Vísir - 19.11.1974, Qupperneq 3
Vlsir. Þriðjudagur 19. nóvember 1974.
3
Miðnœturferð
Atla Heimis
frumflutt
í Gautaborg
Inter Mediae Noctis eða Mið-
næturferð heitir verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, sem Ragnar
Björnsson organleikari mun
frumflytja I Dómkirkjunni i
Gautaborg 23. nóv. næstkomandi.
Þetta er annað verkið sem Atli
semur fyrir Ragnar. Hið fyrra
var Nitht in the cathedral sem
var frumflutt I Stokkhólmi.
Miðnæturferð er tileinkuð Páli
tsólfssyni þegar hann varð
áttræður og var lokið I september
I fyrra. Það er nefnd Norræna
menningarsjóðsins sem pantaði
verkið hjá Atla Heimi, en hún
sér um að panta verk hjá
norrænum tónskáldum á vegum
NOMUS, sem er nefnd til nor-
rænnar tónlistarsamvinnu. Þetta
er annað verkið sem nefndin
pantar hjá Atla Heimi, en hið
fyrra var Flower Shower og var
samið fyrir symfónluna I Norr-
köping.
Gefur sjólfur
út bók sína
— því forleggjarar telja
það ekki borga sig
trtgáfa leikrita I bókarformi
gefur svo litið af sér, að útgefend-
ur fást almennt ekki til að gefa
þau út lengur. Það verður þvl að
teljast kjarkur hjá Hrafni Gunn-
laugssyni að gefa út tvö leikrit I
bók á eigin kostnað.
I bók hans, sem ber heitið Saga
af sjónum, eru tvö leikrit og tvær
ritgerðir um leikhús og leikritun.
Annað leikritið er samnefnt bók-
inni og var sýnt í sjónvarpi 1972,
hitt heitir Þegar kinnhestur
hneggjar og hefur ekki verið flutt
opinberlega.
Hrafn hefur fengizt við marg-
háttaða leikritagerð, bæði sjálf-
stætt og „1 félagi við Þórð Breið-
fjörð og Jónatan Rollingstón
Geirfugl,” eins og hann segir
sjálfur.
Bókin mun kosta um 1600 krón-
ur út úr búð og er upplagið tak-
markað. —SH
Eldur í Heimaey
á Sögusýningunni
Senn fer hver að verða slðastur
að skoða Sögusýninguna á Kjar-
valsstöðum, henni lýkur 24.
nóvember n.k. A sunnudaginn var
mikil aðsókn að sýningunni, og
fjölmenni mikið, þegar dr.
Kristján Eldjárn, forseti íslands,
flutti slðasta erindi sýningar-
innar.
Mjög mikilia vinsælda á
sýningunni hefur kvikmynd
Ósvaldar og Vilhjálms Knudsen,
Eldur I Heimaey, notið og hefur
myndin jafnvel verið sýnd
þrlvegis eitt og sama kvöldið. 1
kvöld verður myndin sýnd enn
einu sinni á sýningunni og hefst
sýning hennar kl. 9.
—JBP
Þorvaldur
á leiksvið
Þorvaldur Halldórsson er
kominn til Vestmannaeyja, en
hann náði fyrst landsfrægð fyrir
söng og hljóðfæraslátt með Ingi-
mar Eydal á Akureyri. Siðan
flutti hann til Reykjavikur og hóf
söng með Pónik, en nú er hann
sem sé kominn til Eyja.
Og Þorvaldur var ekki fyrr
kominn þangað en Eyjaskeggjar
skelltu honum upp á svið. Hann
var pússaður upp i annað aðal-
Meðan unnið er við stlflugerðina, rennur Tungnaá I svokölluðum hjáveituskuröi. Við brúna mætast Tungnaá og afrennsli frá Þóris-
vatni. Þegar vatni verður safnað I lónið, verður þessi brú á töluveröu dýpi. Ljósm.: VIsis Bragi.
4000 ára stöðuvatn endur-
myndað með virkjunartóni
Framkvæmdir við
Sigölduvirkjun eru vel á
veg komnar, og þótt
nokkrartafir hafi orðið á
hlutum verksins, standa
vonir til að takast megi að
vinna þær upp í vetur og
Ijúka verkinu á tilsettum
tíma, en fyrsta vélin á að
fara í gang 15. júní 1976.
Unnið hefur verið sleitulaust
siðan i október 1973. Aðalverk-
takinn er Energoprojekt, júgó-
slavneskt fyrirtæki. Er þeir
komu, fengu þeir afhentar búðir
fyrir 240 manns, sem Lands-
virkjun hafði reist. Energopro-
jekt stækkaði þær siðan svo, að
þær rúma nú um 400 manns, en
það var sá fjöldi, sem á þeirra
vegum starfaði siðast liðið
sumar. Starfsliðinu hefur nú
verið fækkað i 350 manns, og
mun verða fæst 200-250 manns i
vetur.
Fyrst var gerð bráðabirgða-
stifla i Tungnaá og farvegi ár-
innar breytt til bráðabirgða, en
siðan hófst vinna við gröft á
aðrennslisskurði og var efninu
þaðan ekið jafnharðan i aðal-
stifluna. Efnið er móbergs-
myndun, svokallað bólstraberg,
og vel fallið til stiflugerðar-
innar. Jafnframt var byrjað á
botnrás sem verður undir stifl-
una, og að steypa svo-
kallaðan stiflutáarvegg. Um
leið var byrjað að grafa fyrir
stöðvarhúsinu, en sá gröftur og
eins við botnrásina gekk fremur
illa vegna gifurlegs vatnsaga,
og hafa tafir orðið á þessum
tveimur hlutum verksins, en til
stendur að vinna þær upp á
steypuvinnu i vetur.
Asfalt þétting
— nýjung hér
Niður úr stiflutáarveggnum
verða boraðar holur með vissu
millibili ofan i berglagið og
dælt i þær mjög þunnum graut
úr sementi og sandi til að þétta
bergið. A vatnshlið stiflunnar
kemur asfalt þétting, sem
lokast við táarvegginn. Stifla af
þessu tagi hefur ekki áður verið
gerð hér á landi, og mun gamal-
gróið fyrirtæki á þvi sviði,
Strabach Bau A.S. I Köln annast
asfaltvinnuna. Annað þýzkt
fyrirtæki, Johan Keller, mun
annast bergþéttinguna. Þessi
fyrirtæki eru undirverktakar
Energoprojekt.
Stöðuvatn fyrir
4000 árum
Þar sem uppistöðulónið
verður, var fyrir svo sem fjögur
þúsund árum stöðuvatn, sem
starfsmenn þar efra kalla nú
i daglegu tali Króksvatn.
Urrennsli þess var þó nokkru
sunnar en Tungnaá rann siðar,
en það lokaðist af hrauni úr
Heljargjá, og ruddi þá Tungnáá
sér braut milli Sigaldanna, þar
sem hún hefur runnið siðan. Við
það þurrkaðist vatnið upp.
En vatnsbotninn gamli kemur
nú til góða, þvi hann er vel þétt-
ur af vatnsseti og leir, sem er
heppilegt, þegar hann verður nú
nýttur undir uppistöðulón af
þessu tagi. Lónið, sem ef til vill
verður kallað Krókslón, verður
um 15 ferkilómetrar að stærð.
Þegar Tungnaá ruddi sér
nýjan farveg milli Sigaldanna,
flutti hún með sér ógrynni af
jarðefni, sem myndaði sléttuna
fram undan Sigöldu. Þar
stendur nú steypustöð virkj-
unarinnar og notar framburðinn
fyrir steypuefni, svo ekki þarf
að aka þvi til hennar um langan
veg.
Verktakar og umsjón
Aðalverktaki við jarð- og
byggingavinnu er Energopro-
jekt, sem fyrr segir. Verktakar
til að annast véla- og rafbúnað
virkjunarinnar eru þýzka fyrir-
tækið Brown Boveri & Cie og
rússneska fyrirtækið Energo
machexport. Ráðgjafi við verk-
ið allt er svissneska fyrirtækið
Elektrowatt, sem ásamt Virki
h.f. i Reykjavik hannaði verkið.
Portúgalskir verktakar, Sore-
fame, sjá um stálpipulagnir frá
inntaki i aðrennslisskurði að
stöðvarhúsinu, sem undirverk-
takar Brown Boveri & Cie. Þeir
sjá einnig um allan lokubúnað.
Portúgalarnir fengu Stálsmiðj-
una i Reykjavik til að valsa stál-
rörin og sjóða þau, en siðan eru
þau flutt i bútum austur og sjóða
Portúgalarnir bútana þar
saman. Rannsóknarstofnun
iðnaðarins hefur með höndum
suðupróf á verkinu.
Eftirlit með öllum fram-
kvæmdum annast Landsvirkjun
og er Páll ólafsson, aðstoðar-
staðarverkfræðingur. Ætlunin
er, að bygginga- og jarðvinnu
verði lokið næsta haust, og
verður þá aðeins véla- og
raflagnavinna eftir. —sh
Nokkrir starfsmanna Landsvirkjunar við Sigöldu, taliö frá vinstri: Páll ólafsson, aðstoöarstaðarverk-
fræðingur, Margrét óskarsdóttir, ritari, Þorsteinn Kristinsson, teiknari, Ingvar Björnsson,
skrifstofustjóri, Steingrlmur Dagbjartsson, véltæknifræðingur. Ingvar Björnsson var leiðsögumaður
Vísis um virkjunarsvæðið. — Ljósm. VIsis B.G.
Halldórsson kominn
í Vestmannaeyjum
hlutverkið i leikritinu ,,Frú
Alvis”, sem Leikfélag Vest-
mannaeyja frumsýndi á sunnu-
dag.
Leikæfingar og annar undir-
búningur hófst um miðjan
október, en þetta er fyrsta verk-
efni leikfélagsins eftir gos.
Sýningar eru að sjálfsögðu i
Bæjarleikhúsinu við Heiðarveg.
,,Frú Alvis” hefur áður verið
sett á svið i Eyjum, en að þessu
sinni er það Ragnhildur
Steingrlmsdóttir, sem leikstýrir
verkinu og i aðalhlutverkinu er
Unnur Guðjónsdóttir. Fréttir frá
Eyjum herma, að leikritið hafi
gert stormandi lukku á
frumsýningunni á sunnudag, en
þar var þá húsfyllir. Leikritið
verður sýnt aftur i kvöld og á
fimmtudagskvöld.
—Þ'JM
Leikendur I,,Frú AIvls” ásamt leikstjóra á sviöi Bæjarleikhússins I
Eyjum. — Ljósm: VIsi: G.S.