Vísir - 07.12.1974, Síða 2
2
Vfsir. Laugardagur 7. desember 1974
VÍSIBSm:
Búizt þér við atvinnu-
leysi í vetur?
/
Sverrir Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri: — Ég vona nú
bara, að til þess komi ekki. En ég
treysti mér ekki til aö spá um
þaö.
Sigriöur Jóhannsdóttir, húsmóö-
ir: — Ég hef nú litið hugsað um
þaö og geri mér eiginlega enga
grein fyrir þvi.
Hreggviöur Danielsson, sjó-
maöur: — Ég get nú ekki gert
mér grein fyrir þvi. Þó finnst mér
stefna að þvi meö sama áfram-
haldi.
Þóröur Henriksson, prentari: —
Ja, eitthvað versnar þaö alla
vega. Fyrst og fremst I bygg-
ingariönaðinum.
Arndis Benediktsdóttir, hús-
móðir: — Nei, nei, ég er alltaf svo
bjartsýn. Ég reikna ekki meö
neinu atvinnuleysi, þaö er alltaf
bezt aö vera vongóöur.
óiafur Hannibalsson, skrifstofu-
.stjóri: — Nei, ég geri nú ekki ráö
fyrir þvi. Ég býst við þvi aö at-
vinnuleysiö dragist fram á seinni
hluta ársins.
r
JOLAGETRAUNIN
Daniel Defoe skrifaði: A) Robinson Krúsó
B) Fanginn i Zenda C) Landnáma
Krossið við svarið
sem þið teljið rétt.
Geymið seðilinn og
safnið öllum tiu úr-
lausnum saman, þegar
allar spurningarnar
hafa birzt. Sendið þær
siðan ásamt nafni og
heimilisfangi til Visis.
Daniei Defoe var enskur rit-
höfundur. Hann fæddist áriö
1660 og dó 1731.
Þótt hann sé viðkunnur fyrir
a.m.k. eina bóka sinna þá vill
svo til, að hann gerðist ekki rit-
höfundur fyrr en 60 ára gamall.
Fram til þess haföi hann unn-
iö viö flestallar starfsgreinar
þjóöfélagsins, sem verkamað-
ur, skransali, ökumaður, sjó-
maöur, tigulsteinagerðarmaður
o.fl.
Þetta er fjóröa spurningin I
jólagetrauninni, þar sem fyrstu
verölaun eru Weltron-kúlan,
glæsilegt hljómburöartæki með
útvarpi, magnara og segul-
bandi, alit I stereo að sjálfsögðu.
Enn er ekki of seint aö veröa
sér úti um blöðin meö þremur
fyrstu spurningunum, en þær
hafa birzt þrjá undanfarna
daga.
~^~Mundu aö aðfangadagskvöld er á þriöjudegi, Frjádagur!
TIL MIKILS AÐ VINNA
Þaö er mikiö aö vinna og engu
aö tapa, aö taka þátt i jólaget-
rauninni.
Weltron-kúian, hljómtækiö
sem viö bjóöum sem fyrstu
verðlaun, er eftirsóknarveröur
hlutur til eignar.
Þessi kúla inniheldur
stereoútvarp og stereokassettu-
segulband ásamt magnara. í
hliöum eru hátalarar innbyggð-
ir. Útvarpiö nær miðbylgju,
langbylgju og FM-bylgju.
Hægt er aö kaupa ýmsa auka-
hluti með Weltron-kúlunni.
Heyrnartól og hljóönemi þykja
sjálfsagöir fylgihlutir. En þaö
er einnig hægt að kaupa auka-
hátalara, ef menn vilja fylla
hvern krók og kima meö músik.
Meö aukahátölurum nefnist
tækið Weltron 2003, en tækið
sem viö bjóöum sem fyrstu
verölaun I jólagetrauninni er
Weltron 2004.
Þaö er Nesco á Laugavegi 10
sem hefur Weltron á boöstólum.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
FLEIRI TOGARATÖKUR
VERÐA AÐ FYLGJA
Pétur Guöjónsson skrifar:
„Þaö vakti almennan fögnuö
meöal sjómanna og útgeröar-
manna og þjóöarinnar allrar er
fréttist um töku þýzka togarans
Arcturus I landhelgi.
Þaö er búiö aö vera á al-
mannavitorði nú I allt of langan
tima, að I gildi hafa verið tveir
mælikvaröar I sambandi við
landhelgisbrot á Islandsmiöum,
annar fyrir útlendinga, sem
„stuggað hefur veriö við”, eins
og þaö hefur heitið á máli Land-
helgisgæzlunnar. Og svo hinn
mælikvarðinn, sem hefur verið i
gildi fyrir Islendinga á slnum
eigin miöum, en þar hefur skil-
yröislaust átt sér stað taka,
kæra og dómur upp á fangelsi
viö þriöja brot. Framkvæmd á
slikum tvenns konar mæli-
kvöröum er algjörlega
óframkvæmanleg. Þvl er þvi
hér meö fagnaö aö „ein lög
skulu yfir oss alla ganga”.
Sú skýring er til aö ástæöan
fyrir þessu furðulega ástandi
hafi veriö aö fyrrverandi rikis-
stjórn hafi haft þaö megin-
sjónarmiö I landhelgisdeilunni
viö* erkifjandann, Breta, að
einangra þá algjörlega I deil-
unni, og þvi hafi Þjóöverjum
verið boðnir of hagstæöir
samningar frá Islenzku sjónar-
miöi, eingöngu til þess aö útkljá
deiluna viö þá gegn fórnun á
fiskveiöiréttindum, en um leiö
skilja Breta eftir eina og banda-
mannalausa I deilunni viö okk-
ur. Þetta viröast Þjóöverjar
ekki hafa skiliö og hafa þvi
misst af strætisvagninum i
þessu máli.
Nú er það mikilvægasta aö
framhaldiö verði i samræmi viö
þessa byrjun. Skv. öllum viöur-
kenndum reglum i samskiptum
þjóða er litið á slikan atburð
sem handtaka Arcturusar er
sem slys, ef hann er einstakur
og ekkert annað fylgir á eftir.
Eingöngu þrlr til f jórir slikir at-
burðir eru metnir sem staöfest-
ing á stefnubreytingu. Þvi verö-
ur aö vona aö fleiri togaratökur
fylgi á eftir til þess aö staðfest-
ingin komist til vitundar Þjóö-
verja.
Ekki er þó algjörlega útilokaö
aö þessi atburður verði til þess
aö þýzki togaraflotinn viröi hér
eftir útfærslu Islendinga i 50
milur. Þaö verðum við aö vona,
og væri það heppilegasta lausn-
in fyrir alla viðkomandi. En
reynsla næstu daga mun skera
úr um þetta.”