Tíminn - 11.05.1966, Síða 16
KJOSENDAFUNDUR B-LISTANS k AKUREYRI
Kjósendafundur B-list-
ans á Akureyri verður
haldinn í Borgarbíói næst-
komandi laugardag kl 4
síðdegis. Tíu af frambjóð-
endum listans flytja stutt-
ar ræður. Fundarstjóri
veríiur Ingvar Gíslason. al-
þingismaður. Fundarritar-
ar verða Kolbrún Baldvins
dóttir og Hákon Hákonar-
Framhald á bls. 14.
Vinnuhagræðing borgarstjórnarmeirihiutans
VISITALA VORU
OG ÞJÓNUSTU:
HÆKKUN 114%
TK—Reykjavík, þriðjudag.
Hér birtist Iínurit yfir vísitölu vöru og þjónustu s. 1. 6 ára. Sýnir
hún þróun í verðlagsmálum frá ársbyrjun 1960, er núverandi ríkis-
stjórn hóf aðgerðir sínar í efnahagsmálum, snjallræðunum til stöðv-
unar verðbólgunni. Stöðvun verðbólgunnar var aðal stefnuskrármál
stjórnarinnar og var sagt, að allt annað væri unnið fyrir gýg, ef það
tækist ekki. Eindæma góðæri og mikil biðlund verkalýðshreyfingar-
innar hefur þó ekki létt undir með snjallræðunum, eins og opinberar
tölur um verðlagsþróunina sýna. Vísitala vöru og þjónustu hefur hækk
að um hvorki meira né minna en 114% síðan ríkisstjórnin tók til við
starf sitt. Ekki fæst ríkisstjórnin þó til að viðurkenna, að eitthvað
sé bogið við „snjallræðin", heldur segir, að allt sé þetta kröfuhörku
Iaunþega í kaupgjaldsmálum að kenna- Ætla menn að skrifa undir
það í kosningunum annan sunnudag?
„VIÐREISNAR“-VERÐBOLGA
SKÓLAMÁLI N
Framsóknarflokkurinn leggur
áherzlu á, að skólahúsnæði borg
arinnar verði á næstu árum auk
ig svo, að bætt verði úr þeim
gífurlegu húsnæðisvandræðum
sem nú torvelda eðlilegt skóla-
starf og lýsa sér m. a. í því að
tvísett eða þrísett er í nálcga
allar almennar kennslustofur
bama- og gagnfræðaskóla, að
stöðu fyrir sérkennslu vantar
við fjölmarga skóla og nemend
ur verða að þeytast milli
kennslustaða, víðs vegar um
borgina og vera í skólunum á
ýmsum tímum dagsins, öllum
til mikilla óþæginda. Leggur
flokkurinn sérstaka áherzlu á
eftirfarandi:
að skólahúsnæði vcrði aukið
svo á næstu árum að einsetja
megi í almennar kennslustofur,
að húsnæði fyrir sérkennslu
svo sem handavinnu, matreiðslu
og íþróttir verði reist jafnhliða
almennum kennslustofum,
að reistur verði heimavistar-
skóli I nágrenni borgarinnar fyr
ir unglinga á gagnfræðastigi,
að byggingu Vcrknámsskólaps
verði hraðað og hann búinn
nauðsynlegum kennslutækjum
og starfsemi skólans tengd at-
vinnulífi borgarinnar og iðn-
fræðslunni meira en nú er,
að byggður verði sem fyrst æf-
ingaskóli fyrir Kennaraskólann,
að komið verði á sérfræðinám
skeiðum fyrir kennara og þeir
studdir til framhaldsnáms.
að samstarf hcimila og skóla
verði aukið og bindindisfræðsla
í skólum efld.
BROTIZT
LYNGAS
KT—Reykjavík, þriðjudag.
Um helgina var brotizt inn í
barnaheimilið Lyngás. heimili
Styrktarfélags vangefinna við
Safamýri og unnin þar spjöll á
verðmætum. Atburðurinn hefur
átt sér stað á sunudagskvöld, en
þá voru engin börn á heimilinu.
Að því er forstöðukona barna-
heimilisins, Jónína Eyvindsdóttir,
sagði í viðtali við Tímann í dag
höfðu spellvirkjarnir rifið nður
rólu. brotið og eyðilagt bekki í
litlu garðhúsi við heimilið. Þá
höfðu þeir komizt í þvottahús
barnaheimilisins og kveikt á
þvottapotti, fullum af þvotti, með
þeim afleiðingum, að þegar komið
,var að þvottahúsinu morguninn
eftir, var allur þvotturinn ónýtur.
Einnig munu spellvirkjamir hafa
átt eitthvað við hitaveituna í hús
inu svo hún þyrfti viðgerðar við.
Ekkert munu þeir þó hafa tekið
með sér, er þeir yfirgáfu stað-
inn. Jónína gat þess, að á sunnu
dagskvöld hefðu sézt nokkrir
drengir 12—14 ára gamlir að leik
við heimilið og vildi hún beina
þeim tiimælum til foreldra í
nágrenni heimilisins, að láta börn
sín ekki leika sér á lóð þess.
Ha — útsvörin — hækkaS
um 140%. — Er það eitt-
hvað til að gera veður út af?
KOSNINGAFUNDUR
UNGA FÓLKSINS
Félag ungra Framsóknar- annað kvöld, fimmtudag,
manna í Reykjavík býður kl. 8.30 síðdegis.
ungu fólki til fundar í Lídó Stuttar ræður og ávörp
flytja á fundinum: Baldur
Óskarsson, formaður FUF,
Bjarni Bender framreiðslu
maður, Daði Ólafsson, hús-
gagnabólstrari. Daníel Hall
dórsson, fulltrúi, Gunnar
Bjarnason, leikmyndateikn
ari, Halldóra Sveinbjörns-
dóttir, bankagjaldkeri,
Hörður Helgason, forstjóri
Jón A. Ólafsson, lögfræð-
ingur, Ólafur Ragnar
Grímsson, hagfræðingur
og Tómas Karlsson, blaða-
maður.
Einar Ágústsson, borgar
fulltrúi og alþingismaður.
ávarpar fundinn.
Fundarstjóri verður ör-
lygur Hálfdanarson, for-
maður Sambands ungra
Framsóknarmanna, og
fundarritarar Kristín Karls
dóttir, húsfreyja, og Krist-
ín Jóhannesdóttir, mennta-
skólanemi.