Vísir - 07.12.1974, Side 4
4
Vísir. Laugardagur 7. desember 1974
Tvœr fallegar bœkur á markaðnum:
Myndskreytt biblía og
Veraldarsaga Fjölva
Komin er út myndskreytt
Biblia Fjölva, og er undirtitill
Kjarni heilagrar ritningar. Um
textann sáu þeir Þorsteinn og
sr. Oddur Thorarensen, en
stefnt var að þvl að gera máiið á
textanum alþýðiegra og meira I
samræmi viö nútima hugmynd-
ir, að þvl sagt er I formála.
Við útgáfu bókarinnar nutu
útgefendur fyrirgreiöslu
biskups og framkvæmdastjóra
Bibliufélagsins og fengu leyfi til
að útfæra eftir texta islenzku
bibliunnar og þeirri endurskoö-
un á þýöingu Nýja testamentis-
ins, sem nú stendur yfir.
Upphafsútgáfu þessarar bók-
ar önnuöust próf. Joseph E.
Krause i St. Paul I Minnesota og
dr. Samuel Terrin i New York.
Gifurlegur fjöldi litmynda er I
bókinni, sem prentuö var I
Júgóslaviu.
Þá hefur Fjölvi einnig sent frá
sér fyrsta bindi Veraldarsögu
Fjölva og nær fyrsta bindiö frá
örófi til ársins 3000 fyrir Krist.
Þorsteinn Thorarensen hefur
þýtt, endursagt og frumsamiö
texta bókarinnar en uppruna-
legur höfundur er Christiano
Dan. Mikill fjöldi mynda prýöir
þessa bók, sem er vel úr garöi
gerö, útlitsteiknuö og prentuö á
Italiu. _ SH
Myndskreytta bibiian: kr. 2380,-
Veraldarsaga Fjöiva: kr. 1987,-
fkki skortir þar kyngi og kraft
Þaö er vist mikið um að vera I
heiminum um þessar mundir. Ég held það
sé meira að segja svo margt að gerast, að
það sé varla hægt að ætlast til þess að fólk
fylgist með þvl öliu nema það hafi þvl
hærri greindarvlsitölu. Það er I sjálfu sér
ekki I mlnum verkahring að vita hvað
vlsitaia er, enda býst ég við að greindar-
vlsitala mln komi I veg fyrir að ég fengi
skilið hvað framfærsluvlsitala og hvað
þær nú heita allar erú, jafnvel þótt ein-
hver sérfræðingur væri allur af vilja
gerður að segja mér það. Hitt veit ég án
allrar sérfræðiaöstoðar að þegar lamba-
kjöt og brennivin hækkar I verði minnkar
magnið sem ég get keypt af þessum vöru-
tegundum, ef kaupið mitt stendur I stað.
Rhapsodia luktarstaurlana eftir Leif
Leirs.
Gervallt mannkynið kvaö
standa á barmi gjötunar sinnar
allt I lagi góði
ég
stend upp við luktarstaur
i Hafnarstræti
að fróðra manna sögn kvaö menning vor
eftir að hafa náð hátindum tækni og
þekkingar
vera á hraöri leið niður I djúp
tortlmingarinnar
ég
er slöttungshátt uppi
og fjandakornið sem mig sundlar
hvaö þá meira
og gervallt mannkynið stendur á öndinni
I hljóðu ofvæni eftir einhverri lausn
njálsdropum eða alibaba
ég
stend upp við luktarstaur og bið mannsins
sem tók að sér að redda flösku
ef
gervallt mannkyniö gæfi sér tlma til
að standa upp við luktarstaur
þegar sólin skin
þá ætti það ef til vill eftir aðnjóta
sömu dásemdar og ég
....sjá hilla undir manninn
með flöskuna
En ég er viss um aö hvernig svo sem
ástandiö veröur I heiminum, hvert sem
Kissinger kann aö flækjast hvort sem
þjóöverjar setja á okkur löndunarbann
eöa ekki og hvort heldur menn eru meö
eöa á móti kanasjónvarpinu, þá veröa
haldin jól á tslandi. Þaö getur aö vlsu
veriö aö þaö veröi ekki eins mikill glans
yfir þeim og oft áöur. Fólk veröi jafnvel
aö sleppa þvl aö skola lambakjötinu niöur
meö dýrindisveigum og einhver veröi aö
láta sér nægja aö gefa konunni sinni eitt-
hvaö minna en bifreiö I jólagjöf. En ég er
hér um bil viss um þaö, þótt ég hafi ekki
sannreynt þaö sjálfur, aö steikin rennur
niöur ef meö henni er hæfilegt magn af
blávatni og ætli gamli blllinn dugi ekki I
svo sem eins og eina messuferö I viöbót.
Þula eftir Böövar Guölaugsson.
Ég var að hugsa um að yrkja eitt
yfirnáttúrlegt kvæði,
sem fjallar um allt og ekki neitt
svona yfirleitt.
Og sitthvað hafði ég saman reytt
satt og logið bæði.
Nú hef ég I viku heilann spreytt
og hár mitt reytt,
en það ætlar ekki að ganga greitt
að gera úr þessu kvæði.
Ekki vantar þó viljann;
og við skulum nú sjá,
kannski maður poti þessu
papplrinn á.
Allir krakkar krossabit
koma sér úr bólunum.
Löngum þreytist litið vit
við lærdómsstrit.
Þeim ég góðar fréttir flyt:
frl I viku úr skólunum!
— Það ætti að gefa út glæparit,
til að gleðja þau með á jólunum.
— AUtaf skeður nú eitthvað nýtt.
Erlendis bæði og heima
skeggræða menn og skrafa titt,
en skilja litt,
hvaö orðagjálfrið er einskisnýtt
um alla heima og geima.
Mórauðu gæti maður spýtt
margoft undir þessum
þreytandi messum,
ógrátandi á þær hlýtt
og allt að þvi látiö sig dreyma,
að allir kettir I bænum séu breima.
— Nú ferðumst við i huganum
um loft og sjó og láð
og heiisum upp á margumtalað
Heimsfriðarráð.
Þar er sérhver fundurinn
sæmilega sóttur
af svertingjum og mongólum
og Sigrlði Eiriksdóttur.
Og kliður fer um salinn,
þegar Kiljan hljóðs sér kveöur,
og Silfurtungliö giottandi
i skýjum skáldsins veður.
— ,,BI, bl og blaka,
það blikar á sund”.
kannski maður hypji sig
á Heimdallarfund,
og hakki þar I sig heldur betur
holla andans fæðu;
— þar flytur hann Gunnar Gunnarsson
guðdómlega ræðu.
Ekki skortir þar kyngi og kraft,
kjarnann hef ég á minnið lagt.
„Froöan vellur um fláan kjaft!”
Fjandi er þetta nú laglega sagt.
— Hættið þiö nú öllum þessum
hávaöa, börn,
þið megið ekki trufla
hann séra Sigurbjörn.
Hann flutti hér forðum ræðu
um flatgogga á torgum,
sem teknir voru I karphúsiö
og trylltir með orgum.
En Hklega hefur enginn
viljaö ljá þessu eyra.
— Og nú skrifar hann bara I Morgunblaðið
um Skálholt og fleira.
— Reika ég einn um rykug stræti
reistur eins og hani,
og kvensamur eins og kani;
hálftlma ræðu ég haldið gæti
um handritin og dani,
maöur er svo sem ekki allur
þar sem maður er séður,
þvi meður.
— Ég bregö mér nú reyndar
á böllin löngum
og brúka þar mlna fótamennt,
skek mig og baða út öllum öngum,
eins og mér hefur veriö kennt.
Vasapelans ég dreypi á dreggjum,
dusta jakkann og greiði mér
og býð svo upp þessum beinasleggjum,
sem brosa framan I hvern sem er.
Þar er mörg jómfrúin þrifleg og næs,
og þá er að spæna I þær plenty skæs.
Og hárin á minu höföi risa
hreint sem ég væri I næturklúbb.
— Ég vildi aö ung ég væri skvlsa
voða skotin I litlum gúbb.
— En nú eru að koma jólin.
Meðal annarra orða:
hefur frúin hugsað fyrir
hangiketi að borða?
Það er nú lóöiö I lifsins gleði og þraut
að éta bara rjómatertu
og rúslnugraut,
gráðugur eins og hundur,
og heimskur eins og naut,
og ganga svo eins og trúaða fólkið
á guðsrikisbraut,
og hnlga að lokum ellidauður
i aldanna skaut.
Ben. Ax.