Tíminn - 28.04.1966, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 28. aprfl 1966
Otgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og lndriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar- Tómas Karlsson Aug-
lýsingastj.: SteingrimuT Gíslason Ritstj.skrifstofur l Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7 Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur,
simi 18300. Askriftargjald kr 95.00 á mán lnnanlands — í
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA hJ.
Næststærsti flokkurinn
í kaupstöðum og
kauptúnum
Lokið er nú framboSum til sveitarstjórnarkosning-
anna, sem eiga að fara fram 22. maí næstkomandi. Kosn-
ing utan kjörstaða er lí'ka þegar hafin.
1 seinustu sveitarstjórnarkosningum, sem fóru fram
27. maí 1962 í kaupstöðum og kauptúnum, sem höfðu
fleiri en 300 íbúa, gerðust þau sögulegu tíðindi, að Fram
só'knarflokkurinn náði því marki að verða næststærsti
flokkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn hélt forustusætinu
með 29.697 atkvæðum og 85 fulltrúum í bæjar- og sveit
arstjórnum, þegar kaupstaðir og kauptúnin voru lögð
saman. Næst kom Framsóknarflokkurinn með 10.461
atkv. og 41 fulltrúa, þá Alþýðubandalagið með 9721
atkv. og 25 fulltrúa og loks Alþýðuflokkurinn með 8497
atkv. og 30 fulltrúa. Allskonar sambræðslulistar fengu
6594 atkv. og 48 fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn stóð yfir
leitt ekki að þessum listum og má því skipta fylgi þeirra
milli hinna flokkanna þriggja. Óhætt er að fullyrða, að
Framsóknarflokkurinn hafi átt ríflegastan hluta af þessu
fylgi, en Alþýðuflokkurinn langminnstan. Séu kaupstað-
irair teknir sér, hélt Framsóknarflokkurinn þar einnig
sæti, sem næststærsti flokkurinn, með 9.480 atkv. og
23 fulltrúum. Alþýðubandalagið fékk 9303 atkv. og 20
fulltrúa, og Alþýðuflokkurinn 7571 atkv. og 18 fulltrúa.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 27.390 atkv. og 52 fulltrúa.
Bræðslulistar fengu 4.426 atkv. og 15 fulltrúa.
Fyrir Framsóknarflokkinn var það mikill sigur að
ná því marki að verða næststærsti flokkurinn í kaup-
stöðum og kauptúnum, þar sem hann hafði upphaflega
skipt þannig verkum milli sín og Alþýðuflokksins, að
hann sneri sér aðallega að sveitunum, en Alþýðuflokk.
urinn að bæjunum. Þegar Alþýðuflokkurinn hörfaði af
upphaflegum grundvelli sínum, skapaðist Framsóknar-
flokknum einnig það verkefni að verða forsvarsflokkur
frjálslynds og framsækins fólks í kaupstöðum og kaup-
túnum engu síður en í sveitum.
Að sjálfsögðu verður engu endanlega spáð um úrslit
þeirra sveitarstjórnarkosninga, sem nú eru framundan.
Óhikað má þó fullyrða, að Framsóknarflokkurinn mun
vel halda sæti sínu sem næststærsti flokkurinn í kaup-
stöðum og kauptúnum Víðast eru spádómar þeirra, sem
óháðir eru, honum hagstæðir, m. a. í Reykjavík.
Þetta er líka eðlilegt. Fulltrúar Framsóknarflokksins
í bæjar- og sveitarstjórnum hafa haldið vei á
málum á yfirstandandi kjörtímabili. Þeir hafa hvar-
vetna haldið uppi merki raunhæfrar umbótastefnu.
Framboðslistar flokksins í kosningunum eru undan-
tekningarlaust skipaðir reyndu og völdu fólki. Jafnt í
kaupstöðum og kauptúnum vex sá skilningur, að það
sé jafnt viðkomandi stöðum og /þjóðinni i heild fyrir
beztu að efla víðsýnan og ábyrgan framfaraflokk eins
og Framsóknarflokkurinn er.
En hagstæðir spádómar eru ekki einhlítir, þótt óvil-
hallir menn standi að þeim. Enginn mikill sigur vinnst,
nema vel sé unnið. Þessvegna má enginn Framsóknar
maður liggja á liði sínu í þessum kosningum. Því betur
sem er unnið, því meiri verða launin 22. maí.
TfMINN
5
r ,M ■ ■■■—- ■■■ ■ -M- ... ■-■I
ERLENT YFIRLIT
Bandaríkjamenn og Bosch
Forsetakosningar fara fram í Dominikanska lýðveldinu 1. júní n.k.
UM SEINUSTU helgi var lið-
ið rétt ár síðan uppreisnin
hófst í Dominikanska lýðveld-
inu. Uppreisn þessi var gerð
af frjálslyndum mönnum og
hafði það takmark að koma aft-
ur til valda eina forsetanum,
sem náð hefur völdum þar í
frjálsum kosningum, Juan
Bosch. Hann sigraði í forseta-
kosningunum, sem fóru fram
1962, en árið áður hafði Tru-
jillo, sem verið hafði einræðis-
herra um langt skeið, verið
myrtur. Valdatími Bosch varð
hins vegar ekki langur, því að
1963 hrakti herinn hann frá
völdum og setti upp leppstjórn
sem raunverulega var stjórnað
af afturhaldssömum hershöfð,-
ingjum. Bosch fór úr landi og
var hann því ekki óvanur að
dvelja erlendis, en hann hafði
lengstum verið landflótta í
stjórnartíð Trujillos. í útlegð-
inni hafði Bosch einkum feng-
izt við Skáldsagnagerð og þykja
sumar smásögur hans góður
skáldskapur. Hann kom heim
eftir fráfall Bosch og var þá
kjörinnn frambjóðandi vinstri
manna, annarra en kommún-
ista. Milli Bosch og Kennedys
Bandaríkjaforseta var góð sam
búð. Hins vegar hefur núv.
stjórn Bandaríkjanna verið
fremur andvíg Bosch, einkum
þó eftir að hann gagnrýndi
innrás Bandaríkjahers á síð-
astl. vori.
Eins og áður segir, hófu
frjálslyndir menn undir for-
ustu ungra herforingja upp-
reisn fyrir réttu ári og hugðust
koma Bosch til valda að nýju,
eins og hann átti líka löglegt
og lýðræðislegt tilkall til. Vafa
lítið hefði þessi uppreisn heppn
azt, ef Bandaríkjastjórn hefði
ekki skorizt í leikinn af ótta
við, að hér væru kommúnistar
fyrst og fremst að verkií Hún
sendi þvi her til landsins og
kom hann í veg fyrir, að bylt-
ingartilraunin tækist. Eftir
langt og mikið þóf náðist sam-
komulag um, að einn af ráð-
herrunum úr stjórn Bosch
yrði forseti til bráðabirgða og
forsetakosningar látnar fara
fram. Önnur Ameríkuríki, sem
voru óánægð með íhlutun
Bandaríkjastjórnar, áttu mikinn
þátt i þvi að þessi lausn náð-
ist. Annars er alveg eins lík-
legt, að Bandaríkin hefðu stutt
stjórn hægri sinnaðra hershöfð
ingja til valda.
ÞAÐ ER NÚ ákveðið, að um-
ræddar forsetakosningar fari
Bologner
fram 1. júní næst komandi og
er framboðsfresturinn liðinn.
Forsetaefni eru þrjú. Bosch,
sem kom heim úr útlegðinni á
síðast liðnu hausti, verður for-
setaefni vinstri manna. Hægri
menn hafa hins vegar tvo fram
bjóðendur. Annar þeirra, Joa-
quim Balaguer, sem var for-
seti seinustu stjórnarár Tru-
jillos, en Trujillo tók sér aldr-
ei forsetanafn sjálfur, heldur
lét ýmsa vikaliðuga aðstoðar-
menn sína bera það heiti. Bala-
guer reyndist honum þægt verk
færi, en annars er hann sagð-
ur fremur greindur maður, en
viljalítill. Þriðji frambjóðand-
inn er Rafael Bonnelly, sem
varð bráðabirgðaforseti fyrst
eftir fráfall Trujillos, settur í
það embætti af hægri sinnuð-
um hershöfðingjum.
EINS OG HORFUR eru tald-
ar nú, þykir víst, að aðalbar-
áttan verði milli þeirra Bosch
og Balaguers. Yfirleitt er jþó
Bosch talinn sigurviss. Þó er
sigur hans ekki talinn alveg
öruggur, ef Bonnelly drægi sig
til baka, en Bandaríkjamenn
eru sagðir vinna að því. Vitað
er, að þeir æskja Balaguers
sigurs, því að þeir telja hann
líklegri til góðrar samvinnu við
Bandaríkin en Bosch. Sagt er
þó, að þeir séu búnir að sætta
sig við þá tilhugsun, að Bosch
nái kosningu.
Aðaláróðurinn gegn Bosch er
sá, að hann sé 'háður kommún-
istum, þótt hann sé ekki sjálf-
ur kommúnisti. Það hefur
styrkt þennan áróður, að sam-
tök, sem eru talin undir stjóm
kommúnista, hafa lýst yfir
stuðningi við Bosch. Bosch hef
ur svarað með því að lýsa yfir,
að hann hafi ekki óskað eftir
þessum stuðningi og hann kæri.
sig síður en svo um hann.
Hægri menn halda því fram, að
þetta séu aðeins látalæti hjá
honum.
ÞVÍ VERÐUR vafalítið veitt
mikil athygli, hvernig þessar
kosningar fara fram og hvað
tekur við að þeim loknum.
Það skiptir áreiðanlega miklu
fyrir álit Bandaríkjamanna í
Suður-Ameríku, að kosningarn
ar fari vel fram og ekki beri
mikið á beinni amerískri íhlut-
un, en bandariskur her dvelur
enn í Dominikanska lýðveldinu
og getur ráðið því, sem hann
vill ráða. Þá skiptir það ekki
síður máli, ef Bosch sigrar,
að Bandaríkin geri ekki neitt
til að bregða fyrir hann fæti,
heldur bjóði honum vinsamlegt
samstarf. Af því myndi dreg-
in sú ályktun, að Bandaríkin
kjósi sér ekki eingöngu
hægri öflin til samstarfs, held
ur geri sér ljóst, gð til að vinna
raunhæft gegn kommúnisman-
um skiptir höfuðmáli að
styðja framfaraöflin til for-
ustu. Það sjónarmið hefur
Bandarikjamenn skort í Viet-
nam og því er komið þar sem
komið er. Þ. Þ.
A