Tíminn - 11.05.1966, Side 2
2__________________________TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 11. maf 1966
Aöstoð við vangefna
Hver er aðstaða þeirra heim-
ila í Reykjavíkurhorg, sem ör-
lögin hafa búið það hlutskipti,
að annast vangefin börn? Hef-
ur borgarstjómin ekki fyrir
löngu komið myndarlega til
liðs við þau?
Allir, sem nokkur kynni hafa
af vandamálum vangefins fólks
vita, að á landinu öllu eru til
vistrúm fyrir um helming þess
fólks, ungs og gamals, sem tal-
ið er að þarfnast muni nauð-
synlega hælisvistar. En það er
margt fleira hægt og skylt að
gera fyrir þessa einstaklinga en
að búa þeim vist á hælum.
Styrktarfélag vangefinna .íef-
ur rekið dagheimili í Reykjavík
fyrir 40 vangefin börn undan-
farin fimm ár í húsakynnum,
sem félagið kom upp. Áður
var gerð tilraun með starfsem-
ina í leiguhúsnæði, en pað
reyndist óhaganlegra en svo,
að fært þætti að halda áfram
á þeirri braut. Árlega hefur
verið sótt um það til borgar
stjórnar Reykjavikur, að þetta
dagheimili nyti styrks til jafns
við dagheimilin, sem rekin eru
fyrir heilbrigðu börnin og
einnig, að félagið fengi styrk
upp í byggingakostnaðinn.
Nokkurt fé hefur á hverju ári
fengizt út borgarsjóði til þess-
arar starfsemi, en ekki hefur
fram á þennan dag þótt skylt
að borgin tæki á sig hallann af
rekstri þessa dagheimilis, eins
og af dagheimilum Sumargjaf
ar. Stóð meira að segja í þrefi
tvö ár að borgarsjóður kostaði
standsetningu á leikvelli við
heimilið.
Annar meginvandi er alger-
lega óleystur í aðstoð við van-
gefið fólk. Það er að koma upp
vernduðum vinnustofum, þar
sem þeir, sem getu hafa til, fá
verkefni við sitt hæfi. Margt
þetta fólk getur unnið hagnýt
og þörf störf, ef það fær þjálf-
un og því eru fundin viðráðan-
leg verkefni og ef það fær að
vinna í næði, þar sem það verð-
ur ekki fyrir aðkasti eða trufl-
unum, sem ekki verður hjá
sneitt á almennum vinnustöð-
um.
Þeir, sem séð hafa erlendis
stofnanir af þessu tagi, hljóta
að undrast hve mörgum þeim,
sem virðast illa staddir vits-
munalega, er hægt að koma til
þess þroska, að þeir skipi sitt
sæti í þjóðfélaginu, sem full-
vinnandi borgarar. Hver léttir
það er ölium aðstandendum að
vita, að þessum einstaklingum
standa opnir vinnustaðir við
hæfi, kennsla og leiðbeining.
er auðvelt að skilja.
Hér í næsta nágrenni starf-
ar eina ríkisstofnunin, sem
ætluð er vangefnu fólki, hið
ágæta hæli í Kópavogi. 1 sam-
vinnu við það virðist sjálfsagt
og eðlilegt að komið verði hið
bráðasta á fót vernduðum
vinnustofum fyrir vangefna, svo
að þessir einstaklingar fái að
njóta sinna hæfileika, ekki síð-
ur en þeir, sem alhraustir eru.
En Reykjavíkurborg getur ekki
leitt hjá sér að leggja sinn
skerf til lausnar þessa máls.
Andlegur vanþroski á sér
margar orsakir, en um lækn-
ingu á honum mun ekki vera
að ræða. En með lengri þjálf-
un. lengri skólavist og starfs-
Sigríður Thorlacius
þjálfun en almennt gerist, næst
meiri þroski hjá mörgum og
opnast fleiri starfsmöguleikar
en menn skyldi gruna. Þessir
einstaklingar þurfa meiri vernd
og aðstoð en flestir aðrir og
því eru skyldur okkar við þá
miklar.
Sigríður Thorlacíus.
Björn Magnússon og Sveinn Halldórsson.
Frá Bókaútgáfunni
r»-i ' u
„Fjolvis
Út er komin Kosningahand-.
bók „Fjölvíss" fyrir bæjar og
sveitarstjórnarkosningarnar 22.
maí næstkomandi.
í bókinni er að finna upp-
lýsingar um alla frambjóðend
ur í þeim sveitarfélögum, þar
sem kosið er eftir listum, svo
og niðurstöður nokkurra síð-
ustu alþingis- og sveitarstjórn
arkosninga.
í bókinn eru einnig töflur
um mannfjölda og tölu kjós-
enda á kjörskrá, yfirlit um
listabókstafi, eyðublöð til að
færa inn kosningatölur er
talning hefst, útdráttur úr
kosningalögunum og síðast en
ekki sízt verðlaunagetraun um
úrslit kosninganna í Reykja-
vík. --
Bókaútgáfan „Fjölvís" hefur
um margar undanfarnar kosn
Framhald á bls. 15.
Oboiinn gestur frumsýndur
KT-Reykjavík, þriðjudag.
í gærkvöld var frumsýndur í
Félagsheimili Kópavogs gamanleik
urinn „Óboðinn gestur“ eftir
Svein Halldórsson. Leiksýning
bessi er hátíðasýning í tilefni af
75 ára afmæli höfundar, en eins
og kunnugt er, hefur Sveinn Hall-
lórsson starfað mikið með Leili-
félagi Kópavogs. Leikur hann t.d.
smáhlutverk í þessu leikriti sínu.
„Óboðinn gestur“ er gamanleik-
ur í léttum dúr, sem gerist í sum-
irbústað læknis uppi í sveit. Ýms-
ir hlutir fara að gerast þar en
■itrokumaður frá Kleppi brýzt inn
í bústaðinn, en því verður ekki
nánar lýst hér. Nokkrum söngvum
■?r skotið inn í leikinn og eru það
vísur, sem höfundur hefur samið I
við nokkur lög, sem flest eru
þekkt.
í leikritinu Óboðinn gestur j
koma fram átta persónur, en leik-
endur eru: Theodór Halldórsson
(Geir strokumaður), Júlíus Kol-
beins (Ólafur Feilan), Auður Jóns
dóttir (Þórunn, kona hans), Guð
rún Hulda Guðmundsdóttir, (Ásta)
Sigurður Jóihannesson (Þóroddur)
og Gestur Gíslas., Sveinn Halldórs
son og Björn Magnússon, sem
leika leitarmenn frá Kleppi. Leik-
stjóri er Klemens Jónsson en leik-
mynd hefur Þorgrímur Einarsson
gert.
Húsfyllir var á frumsýningu leik
ritsins og var leikendum klappað
| óspart lof í lófa. Að sýningunni
jlokinni flutti bæjarstjóri Kópa-
ív.ogs, Hjálmar Ólafsson, stutt
jávarp, þar sem hann þakkaði
Sveini Halldórssyni fyrir framlag
hans til leiklistarlífs í Kópavogi.
Þakkaði Sveinn með stuttu ávarpi.
í sýningarskrá er stutt grein
um höfund leiksins og segir þar
meðal annars:
„Hvar sem leið hans hefur legið
hefur hann gerzt frumkvöðull að
leiklistarstarfi, og svo var einnig
er hann kom hingað í Kópavog,
því Sveinn er einn af stofendum
Leikfélags Kópavogs og nú heiðurs
félagi þess. Störf Sveins eru fjöl-
þættari en margur veit. Hann hef-
ur ekki einungis leikið og stjórn-
að leiksýningum, heldur einnig
stungið niður penna og samið leik-
rit, hversu mörg vita víst fáir þvi
lítt hefur hann hampað þeim verk
um sínum.
Leikfélag Kópavogs hefur nú
sýningar á leikriti hans „Óboðinn
gestur" skömmu eftir sjötiu og
fimm ára afmæli hans og v;ll með
því heiðra heiðursfélaga sinn og
forgöngumann, sem ætíð hefur ver
ið félagsins stoð og stytta og mur.
eflaust verða það framvegis."
Kosningahappdrætti
Skrifstofa kosningahappdrættis Framsóknarflokksins er
að Hringbraut 30, á horni Tjarnargötu og Hringbrautar.
Skrifstofan er opin alla daga frá 9—12 og 1—10, símar
1-29-42 og 1-60-66. Gerið skil sem allra fyrst.
Umræðufundur um stækkun
sveitarfélaga
Stúdentafélag Suðurlands efnir
til almenns umræðufundar mið-
vikudagskvöld, 11. maí í félags-
heimilinu Borg í Grímsnesi. Verð-
ur þar fjallað um málefni, sem
nú er mjög komið á dagskrá.
Frummælendur eru beðnir að
lýsa afstöðu sinni til hugmynda,
sem fram hafa komið um stækk-
un sveitarfélaga, varðandi fræðslu
héruð og skólahéruð, um endur-
skoðun á skipan prestakalla og
um breytingar á sýslumörkum og
yfirstjórn héraða. Vafalaust ber og
á góma stærð annarra félags-
heilda í dreifbýli svo sem félags-
heimilaumdæmi, sjúkrasamlög og
fleira.
Frummælendur á fundinum
verða fjórir: séra Sigurður S. Hauk
dal, oddviti Vestur-Landeyja-
hrepps, Steinþór Gestsson, oddviti
Gnúpverjahrepps, Unnar Stefáns-
son, viðskiptafræðingur og Ölver
Karlsson oddviti Áshrepps í
Framhald á bls 15
Frá B-listanum
/ Reykjavík
Hafið samband við hverfaskrifstofurnar. — Gefið upplýsingar
um nýja kjósendur og kjósendur listans, sem eru fjarverandi
eða verða fjarverandi á kjördag.
Allir til starfa fyrir B-listann.
Hverfaskrifstofur eru á þessum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30 sími: 12942
Fyrir Miðbæjarskólann: Tjarnargata 26 sími: 15564.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168 sími: 23519.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168 sírni: 23518.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168 sími: 23517
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54 sími: 38548-
Fyrir Breiðagerðisskólann: Búðargerði 7 sími: 38547.
Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91 símar:
38549 og 38550
Allar hverfa skrifstofurnar eru opnar frá kl. 2—7 og 8—10,
nema hverfismiðstöðin að Laugavegi 168 sem er opin frá kl.
10—12 og 1—7 og 8—10. Sími 23499.
Sjálfboðaliðar.
Stuðningsfólk B-Iistans, Iátið skrá ykkur til starfa og útvegið
sem allra flesta til að vinna fyrir B-listann á kjördegi.
Þeir sem vilja lána BÍLA Á KJÖRAG, eru vinsamlegast beðn-
ir að tilkynna það skrifstofu flokksins Tjarnargötu 26. Símar:
16066, 15564, 12942 og 23757.
VINNUM ÖLL AÐ GLÆSILEGUM SIGRI B-LISTANS
Utankjörstaðakosning.
Allar upplýsingar varðandi utankjörfundarkosningu er hægt
að fá á skrifstofu flokksins Tjarnargötu 26, símar: 19613 16066
— 15564 — 12942 og 23757. Kosning fer fram í Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu kl. 10—12, 2—6 og 8—10 alla virka daga.
Sonnudaga kl. 2—6.