Vísir - 19.11.1974, Blaðsíða 16
VÍSIR
Þriðjudagur 19. nóvember 1974.
Útvarps-
þul varð
háltá
umfram-
þunga
Umframþungi olli þvi að út-
varpsþulurinn Ragnheiður
Asta fckk krampakenndan
hlátur við lestur tilkynningar
nokkurrar i hádegisútvarpinu
i gær.
Þetta var heilsuræktaraug-
lýsing, þar sem fólki var boðin
aðstoð við að ná af sér um-
framþunganum fyrir jólin.
Orðið umframþungi vakti það
mikla kátinu hjá þulunni, að
hún gat ekki komizt hjá þvi að
skella upp úr.
Hún vildi þó ekki láta hlust-
endur njóta hlátursins með
sér. Eftir stutt hlé gerði hún
aðra atlögu, en allt fór á sama
veg. Enn einu sinni var gert
hlé og það var ekki fyrr en i
fjórða sinn, sem tilkynningin
kom i heilu lagi.
,,Það er allt i lagi, að það
komi fram af og til, að maður
sé manneskja, sem getur
hlegið”, sagði Ragnheiður
Asta, eftir spaugið.
„Það var fólk i kringum
mig, á meðan ég var að þylja,
og þegar ég skellti upp úr, fór
það auðvitað að hlæja lika.
Það var nú enn erfiðara að
stoppa þess vegna”.
Það stóð hálft i hvoru til,
þegar tilkynningin kom niður i
útvarp, að fá orðinu ,,um-
framþungi” breytt, en Jón
Múli þulur kunni svo vel við
orðið, aðhann fékk að láta það
standa.
Eftir að konan hans Ragn-
heiður Asta Pétursdóttir þulur
skellti upp úr i miðri útsend-
ingu, var þó samþykkt að
breyta orðalaginu. —JB
„Stolni bíllinn"
var hinum
megin
við húsið
Billinn, sem hvarf úti á Granda
I gærmorgun, fannst stuttu eftir
ab hvarf hans var tilkynnt til lög-
reglunnar.
Þegar eigandinn kom út úr
húsinu, sem hann var i, og sá að
blllinn var horfinn, tilkynnti hann
það lögreglunni samstundis.
Lögregluþjónn á mótorhjóli var
staddur skammt frá, og fór hann
á staðinn. Það tók hann ekki
langað tima að finna bílinn, þvi að
hann stóð hinum megin við húsið.
Virðist sem einhver hafi ýtt biln-
um kringum húsið. —óH
Ók ölvaður í „fangið" ó
lAIII'Aflllllllll — en stakk af á ofsahraða — klókir
IU y I W y IU11111 lögregluþjónar fundu tryllitœkið bak við hús
Litlu munaði, að
hörkuárekstur yrði
milli lögreglujeppa og
stórrar ameriskrar
fólksbifreiðar, sem ók
á miklum hraða þvert i
veg fyrir jeppann i
nótt.
Lögreglujeppinn var
á eftirlitsferð á
Grensásvegi Þá kom
ameriska bifreiðin
akandi á mikilli ferð
eftir Miklubraut. Hún
ók yfir á Grensásveg,
þvert i veg fyrir
jeppann. Ökumaður
hans snarhemlaði, og
var svo stutt milli bif-
reiðanna, að lögreglu-
þjónarnir sáu andlit
ökumannsins skýrt og
greinilega.
En ökuþórinn virtist engar
samræður vilja eiga við lög-
regluna, þvi hann brenndi af
staö upp i Bústaöahverfið. Lög-
reglujeppinn veitti bilnum eftir-
för til'að byrja með, en þegar
hann var kominn á 90 km hraða
og dró samt hratt sundur meö
bilunum, var eftirförinni hætt.
Lögreglan hélt áfram að
hringsóla um hverfið og fann
loks ameriska bilinn við hús i
Langagerði. Astæðan fyrir þvi
að billinn fannst, var sú, að hjól-
förin sáust greinilega eftir
beygjuna upp að húsinu.
Billinn var mannlaus, en á ná-
lægri gangstétt sáu lögreglu-
þjónarnir mann, sem þeir
könnuðustvið sem ökumanninn.
Hann var áberandi ölvaöur, og
var fluttur i fangageymslur.
Þetta er annað atvikiö á
stuttum tima, þar sem hraö-
aksturs,,hetjur” aka svo að
segja upp I fangið á lögreglunni.
Hitt gerðist um helgina þegar
tveir I kappakstri brunuöu
framhjá lögreglubil á gatna-
mótum. Málið hefur ekki enn
verið tekið fyrir hjá lögreglu-
stjóra, en þeir tveir piltar voru
sviptir ökuskirteinum til bráða-
birgða.
—ÓH
Urðu að loka fyrir
tœkinu og taka
sfmann ór sambandi
Nœst fœ ég Abba
Am undi umboðsmaður
Amundason er ekki af baki dott-
inn þrátt fyrir að aðsóknin að
Slade-hljómleikunum i siðustu
viku hafi valdið honum nokkrum
vonbrigðum. Hann hafði hikiaust
búizt við húsfylli, en til þess skorti
á annað þúsund áheyrendur I
viðbót.
Nú er Ámundi að biða eftir að fá
upplvsingar um hugsanlegt
hljómleikahald sænska söng-
flokksins ABBA á Islandi. Það er
hljómsveit, sem varð heimsfræg
fyrir lagið „Waterloo”, sem
komst i fyrsta sæti
Evrópu-söngvakeppninnar I
fyrra.
„Erik Thomsen, umboðsmaður
Slade, bauðst til að annast alla
fyrirgreiðslu þar að lútandi, þeg-
ar hann var hér,” sagði Amundi.
„Ég býst við að heyra frá honum
einhvern næstu daga og þá um
hugsanlegan komudag Abba.”
„En það er klárt mál að ég tek
nvorki a móti þeim ne oörum
erlendum skemmtikröftum fyrir
áramót,” sagði Amundi að
lokum. „Mér sýnist pyngja land-
ans ekki bjóða beinlinis upp á
slíkt eins og sakir standa.”
—ÞJM
II — segir Amundi og gerir ráð
fyrir að fá ákveðinn komudag
á hreint innan skamms
Það var heldur betur handa-
gangur, þegar Ferðabók Eggerts
og Bjarna kom út hjá bókaútgáf-
unni Erni og örlygi á mánudag-
inn fyrir viku. Bókin seldist
gjörsamlega upp á fáum dögum
og eftirspurnin var svo gifurleg,
að forlagið varð að loka I hálfan
annan dag og forráðamenn fyrir-
tækisins að taka heimasima sina
úr sambandi.
..Ég hef aldrei kynnzt öðru
eins,” sagði örlygur Hálf-
dánarson. „Að visu vissum við,
að við vorum með góða bók, en
þetta var nákvæmlega meðal
upplag eins og það er nú. Ég
vona, að þetta sé til marks um
bókaáhuga fólks, þótt við vitum,
að söfnunaráhugi á einnig þá'tt I
þessu. Og vissulega er ánægjulegt
að fá svona viðtökur.”
Ferðabókin er i tveimur
bindum, og var upplagið i tvennu
lagi. Annars vegar voru 174
eintök prentuð á fornprenta-
pappir og tölusett frá 1-174, og
kostuðu þau kr. 25 þús. Hins
vegar voru 1400 eintök prentuð á
vandaðan ljósmyndapappir og
tölusett 1-1400 og kostuðu kr. 15
þús.
Vísir hafði spurnir af þvi, að
dýrari eintökin væru þegar farin
að seljast manna á milli á allt að
helmingi hærra verði, og spurði
örlyg um það efni.
„Ég veit manna minnst um
það,” svaraði hann. „Enda hef ég
nánast orðið að fara huldu höfði,
siöan bókin kom út. En miðað við
þungann I eftirspurninni kæmi
mér ekki á óvart, að sú væri
raunin.” — SH
Islenzkir sjónvarpsáhorfendur muna eftir Abba, en söngvakeppnin,
þar sem þau slógu i gegn með „Waterloo”, var sýnd I islenzka
sjónvarpinu.
Afíi Vestfjarðatogara
hálfu lakari en í sumar
— samningarnir við Breta að koma fram, segja Vestfirðingar
„Togaraflotinn dreifist á
svæðið frá Ilornbanka að Vikur-
ál”, sagði Jón Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri Norður-
tanga á ísafirði I viðtali við VIsi.
„Þar er meginhluti brezku tog-
aranna og mjög mikið af öðrum
togurum eins og er.
„Þetta er það svæði, sem
Vestfirðingar óskuðu að yrði
lokað I nóvember og desember,
þegar samningarnir voru gerðir
við Breta. Bretarnir voru i gær-
kvöldi að toga innan um linuna
hjá bátunum og slita fyrir þeim.
Við hefðum talið von um
árangur af útfærslunni I 50
milur, hefðum við fengið þessa
tvománuði, en nú sjáum við svo
ekki verður um villzt, að hann
er nánast enginn.
Afli skuttogaranna frá Vest-
fjörðum er núna meira en helm-
ingi lakari en hann var i sumar.
Þaö virðist vera ákaflega litill
fiskur hér úti fyrir og hefur
ekkert lifnað yfir honum þrátt
fyrir landlegu i siðustu viku.
Það urðu lika vonbrigði, að
ekkert skyldi glæðast eftir
norðangaröinn, þvi þaö gerist
oft, að fiskiriið batnar, þegar
verið hefur landátt en svo
snúizt i norður. En það gerði
enga breytingu núna.
Sá afli, sem skuttogararnir
koma með, er blandaður,
þorskur, ufsi, ýsa og flatfiskur.
Þaö er allt I lagi með gæðin, en
það virðist vera ákaflega litið af
fiski á miðunum.
Nú eru gerðir út 7 skut-
togarar frá Vestfjörðum og sá
áttundi væntanlegur, liklega I
næsta mánuði. Hann kemur til
Bolungavikur.
A linu hefur verið reytings-
afli, sem byggist fyrst og fremst
á góðum gæftum, sem verið
hafa I allt haust. 1 október voru
26 róðrardagar, sem gáfu eitt-
hvað á annað hundrað tonn á
bát, sem þykir vel viðunandi að
hausti til.
Rækjuveiðin er sæmileg, en
einnig farin að dragast saman.
Framan af fengu rækjubátarnir
leyfilegt magn rækju á þrem
fyrstu dögum vikunnar, en nú
eru þeir alla vikuna að reyta
það upp”.
—SH