Vísir - 17.10.1974, Síða 1
64. árg. —Fimmtudagur 17. október 1974 —203. tbl.
HVAR EIGA VONDIR AÐ VERA?
— á Grettisgötu eða við Laugaveg?
Kaupmenn við Laugaveginn
hafa afhent borgarstjóra undir-
skriftalista, þar sem þeir mót-
mæla allir sem einn þeirri ráð-
stöfun að taka bflastæði af
Laugaveginum. Benda þeir á, að
engin bilastæði hafa verið
ákveðin i stað þeirra, sem af eru
tekin.
,,Það segir sig sjálft,” sagði
einn þeirra i viðtali við Visi, ,,að
fólk kaupir ekki þungavöru til að
bera langar leiðir. Umferðin við
Laugaveginn hefur verið það,
sem hefur haidið i okkur lifinu, en
nú munu bileigendur beina kaup-
um sinum þangað, sem bilastæði
er að fá. Og ég sé ekki, hvar hægt
væri að koma fyrir bflastæðum i
stað þeirra, sem nú eru af okkur
tekin. Það hefði verið nær að gefa
strætisvögnunum þann tima, sem
þeir þurfa til að komast leiðar
sinnar.”
Og svo er það annað vandamál:
Hvert eiga bflarnir af Grettis-
götunni að fara — sjábaksiðu.
SH.
Jobert um Kissinger:
Draumóra-
maður og
upptekinn
af eigin
gófum
— sjó bls. 5
•
Hvernig
verður
frímerki til?
— listamenn standa
að mestu
utangarðs
— bls. 3
Hótelbruni í Seoul:
Slapp lifandi á
furðulegan hátt
Konurnar sleppa
gíslum sínum
— aftur ró i
r
fangelsum N-lrlands
— sjá erlendar
fréttir á bls. 5
•
Átti að koma
hálfu mann-
kyninu á
taugahœli?
— bls. 7 um
kvikmyndahúsin
Starfsmenn sláturhússins
veiktust af skemmdu kjöti
— 50—60 veiktust lítils háttar, örfáir þurftu lœknis við
Brotalöm á kerfinu:
Sviptir
ökuleyfi,
- en aka
engu að
síður
— bls
sem kom upp í mötuneyti
þar i bæ á mánudaginn.
Matareitrunin kom upp I mötu-
neyti Sláturhússins i Borgarnesi,
en maturinn þar kemur frá
hótelinu i Borgarnesi. Umrætt
kvöld voru notaðir kjötafgangar i
sósu, og taldi héraðslæknirinn, að
notað hefði verið of gamalt kjöt I
þetta sinn. „Við vitum, af hverju
eitrunin kom, en ekki hvaða sýkil
var um að ræða. Kjötið var sent
suður I rannsókn, en niðurstaða
er ekki komin,” sagði Valgarð.
t sláturhúsinu vinna um 160-170
manns, en þeir, sem eiga heima
næst húsinu, borða gjarnan
heima hjá sér á kvöldin, þannig
að færri urðu fyrir óþægindum en
ella hefði orðið. „Menn byrjuðu
að finna fyrir veikindum um
þrjúleytið um nóttina,” sagði
Valgarð. ,,Þeir voru flestir
komnir til vinnu aftur um hádegi
á þriöjudag.”
Gunnar Aðalsteinsson, slátur-
hússtjóri i Borgarnesi, vildi sem
minnst um málið segja, en taldi,
að öll vinna hefði veriö komin 1
eðlilegt horf i gær. En á þriðjudag
var aðeins hægt að vinna með
hálfum afköstum, sagði hann.
Dagsslátrun i húsinu er rúmlega
tvö þúsund, þegar allt er með
felldu.
Slátrun hefur gengiðvel að öðru
leyti, sagði Gunnar, og er aðeins
eftir að slátra tæplega 20 þús.
fjár. Fallþungi er liklega heldur
lakari en i fyrra.
-SH.
að búa þar,” sagði Guðbjörg.
„Hitt er annað mál, að ég er
fædd og uppalin hér i Vest-
mannaeyjum og á bágt með að
trúa þvl, að ég eigi eftir að flytj-
ast héðan.”
Og þessi unga Eyjastúlka er
sú nlunda i röðinni af þeim
stúlkum, sem taka þátt I keppn-
inni um glæsilega útsýnarferð
til Spánar eða ttallu. Ef sú, sem
ferðina hreppir, kýs að fara til
ttalíu, getur hún valið sér Ibúð
eða hótelherbergi við Gullnu
ströndina, en þar er baöströndin
8 km á lengd og allt að 100 m á
breidd, þannig að stúlkan okkar
ætti ekki að verða i vandræðum
með að teygja þar úr sér til að
verða brún — á meðan við hér
heima hnýtum treflana fastar
um hálsinn og reynum aö sæta
lagi að skjótast á milli húsa þeg-
ar minnst rignir...
—ÞJM
//Sem betur fer var þetta
ekki alvarlegt. Af 50-60
manns/ sem veiktust,
þurftu aðeins þrír eða
fjórir að leita læknis-
hjálpar," sagði Valgarð
Björnsson, héraðslæknir í
Borgarnesi, er við spurð-
um hann um matareitrun,
Þessa mynd af Guðbjörgu tók ljósmyndari VIsis i Eyjum, Guðmundur Sigfússon, við sólsetur eitt kvöld-
ið i siðustu viku.
Hún er eina stúlkan í
iðnskólanum í Eyjum
Hún heitir Guðbjörg Svein-
björnsdóttir og er eina stúlkan,
sem stundar nám við iðnskólann
I Vestmannaeyjum, en þar eru
hins vegar um 70 til 80 strákar.
„Það er önnur stelpa að koma i
skólann á næstu dögum. Hún er
að læra hárgreiðslu eins og ég,”
sagði Guðbjörg i stuttu viðtali
við Visi.
„Ég er á fyrsta ári I hár-
greiðslunáminu,” hélt Guðbjörg
áfram. Og hún sagði okkur lika,
að hárgreiðslustofurnar I Eyj-
um væru tvær.
Guðbjörg er 17 ára gömul og
hefur þvl nýlega lokið prófi frá
gagnfræðaskóla. „Fjórða bekk-
inn tók ég i Flensborgarskóla i
Hafnarfirði,” segir hún. „Ég
var I Hafnarfirði fyrstu mánuð-
ina eftir gosið og þvi lá beinast
við að stunda nám við gagn-
fræðaskólann þar.”
„Hvernig mér llkaði við
Hafnarfjörð? Mjög vel. Það er
mjög vinalegur bær og fólkið
þar vingjarnlegt. Ef ég kæmi til
með að flytja til lands einhvern
tima, þá gæti ég vel hugsað mér
Nr. 9