Vísir - 12.11.1974, Blaðsíða 4

Vísir - 12.11.1974, Blaðsíða 4
4 Visir. Þriöjudagur 12. nóvember 1974. ^sjón: Dó af rot- höggi Alis! Alexander Guillespie, sem átti heima í Trinidad lézt af hjartaslagi er Muhammed Ali rotaði George Foreman i keppninni um heimsmeistara- titilinn I þungavigt i hnefa- leikum á dögunum. Guillespie horfði á keppnina I sjónvarpi og þegar Ali sló Foreman i gólfið var það of mikið fyrir hann. Ættingjar hans segja að hann hafi orðið svo æstur þeg- ar leikurinn náði hámarki að hjartað hafi gefið sig. Spaghetti- gaffall handa ungum ítölum Þá eru ftalir loks búnir að finna upp verkfæri, sem þeir geta notað til að spæna upp i sig þjóðarréttinum spaghetti. Þetta er einskonar gaffall, sem fengur fyrir rafhlöðum og vindur hann upp á sig lengj- urnar. Sagt er að ungir Italir séu mjög hrifnir af þessu verkfæri, sem spari bæði tima og óþarfa vinnu, en þeir gömlu eru ekki eins ánægðir. Þeir vilja heldur fá að hafa gamla gaffalinn áfram og dunda við að rúlla upp á hann eftir öllum kúnstarinnar regl- um. Idi Amin — brjálœðingurinn í Uganda Hann lét myrða eiginkonu sína og sinn bezta vin! — og nú hefur faðir hans flúið land af ótta við að verða drepinn Einræðisherrann í Uganda/ Idi Amin, var afbrýðisamur út f utan- ríkisráðherra sinn, Michael Ondoga, sem hafði mjög náið samband við uppáhald Amins, Elisabetu Bagaaya, sem er ung og falleg prins- essa. Hann lét myrða Ondoga og síðan gerði hann prinsessuna að utanríkisráðherra. Þetta kom fram i grein i enska blaðinu Observer i siðustu viku, og er haft eftir sér- fræðingi blaðsins i málefnum Afriku, Colin Legum. Segist hann hafa þetta eftir mjög áreiðanlegum heimildum. Idi Amin varð alveg óður, þegar hann frétti um þessa grein i blaðinu, og heimtaði samstundis að starfsmönnum brezka sendiráðsins i Uganda yrði fækkað úr 65 i 5. Þessu svöruöu Bretarnir með þvi aö skipa honum að fækka I sendi- ráði Uganda I London úr 12 mönnum i 5. ColinLegum segir, aö Ondoga hafi verið að fara með tveggja ára dóttur sina á barnaheimili, þegar fimm menn úr einka- lögreglu Amins hefðu komiö og kastaö honum inn i bil og skilið barniö grátandi eftir á götunni. Nokkrum dögum slöar hafi llk hans fundizt viö árbakka og hafði hann verið skotinn mörgum skotum i bakið.áður en honum var kastað i ána. Þá segir blaðið, að Amin hafi einnig staðið á bak við morðiö á eiginkonu sinni Kay Amin. Hún hafi tekið morðið á Ondoga mjög nærri sér, enda hann verið fjölskylduvinur, og yfirgefið Amin. Hún fannst myrt I einka- bifreið sinni nokkrum klukku- stundum slðar. Faðir hans, Dada Amin, er sagður hafa gagnrýnt son sinn fyrir þessi morð og önnur, sem hann á að hafa framið eða staðiö fyrir. Við það hafi sonurinn orðið trylltur og hótað að drepa gamla manninn, og er hann nú flúinn til Zaire, þar sem hann býr i flóttamannabúðum. Einn af nánustu sam- starfsmönnum Amins sagði Col- in Legum frá þvi, að hann áliti Amin vera orðinn geðveikan. Hann sitji langtlmum saman og stari upp I loftið og sé eins og villidýr þess á milli. Hann sé svo hræddur um lif sitt, aö fólk veröi að koma svo til nakið á hans fund, til að engin hætta sé á að þaö feli vopn innan klæða. Tilraun hafi verið gerð til aö ráða hann af dögum fyrir tveim vikum og hafi ungur liðsforingi staðiö fyrir þvl. Hann sé nú horfinn af sjónarsviðinu, svo og öll fjölskylda hans — um tuttugu manns. Eftir það þori hann ekki einu sinni að vera nálægt hermönn- um sinum og nær helmingur þeirra fái ekki lengur skot i byssur sinar af ótta við, að þeir muni nota þau á hann sjálfan. Brjálcðingurinn I Uganda, Idi Amin, lét myrða vin sinn og utanrikisráðherra Michael On- doga, og siðan lét hann myrða eiginkonu sina Kay Amin. Tiiefnið: Hann var afbrýöisamur vegna þess að Ondoga hafði samneyti við þessa stúiku, sem Amin gerði að utanrikisráðherra strax eftir moröiö. Frœgri söngkonv nauðgað gripum stolið Lögreglan I New York lýsir nú eftir liðiega tvitugum manni, sem I fyrrinótt brauzt inn I her- bergi sem söngkonan Connie Francis bjó I.nauögaði henni og rændi skartgripum hennar. Atvikið átti sér stað er söng- konan, sem er 35 ára gömul, kom á herbergi sitt I Westbury frá þvi að syngja á Connie Francis. söngskemmtun, sem þar er haldin um þessar mundir. Hún kom þangað um klukkan þrjú um nóttina og lagðist til svefns, en vaknaði upp skömniu siðar við að ungur maður, sem hún hefur lýst gaumgæfilega fyrir lögreglunni, stóð yfir henni meö hníf I hendi. Ekki er vitað nákvæmlega hvað maðurinn hafði á brott meö sér úr herberginu eftir 'að hann hafði nauðgað söngkon- unni. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hennar eftir átökin við manninn og mun hún þurfa aö dvelja þar I nokkurn tlma. Talsmaður skemmtunarinn- ar, sem Connie Francis átti að syngja á út þessa viku, sagöi aö hún myndi ekki koma þar fram og tæki söngkonan Melba Moore við af henni. HLJÓMLEIKAR s&Aoe ÞRIÐJUDAGINN I2.NÓV. kl.203ö í LAUGAR DALSHÖLLIN NI Miðasala: Plötuportið Laugaveg 17, Vikurbær Keflavík, Eplið Akranesi, Radió og Sjónvarpsstofan Selfossi, Tónabúðin Akureyri. FORM 34.9 M Umboðsskrifstofa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.