Vísir - 19.11.1974, Qupperneq 7
Vlsir. ÞriOjudagur 19. nóvember 1974.
7
LEYNIVOPN ÁLAFOSS
Þaö var Anna Guðmunds-
dóttir, fegurðardis og sýningar-
stúlka, sem stofnaði til kynna
Icelandic Imports og Howard
Lawrence, en Anna er gift og
búsett I New York. Má geta þess
til gamans, að Howard er
skirnarvottur barns hennar,
sem skirt var fyrir skömmu.
Það var fyrir um hálfu ári,
sem kynni Lawrence af ullar-
vörum okkar hófust. Honum
voru þá færðar nokkrar flikur,
sem hann skoðaði nákvæmlega.
Þegar hann svo kom hingað til
námskeiðahaldsins var hann
með ákveðnar hugmyndir um,
hvernig breyta mætti tizku-
fatnaði okkar til batnaðar. Og
þá með Amerikumarkað fyrir
augum.
Það, sem hann lagði mesta
áherzlu á, var að ullarflikur
okkar yrðu gerðar þynnri'og
léttari. „Kvenfólk vestanhafs
vill sýnast grannt”, sagði hann.
Og slðustu vikuna hefur verið
unnið að þvi nótt og dag að
endurhanna þær flíkur, sem
ætlaður eru til sölu á
Amerikumarkað. Árangur þess
erfiðis var sýndur á fundinum i
gær — og birtum við sýnishorn
af þeirri sýningu hér á siðunni.
Umsjón: Þórarinn
Jón Magnússon
Frá fundinum I gær, t.v.: Úlfur Sigurmundsson framkvæmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins, Heimir Hannesson stjórnarformaður Icelandic Imports, Pétur Eiriksson forstjóri Alafoss,
Howard Lawrence og Geir Magnússon framkvæmdastjóri Icelandic Imports.
„Það horfir ekki giæsilega
við, ástandið i markaðsmálum
vestanhafs. Núna á þeim
árstima, sem verzlun hefur
jafnan verið með blómiegasta
móti, eru blöðin I Ameriku yfir-
full af útsöluauglýsingum.
Verzlanirnar keppast við að
koma lagernum i peninga áður
en kreppan versnar,” sagði
Geir Magnússon, framkvæmda-
stjóri Icelandic Imports á fundi
með fréttamönnum og fram-
leiðendum i Kristalssal Hótel
Loftleiða i gær.
„Þetta ástand kemur sér
ákaflega illa fyrir okkur, sem
erum ennþá svo ósköp smáir á
þessum stóra markaði,” hélt
Geir áfram. „A meðan við erum
að reyna að stækka markaðinn
fyrir íslenzkar ullarvörur
vestra, eru verzlanirnar að
draga saman seglin i grið og
erg. Innkaupastjórarnir hafa
greinilega fengið skipanir um
að minnka lagerana, endur-
panta ekkert og afpanta
annað.”
„En samt,” sagði Geir, „ger-
um við okkur vonir um að geta
potað tízkufatnaði okkar lengra
inn á markaðinn. Og til þess
notum við ýmis meðul’.’
Og nú kynnti hann ameriskan
tlz-kuhönnuð, Howard
Lawrence, sem mun vera
allþekktur I sinni grein, og má
m.a. geta þess, að hann kennir
við stærsta tlzkuskóla New
York.
Lawrence hefur verið hér i
viku og verið aðal
leiðbeinandinn I námskeiðum I
hönnun kvenfatnaðar. Honum
til aðstoðar hefur verið Pálina
Jónmundsdóttir, forstöðukona
hönnunardeildar Alafoss.
Kvenfólkinu I Bandarikjunum Hka litirnir I ullarflikunum. En
það þarf meira til. Einkum hefur þaö sett það fyrir sig, hvað
þessar flikur hafa veriö þungar.
nýjungar i hönnun og sauma-
skap.
„Framleiðsla okkar úr ull
hefur verið að þróast siðan á
miðri öld og raunar enn lengur,
en það var ekki fyrr en árið
1969, sem fyrst var farið að
reyna við útflutning á þessari
framleiðsluvöru okkar. Komu
þar þá til fyrst og fremst þeir
erfiðleikar, sem fiskiðnaðurinn
átti við að etja,” sagði Pétur
Eiriksson, forstjóri Alafoss, i
stuttri ræðu á fundinum i gær.
,, Það höfðu fæstir trú á, að út-
flutningur okkar á ullarvörum
gæti orðið til frambúðar. Hann
mundi hrynja, þegar fiskverð
hækkaði að nýju. En reyndin
hefurorðið önnur,” sagði Pétur.
Og hann gat þess, að árið 1972
hefði fataútflutningur numið
160 milljónum króna og i fyrra
heföi hann orðið 15 milljónum
meiri.
„Okkur hefur tekizt að yfir-
stlga byrjunarörðugleikana. Nú
er að taka enn eitt heljarstökkið
og komast lengra inn á
markaðinn. Stækka hann og ná
þar meiri tökum,” sagði hann.
„Við erum að vlsu ennþá tals-
vert frumstæðir i okkar fram-
leiðsluháttum, en við erum
áreiðanlega á réttri braut. Við
verðum bara að taka heljar-
stökk I þeim málum lika.”
En hvernig seljast þessar
vörur hér heima?
„Ekki nógu vel, þvi miður,”
svaraði Pétur. Og hann kunni
Páiina Jónmundsdóttir er forstöðukona hönnunardeildar Álafoss
og stjórnaði námskeiðinu, þar sem Howard Lawrence var aðal-
leiðbeinandi. Og á fundinumi gær lét Pálína sig ekki muna um að
gegna ein hlutverki heils sýningarflokks. — Ljósmyndir: Bragi.
Þátttakendur I námskeiði
Howard Lawrence voru um
tuttugu talsins og komu
hvaðanæva af landinu. Er
ætlunin, að framhald verði á
þessu námskeiðahaldi, og mun
Lawrence koma hingað af og til
og veita leiðbeiningar og kynna
Ljósm: Bragi
ekki að svara þvi, hver ástæðan
væri. „Það er eins og islenzkt
kvenfólk vilji ekki ganga I is-
lenzkum fatnaði,” sagði hann.
Og máli sinu til stuðnings sagði
hann frá þvi, að hann vissi um
einstaka islenzka fatafram-
leiðendur, sem teldu gæfulegra
að setja vörur sínar á
markaðinn hér með erlendum
vörumerkingum.
Þá kom það lika fram á þess-
um fundi, að tizkuverzlanir hér-
lendis eru ekkert alltof óðfúsar
að taka ullarfatnaðinn til sölu.
ÞJM
— heitir Howard Lawrence,
þekktur tízkuhðnnuður
fró New York, sem vinnur
að því að gera íslenzkan
ullarfatnað hœfari
fyrir markað vestan hafs