Vísir - 19.11.1974, Side 12
12
Vlsir. Þriöjudagur 19. nóvember 1974.
A HM i Feneyjum i ár voru
spiluö sömu spil i leikjunum.
4 1083
V 8742
♦ AKG63
* A
A KD95
V 9
♦ 1054
* DG953
é G74
V KD105
4 87
4 10862
4 A62
V AG63
♦ D92
* K74
1 leik Frakklands og USA
varö lokasögnin á báðum
boröum 4 hjörtu i suður. Þegar
Hamman spilaði spilið, fékk
hann út laufadrottningu og
vann siðan spilið — en þegar
Boulanger einn af nýju EM-
meisturum Frakka frá mótinu
i ísrael, spilaði spilið fékk
hann út spaðakóng. Það var
erfitt. Hjartað varð að liggja
3-2 og Boulanger spilaði upp á
það, en fékk ekki nema fjóra
slagi. Hann drap útspilið á ás
— tók laufaás blinds og spilaði
siðan hjarta á ásinn. Þá laufa-
kóng og kastaði spaða úr
blindum —■ og litið hjarta.
Austur tók hjartaslagi sina og
vörnin fékk svo það, sem eftir
var af slögunum á spaða og
lauf. Það var dýrt spil fyrir
Frakka — norður-suður voru á
hættu, 1220 samtals til USA.
Ahorfendur voru spenntir að
sjá, hvað itölsku heims-
meistararnir, Belladonna og
Garozzo, gerðu á spilið —
hvernig þeim tækist upp á
fjórum hjörtum. Til þess kom
þó ekki — lokasögnin hjá þeim
varð 3 grönd, og þá sögn þarf
ekki heimsmeistara til að
vinna. Niu slagir beint i
háslögum.
Á IBM skákmótinu I
Amsterdam i ár kom þessi
staöa upp I skák Velimiro-
vic, sem hafði hvitt og átti
leik.og Csom — stórmeistarar
báðir tveir.
1J X r & é p
w [. - | I i n i
i jj ■ n V...Í p
§j ii jj V': jjj
§§ 1 §§ §§
0 §j I | §§
n !A H 1 á
■ & ■ I B ÍÉI TJ
21. d6 — Hce8 22. Bxf7+! —
Hxf7 23. Dxe8+! — Rxe8 24.
Rxe8+ — Hf8 25. d7 — Dd6 26.
Hfl og svartur gafst upp.
Reykjavik—Kópavogur.
Dagvakt: kl. 08.00—17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst I heim-
ilislækni sími 11510.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 —
08.00 mánudagur — fimmtu-
dags, simi 21230.
Hafnarfjörður—Garðahreppur.
Nætur- og helgidagavarzla, upp-
lýsingar i lögregluvarðstofunni,
simi 51166.
A laugardögum og helgidögum,-
eru læknastofur lokaðar, en lækn-
ir er til viðtals á göngudeild
Landspitalans, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjónustu eru gefnar i sim-
svara 18888.
APÓTEK
Kvöld-,nætur-og helgidagavarzla
apótekanna vikuna 15.-21. nóv.
verður I Lyfjabúðinni Iðunni og
Garðsapóteki.
Þaö apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörzluna á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum. Einnig næturvörzlu frá
kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni
virka daga, en kl. 10 á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum.
Kópavogs Apótek er opið öll kvöld
til kl. 7, nema laugardaga er opið
kl. 9-12 og sunnudaga er lokað.
Reykjavik:Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100,
sjúkrabifreiö slmi 51100.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan: simi 81200, eftir
skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100, Hafnar-
fjörður slmi 51100.
Tannlæknavakt er I Heilsuvernd-
arstöðinni við Barónsstig alla
laugardaga og sunnudaga kl.
17-18. Simi 22411.
Rafmagn: í Reykjavik og Kópa-
vogi i sima 18230. I Hafnarfiröi I
sima 51336.
Hitaveitubilanir simi 25524.
Vatnsveitubilanir simi 85477.
Slmabilanir simi 05.
Skagfirzka söngsveitin
heldur glæsilegt bingó I Glæsibæ
þriðjudagskvöld kl. 20.30. Margt
eigulegra vinninga. Fjölmennið.
Nefndin
Grensássókn.
Leshringur I Safnaöarheimilinu I
kvöld kl. 9. Allir velkomnir. Séra
Halldór S. Gröndal.
Kjósarsýsla
Aðalfundur „ Þorsteins Ingólfs-
sonar” verður haldinn i Félags-
garði, Kjósarsýslu, þriöjudaginn
19. nóvember n.k. kl. 21.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Oddur
Ólafsson, alþingismaöur.
Stjórnin.
Kópavogur
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaga-
anna I Kópavogi er boöað til árlð
andi fundar n.k. þriðjudagskvöld
19. nóv. kl. 20.30 i Sjálfstæðishús-
inu við Borgarholtsbraut. Rætt
verður um húsnæöismál og
starfsaðstöðu flokksins.
Stjórnin
Kynningarfundur
Stjórn Heimdallar hefur ákveöið
að gangast fyrir kynningarfundi
með nýjum félögum, þriðjudag-
inn 19. nóv. n.k. i Miðbæ viö Háa-
leitisbraut kl. 20.30. Þar verður
gerð grein fyrir starfsemi félags-
ins og skiptzt á skoðunum. Nýir
félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
Almennur
borgarafundur
um æskulýðsmál I Arbæjar- og
Seláshverfi. Ariðandi fundur um
þróun æskulýösmála i Árbæjar-
og Seláshverfi verður haldinn i
félagsheimili rafveitunnar við
Elliðaár, þriðjudaginn 19. nóv. kl.
8.30 e.h. Frummælandi verður
Davið Oddsson, formaöur
æskulýðsráðs. Gestir fundarins
verða þeir Birgir Isleifur
Gunnarsson, borgarstjóri og
Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri æskulýðsráðs. Ibú-
ar eru eindregið hvattir tl að
mæta á fundinn og leggja sitt af
mörkum til að móta afgerandi
viöhorf i þessum málum.
Stjórnin
rflAGSlÍF
Sjálfsbjörg Reykjavik
Spilum að Hátúni 12 þriðjudaginn
19. nóv. kl. 20.30 stundvislega.
Fjölmennið og takið með ykkur
gesti. Nefndin.
Þórsmerkurferð
á föstudagskvöld 22/11.
Farseölar á skrifstofunni.
Feröafélag Islands,
Oldugötu 3,
simar: 19533 - 11798.
UTVARP
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14:30 Vettvangur — 3. þáttur.
15.00 Miödegistónleikar —
16.00 Fréttir. tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn
17.00 Lagið mitt
17.30 Framburðarkennsla I
spænsku þýzku.
17.50 CARÚ Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir, Dagskrá
kvölesins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 Svipleiftur úr sögu
Tyrkjans. Sverrir
Kristjánsson sagnfræðingur
flytur fyrsta erindi sitt:
Gresjufólk eignast einn guð.
20.00 Lög unga fólksins Sverrir
Sverrisson kynnir
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Hjálmar Arnason sér um
þátt fyrir unglinga.
21.20 Tónlistarþáttur I umsjá
Jóns Ásgeirssonar
21.50 Fróðleiksmolar um Nýja
testamentið Dr. Jakob
Jonsson segir frá.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfreg n i r.
Kvöldsagan „I verum”,
sjálfsævisaga Theódórs
Friðrikssonar Gils
Guðmundsson les (6)
22.35 Harmonikulög Egil
Hauge leikur,
23.00 A hljóðbergi. „Með
ástarkveðju frá Moskvu”.
Skemmtidagskrá frá breska
útvarpinu. Benny Hill og
félagar hans flytja stutta
gamanþætti. Leikstjóri:
John Browell.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
n □AG | Q □ J =0 > * Q □AG | Q KVÖLD |
Sjónvarp kl. 22,00:
OÐRUVISI IÞROTTAGREINAR
EN VIÐ EIGUM AÐ VENJAST
„Þeir eru þarna aö halda það,
sem ég kalla ishafsleika,” sagði
Óskar Ingimarsson, þýðandi og
þulur sjónvarpsmyndaflokksins
Sumar á norðurslóðum. „Þetta
eru allt öðruvlsi Iþróttagreinar
en við eigum að venjast. Þeir
eru að flá dýr og hoppa á
strengdu skinni, glima alls kon-
ar glimur og þess háttar.
Mér þykir til dæmis mjög
skemmtilegur þáttur i þessari
mynd, þar sem trumbudansar,
sem hafa geymzt og gengiö
kynslóð fram af kynslóð þarna á
norðurslóðum. Þessir dansar
eru sýndir og eru mjög
skemmtilegir.
íshafsleikarnir eru haldnir I
bænum Inuvik, sem er norður
undir landamærum Alaska.
Þarna eru fjarlægðir miklar, og
mótin eru haldin ekki slzt til
þess að gefa fólkinu tækifæri til
að koma saman og kynnast.
Þarna eru engir peningar I boði
eða stórverðlaun, þótt keppt sé
til sigurs.
Þetta er eílefti þátturinn af
þrettán, svo myndaflokkurinn
er að taka enda. Mér hafa
kannski fundizt þættirnir einum
of keimlikir og mikið um endur-
tekningar, en það er kannski
ekki gott að komast hjá þvi. Aö
mlnu viti eru þættirnir
skemmtilegir fyrir okkur, þaö
dýralif sem sýnt er minnir
meira á okkar dýralif en til
dæmis myndir frá Astraliu og
Afriku.
En þátturinn um iþróttamenn
viö yzta haf er sem sagt frá-
brugðinn — þar eru engar bein-
ar dýralifsmyndir, heldur situr
mannfólkiö i fyrirrúmi.”
Og iþróttamenn við yzta haf,
ellefta myndin um sumar á
norðurslóðum er á dagskránni
kl. 22 I kvöld.
— SH.
útvarp ki. 20,50: Kyinia líf ó togurum og rœða við sjómenn
„Þátturinn Frá ýmsum hlið-
um hefur hálftlma til umráða.
Sá tlmi skiptist I tvennt, og er
annar helmingurinn fyrir alls
konar fræðsluefni, kynningu á
störfum, hugtökum og málefn-
um, en siðari hlutinn er af létt-
ara tagi og innsent efni.”
Þessar upplýsingar eru
fengnar hjá Hjálmari Arnasyni,
sem sér um þáttinn Frá ýmsum
hliðum kl. 20:50 i kvöld en hann
er ætlaður unglingum.
„Ég er ekki einn með þennan
þátt, þótt þannig komi það
fram I dagskrárkynningunni,”
sagöi Hjálmar. „Með mér er
Guðmundur Árni Stefánsson,
nemandi I Flensborg.”
Sjálfur er Hjálmar kennari
við þann skóla, en leggur jafn-
framt stund á islenzkunám I
Háskólanum.
„í þættinum i kvöld kynnum
viö llf togarasjómanna og ræð-
um I þvi skyni við skipstjóra og
háseta. Sföar I vetur er ætlunin
að ræða við vélstjóra, sjó-
mannskonu og ef til vill fleiri
aðila.
I léttari helmingnum kemur
fram 15 ára gömul eftirherma,
sem flytur frumsamið efni. Þar
er á feröinni Jóhann Briem,
Breiðhyltingur. Auk þess er
dularfullur maður á feröinni,
eins konar leynigestur.
Siöar I vetur er hugmyndin að
heimsækja þorp og staði úti á
landi til þess að mismuna eng-
um. En við viljum endilega lýsa
eftir hugmyndum um efni eða
tilbúnu efni, sem gæti hentað
þessum þætti.
Ef einhver á sllkt i pokahorn-
inu, er hann beðinn að senda það
þættinum Frá ýmsum hliöum,
Rikisútvarpinu, Skúlagötu 4.
— SH.