Tíminn - 11.05.1966, Side 11
MEÐVIKUDAGUR 11. maf 1966
TÍMINN
VERÐIR LAGANNA
TOIVI TULLETT
59
10.300 dollara. Þær hafði áritað Juna Ortega-Ramirez, sem
bar vegabréf frá Perú og kvaðst vera frá Lima. Lýsingunni
á Ramierez bar í öllu saman við þá sem fyrir var á
„bandaríska flotaforingjanum“ Huffman og starfsaðferðin
var sú sama, þeir einu sem urðu fyrir barðinu á svikar-
anum voru skartgripasalar, kaupmenn og hótel. Líklega
hefur bófanum þótt nafnið Huffman orðið full þekkt.
Næst bar hann niður í Amersterdam og var það í
þrettánda skiptið. Nú kom hann fram sem Robert Emil
Hudec og bar bandarískt vegabréf gefið út í London. Þarna
tókst honum upp. Hann keypti gimsteinasamstæðu af kunn-
um gimsteinasala. Eftir langt þjark um verðið borgaði hann
með 153 fölsuðum 100 dollara ferðaávísunum. Kaupmað-
urinn var svo ánægður með viðskiptin, að hann gaf þessum
fjáða viðskiptavini að skilnaði sígarettukveikjara úr gulli,
en mesti ljóminn fór af þvi höfðingsskaparbragði, þegar
hann fékk ávísanimar endursendar.
Enn átti lýsing svikahrappsins við Huffman, og lögreglunni
virtist að hér gæti aðeins einn maður verið að verki, þótt
hann notaði mismunandi nöfn og þjóðemi. Öllum, sem urðu
fyrir barðinu á honum bar saman um að bíll biði álengdar
meðan svikin væm framin, en aldrei hafði hafzt upp á neinu
skráningarnúmeri né fleira fólk sézt.
Fregnir höfðu borizt af samskonar fölsunum í umferð
í Frakklandi, Ítalíu og Spáni, en á þeim ávísunum var
annað flokksnúmer, og lögreglan ályktaði af því að þar
væri annar falsari á ferðinni. Þá barst gagnleg vitneskja
frá bandarískum yfirvöldum. Komið hafði í ljós, að fyrsta
ávísunin af þessu tagi hafði verið seld um borð í skipinu
America á siglingu frá New Yok til Le Havre fyrir sex
mánuðum. Hún varð rakin til farþega að nafni Antonio
Buchan-Genes, sem var fæddur í Mexíkó og bar mexikanskt
vegabréf gefið út í New York. Með honum voru tveir
ferðafélagar, Portúgalar, sem keypt höfðu farseðla
samtímis af sömu ferðaskrifstofu. Annar þeirra hafði Chrysl-
er-bíl meðferðis og allir þrír virtust mjög samrýndir.
Ferðafélagarnir reyndust heita Ribero-Ginja, 43 ára gam
all, og Costa-Carbal, 31 árs flugmaður.
Leynilögreglumenn undir stjórn Emile Benhamou tóku
til óspilltra málanna að leita þessara kumpána. Benhamou
er ekki hár í loftinu, en kraftalegur dugnaðarforkur og
snjall leynilögreglumaður. Hann starfar hjá frönsku ríkis-
lögreglunni í París. Sérgrein hans eru falsarar, og hann
er gagnkunnugur glæpalýð Frakklands en þó sér í lagi
Parísar.
Brátt komst hann að raun um að Antonio Buchan-Genes
hafði gist í Stokkhólms-hótelinu í París ásamt Costa-Carbal
og Ginja Julio í janúarbyrjun 1957. Nöfnin voru svo lík
að enginn vafi var á að þarna voru komnir farþegarnir
af America. Chrysler-bíllinn sem Ribeiro-Ginja hafði haft
meðferðis frá Bandaríkjunum hafði líka sézt.
Þeir þremenningarnir höfðu flutt í Grand Hotel og skilið
þar, því Buchan-Genes reyndizt hafa gist í Hotel du Chateau
Frontenac.
Ferill Ginja varð rakinn milli hótela í París langt
frameftir árinu, og Benhamou komst að raun um að tvisvar
hafði verið í slagtogi með honum miðaldra Portúgalsmað-
ur, Manuel da Silva Brazao.
Smátt og smátt kom á daginn að einhver tengsl voru
milli þessara manna allra og Huffmans, og þeir höfðu
starfað saman í Evrópu. Vitneskja frá öðrum löndum sannaði
að Costa-Carbal og Buchan-Genes höfðu ferðazt til Antwerp-
en og Ginja kom þar við skömmu síðar. Dagsetningar
• báru með sér að þetta var um sama leyti og demanta-
kaupmanninum var greitt með fölsuðu ávísunum.
í júlí var Ginja staddur í Biarritz ásamt Manuel da Silva
Brazao og tveim öðrum mönnum sem ekki höfðu komið
fyrr við sögu, Kúbumanni að nafni Manuel Valdez og
Portúgalsmanninum Antonio da Souza. Nú fór að verða unnt
að raða brotunum saman svo þau mynduðu heild. Lýsingar
gáfu til kynna að Huffman, Costa-Carbal og Valdez væru
einn og sami maður. Þar að auki komu lýsingar lögreglu-
stjórna Ítalíu og Hollands á þeim J.O. Ramirez og Robert
Emil Hudec nákvæmlega heim við lýsinguna á Huffman.
Frekari vitneskja um bófalokkinn fékkst smátt og smátt
í hótelum Parísar. í La Régence Étoile kom á daginn
að þangað heimsótti þá Ginja og da Silva Brazao oft mað-
ur sem svipaði mjög til lýsinga á Huffman og virtist
DANSAÐÁ DRAUMUM
HERMINA BLACK
19
hafi kvalizt af sársauka, þá hefur
hún vissulega ekki gert það, svar-
aði Jill. — Þetta hefur verið
óþægilegt fyrir hana, og — hún
hefur verið áhyggjufull. En nú er
hún hamingjusöm.
— Guði sé lof fyrir það! Jill
datt i hug, að þakklæti hans væri
fremur vegna hans sjálfs en
Söndru, og hún minntist þess að
Sandra hafði sagt að hann hat-
aði veikt fólk, og alls kon-
ar veikindi. Það mundi vera svona
manni mátulegt, ef hann yrði ein
hvern tíma reglulega veikur sjálf-
ur, hugsaði Jill af óvanalegri ill-
girni.
Einhvern veginn hafði hún
ekki getað fellt sig við þetta
fríða, ómannlega fyrirbæri, og eft
ir að hafa sagt honum að „gjöra
svo vel að bíða,“ fór hún aftur að
bera hann saman við Vere Carr
ington. Hvað sem hægt væri að
segja slæmt um Vere, þá var hann
að minnsta kosti ekki ómannlegur
á sama hátt og hún hafði sam-
stundis fundið á sér að þessi mað-
ur var.
Hún var komin að herbergis-
hurð Söndru, þegar hún opnaði og
nuddkonan kom út. Jill stanzaði
og skiptist á nokkrum orðum við
hana og fór síðan inn.
Sandra hallaði sér aftur á bak
á koddann og virtist föl og frem-
ur þreytuleg.
— Halló, heilsaði hún. — Á ég
raunverulega að ganga gegnum
þetta á hverjum degi? Ég held ég
vilji frekar vera í gipsi.
— Þú hættir að taka eftir því
eftir tvö fyrstu skiptin, sagði Jill
glaðlega. Hún hikaði, ætti hún að
segja Söndru, að Glyn væri kom-
inn, eða ætti hún að senda hann
aftur til baka? Síðan,. þegar hún
mundi að hann gæti ekki komið
aftur, sagði hún treglega:
— Gesturinn þinn er kominn.
En ef þú ert mjög þreytt —
— Eg er ekkert þreytt. Vísaðu
honum strax inn. Sandra hálf reis
upp i rúminu.
— Ég segi það satt, við hefð-
um átt að hringja og segja hon-
um að koma ekki, sagði Jill og
var gröm við sjálfa sig. — Ég er
viss um, að hr. Carrington mundi
ekki vilja að þú fengir gest í dag.
— Mér er alveg sama hvað hr.
Carrington vill, sagði Sandra
hryssingslega. — Réttu mér speg-
il. Lít ég hræðilega úr? Varalit,
fljótt! Þarf ég kinnalit? Glyn hat-
ar að bíða.
Það var enginn vafi á því, að
þessi heimsókn var mikilvæg fyr-
ir hana. Jill rétti henni það sem
hún bað um og þegar hún var til-
búin fór hún og kallaði á Glyn
Eirol. En þegar hún leit við á
leið sinni út úr herberginu, gat
hún ekki séð merki um neitt
nema kurteislega kveðju á and-
liti sjúklingsins, þegar Sandra
rétti út böndina og sagði: — Halló
þú ert þá koaninn.
Vn kapítuli.
Sandra hélt áfram að brosa eft-
ir að dyrnar höfðu lokazt og hún
var ein með gesti sínum.
Hann hafði gengið að rúmi henn
ar og tók um hendi hennar og
stóð og horfði niður til hennar
ygldur á brún.
— Jæja, sagði hann. — Þú ert
ekki enn farin að hlaupa — en
mér skilst samt, að þú eigir að
fara í tíu mílna gönguferðir á
næstunni.
— Bíddu og sjáðu hvað verður
að gerast næst þegar við hittumst,
sagði hún. — Þú komst virkilega
hingað? Seztu niður — ef þú hef-
ur lokið þér af við höndina á mér
— Mér þætti það betra, ef ég
gæti ekki séð í gégnum hana.
Hann rannsakaði fallega, granna
hönd hennar gagnrýnandi áður en
hann sleppti henni. Síðan settist
! han niður á stólinn sem hafði
verið settur fram fyrir hann og
leit f kringum sig og út um glugg
ann. — Þetta er ekki svo slæmt
! af spítala að vera. Hvar koma
þeir sjúklingunum fyrir?
—Þeir hreinsuðu þá alla í burtu
því að þeir vissu að þú varst að
koma, sagði Sandra kaldhæðnis-
lega. — Þeir vildu ekki særa hin-
ar „viðkvæmu" tllfinningar þínar.
Hann yppti öxlum og bar eng-
in merki um viðkvæmar tilfinn-
ingar. — Hvað sem öðru lfður
þarf ekki að hreinsa þig f burtu.
— Segðu ekki að þú ætlir að
fara að fyrirgefa mér fyrir að
voga mér að eyðileggja fyrirætl-
anir þínar, sagði hún.
— Ég treysti þvi, að f framtfð-
inni verðir þú varkár með hverj-
um þú ekur, og haldir þig við
Ieigubílana eftir veizlur. Það var
ekki minnsti vottur af samúð i
rödd hans.
— Þætti þér betra að ég lok-
aði mig inni f glerbúri á milli
sýninga? spurði hún.
— Fremur en að hætta á að
eyðileggja starfsferil þinn, svar-
ði hann ósnortinn. — En þessi
skurðlæknir virðist nú hafa gert
við þig. Hvenær getur þú dansað
aftur?^
— Ég veit það ekki — hún
hætti við að segja, að hún vissi
jafnvel ekki hvort hana langaði
til að dansa aftur. Og samt hefði
hún dansað berfætt til enda ver-
aldar fyrir hann, ef hann hefði
sagt eitt vingjarnlegt orð — sýnt
'eitthvert merki þess að honum
stæði ekki á sama um hana.
En honum er alveg sama! hugs-
aði hún — um mig Allan tím-
ann sem ég gat ekki gengið og
var niðurdregin forðaðist hann
imig. Það er ballettinn sem hon-
_____________________________ 11
um er umhugað um — alltaf ball-
ettinn. Hann lítur aðeins á mig
sem hluta af honum — mikilvæg-
asta hlutann.
Skyndilega hataðl hún starfið,
sem hafði verið meira en hálft
líf hennar.
Það versta við það allt var, að
hún var viss um, að Glyn Errol
vissi að bún bar hlýjar tilfinning-
ar í brjósti til hans. En hve hað
væri gott, ef hægt væri að kon.a
honum f skilning um að það gæti
einhver annar komið til greina
en hann, einhver sem gæti orðið
henni mikilvægari en hann.
Hún sagði brosandi: — Þú verð
ur endilega að hitta skurðlækn-
inn minn þegar þú kemur frá
Ameríku. Hann er mjög aðlaðandi
maður — og auðvitað stend ég í
mikilli þakkarskuld við hann.
Hann hefur ekki heyrt um þig
ennþá, en þið tveir verðið að hitt-
ast!
Ef hún hafði vonazt eftir að
hafa einhver áhrif á Glyn, þá
varð hún fyrir vonbrigðum. Fritt,
fremur kaldhæðnislegt andlitið við
hlið hennar var óhaggað.
— Ég býzt við að honum hafi
verið mjög vei borgað nú þegar,
ekki satt? spurði Glyn. — Þú læt-
ur nú sjúkrasamlagið eiginlega
ekki borga þetta, er það? Og ég
býst ekki við að þessi maður geri
þeta aðeins af mannkærleika —
ekki það, bætti hann við örlítið
hraðar en hann átti vana til ,— að
ég sé vanþakklátur fyrir það sem
hann hefur gert.
En Sandra fann beizklega, að
þakklæti hans var aðefns veena
þess að Vere Carrington hafði
gert við brúðuna sem hann —
Gtvarpið
Miðvikudagnr 11. maf
7.00 Morgunútvarp 12 00 ládeg
isútvarp 13<00 Við vinnuna 15.
00 Miðdegisútvarp 16 30 Xlðdeg
'sútvarp
18 00 Lög á
nikkuna 18 45
Tilkynningar 1920 Veðurfregn
ir 19.30 Fréttir 20.00 Daglegt
mál Árni Böðvarsson flytur
þáttinn 20 05 Efst á baugi
Björn Jóhannsson og Tómas
Karlsson tala um erlend mál-
efni 20.35 Raddir lækna Ragn
ar Karlsson talar um svefn ng
svefntruflanir 21 00 Lög unga
fólksins Gerður Guðmundsdótt
ir kynnir 22.00 Fréttir >g veð
urfregnir. 22.15 „Mvnd i snegli"
saga eftir Þóri Bergsson P'inn
borg Örnólfsdóttir og Arnar
Jónsson lesa (2 ) 22.35 Kammer
tónleikar. 23.15 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 12. maf
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há-
degisútvarp 13.00 Á frivaktinni
15.00 Miðdegisútvarp 16.30 Síð
degisútvarp
18.00 Lög
söngleikj-
um og kvikmyndum. 18.45 Til
kynningar- 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir. 20.00 Daglejt
mál Árni Böðvarsson talar 20.
05 Konisert í F-dúr eftir Vfvaldi
Baoh. 20.15 Ungt fólk f útvaroi
Baldur Guðlaugsson kynnir
þ&tt með blðnduðu efni 21.00
Sinfóniuhljómsveit fslands held
ur ténleika f Háskólabfói Sti.
Igor Buketoff. Söngkona: Adele
Addison frá USA. 21.45 Kvæði
eftir Davfð Áskelsson. Baldvin
Halldórsson leikari les. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.15
„Mynd 1 spegli** eftir Þóri
Bergsson. Finnborg Örnólfsdótt
ir og Arnar Jónsson lesa (3>
22.35 jassþáttur Ólafur Steph
ensen kynnir 23.05 Bridgebátt
ur Hjalti Elfasson og Stefán
Guðjohnsen ræðast við. 23.30
Dagskrárlok.