Tíminn - 11.05.1966, Qupperneq 13
ÍÞRÓTTIR
MJBVIKUDAGUR 11. maf 1966
ÍÞRÓTTlfl
Bæjakeppni Rvíkur
og Akraness í kvöld
Leikurinn hefst kl. 20.15 á Melavelli
TÍMINN
13
Merkur áfangi ná'ðist á síðasta ári, þegar félagið vann Bikarkeppni KSÍ í fyrsta skipti. Myndin cr af
bikarmeisturum Vals.
Valur 55 ára í dag
Bæjarkeppni í knattspyrnu milli
Reykjavíkur og Akraness verður
háð á Melavellinum kvöld og
hefst Idukkan 20.15. Lið Reykja-
víkur var valið í fyrrakvöld af
XRR og kemur í ljós, að það er
Námskeið
í frjáls-
íþróttum
Frjálsíþróttadeild KR. efn
ir til námskeiðs í frjálsiþrótt
um fyrir unglinga á aldrin
um 12—16 ára á fþrótta-
svæði félagsins við Kapla-
skjólsveg og hefst fimrntu-
daginn 13. maí n. k. kl.
8-30—10. Kennt verður á
mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum.
Þjálfari verður hinn góð-
kunni þjálfari fél. Benedikt
Jakobsson, og honum iil að-
stoðar verða nokkrir þekkt
ir frjálsíþróttamenn, svo
sem Valbjöm Þorláksson,
Svavar Markússon, Sigurður
Bjömsson, Einar Frímanns
son ö. fl.
f lok námskeiðsins, 31.
maí fer fram sveinameistara
mót Reykjavíkur 1966 og
geta allir tekið þátt í því
sem vilja.
Frjálsíþróttadeildin vænt
ir þess, að allir þeir er tóku
þátt í innanhússnámskeiðun
um s. 1. vetur, komi á þetta
námskeið svo og aðrir nýj
ir menn er áhuga hafa á
íþróttum fyrir hrausta unga
menn.
MINNING
Framhald af bls. 8.
bæri hann á torg. Hún lagði sál
sína í það, sem hún vann. Hand-
lagni hennar og smekkur var frá-
bær og bera henni margir munir
fagurt vitni, þar á meðal atlaris-
dúkur í Þingeyrarkirkju.
Svanhildur kvaddi þetta líf á
Landakotsspítala. Hún er harm-
dauði vinum og vandamönnum sök-
um þess að hún var gædd miklum
persónuleika, sem yndi var að
skyggnast inn í og deila stundum
með. Ég vil þakka henni persónu-
lega sem frænku og góðum vini-
Ég þakka líka fyrir hönd manns
míns og tengdafólks, sem alla tíð
hefur átt saman vinsamlega sam-
leið með henni og hennar fólki.
Þessar fáu línur skrifa ég af þakk-
látum huga til hennar. Ég á
margra ánægjustunda að minnast
af heimili þeirra hjóna. Nú þegar
hún er dáin, finn ég, að það hefur
komið skarð í frændgarð minn,
sem ég hef kannski ekki skilið
fyrr en nú, að ekki verður fyllt
af öðrum. En ég er reynslunni
ríkari, með sínu lífi var hún fyr-
irmynd í þolgæði og stillingu og
þess og annars góðs úr fari henn-
ar mun ég ávallt minnast. Öllum
ástvinum hennar sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
J. J.
mestmegnis skipað yngri leikmönn
um.
Lið Reykjavikur er þannig skip
að talið frá markverði til vinstri
úthefla: Hallkell Þorkelsson, Fram
Jóhannes Atlason, Fram, Þor-
steinn Friðþjófsson, Val, Ómar
Magnússon, Þrótti, Anton Bjarna-
son, Fram, Ólafur Ólafsson, Fram,
Reynir Jónsson, Val, Eyleifur Haf-
steinsson KR, Hermann Gunnars-
son, Val, Guðmundur Haraldsson,
KR og Axel Axelsson, Þrótti.
f lið Akraness vantar hina
gömlu kempu Ríkharð Jónsson,
sem leikið hefur með liðinu vor,
en liðið verður þannig skipað:
Jón Ingvi Ingvarsson, Guðmundur
Hannesson, Kristján Ingvarsson,
Benedikt Valtýsson, Bogi Sigurðs-
son, Jón Leósson, Rúnar Hjálm-
arsson, Matthías Hallgrímsson Guð
jón Guðmundsson, Björn Lárusson
og Þórður Jónsson.
Eins og fyrr segir, hefst leik-
urinn kl. 20.15.
Fjórir nýir
landsdómarar
Fyrir skömmu voru skipaðir
fjórir nýir landsdómarar í knatt-
spyrnu, en það eru þeir Hilmar
Ólafsson, Fram, Karl Jóhannsson,
KR, Halldór Backmann, Þrótti, og
Róbert Jónsson, Val.
Tveir hinir fyrstnefndu eru báð
ir kunnir handknattleiksmenn, en
hafa einnig tekið mikinn þátt í
knattspymu. Karl er einnig lands
dómari í handknattleik. Róbert
Jónsson hefur einnig dæmt mikið
í yngri flokkunum síðustu ár, en
hann er einnig kunnur unglinga-
þjálfari. Halldór Backmann hefur
dæmt mikið í yngri flokkunum.
Úrslit í kvöld
Úrslitaleikurinn í Evrópubikar.
keppninni \ knattspyrnu, keppni
meistaraliða, verður háður í Bruss
el í kvöld, en eins og kunnugt er,
þá leika Real Madrid og Partizan
til úrslita.
MINNING . . .
Framhald af bls. 8.
Dýrafirði. Mikilhæfri konu, sem
var manni sínum stoð og stytta.
Þeirra börn eru: Vilhjáltnur
Steinn, kvæntur Sólveigu Guðjóns-
dóttur, Helga Valgerður, gift Sven
Frahm, þau búa í Gautaborg, Gísl-
ína, gift Bjama Sæmundssyni og
Guðmundur Jón, sem enn er í föð-
urhúsum.
Saga Vilhjálms S. Vilhjálmsson-
ar er ekki skráð hér. Hann var
mikil hetja í sínu lífi. Aðeins
tveggja ára gamall fær hann löm-
unarveiki og liggur í rúminu lang-
tímum saman upp frá því. En
hann lætur það samt ekki á sig
fá, býzt til manns og styður
aðra. Hlýtur frama og rís yfir um-
hverfi sitt. Minning um Vilhjálms
S. Vilhjálmsson mun verða lang-
11 -
Ég votta ástvinum hans samúð.
Jónas Guðmundsson.
Knattspymufélagið Valur er 55
ára í .dag. Það var stofnað 11. maí
árið 1911. Stofnendur þess voru
nokkrir drengir innan KFUM.
Séra Friðrik Friðriksson hinn
þjóðkunni æskulýðsleiðtogi, sem
flestum öðrum var skyggnari á
það, sem mætti verða ungum pilt-
um til nokkurs þroska, gerði sér
ljósa grein fyrir uppeldis- og
þroskagildi íþrótta. Hvatti hann
því mjög eindregið til þessarar fé-
lagsstofnunar.
Valur var fjórða knattspyrnu-
félagið, sem stofnað var í bæn-
um, og var svo um árabil, eða
allt þar til Þróttur kom til sög-
unnar.
Það fór heldur ekki mikið fyrir
félaginu fyrst j stað, sem og var
varla von. En því óx smám sam-
an fiskur um hrygg og vegur þess
fór jafnt og þétt vaxandi. Valur
hefur og jafnan átt þvi láni að
fagna að hafa á að skipa hinum
vöskustu mönnum. Mönnum, sem
hafa borið merki félagsins fram til
sigurs jafnt á leikvelli, sem í hinu
félagslega starfi. Um það
ber aðstaða félagsins í dag, til
starfa og leika, ljósastan vottinn.
Það er nú orðið langt síðan að
Valur varð eitt af forystufélögum
bæjarins, í þeirri íþrótt, sem það
upphaflega var stofnað um —
knattspyrnuíþróttina — Félag-
•ið hefur auk þess tekið upp á
RAÐSKONA
Óska eftir ráðskonustöSu
í sveit.
Upplýsingar í síma
92-1577.
SKOLI j pálmason,
héraSsdómslögmaður.
Sambandshúsinu, S.hasð
Sölvhólsgötu 4,
Símar 12343 og 23338.
stefnuskrá sína hin síðari ár, bæði
handknattleik og skiðaíþróttina og
með ágætum árangri.
Fyrir nokkrum árum var gerð
sú félagslega skipulagsbreyting
innan Vals, að skipta félaginu í
deildir. Var stofnað til þriggja
deilda þ.e. Knattspyrnudeild, for-
maður Björn Carlsson, handknatt-
leiksdeild, formaður Þórarinn Ey-
þórsson ,og Skíðadeild formaður
Sigurður Tómasson. Með deildar-
skiptungunni hefur náðs aukinn
árangur í störfum, bæði félagslega
og leikrænt.
Valsmenn unnu á s.l. ári Bik-
arkeppni KSÍ, og mun á þessu
afmælisári sínu taka þátt í Evrópu-
bikarkeppninni. í handknattleikn
um hafa flokkar félagsins getið sér
góðan orðstír, og hafa kvennaflokk
ar félagsins þá átt óskilið mál og
eru Valsstúlkur fslandsmeistarar
nú í handbolta og hafa verið það
þrívegis í röð, auk margra góðra
sigra í yngri flokkunum.
Segja má, að það sem öðru frem
ur hafi einkennt Valsfélaga, hafi
verið samstarf, samhentir hafi fé-
lagarnir staðið að hverju stórátak-
inu öðru meira, á liðnum árum, og
aldrei unnt sér hvíldar í því upp-
byggingarstarfi, að búa í haginn
fyrir sig og verðandi félaga. Hin
margvísl. mannvirki á félagssvæð-
inu að Hlíðarenda vitna bezt þar
um. f bróðurlegu samstarfi við
önnur félög innan sambanda og
ráða, hafa Valsfélagar heldur ekki
legið á liði sínu á liðnum árum.
Enda hafa forráðamenn félagsins
jafnan verið sér þess fullkomlega
meðvitandi að starfsemi íþróttafé-
laganna er mikið þjóðfélagslegt
ábyrgðarstarf.
Hér er ekki tækifæri til að rekja
sögu þessa merka félags, sem um
margt svipar til sögu annarra fé-
laga, sem á sama vettvanigi hafa
starfað. En þeim sem kynnast
vilja nánar starfi félagsins, skal
bent á hið mikla og vandaða rit
um sögu þess, sem skráð var í
tilefni 50 ára afmælisins árið 1961.
Þar er gert ítarlega grein fyrir
margþættri starfsemi liðinna ára,
í máli og myndum, starfi sem
átti upphaf sitt í fámennum hópi
lítilla drengja innan Kristilegs fé-
lags ungra manna, fyrir 55 árum.
í dag kl. 4—7 minnast Valsmenn
þessara tímamóta í sögu félags
síns, ásamt vinum sínum og sam-
herjum innan íþróttahreyfingar-
innar, sem þeir vonast til að sjá
sem flesta í hinu vistlega félags-
heimili sínu að Hlíðarenda.
Stjórn Vals skipa nú þessir
menn:
Páll Guðnason, formaður Gissur
Vagnsson Friðjón Friðjónsson
Þórður Þorkelsson Einar Björns-
son Björn Carlsson og Þórarinn
Eyþórsson.
SUMARDVÖL BARNA
Sumardvalarheimili barna verður starfrækt 1
Steinsstaðaskóla 1 Lýtingsstaðahreppi mánuðina
júní, júlí og ágúst. Nokkur börn á aldrinum 5—8
ára geta enn komizt að. Upplýsingar gefnar í
síma 34872 kl. 8—10 síðdegis, fimmtudag og föstu
dag.
ATHUGIÐ
Sá, sem tók tösku í misgripum í sl. viku með áætl-
unarbíl frá Borgarnesi, er vinsamlegast beðinn að
skila henni á Umferðarmiðstöðina. Taskan var
merkt „Jón Arason".