Vísir - 19.11.1974, Page 1
VÍSIR
64. árg. — Þriðjudagur 19. nóvember 1974 — 231. tbl.
msmmsmmmmmammamaasamBam
Enn um bensínstöðvarmálið:
OLVAÐUR OK I
FANGIÐ A LÖG-
REGLUNNI - BAKSÍÐA
„Svokallað framfarafélag
er okkur óviðkomandi"
— segja íbúar við Æsufell og Þórufell um
Framfarafélag Breiðholts III, og vísa á bug öllum
málamiðlunartillögum þess félags vegna
bensínstöðvarmálsins
„Fyrir hönd íbúa við
Æsufell og Þórufell,
viljum við itreka kröfu
okkar, um að fram-
kvæmdir við gerð
bensinsölu oliufélagsins
Skeljungs verði stöðv-
aðar segir i bréfi, sem
ofangreindir aðilar hafa
sent borgarráði.
Og siðar i bréfinu segir: „Við
viljum taka það fram, að svo-
kallað Framfarafélag Breiðholts
III er okkur með öllu óvið-
komandi, og að fréttatil-
kynningar stjórnar þeSs sama
félagsskapar frá 16. nóvember
túlka á engan hátt okkar
skoðanir i málinu”.
Visa ibúar þessara fjölbýlis-
húsa, sem standa næst fyrirhug-
aðri bensinsölu, á bug öllum
málamiðlunartilraunum, sem
Framfarafélagið vildi gera i
málinu, en frá þeim tillögum var
skýrt hér á forsiðu blaðsins igær.
Málsaðilar i þessu bensin-
stöðvarmáli, eru þvi orðnir þrir
nefnilega Framfarafélagið, fyrr-
nefnd húsfélög og Skeljungur.
Og þá má ekki gleyma borgar-
verkfræðingi, sem einnig er
fjallað um i bréfi húsfélaganna.
Um hann segir svo: „Eftir
óformlegum leiðum höfum við
fregnað, að borgarverkfræðingi
hafi verið falin lausn málsins i
samráði við okkur, aðila málsins.
Hann hefur ekki enn leitað eftir
samstarfi við okkur, en hins
vegar gefið hæpnar yfirlýsingar
um málið”.
—ÞJM
AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR VILJA AUKIN SAMSKIPTI
VIÐ ÍSLENDINGA í HANDKNATTLEIK — sjá íþróttir í opnu
Hafði engin
tök á að
hemla
78 ára gamall maður höfuð-
kúpubrotnaði og hlaut önnur
minni meiðsli, er hann gekk
snögglega i veg fyrir bil á
Hringbraut i gærkvöldi.
Maðurinn var að fara yfir
upplýsta gangbraut, rétt hjá
Umferðarmiðstöðinni. Hann
gekk svo snöggt út á götuna, að
bíll, sem kom aðvifandi, hafði
engin tök á að stoppa i tæka tið.
Maðurinn lenti á hægra
framhorni bilsins.
Hann var fluttur á gjörgæzlu-
deild Borgarspitalans. Visir
fékk þær upplýsingar i morgun
á spitalanum, að maðurinn væri
óðum að hressast, og er hann
með fullri meðvitund. Hann er
ekki I lifshættu.
—ÓH
----------------------->
Gamli maðurinn lenti á hægra
framhorni bifreiðarinnar, er
hann gekk snögglega út á
götuna. Bifreiðin kcm vestur
Hringbraut. Ljósm. Visis
Ragnar Th. Sigurðsson.
SOLUSTJORAR UNDIR
SAMA HATTI
Af 50 þátttakendum á
markaðsráðstefnu Flugleiða
sem hófst i morgun, voru marg-
ir hverjir að hittast þar i fyrsta
sinn.
Þetta er sem sagt fyrsta sam-
eiginlega markaðsráðstefna
fiugfélaganna og voru þar
mættir fulltrúar frá þeim 14
löndum, sem félögin reka
söluskrifstofur I.
Ráðstefnan stendur I 3 daga
og verða þar teknar ákvarðanir
um fargjaldamál, sumaráæti-
un, auglýsingar og fleira.
Ljósm. BG/—JB
örn Ó. Johnson aðalforstjóri Fiugleiða býður hér þátttakendu
velkomna, er ráðstefnan hófst i morgun. Ljósm. BG.
ABBA
TIL
ÍSLANDS
- BAKSÍÐA
„Umfram-
þunginn"
var þulnum
erfið raun
— baksíða
•
Morðingi
Sharon
Tate
œtlaði
að strjúka
— sjá bls. 5.
ÁLAFOSS
KYNNIR
LEYNI-
VOPNIÐ
A meðan verzlanir i
Ameriku eru i óða önn að
draga saman seglin I
vöruinnkaupum og lager-
birgðum, undirbýr lcelandic
Imports nýja sókn á
markaðinn vestra. Þekktur
tizkuhönnuður frá New York
hefur verið fenginn hingað til
að vinna að endurhönnun
þess fatnaðar sem sendur er
á markaðinn i Amerlku.
Árangurinn af fyrstu
afskiptum hans af fatafram-
leiðslu okkar er að sjá á INN-
siðu I dag bls. 7.