Vísir - 17.10.1974, Blaðsíða 6
Vísir. Fimmtudagur 17. október 1974
A
VÍSIR
tJtgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulitrúi:
Fr^ttastj. erl. frétta:
' Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
t lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Nýtt útvarpsráð
Kosningu manna i útvarpsráð hefur verið mis-
jafnlega háttað siðan Rikisútvarpið hóf starfsemi
sina. 1 upphafi var ráðið skipað fulltrúum ýmissa
stétta og stofnana. Þar skyldu sitja prestur,
kennari og fulltrúi Háskóla íslands, svo að nokkr-
ir séu nefndir. Á timabili, eða frá 1934 til 1939,
var hluti ráðsins kjörinn af skráðum útvarpsnot-
endum. Lengst af, eða frá 1939, hefur Alþingi
kjörið útvarpsráð hlutfallskosningu og svo er
enn. Þótt menn hafi aldrei verið á eitt sáttir um
réttmæti þess, að Alþingi kysi útvarpsráð póli-
tiskri kosningu, hefur ekki náðst samstaða um
aðra betri leið.
Frá 1942 fram til þess að núverandi útvarpslög
tóku gildi á árinu 1971 kaus hvert nýkjörið Alþingi
nýtt útvarpsráð. 1 lögunum frá 1971 var þessu
breytt á þann veg, að útvarpsráð skyldi kjörið til
4 ára án tillits til þingkosninga. Núverandi út-
varpsráð var kosið 1971 og á þvi að óbreyttu að
sitja út næsta ár.
Rökin fyrir þessari breytingu voru þau, að með
henni yrði útvarpsráð og þar með Rikisútvarpið
ekki nátengt stjórnmálabaráttunni. Meiri festa
mundi skapast i störfum útvarpsráðs og stofn-
unarinnar i heild, þvi að mannaskipti yrðu ekki
eins tið og ella gæti orðið. Auk þess var talið að
nýskipanin væri meira i samræmi við ,,hug-
myndir samtiðarinnar um sjálfstæði Rikisút-
varpsins” eins og segir i greinargerð laganna.
öll eru þessi rök skynsamleg. Sú ábyrgð hvildi
auðvitað á fyrsta ráðinu, sem kjörið var sam-
kvæmt hinum nýju lögum, að hrinda hugmyndum
þeim, sem að baki þeirra lágu, i framkvæmd.
Reynslan er hins vegar ólygnust. Miðað við starf
þess útvarpsráðs, sem hefur borið þessa ábyrgð
i þrjú ár, er ekki unnt að sjá, að það hafi verið
fjarlægara stjórnmálabaráttunni en fyrri ráð.
Mikill styr hefur staðið um ráðið. Það hefur bæði
þótt pólitiskt i meira lagi og of afskiptamikið um
alla dagskrárgerð.
T.d. um það hvernig meirihluti núverandi
útvarpsráðs litur á hlutverk sitt má rifja upp
eftirfarandi: Njörður P. Njarðvik, formaður
ráðsins, komst svo að orði i hljóðvarpinu á
sinum tima, að það hefði alvarlegar afleiðingar
fyrir ,,menningarpólitik rikisstjórnarinnar”, ef
ekki fengist hækkun afnotagjalda Rikisútvarps-
ins. Hin tilvitnuðu orð verða ekki skilin á annan
veg en þann, að meirihluti ráðsins hafi talið það
hlutverk sitt að framfylgja ,,menningarpólitik”
vinstri stjórnarinnar, hvað sem i hugtakinu felst.
Formaður útvarpsráðs átti ekki við þá rikis-
stjórn, sem nú situr. Sú spurning hlýtur að vakna,
hvaða breytingar meirihlutinn hyggst gera á
dagskrá útvarpsins til að framfylgja „menning-
arpólitik” núverandi rikisstjórnar. Vandi meiri-
hlutans er mikill, þegar hann stendur frammi
fyrir þessu verkefni. Bezta lausnin fyrir hann er
að vera leystur frá störfum.
Hugmyndir samtiðarinnar um sjálfstæði Rikis-
útvarpsins felast ekki i þvi, að þessi volduga
stofnun sé notuð i þágu „menningarpólitiskra”
sjónarmiða stjórnvalda, hver sem þau eru. 1 út-
varpinu eiga öll sjónarmið að njóta jafnréttis.
—BB
Kommúnistaflokkur-
imi sœkir fram í
Portúgal
Kommúnistaflokkur Portúgals,
sem heldur flokksmönnum sinum
iundir járnaga og hefur sterkustu
itökin i verkalýöshreyfingunni,
|kemur nú fram af meiri festu sem
sterkasti stjórnmáiaflokkurinn i
| landinu.
Eftir að hafa starfaö I hálfa öld
kundir yfirboröinu biölar flokkur-
inn nú ákaft til vinstri sinnanna I
Iþjóömálahreyfingu hersins, sem
[er afliö á bak viö rikisstjórnina.
Alvaro Cunhal, flokksleiðtog-
linn, sem var 13 ár i útlegð i
lAustur-Evrópu, hefur hlotiö góð-
[ar undirtektir frá Vasco Gon-
lcalves forsætisráðherra. Ráð-
[herrann fór fyrir skömmu sér-
Istökum viðurkenningarorðum um
[portúgölsku lýðræðishreyfing-
luna, sem lýtur forystu kommún-
[ista og ætlar að bjóða fram við
Iþingkosningarnar, sem fram eiga
[að fara fyrri hluta næsta árs.
Cunhal, sem sneri heim til
[Portúgals eftir byltinguna gegn
lafturhaldsstjórn Caetano i april,
.segist viss um, að herinn muni
Iframkvæma loforðiö um frjálsar
, kosningar. Hann vonar einnig, að
fflokkur hans, sem er hollur stefnu
.leiðtoganna I Moskvu, muni þá
fvinna góðan sigur.
Kosningarnar eiga að fara
|fram i marz á næsta ári. Þess
, sjást strax merki, að kommúnist-
far eru byrjaðir að herða tök sin á
verkalýðssamtökunum, Inter-
jsindical. Og þeir snúast harka-
,lega gegn öllum tilraunum hæg-
ffara vinstri manna eða mið-
, flokkamanna til að mynda eigin
| verkalýðsfélög. Cunhal sagði á
, nýlegum blaöamannafundi, að
|stofnun nýrra félaga mundi að-
, eins veikja stöðu þeirra, sem
ffyrir eru og kommúnistar ráða.
Cunhal svaraði aðeins þeim
(spurningum á blaðamannafund-
, inum sem lagðar höfðu verið fyrir
|hann skriflega, áður en hann
. hófst. Hann sagöi, að erlend blöð
khefðu mistúlkað ætlunarverk
[flokks hans og neitaði þvi, að
|hann gæfi út „róandi yfirlýsing-
[ar” á sama tima og hann ynni að
|þvi undir yfirborðinu að undirbúa
; valdatöku sina.
„Flokkurinn er óvopnaður”,
sagði hann”. í Portúgal bera
(menn vopn til að verja lýðræðið
og þau eru i góðum höndum hjá
(hreyfingu hersins. Við treystum
þessari hreyfingu fullkomlega.
| Hún hefur þegar sannað, að hún
getur barizt við hlið fólksins”.
| Cunhal er ráðherra án ráðuneytis
I rikisstjórn Portúgals.
En heimildarmenn innan
kommúnistaflokksins eru hrein-
Iskilnari. „Þjóðmálahreyfing
hersins er vinstrisinnuð. Við
I skiljum sjónarmið þeirra og þeir
skilja okkur. Við eigum margt
I sameiginlegt — viö vitum hvað
við viljum og höldum uppi aga.
Sem hermenn geta þeir treyst
okkur. Sama er ekki unnt að segja
um aðra flokka”.
Cunhal, sem ekki hefur látið
mikið á sér bera síðan I bylting-
unni, en hefur á bak við tjöldin
IIIII IIII
□nd
m
Umsjon: B. B
Alvaro Cunhal, leiötogi kommúnistaflokks Portúgals. Hann er 61 árs og
var í þrettán ár I útlegö I Austur-Evrópu, áöur en hann sneri heim eftir
byitinguna i landi sinu i april á þessu ári.
fengið verkamenn til að falla frá
óhóflegum kaupkröfum, réðst ný-
lega harkalega á Antonio de
Spinola, fyrrum forseta. Fram til
þessa hefur enginn af fyrrverandi
samstarfsmönnum Spinola i
hernum eða rikisstjórninni ráðizt
gegn honum nema Cunhal. Hann
sakaði forsetann fyrrverandi um
að hafa ætlað að sölsa öll völd i
sinar hendur og koma á fót ein-
ræði fyrir tveimur vikum, þegar
skipulögð var fjöldaganga
Spinola til stuðnings.
Spinola sagði af sér forseta-
embættinu I kjölfar þess, að
viðfeðmar leiðir fyrir efnahags-
og menningarsamstarf.
Cunhal varaði flokksmenn sina
nýlega við þvi að ofmetnast af
framgangi sinum og sagði: „Það
yrðu mikil mistök, ef árangur, afl
og áhrif flokksins stigju okkur til
höfuðs. 1 sögu byltingaraflanna
eru kaflar um flokka, sem guldu
þess dýru verði að hafa ofmetið
afl sitt”.
Kommúnistaflokkur Portúgals
ætlar að halda flokksþing um
næstu helgi til aðmóta stefnu sina
og laga sig að breyttum aðstæð-
um. Aðeins einu sinni áður hefur
flokkurinn efnt til þings þannig,
að það væri ekki haldið I bága við
portúgölsk lög. Engu siður er
þetta sjöunda flokksþingið.
Flokkurinn neitar enn staðfast-
lega að skýra frá þvl, hve margir
skráðir flokksmenn hans eru.
Aldrei hefur heldur verið skýrt
frá þvi, hve margir eða hverjir
eiga setu i miðstjórn flokksins.
Michael Lockley, fréttaritari
Reuters, en á frásögn hans er
þessi grein byggð, hefur eftir
heimildarmanni sinum innan
kommúnistaflokksins: „Gamlar
venjur eru lifseigar. Ef eitthvað
kemur fyrir flokk okkar hér I
Portúgal, mun enginn hafa full-
komnar upplýsingar um starf-
semi okkar. Þannig lifðum við af i
hálfa öld”.
Mario Soares, utanrlkisráöherra I
stjórn Portúgals og leiötogi hæg-
fara sósialista. Flokkur hans
hefur horfiö I skugga kommún-
ista, eftir aö Spinola hrökklaöist
úr forsetaembættinu.
Vasco Goncalves forsætisráö-
herra hefur fariö viöurkenningar-
oröum um kommúnista.
hreyfing hersins og Goncalves
forsætisráöherra bönnuðu fjölda-
gönguna. 1 afsagnarræðu sinni
varaði hann þjóð sina viö yfirvof-
andi öngþveiti og stjórnleysi.
Hann spáði þvi, að Portúgal
mundi að lokum hafna sem ein-
hvers konar þrælariki — voru þau
orð túlkuð sem árás á kommún-
istaflokkinn. s
Svo virtist sem hægfara flokkur
sósialista undir forystu Mario
Soares nyti vaxandi vinsælda i
forsetatið Spinola. Nú hefur sá
flokkur horfið I skuggann fyrir
kommúnistunum, sem eru öfga-
fyllri.
Alvaro Cunhal ferekki dult með
afstöðu flokks sins til Sovétrikj-
anna, sem hann hefur kallað: Hið
mikla land sósialismans. Hann
hefur látið þau orð falla, að
stjórnmálasambandið milli
Sovétrlkjanna og Portúgals, sem
nýlega var tekið upp hafi opnað
Antonio de Spinola, fyrrum for-
seti og tákn byltingarmannanna á
fyrstu mánuðum valdaferils
þeirra. Hann er nú i ónáð og sætir
árásum kommúnista.