hefur nú síðustu
árin bætt við sig þremur, svo nú
standa níu reisulegir bæir þar sem
áður voru sex.
Guðjón var einlægur trúmaður,
og óska ég honum góðrar ferðar
yfir móðuna miklu, þar sem kona
hans og aðrir ástvinir, munu veita
honum móttökur í landi morgun-
roðans.
Sigurður Jónsson,
frá Þorvaldsstöðum.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu.
GUÐM. ÞORSTEINSSON,
gullsmiður,
Bankastræti 12.
BIFVÉLAVIRKI
Bifvélavirki eða maður vanur bílaviðgerðum ósk_
ast nú þegar. Upplýsingar í síma 3 86 90.
KJÖRSKRÁR
vegna prestskosninga í hinu nýja Garðaprestakalli
liggja frammi til 5. maí í barnaskóla Bessastaða-
hrepps hjá sveitarstjóra Garðahrepps og að Kálfa-
tjörn.
Kjörstjórnirnar.