Vísir - 17.10.1974, Qupperneq 12
12
Vlsir. Fimmtudagur 17. október 1974
SIGGI SIXPEIMSARI
Slemma á öðru boröinu —
game á hinu — var uppskera
Astraliumanna i leik gegn
Hollandi á ólymplumótinu
1968.
4 KG984
V ekkert
♦ K4
♦ AD10874
4 6 4 1032
V AG10743 * KD82
♦ G8532 ♦ A7
* 3 * G965
4 AD75
♦ 965
♦ D1096
4 K2
1 lokaða salnum opnaði
vestur, Altman, Astraliu, á 2
hjörtum veikt eftir tvö pöss.
Kokkes I norður doblaði —
austur stökk I 4 hjörtu og van
Heusden I suður doblaði.
Enginn hreyf ði við þeirri sögn.
Út kom spaöi og eftir að suður
haföi tekið fyrsta slag — slöan
skipt yfir I laufakóng og meira
lauf, átti vestur I litlum erfið-
leikum aö fá nlu slagi á tromp
og tigulás. 790 til Astraliu. A
hinu borðinu opnaöi Kreyns,
Hollandi, á þremur hjörtum i
vestur — en eftir aö Howard
og Seres höfðu stanzað I 4
spööum kom Slavenburg i
austur inn á fimm hjörtum.
Það varö til þess aö Astrallu-
mennirnir komust I sex spaða
— Norður haföi hugsaö lengi
áður en hann sagði pass við
fjórum spöðum. Suöur sagði
svo strax 5 grönd við 5
hjörtum austurs. Eftir spilið
kæröi Slavenburg — en það
var ekki tekiö til greina. Eftir
hjartaás út var auðvelt að
vinna sex spaða. 1430 eða 2220
fyrir spiliö — 19 Imp-stig.
Það vakti athygli á heims-
meistaramóti stúdenta I skák,
sem háð var I ár I Tesside á
Norður-Englandi, aö sveit
Hong Kong var skipuð fimm
bræðrum á aldrinum 11-17
ára. Sá yngsti þeirra, Jhun-
junwala, haföi ekki teflt rétta
leikjaröð I Sikileyjarvörn gegn
Baljon. Sá hollenzki var með
hvitt og átti leik.
I ,A 'wml. §§
Wé 9 n i m Wfv/ i
i mp Mg pl -;ÉL n i m PH! m m w
m h mai Wá ééé
m m m
lH a Wá B
Hverju lékstu i stöðunni? —
Baljon lék 17. Bf6! og eftir
bxc3 18. Dh6! gafst sá litli frá
Hong Kong upp. Bræöurnir frá
Hong Kong vöktu oft athygli i
keppninni — til dæmis unnu
þeir Noreg I C-riðlinum.
'lteykjavik Kópayögur.
l)agvakt:kl. 08.9Ö— 17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst i
heimilislækni simi 11510. ,
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 — ]
'08.00 mánudagur — fimmtudags, 1
slmi 21230.
' Hafnacfjörður — Garðahreppuro
Nætur- og hfe'lgidagavarjjlcú
upplýsingar I lögreglu-
varðstofunni simi 51166. i
A láugardögum óg helgidögunt'j
eru læknasfofur lokaðar, en
iæknir er til viðtals á göngudeild
Landspitala, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjónustu eru gefnar i
simsvara 18888.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apótekanna vikuna 11.-17.
október er I Apóteki Austurbæjar
og Garðs Apóteki.
tað apótek, sem fyrr er’'ííefnT]
annast eitt vörzluna á sunnu-
dögum, helgidögum og
almennum fridögum. Einnig
næturvörzlu frá kl. 22 að kvöldi til
kl. 9 að morgni virka daga, en kl.
10 á sunnudögum, helgidögum og
^almennum fridögum.
Kópavogs Apótek. Opið öl! kvöld
til kl. 7 nema laugardaga til kl. 2..
Jlunnudaga milli kl. 1 og 3.
Reykjavik: Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100
sjúkrábifreið slmi 51100.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan: simi 81200, eftir
skiptiborðslokun 81212.
Sjukrabifreiö: Reykjavik og
Kópavogur simi 11100, Hafnar-
fjörður slmi 51100.
Tannlæknavakt er I Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstig
aila laugardaga og sunnudaga kl.
17—18. Simi 22411.
Rafmagn: 1 Reykjávik og Kópa-
vogi I síma 18230. t Hafnarfirði i
sima 51336.
Hitaveitubilanir slmi 25524.
Vatnsveitubilanir simi 85477.
Slmabilanir slmi 05.
24.
TILKYNNINGAFC
Húsmæðrafélag
Reykjavikur
saumanámskeið hefst
október.
Upplýsingar og innritun I sima
23630.
Mænusóttarbólusetning
fyrir fullorðna fer fram i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur, alla
mánudaga frá kl. 17-18.
Aðstandendur
drykkjufólks
Simavakt hjá Ala-Non, að-
standendum drykkjufólks, er á
mánudögum kl. 15 til 16 og
fimmtudaga kl. 17 og 18.
Fundir eru haldnir annan hvern
laugardag I safnaðarheimili
Langholtssóknar við Sólheima.
Slmi 19282.
Þórsmerkurferðir
A föstudagskvöld 18.10. Siðasta
ferðin að sinni.
Ferðafélag Islands, Oldugötu 3,
slmar 19533 — 11798.
____ $
Farfuglar sýna
I Farfuglaheimilinu að
Laufásvegi 41 eru Farfuglar með
opna sýningu, þar sem þeir kynna
starfsemi sína. Er þar sýnd ýmis
tómstundavinna félagsmanna, en
félagið hefur staðið fyrir föndur-
kvöldum og námskeiðum undan-
farna vetur og eru þau um það
leyti að byrja. A sýningunni má
sjá ýmislegt sem hægt verður að
leiðbeina við á föndurkvöldunum
i vetur, auk þess að haldin verða
námskeið I leðurvinnu og
hnýtingum. Sýningin er opin
12.-20. október kl. 20-22.30 laugar-
dag og sunnudag kl. 14-18.
Innritun I námskeiðin er á
sýningunni.
Rauði krossinn.
Dregið hefur verið I happdrætti
Rauða kross tslands og kom vinn-
ingurinn Bronco jeppi ásamt hjól-
hýsi upp á miða 38978. Vinnings-
ins sé vitjað á skrifstofu félagsins
aö öldugötu 4.
Filadelfia
Almenn samkoma i kvöld kl.
20,30.
Hjálpræðisherinn
Ikvöld, fimmtudag kl. 20.30 hátlð.
Kvikmyndasýning frá Færeyjum,
happdrætti, söngur og hljóðfæra-
sláttur. Brig. Óskar Jónsson tal-
ar. Verið velkomin.
Föstudag kl. 20.30 hjálparflokk-
ur.
Kvenfélag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður
haldinn þriðjudaginn 22. október
kl. 20.30 I félagsheimilinu. Venju-
leg aðalfundarstörf. Skemmtiat-
riöi, kaffi. Mætið vel.
Stjórnin.
Handknattleiksdómara-
félag Reykjavikur
Aöalfundur félagsins verður
haldinn I Valsheimilinu
mánudaginn 21. október og hefst
kl. 20.30.
Stjórnm.
Kvenfélag
Hallgrimskirkju
Fundur mánudag 21. okt. kl. 8.30
e.h. Rætt um vetrarstarfið.
Einsöngur Kristinn Hallsson. Dr.
Jakob Jónsson flytur erindi er
nefnist Kraftur Passlusálmanna.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson
flytur vetrarhugleiðingu.
Kvennadeild Styrktar-
félags lamaðra og fatl-
aðra
Föndurfundur verður haldinn
fimmtudag 17. okt. kl. 8.30 e.h. að
Háaleitisbraut 13. Stjórnin.
Mæðrafélagið
heldur fund i kvöld, fimmtu-
daginn 17. október kl. 20 að
Hverfisgötu 21. Konur fjölmennið
og mætið stundvíslega.
Stjórnin.
A morgun eiga gulibrúökaup,
hjónin Guðfinna Jóhannsdóttir og
Einar Pálsson, forstjóri,
Bólstaðarhlið 4. Þau taka á móti
gestum eftir kl. 20 i Domus
Medica.
| í DAG | í KVÖLD | í PAB | í KVÖLD |"
Útvarp kl. 14,30:
MAÐURINN SEM GLEYMDI GLER-
AUGUNUM OG FELLDISTJÓRNINA
Erhard Jacobsen, sem hér sést umkringdur af blaðamönnum, eftir að úrsögn hans úr sósialdemókrata-
flokknum varð kunn — Auðunn Bragi Sveinsson les endurminningar hans I útvarpið.
Einn af litrikari stjórnmála-
mönnum Dana siðasta áratug,
Erhard Jacobsen, hefur skrifað
endurminningar sinar.
Þessar endurminningar hefur
Auðunn Bragi Sveinsson
kennari þýtt, og I dag hefst
annar lestur hans á þýðingunni.
Hann hóf lesturinn I gær.
Jacobsen varð einna fræg-
astur I fyrra, þegar hann felldi
dönsku rlkisstjórnina með þvi
að koma of seint til þingfundar
til þess að greiða atkvæði. Bar
hann því við að hann hefði þurft
að snúa viö á miðri leiö til
þingsins, vegna þess að hann
hefði gleymt gleraugunum
sinum heima.
Hann er lika þekktur sem
fyrrverandi borgarstjóri
Gladsaxe, sem er ein af út-
borgum Kaupmannahafnar.
Erhard Jacobsen var m.a.
formaður danskra sósialdemó-
krata, en sagði sig úr þeim
flokki og stofnaði nýjan flokk,
mið-demókrata.
Það er þvi ekki að efa að hann
hefurfrá ýmsu að segja i endur-
minningum sinum.
—ÓH