Vísir - 12.11.1974, Blaðsíða 6
6
Vfsir. Þriðjudagur 12. nóvember 1974.
VISIR
Ctgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjójnarfulltrúi:
Augíýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiösla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 Hnur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
I lausasöiu 35 kr. eintakiö. Blaðaprent hf.
Pylsa á viku
„Þetta er upphafið að endalokum sið-
menningar okkar”. „Sulturinn mun fara i vöxt”.
Þetta eru dæmi um ummæli forystumanna um
hungrið i heiminum.
Hálfur milljarður manna er talinn svelta, og
margar milljónir munu deyja úr hungri. Á mat-
vælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i Róm hafa
fulltrúar 130 rikja reynt að koma sér saman um
úrræði, sem gagn væri að. Menn vona, að þetta
verði upphaf að alþjóðlegum aðgerðum, hinum
fyrstu sinnar tegundar i sögunni. En slikir fundir
verða oft vettvangur skollaleiks stjórnmála-
manna.
Rætt er um að mynda nokkurs konar korn-
forðabúr heimsins og hafa til taks varabirgðir,
sem dreifa mætti til heimshluta, þar sem skortur
rikti. í annarri tillögu er gert ráð fyrir alþjóðlegu
eftirliti og söfnun staðreynda um ástandið á hin-
um ýmsu stöðum. Einfaldast væri að sinni að
framkvæma samþykkt allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna og veita þurfandi rikjum strax
þá riflega 300 milljarða króna aðstoð, sem gert
var ráð fyrir, og auka siðan framlög til þeirra
næstu árin. í áætlunum til lengri tima er stefnt
að stuðningi við vanþróuð riki til að efla tækni-
væðingu i landbúnaði og draga úr fólksfjölgun.
Ráð eru til, ef riku þjóðirnar i heiminum hafa i
reynd áhuga á. Fyrsta spurningin er, hvort þær
telja sig siðferðislega skuldbundnar til að aðstoða
hina fátæku. Ef svo er ekki i rauninni, er einfalt
mál, að tilraunir renna út i sandinn, en i staðinn
geta menn dundað sér við að úrskurða, hverjum
það sé að kenna, að litið skuli vera gert.
Það eru einfaldar staðreyndir, að rikari þjóð-
irnar eta um fimm sinnum meira á hvern mann
en hinar fátækustu. Maturinn er til.
Ef við, hinir betur stæðu, borðuðum svo sem
einni pylsu minna á viku, sem við hefðum yfirleitt
gott af, mætti fæða mikinn hluta þeirra, sem nú
svelta.
Bandarikjamenn hafa til dæmis bætt á sig mat,
sem nemur um 350 pundum á mann á ári siðustu
10 árin. Evrópumenn eru ekki langt á eftir. Með
þessum viðbótarskammti mætti bjarga
hungrandi Indverja frá bana i næstum ár.
Ræktanlegt land er lika til. Það mætti hér um
bil þrefalda, ef fjármagn væri látið til þess.
Bændur i Bandarikjunum hafa að undanförnu
getað brauðfætt nær fjórðung mannkyns. Frá
ekrum i miðvesturfylkjum Bandarikjanna hafa
matvælin bjargað sveltandi fólki um allan heim.
Bandarikin hafa, sakir mikillar matvælafram-
leiðslu, megnað að beraþungann af aðstoðinni við
hina þurfandi. Vist fer mikill matur þar til spillis,
og dæmi eru um eyðileggingu matvæla til að
halda uppi verði. En þetta hefur litlu skipt miðað
við hitt. Til viðbótar framlagi Bandarikjanna
verður að kref jast miklu öflugri átaka annarra en
verið hefur. Þetta gildir ekki sizt um hin
„nýriku” oliuriki, enda bera þau mikinn hluta
ábyrgðar á þvi, hvernig komið er. Hækkun oliu-
verðs kom harðast niður á fátækustu þjóðunum.
Rikisstjórnir fátæku þjóðanna sjálfra hafa einnig
verið alltof máttlausar i aðgerðum til að efla
framleiðslu og draga úr fólksfjölgun.
Lausnin er þvi til, ef við viljum gera eitthvað i
raun.
—HH
Fyrrverandi dansmœr og stjörnuspámaður ríkja í Argentínu
„Kveðja frá AAA"
Fyrrverandi dansmær
og stjörnuspámaður
stjórna Argentinu um
þessar mundir og hafa
ráð yfir 25 milljón
manna i hendi sér.
„Þú skalt koma þér
burt úr landi fyrir föstu-
dag, ella deyrð þú”.
Þannig bréf berast mörgum
manni I höfuðborginni Buenos
Aires. Stjórnmálamenn, blaöa-
menn, pólitískir flóttamenn og
fleiri fá þess konar tilkynningu
um, að nöfn þeirra séu rituð á
„dauðalista”.
Sumir þeir, sem hafa hundsað
orðsendingar af þessu tagi, hafa
horfið og lik þeirra fundizt lim-
lest. Hjá likunum er oft „kveðja
frá AAA”.
Yfirvöld virðast hafa „dregið
gluggatjöldin fyrir”. Þau
verjastfrétta af AAA. Vitað er, að
þarna er um að ræða flokk öfga-
manna til hægri, sem hefur
„keppt” við flokka öfgamanna til
vinstri um hryðjuverk.
Afleiðing hryðjuverka hægri og
vinstri manna er, að hátt á annað
hundrað hafa verið myrt siðan
ekkja Juans Perons tók við for-
setaembætti i júli. önnur af-
leiðing er upplausn og skelfing,
sem kom fram i, að „umsáturs-
ástandi” var lýst yfir nú fyrir
helgina. Með þvi fær lögreglan
mjög aukin völd til að handtaka
menn sem hún grunar um undir-
róöursstarfsemi
Flytja flóttamenn
„heim”.
Talið er sennilegt, að AAA hafi
samvinnu við öryggislögreglu
sumra grannrikja Argentinu.
Illlllllllll
m (m
Sumir landflótta menn sem flokk-
urinn hefur rænt, hafa verið flutt-
ir „heim” til þess lands, er þeir
flýðu, svo sem Uruguay og
Brasiliu. Þar eru við völd stjórn-
Umsjon: H.H
Harmagrátur:
— Fólk grét, þegar það frétti um lát Juan Perons. Sá grátur hefur vaxið
siðan.
andstæðingana en að draga þá
fyrir lög og dóm.
Mesta athygli á morðum AAA
vakti, er Carlos Prats hers-
höfðingi úr stjórn Allendes I Chile
var myrtur ásamt konu sinni i
Buenos Aires. Prats hafði flúið til
Argentinu, eftir að stjórn Allende
var steypt i Chile.
Góð vinátta hefur verið milli
stjórnar Argentinu og her-
foringjastjórnarinnar, sem nú
ræður Chile.
í næturklúbbi i Panama
„Allt hefur breytzt” mætti
segja um Argentinu, siðan Juan
Peron lézt. Hann var kjörinn for-
seti fyrir 20 mánuðum, er hann
sneri aftur úr langri útlegð. Arg-
entina hafði lotið einræðisstjórn,
og flest var i handaskolum. Svo
fór, að herforingjar leyfðu Peron
að koma heim. Almenningur kaus
hann og treysti á, að hann mundi
beita sér fyrir félagslegum um-
bótum.
Einakonani forsetastóli I heiminum, Maria Estella Isabella Peron.
Óvíst, að kvenþjóðinni sé akkur I völdum hennar.
Nú er of seint að iðrast þess.
Hún er nú eina konan i forseta-
embætti i heiminum.
Hitler sem fyrirmynd
Hvaö er AAA?
Nafnið er skammstöfun á „and-
komúnistasamband Argentlnu”
(3. a-ið stendur fyrir „allians”)
Takmarkið á að vera að hindra
viðgang vinstri manna og vera
„sva.r” við flokki marxistiskra
skæruliða, ERP, sem hefur myrt
margan manninn i Argentinu og
beinir skeytum einkum gegn er-
lendum stórfyrirtækjum þar i
landi.
Raunar er sagt, að pólitiskir
bófaflokkar I Argentinu séu
„óteljandi”.
Sagt er, að AAA-menn hafi
Adolf Hitler sem fyrirmynd.
Þeir segja, að fórnardýr þeirra
séu „agentar” kommúnisma og
Gyðingasamtaka.
Nú vill svo til, að hægri hönd
ekkjunnar I forsetastóli José
Lopez Rega, er svarinn fjand-
maður Gyðinga.
Orðrómur er um, að hann
styðji, þótt leynt fari, atferli AAA.
ir, sem gjarnan eru kenndar við
fasisma.
Mannræningjar AAA þykjast
stundum vera lögregluþjónar,
þegar þeir ræna mönnum. Sumir
hinir rændu töldu sig vera yfir-
heyrða i lögreglustöðvum I
Buenos Aires og La Plata. Til eru
þeir, sem telja sig hafa borið
kennsl á lögregluþjóna I hópi
ræningjanna.
Þvi er uppi orðrómur um, að
AAA sé beinlinis hluti af lögreglu
Argentinu og vinni skitverkin á
vegum stjórnvalda.
AAA-menn hafa komizt undan
handtökum, sem er i sjálfu sér
merkilegt.
Vitað er, að „morðsveitir” hafa
veriðstarfræktar á vegum stjórn-
valda I Brasiliu til að losna við
óæskilega stjórnarandstæðinga.
Morðsveitunum var beitt, þegar
„þægilegra” virtist að myrða
Hún hafði verið dansmær I
næturklúbbi I Panama I
Mið-Ameriku. Þar hitti hinn land-
flótta Juan Peron hana og leizt
vel á, hafði þá um skei'ð lifað
„ljúfu lifi” til að drekkja sorgun-
um eftir brottreksturinn úr
valdastóli i Argentinu. Hann
kvæntist konunni.
Ekkjan varð forseti eftir mann
sinn. Hún fékk sér til ráðuneytis
mann, sem hafði bundizt Peron
traustum böndum á útlegðar-
árunum, José Lopez Rega.
Hann hafði verið I lögreglunni
en verið rekinn.
Nú gerðist hann stjörnuspá-
maður Perons. Seinna varð hann
helzti ráðgjafi hans.
Argentinumenn töluðu um náið
samband milli Lopez Rega og
konu Perons, hvað sem hæft er i
þeim sögum.
Nú stýra þau Argentinu.
Heimildir: Expressen, Reuter.
Peron lét sig hafa það að gera
þriðju eiginkonu sina, Isabellu,
að varaforseta.