Vísir - 12.11.1974, Blaðsíða 3

Vísir - 12.11.1974, Blaðsíða 3
Vísir. Þriðjudagur 12. nóvember 1974. 3 Hringið í síma 86611 milli 13 — 15 ekki dæluna sem dælir grænu ælunni (baunasúpa?) þvert yfir herbergið á séra Karras. Þar væri helzt að maður fyndi plastlykt þegar sárið springur opið á fæti Regans. Og svo birtist djöfullinn þarna rétt sem snöggvast. Ég væri svosem ekkert hissa, þótt hann væri viöriðinn þessa mynd, hún er nógu léleg til þess. Þá er það hljóð og hljóðsetning. Ég veit ekki, hvað aðstandendur mynd- arinnar hafa ætlað að gera. Ég veit bara, hvað ég heyrði úr há- tölurum kvikmyndahússins, og það er það eina, sem ég get dæmt eftir. Það er ekki hægt að dæma verk eftir þvl, hvað það átti að verða, einungis eftir þvi sem það er. En hljóðið er lélegt a.m.k. i samhengi við allt hitt. Tónlistin er þó góð, þótt deila megi um, hvort hún fellur nógu vel að efninu. En það er sama sagan með hljóðið og leikinn og lýsinguna. Svo ofboðslega yfir- drifið, að það nær engri átt. Hvenær hefur maður heyrt hljóð, sem á að gefa manni þá hugmynd að þar séu rottur á ferð, en likist helzt þvi sem bárujárnshurð á hesthúsi skelli aftur i norðangarra og sjö vind- stigum? Gallarnir skrifast á leikstjóra Það er einkennilega við myndina er, að óhugnanlegasta atriði hennar á ekkert skylt við djöfla eða djöflatrú. Það atriði gerist, þegar læknar eru að framkvæma aðgerðir til að geta tekiö röntgenmyndir af æða- kerfinu i höfðinu á Regan. Þeir eru að tengja hana við einhverja vél og stinga nál i hægri hálsæðina á henni. í u.þ.b. 3-4 sek. sér maður örmjóa blóðbunu spýtast með tiðni hjartsláttar- ins úr nálinni og á lækninn. Flestir þeir gallar, sem hér hafa verið tiundaðir, skrifast á leik- stjórann. Ógeðslegt auglýsinga- skrum Auglýsingaskrumið út af þessari mynd er vægast sagt yfirdrifið, ógeðslegt og óverðskuldað. Þegar myndin var frumsýnd I London 14/3, létu dreifingaraðilar myndar- innar (Columbia Warner Communications) fólk fara um miöborgina, mála krossmörk á útstillingaglugga þeirra fimm kvikmyndahúsa sem sýndu myndina, dreifa bæklingum og biðjast fyrir framan við kvikmyndahúsin. Það er vist þetta, sem kallast að leggja nafn drottins við hégóma. Mér blöskraði alveg og er ég þó ekki trúaður, og svo vildu CWC ekki borga manni nema skitin 60p á timann. Þetta væri nú kannski að einhverju leyti afsakanlegt, efmyndin væri likleg til að opna skilning einhvers þó ekki væri nema örlitið. En allt, sem gerist er, að áhorfendum er nauðgað andlega i 122 minútur. Að endingu vil ég skora á kvik- myndaeftirlitið að skoða The Exorcist ramma fyrir ramma. Ég er ekki i vafa um að árang- urinn verður athyglisverður. Ég varð var við mjög stutt klipp, i þvi eintaki sem ég sá. Klipp sem ekki voru lengri en 3-4 rammar. Þau klipp sem ég varð var við, voru að ég held af einhverjum púkamyndum, en annars voru þau svo stutt að það var ómögulegt að sjá það nákvæmlega. Frægt er dæmið um kókauglýsinguna, sem I til- raunaskyni var sett i teiknimynd. Einn og einn rammi inn á milli. Enginn varð var við hann, en allir fóru og keyptu sér kók að sýningu lok- inni. Það segir sig sjálft, að svona stutt klipp eða styttri verður meginþorri fólks ekki var við, þótt undirmeðvitundin taki við þeim ómeðvitað.” HRÁEFNIÐ SKEMMIST Á LEIÐ FRÁ ÞORLÁKSHÖFN — borgarafundur krefst varanlegra vega fró staðnum Þrátt fyrir óhentug- an fundartima mættu milli 70 og 80 manns á almennan borgarafund i Þorlákshöfn kl. 2 á föstudaginn var. Meðal fundargesta voru allir þingmenn kjör- dæmisins. A fundinum var samþykkt ályktun þess efnis, aö nauösyn- legt væri, að nú þegar yrði þrýst á fjárveitingavaldið til þess að útvega fjármagn til að leggja oliumöl á Þrenglsaveg i fram- haldiaf Þorlákshafnarvegi, en Þrenglsavegur er undirbyggður undir varanlegt slitlag. Eins og fram hefur komið, eru nú hafnar framkvæmdir við nýjan Þorlákshafnarveg og telja ibúarnir, að stefna beri að þvi, að framkvæmdum verði lokið á næsta ári. Þrenglsaveg- urinn hefur verið mjög slæmur I haust, en þegar nýi vegurinn kemur, verða aðeins 23 kílómetrar frá Þorlákshöfn að oliumalarborna veginum i Svinahrauni. 1 Þorlákshöfn hefur á skömm- um tima orðið 30% aukning á fólksfjölda. en þungaumferð um veginn að og frá Þorlakshöfn er langtum meiri en Ibúafjöldinn segir til um. Þorlákshöfn hefur komið i annað sæti með landað aflamagn nú um mörg ár, næst á eftir Grindavik, vegna þess að bátarnir vilja heldur landa þar en fara fyrir nesið til hafna við Faxaflóa. Fiskflutningar eru þvi miklir til Reykjavikur og Hafnarfjarðar, og eins til Stokkseyrar. Eins og vegirnir eru, fara þessir flutningar illa með bæði tækin og hráefnið, sem þau flytja. Komið hefur fyrir, að loðna, sem er viökvæmthráefni, hafi verið vel frystingarhæf i Þorlákshöfn en aðeins 1 gúanó, þegar hún kem- ur á áfangastað. Ljóst er, að umsvif i Þorláks- höfn munu stóraukast með til- komu nýju hafnarinnar þar. A fundinum kom fram, að flutningar milli Þorlákshafnar og Eyja myndu aukast veru- lega. Þá hefur Eimskip óskað eftir að reisa þar vöruskemmur. Einnig kom fram á fundinum, að fordæmi væri fyrir þvi að leysa þetta mál i fljótheitum, og var vitnað til Gjábakkavegar frá þvi i sumar þar að lútandi. Þingmennirnir, sem sóttu fundinn, voru mjög jákvæðir varðandi máliö og töldu fundi semþessamjöggagnlega. -SH. FLOSI ÓLAFSSON HNEGGJAR Í BÓKFELL: BÓKIN TIIEINKUÐ STARFSLIOI PÓST- ÞJÓNUSTUNNAR.... „Þessi bók er tileinkuð starfs- liði Póstþjónustunnar i Reykja- vik, sem barizt hefur við höfuð- skepnurnar i pósthúskjallaranum frá þvi póstsögur hófust, við hin ægilegustu starfsskiiyrði, og rækt skyldu sina, að koma jólapóstin- um heilum I höfn, bæði f blfðu og strfðu, sem og í flóði og fjöru.” Og Flosi ólafsson, leikari, sýnir okk- ur bók, sem hann sendir frá sér á markaðinn i dag. „Hneggjað i bókfell” heitir bók Flosa. Er þetta önnur bók hans, en „Slett úr klaufunum” kom út um svipað leyti i fyrra. Er nýja bókin með svipuðu sniði. Mynd- skreytingar bókarinnar eru eftir Arna Elfar, en þættirnir hafa birzt áður i Þjóðviljanum. „Hvaða tilgangi bókin þjónar? Jú, það skal ég segja ykkur,” svaraði Flosi. fyrsta lagi er hægt að lesa hana, i öðru lagi að gefa hana og i þriðja lagi er hugsanlegt að kikja i hana áður en hún er gefin.” „Þetta er bók fyrir þá, sem gaman hafa af þvi að skoða bros- legu hliðarnar á alvöru lifsins og tilverunnar —jafnvel þótt það sé þjóðhátiðarár og okkur uppálagt að vera hátiðleg.” Og Flosa er ekkert heilagt fremur en fyrri daginn. í þessari bók sinni skammtar hann alþingi fyrsta kafla bókarinnar, en siðan taka við skrif um stefnuyfirlýs- ingu rikisstjórnarinnar, þjóð- hátiðarræðuna, iþróttafréttir, mataruppskriftir og hljómdóma, svo eitthvað sé nefnt. Aðspurður upplýsti Flosi, að hann léki um þessar mundir i tveim leikritum á sviði Þjóðleik- hússins og væri að æfa i tveim til viðbótar. „Það er ágætt að vera búinn að koma frá sér bókinni,” sagði hann, ,,og geta snúið sér af meira kappi að leiklistinni um stund. Nú, og svo hef ég lfka trassað það lengi, á meðan ég hef unnið að bókaútgáfunni, að draga undan hrossunum ....” —ÞJM „Þeim tileinka ég bók mina,” segir FIosi, og vekur athygii á þessari myndskreytingu Arna Elfars I bókinni. Leifur fœr hrós Nýlega birtist I Politiken grein um kvikmynd, sem gerö hefur verið um einn frægasta mynd- höggvara i heiminum I dag. Tóniist við kvikmyndina geröi Leifur Þórarinsson og hefur miklu lofsoröi veriö lokiö á tillag hans til myndarinnar. Myndhöggvarinn, sem um ræðir, er Robert Jacobsen, en hann er nú búsettur i Paris, þar sem hann gengur undir nafninu „Le gros Robert”, sem á islenzku útleggst Róbert mikli. Leifur Þórarinsson hefur nú veriö búsettur i Kaupmannahöfn um nokkurt árabil og segir um tónlist hans við myndina, að hún sé stórbrotin og nákvæm og stór- kostlega leikin af fjórum jazz- leikurum, sem eru þeir Jesper Thilo, Palle Mikkelborg, Niels- Henning Orsted Pedersen og Axel Riel. Segir I greininni, að Róbert Jacobsen geri ekki svo litlar kröfur hvað listrænt gildi varöar. Er myndinni spáð frama á kvikmyndahátiðum. Leifur vinnur nú að nýju sinfóniuverki. Nýlega flutti hljómsveit danska útvarpsins tónverk eftir Leif, sem vakti verðskuldaða at- hygli, en blaðið hefur fregnað, að hann muni vinna hér heima á sumri komanda. -JH JpGudjónssott hf. V Shúlagötu 26 X f^\t!740 PLÖTUPORTIÐ Laugavegi 17 y s Koiling Stones/It's only rock’n roll Ron Wood/I’ve got my own album to do Abba/Waterloo Splinter/The place I love Wilson Picket/Picket in the pocket Ilerek & The Dominos/In consert Blood Sweat & Tears/Mirror lmage Leonard Cohen/New skin for the old eeremony Kenny Loggins with Jim Messina/Sittin'In Gilbert O’Sullivan/A stranger In My own back vard Bill Haley/Rock around the clock Sha na na/Hot sox The Glitter Band/Hey King Sha na na/Hot sox Ihe Glitter Band/Hey Sha na na/liot sox The Glitter Band/Hey King Crimson/Red Kongas/Afro j ock Alman brothers band/Beginnings Curtis Mayfield/Superfly N'eil Sedaka/I go ape Iloug Sahm and hand Joe Cocker/I can stand A little rain Jethro Tull/War Who/Odds & Sods Martha Reeves/Power of love

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.