Vísir - 17.10.1974, Page 7
Vlsir. Fimmtudagur 17. október 1974
cTVÍenningannál
(Secret Ceremony) HÚN FYLLIR UPP / EYÐURNAR
Bæjarbló, Hafnarfirði: Leyni-
athöfnin (Secret Ceremony).
Leikstjóri: Joseph Losey.
Leikendur: Elizabeth Taylor,
Mia Farrow og Robert
Mitchum.
Betra er seint en
aldrei. Með sýningum
þessarar myndar fá
þeir, sem reynt hafa að
iýlgjast með verkum
leikstjórans Joseph
Losey, tækifæri til að
fylla upp i eyðurnar.
Leikstjórinn Joseph Losey er
einn vinsælasti leikstjóri
Evrópu i dag, enda á hann að
baki sér sigild verk. Islendingar
hafa tekið Joseph Losey vel, ef
dæma má eftir þvi, hversu vel
við höfum fengið að fylgjast
með verkum hans hér á landi.
Hingað til lands má segja að
öll hans nýjustu verk hafi borizt.
Það er annað og meira en hægt
er að segja um verk annarra
vinsælla evrópskra leikstjóra.
Myndin Leyniathöfnin var
gerð árið 1968. Bæjarbió i
Hafnarfirði frumsýnir myndina
nú á tslandi I stað Laugarás-
biós. Ástæðan er sú að Sjó-
mannadagsráð rekur orðið bæði
Bæjarbió og Laugarásbió og
hefur verið ákveðið að reyna að
auka aðsóknina að Bæjarbiói
með þvi að frumsýna þar mynd-
ir, sem að öðru jöfnu hefur verið
frumsýndar i Laugarásbiói.
Leónóra (Elizabeth Taylor)
hefur misst dóttur sina, sem hún
átti óskilgetna. Cenci (Mia
Farrow) hefur misst móður sina
og við þann atburð hefur hún
truflazt.Hún viðurkennir ekki,
að móðir hennar sé látin og
leitar hennar á götum borgar-
innar, þar til hún kemst I kynni
viö Leónóru. Cenci hefur erft
auðæfi eftir móður sina og til að
byrja með leikur Leónóra hlut-
verk móðurinnar vegna
þægindanna, sem þvi fylgja.
Leónóra kemst að þvi, að
Cenci er trufluð, og við það
öðlast stúlkan nýtt hlutverk i
huga hennar. Hún bætir henni
upp dótturmissinn.
Robert Mitchum leikur
Albert, fósturföður Cenci sem
veriö hefur fjarri. Cenci lætur i
það skina, að Albert hafi beitt
hana valdi og I staðinn fyrir
meydóminn, sem hún áleit sina
einu eign, beri hún nú bangsa
undir belti. Leónóra fær
æðiskast, þegar hún uppgötvar
þannig, að Albert hefur tekiö
dótturina frá henni. Hún ræðst
á Cenci og rifur tuskubangsann i
sundur. Við það hefur Cenci
tapað öllu sinu. Hún hefur nú
enga þörf fyrir móður lengur og
vill ekki þekkja Leónóru, sem
hún fleygir út af heimili sinu.
Cenci fremur sjálfsmorð og
Leónóru finnst sem hún sé nú
komin i sömu spor og i upphafi.
Það er nokkuð erfitt að sjá,
hvað Losey er að fara.
Hugmyndin i uppistöðu
myndarinnar er að vissu leyti
góð, en er fram liður missir
myndin tökin á manni. Svið-
setningin minnir strax á
meistaraverk Loseys The
Servant. Umhverfið I báðum
myndunum er stórt hús, sem
Losey vefur mjög þétt utan um
söguþráðinn. Persónurnar eru i
öðru tilfellinu tveir menn og i
hinu tvær konur. 1 báðum tilfell-
unum breytist aðstaða þeirra
mmmmmm^mmmmmmmmmmmmamm
hvors til annars eftir þvi sem á
liður.
Myndin Leyniathöfnin hefur
alla tið átt erfitt uppdráttar
meöal kvikmyndahúsagesta.
Þótt ekki væri til annars en að
fylgjast með kvikmyndum
Loseys er full ástæða til að sjá
myndina. Auk þess býðst áhorf-
endum að horfa á góðan leik
Elizabeth Taylor og mjög svo
athyglisvert framlag Mia
Farrow.
Elizabeth Taylor og Mia Farrow.
+ + + + „The French Connection
Háspenna
Eftir Jón
Björgvinsson
Nýja bló: The French Connecti-
on.
Leikstjóri: William Friedkin.
Handrit: Ernest Tidyman,
byggt á samnefndri metsölubók
Robin Moore.
Leikendur: Gene Hackman,
Roy Scheider, Fernando Rey
o.fl.
,,Hann fékk sitt tæki-
færi i Bullit, en nú fæ ég
mitt,” er sennilegt að
Gene Hackman hugsi
um leið og hann kippir
saklausum bilstjóra út
úr bil sinum, sezt sjálf-
ur i sæti hans og skilur
hann eftir i gúmmireyk
vælandi hjólbarðanna.
. Þarna er kominn svinaakstur,
sem jafnvel slær út afrek Steve
McQuinn i myndinni Bullit.
Þegar Popeye lögreglumaður
(Gene Hackman) kemst loks á
áfangastað i bílgarminum, er
billinn til muna styttri og mjórri
en þegar hann lagði upp.
Það er ekki framleidd orðin sú
hasarmynd fyrir vestan haf, að
ekki komi fyrir i henni fanta-
keyrsla af einhverri gerð.
Fantaaksturinn er orðinn eins
ómissandi og feimnislegir koss-
ar voru á filmum fimmta ára-
tugsins. Það er ekki beint hægt
að segja að svona akstursatriði
kenni mönnum tillitssemi I um-
feröinni.
Ef þessu heldur lengi áfram
er sennilegt að einum lið verði
bætt við hinar árlegu Óskars-
yerðlaunaafhendingar, þ.e.a.s.
verðlaun fyrir ,,Bezt klessta bil
ársins”.
Þó að sá verðlaunaflokkurinn
væri ekki fyrir hendi hlaut
French Connection engu að sið-
ur nokkur Óskarsverðlaun 1972,
og þar á meðal hlaut Gene
Hackman verðlaun fyrir leik
sinn.
1 þessari mynd beinist allt að
þvi að skapa geysilega spennu.
Þokkapilturinn William
Friedkin, leikstjóri myndarinn-
ar, virðist hafa sett sér það
markmið að koma hálfu mann-
kyninu á taugahæli. Þótt þessi
mynd sé spennandi, telst hún
einungis upphitun miðaö við
það, sem á eftir fylgir frá hendi
leikstjórans William Friedkin,
nefnilega myndin „The Exor-
cist”.
Myndin The French Connecti-
on fjallar um stóra heróinsend-
ingu, sem kemur til Bandarikj-
anna frá Frakklandi og hvernig
tveir lögreglumenn I fikniefna-
deild lögreglunnar I New York
komast á snoðir um hana. Mynd
þessi byggist á máli, sem mikið
umtal vakti á sinum tima.
Jólasveinar taka að lumbra á vegfarendum og konur með barna-
vagna eru eknar og skotnar niður. Ekkert er mönnum heilagt I
bakhverfum stórborganna.
Lögreglumenn kvikmynd-
anna mega sannarlega muna
sinn fifil fegri. Sá timi er liöinn,
er þeir birtust áhorfendum sem
heiðarlegir, áhugasamir, ungir
og snyrtilegir menn. í kvik-
myndunum I dag eru lögreglu-
mennirnir soralegir drykkju-
rútar, sem hika ekki við að beita
hrottalegum meðulum ef með
þarf. The French Connection
hefur vafalitið valdið miklu um
að þessi breyting varð á. Mynd-
ir um hrottafengna lögreglu-
menn koma nú hver á fætur
„Hvað hét hann nú aftur, ég sá
hann I einhverri myndinni?”
Svarið er, að þú sást hann I
Bonny og Clyde og nafnið er
Gene Hackman. Hann öðlaðist
frægð fyrir frábæran leik i
myndinni The French Connecti-
on.
annarri (The Stone Killer,
Magnum Forve og Big Zapper
(þar er það raunar kvenmaður,
sem lætur til sin taka)).
Buddy Russo (Roy Scheider)
kemur i skituga Ibúð félaga sins
Popeye (Gene Hackman) i
drungalegu fjölbýlishúsi. Lags-
kona Popeye er búin að hand-
járna hann við rúmgaflinn og
Gene Hackman er þarna hreint
óborganlegur sem maður, sem
er að vakna eftir svallsama
nótt.
Meðan Popeye er að koma sér
i brækurnar dregur Buddy
Russo fram úrklippubók
Popeye, sem er öll tætt og rifin.
„Þetta er eins og allt annað þér
viðkomandi, hreinasta
hryggðarmynd,” segir hann.
Gene Hackman vinnur þarna
stóran leiksigur sem rónalegi
lögreglumaðurinn, Fernando
Rey er eftirminnilegur sem hinn
virðulegi Alain Chernier og aðr-
ir leikarar skila allir skemmti-
legum leik.
Takið vel eftir þvi hvernig
Friedkin notar hljóðsetningu i
myndinni til að auka spennu.
Atriði sem I eðli sinu eru á eng- •
an hátt ógnþrungin, til dæmis
borðhald Chernier og Nicoli þar
sem Popeye fylgist með þeim
utan af götunni tekst að gera
spennandi með þvi að setja inn
niöurbælt suð. 1 öðrum atriðum,
þar sem óvæntir atburðir I raun
og veru gerast, er umhverfið
hljóðlátt þar til höggið riður á
t.d. þegar móðir á gangi með
barnavagn, fellur skyndilega
fyrir kúlum leyniskyttu.
Myndin The French Connecti-
on heldur áhorfendunum I
spennu og sýnir auk þess á
raunhæfan hátt, hvernig lifið
gengur fyrir sig i bakhverfum
stórborganna. Lif lögreglu-
mannanna er ekki fegrað á
nokkurn hátt, heldur fá
áhorfendur að sjá, hvernig þep
eru orðnir samdauna undir-
heimalifinu.
Myndin The French Connecji-
on var frumsýnd 1971. Það hefur
þvi tekið hana 3 ár að berast
hingað til lands. Samt er i
auglýsingum kvikmyndahússins
talað um nýja bandarlska kvik-
mynd. Þetta er að visu ósköp
vanalegur meðgöngutlmi
mynda á íslandi, en hvenær
hættir mynd að dómi kvik-
myndahúsaeigenda að teljast
ný?
Nokkuð langt er siðan filman
French Connection barst fyrst
til landsins, en það eintak
reyndist það rispað að senda
varö það úr landi á ný. Það var
rétt til fundið hjá kvikmynda-
húsinu að útvega sér annað
betra af filmunni, þótt það
lengdi nokkuð biöina, þvi það er
allt of mikið um það að
áhorfendum sé boöið upp á
hroðalega útleikin filmueintök i
kvikmyndahúsunum hér.