Vísir - 19.11.1974, Síða 5
5
Vlsir. Þriöjudagur 19. nóvember 1974.
REUTER
AP/NTB
N UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN
Umsjón Guðmundur Pétursson
Stofnuð Orkusamtök OECD:
Ætla
með
Sextán oliuneyzluriki
hafa tekið sig saman og
samþykkt að deila oliu-
birgðum sinum hvert
með öðru, ef birgða-
að deila olíunni
rýrnun verður hjá
einhverju þeirra, sem
nema mundi 7% eða
meira.
En sem þau undirrituðu þetta
samkomulag, voru þó fulltrúar
sendinefndanna hálfshugar, og
leizt þeim svo á, að Bandaríkin
gætu sem auðveldast náð töglum
og höldum I þessari orkustofnun
OECD, eins og samtökin kallast.
Orkusamtök þessi urðu til eftir
orkuráðstefnuna, sem haldin var
i Washington I febrúar. Að
þeim eiga aðild fles'töll stærstu
iðnaðarrikin utan kommúnista-
landanna. En þó ekki Frakkland,
sem varast eins og heitan eldinn
aðláta bendla sig við nokkuð það,
sem talizt gæti andspyrna við
oliuframleiðslurikin.
Akvæðið um að deila oliu með
hverju þvi aðildarriki, sem
skortir orðið oliu, kemur sjálf-
krafa til framkvæmda, nema 60%
atkvæða innan samtakanna vilji
taka fyrir slikt.
í þvl sambandi veldur það
hver
nokkrum fulltrúum áhyggjum, að
Bandarikin hafa á sinu valdi 51
atkvæði þeirra 148, sem um er að
ræða alls. Þurfa þau aðeins
stuðning tveggja landa til þess að
geta stöðvað útdeilingu á oliu.
1 annan stað hugnar þessum
sömu aðilum ekki tilhugsunin um,
að nýtt strið brytist út i Austur-
löndum nær, sem leitt gæti til
oliusölubanns Araba á Banda-
rikin, sem yrðu þá að leita til
orkusamtakanna eftir oliu og
mundi óbeint draga þau þannig
inn I deiluna.
Felldu skœru-
liða á gísla-
veiðum
ísraelskir
öryggisverðir felldu I
dag alla fjóra arabisku
skæruliðana, sem i
dögun höfðu ráðizt á
Beit Shean, sem stendur
á bökkum Jórdan.
Eftir að hafa varpað
handsprengjum og látið kúlurnar
úr sjálfvirkum vopnum sinum
kemba nágrennið höfðu skærulið-
arnir tekið á sitt vald ibúðarhús I
bænum. Þykir senhilegast, að
þeir hafi ætlað að ná glslum.
Nokkrir ibúar hússins særðust i
árásinni, en i þvi búa aðallega ný-
ir innflytjendur, sem eru að venj-
ast staðháttum.
Arásin var gerð núna i kjölfar
stúdentaóeirða, sem annað veifið
hafa blossað upp á undanförnum
dögum á vesturbakka Jórdan.
Var hún með svipuðu sniði og
árásin á Kiryat Shmoneh i
Galileu i april og Nahariya I júni.
(Arásin á Kiryat Shmoneh leiddi
til dauða 18 Israela og 3 arabiskra
skæruliða.)
mmm
Rockefeller verður senni-
lega samþykktur
Flest þykir benda til atkvæða tilnefningu
þess, að nefnd öldunga- Nelsons Rockefeller i
deildar Bandarikjaþings varaforsetaembættið.
muni samþykkja með Hann á þó fyrir höndum
yfirgnæfandi meirihluta að svara enn nokkrum
Morðingi Sharon
Tate œtlaði að
strjúka úr fangelsi
Charles Manson, hippa-
foringinn, sem dæmdur var
fyrir morðið á ieikkonunni,
Sharon Tate, hafði á prjónunum
ráðagerðir um aö strjúka úr
fangelsissjúkrahúsinu i Caville i
Kaliforniu I september
Hafði hann reynt að smygla
skilaboðum til tveggja hippa-
stúlkna, sem verið höfðu i flokki
með honum. Bað hann þær um
að smygla til sin sprengjum og
byssuum I sjúkrahúsið, þar sem
hann gengur undir geðlækn-
ingar.
Fangaverðir Ikomust yfir
skilaboðin og var Manson þegar
fluttur I öruggara fangelsi.
Stúlkurnar, sem áttu að að-
stoða Manson, voru sömu
hipparnir, sem sátu utan réttar-
salarins, þegar mál hans var á
sinum tima tekið fyrir. Hreyfðu
þær sig ekki þaðan, krúnurak-
aöar og með markaðan kross á
enni, meðan réttarhöldin stóðu
yfir.
Manson var dæmdur til
dauða, en þegar Kalifornia
felldi niður dauðarefsinguna,
var dómi hans breytt i ævilangt
fangelsi.
spurningum nefndar-
manna, áður en gengið
verður til atkvæða um
málið.
Þingnefndin kvað vera reiðu-
búin til að koma saman til fundar
á morgun og ganga til atkvæða
samdægurs eða á fimmtudag og
binda þar með enda á fjögurra
daga yfirheyrslur og umræður.
A þingmönnum demókrata i
nefndinni er helzt að heyra, að
þeir ætli að greiða atkvæði með
repúblikönunum og samþykkja
tilnefningu Rockefellers. Eru þeir
þó á báðum áttum um gjafir
ýmsar og lán Rockefellers til
ýmissa stjórnmálamanna og
fyrri aðstoðarmanna sinna.
RAFMAGNSLEYSI OG
BIÐRAÐIR í PARÍS
Frakkar sjá nú fram á
biðraðir skort og ringul-
reið, sem fylgja mun
allsherjarverkfalli þvi,
er hófst hjá þeim i dag,
sex mánuðum eftir að
Valery Giscard d’
Estaing var kosinn for-
seti.
Lestarstjórar og vagnstjórar
eru flestir i verkfalli, og verður
Parisarbúinn að reyna að kornast
leiðar sinnar i eigin ökutæki eða
snlkja sér far með öðrum. En lög-
reglan bjó sig undir hræðilegar
umferöarflækjur.
Vega hver
annan út
af einu svíni
Stjórnin I Papua á Nýju
Guineu mun efna í dag til
skyndifundar til að leita ráða
um að stöðva strið, sem brot-
izt hefur út meðal kynflokka
frumbyggja eyjarinnar, en
það vex dag frá degi. Hafa
þegar 14 striðsmenn fallið á
tiu dögum.
i sfðustu bardögum, sem
brutust út, en það var I gær,
létu sjö menn lifið. Höfðu þá
400 Nadakilika striðsmenn
ráðizt á smáþorp á sléttunum I
vesturhluta landsins.
Árásin var gerð I hefndar-
skyni vegna dauða eins úr
kynflokki þeirra, en sá hafði
lent I átökum á dansleik.
Orsaka þessara átaka allra
er annars upphaflega að leita I
misklið, sem spratt út af svlni
einu, og svo ágreiningi um
landamerki.
Ahrifa verkfallsins gætti þegar
i morgunsárið, þegar rafmagn fór
af og ljós slokknuðu, svo að ljúka
varð morgunrakstrinum I myrkri
með auðvitað fyrirsjáanlegum
afleiðingum. — Þegar út var
komið, blöstu við langar biðraðir
á öllum viðkomustöðum strætis-
vagna og lesta.
TOK SENDIRAÐIÐ
í WASHINGTON
Ferdinand Marcos, forseti
Filippseyja sá sig tilneyddan til
aö verða við kröfum byssumanns,
sem brauzt inn I sendiráö Filipps-
eyja I Washington og hélt þar
starfsfólki og sendiherra I
skefjum.
Krafðist maðurinn þess, að
stjórnvöld I Manila létu son hans
hafa vegabréf og fararleyfi, hvert
sem hann vildi fara út I heim.
Maðurinn er Filippseyingur,
lögfræðingur, sem búið hefur i
Washington.