Vísir - 07.12.1974, Page 10
10
Vlsir. Laugardagur 7. desember 1974
Kirkjur í Eyrorbokkaprestakalli
Undirbúningur jólanna
ekki vanþörf á. Þetta er eðli og
inntak jólanna. Og til að undir-
búa þetta, hafa kristnir menn
sett aðventuna, þar sem talað er
um að Guð hafi komið, hógvær
til mannanna. Þeim Guði eigi
lika að mæta i hógværð og bæn,
en ekki með glamri og glysi,
eins og jólaundirbúningurinn
ber samt mest vott um.
Getur ekki verið, að þarna sé
brotalömin I jólaundirbúningn-
um. Þar sem jólin eru slitin úr
tengslum við þann Guð, sem
kemur til þín og min, jólin
undirbúin án bænar og undir-
gefni við hann?
Það verður auðvitað hver
maður að dæma fyrir sig sjálfur
og taka sína eigin ákvarðanir.
En væri ekki rétt að undirbúa
jólin nokkuð eftir eðli þeirra og
inntaki. Undirbúa þau i bæn og
sjá hvort ekki verður meira af
hinni sönnu jólagleði, sem allir
eru að sækjast eftir, en allt of
margir fara á mis við? Ég hef
trú á þvl og veit dæmi til þess,
að Jesús hefur veitt slika gleði
og gerir það alltaf sé raunveru-
lega eftir henni leitað.
Mætti það verða okkar undir-
búningur fyrir þessi jól.
Valgeir Ástráðsson.
Stokkseyrarkirkja
Gaulverjabejarkirkja
Hugleiðing Kirkjusiðunnar I dag
er eftir sr. Vaigeir Ástráðsson
sóknarprest á Eyrarbakka.
Hann er fæddur 6.7. 1944, stú-
dent 1965, kandfdat 1971, hefur
stundað nám auk þess I Banda-
rikjunum og I Skotlandi. Vlgður
18.2. 1972. Kona hans er Aðal-
heiður Hjartardóttir frá Hellis-
sandi, þau eiga þrjár dætur.
undirbúningur eykst
þar til hann nær ræki-
lega inn á hvert heim-
ili, þar sem allt verður
undirlagt vegna undir-
búnings þess mikla,
sem á að gerast. Eftir-
væntingin hjá hinum
yngri eykst með hverj-
um degi og nákvæm-
lega er fylgst með þvi,
hversu langur timi er
til stefnu.
Þetta er vel, þvl jólin eru stór
viðburður og tilefni þeirra enn
meira. Og það er auðvitað sjálf-
sagður hlutur, að þegar menn
vilja gera sér mikla hátlð, þá
undirbúi þeir það sem mest og
vandlegast. Enda er það þann-
ig, að á jólum vilja menn gleðj-
ast og gleðja aðra. Og til þess að
þaö geti orðið, verður að fara
fram rækilegur undirbúningur.
Þess vegna er það lika, að
húsmæðurnar vinna margfald-
an vinnudag sumar hverjar,
þegar undirbúa skal jólin. Og
þar er kannski líka ástæðan
fyrir allri vinnunni og undirbún-
ingnum hjá öðrum. Allt skal
sópað og prýtt, allir skulu vera
sæmilega til hafðir á hátlðinni
miklu. Þá skal líka útdeila gjöf-
um, borða betur en nokkurn
tlma ella.
■ — Þannig er undirbúið þessa
dagana á Islandi og er margt
gott um það að segja. Þvi á jól-
um skal gleðjast og allur undir-
búningur sem stuðlar að gleð-
inni er góður.
En það er jafnan góður siður
að staldra við og kanna hvernig
hlutum er háttað I raun og sann-
leika. Það er lika skynsamlegt
við undirbúning jóla.
Það, sem stuðlar að gleði á
hátíðinni er gott, sögðum við.
Þess vegna er það sjálfsögð við-
miðun til að fara eftir með und-
irbúning jóla og undirbúa allt á
þann hátt. Enda er það tilgang-
urinn hjá öllum. — En hvernig
verður það best gert og hvað
hefur I för með sér gleðilega
jólahátið?
Þeirri spurningu er sjálfsagt
erfitt að svara svo gildi fyrir
alla. En þó er hægt að alhæfa
nokkrar staöreyndir fyrir
alla menn. Það er óhætt að full
yrða, t.d., aðhvert það verkefni,
sem tekizt er á við og viðkom-
andi ræöur ekki við að fullu, er
ekki þess eðlis, að það verði til
gleði. Það er lika öruggt, að allt,
sem gengur út I öfgar og verður
yfirdrifið verður frekar til þess
að þreyta en gleðja. Þá vil ég
llka fullyrða, að hver sú mann-
leg viðleitni, sem ekki er I sam
ræmi við eöli sitt sé frekar byröi
en gleöigjafi.
Séu þessar fullyrðingar réttar
verður margt að athuga viö
þann undirbúning, sem jólin fá
hjá okkur Islendingum. Það
verður ekki um það deilt, að við
undirbúning jóla færast flestir
of mikið I fang. Þótt dæmið um
móöurina, sem datt út af á að-
fangadagskvöld á undan börn
unum, yfirkomin af þreytu, sé
kannski ekki algilt, þá er senni-
lega aðeins stigsmunur á okkur
mörgum og henni. Það kemur
llka örugglega fram við þá, sem
eru I kring um okkur, ekki sist
börnin. Þannig fara margir á
mis við jólahátiðina, vegna þess
að þeir lögðu of hart að sér við
undirbúninginn. Svipað þessu er
annað atriðið, sem ég nefndi, að
ganga ekki út I öfgar meö undir-
búninginn. Þau dæmi þarf ekki
að vera að telja hér, bæði hvað
snertir gjafir og mat. En þó vil
ég aðeins nefna reynslu eins
fööur. Hann vildi gleðja dóttur
sina þriggja ára sem mest og
gefa henni sem mest. Hann
keypti þrihjól og brúður. Þegar
hann gekk út úr einni verslun-
inni, tók hann af tilviljun eftir
litlum kubbum, mjög ódýrum
og einföldum, sem kostuðu litið.
Eyrarbakkakirkja
Það er sennilegt, að
aldrei i annan tima sé
islenska þjóðin eins
samhuga um nokkurt
verkefni og þegar hún
undirbýr jólahátiðina.
Frá þvi i lok nóvember
ár hvert verður þess
vart, að eitthvað stórt
og mikið er i aðsigi. Sá
Sr. Vaigeir Ástráðsson
yfir hinum verðmætu gjöfum,
þvl það var alveg ruglað. En
þegar litli kubbakassinn kom I
ljós varð það hann, sem bjarg-
aði öllu við. Og væri barnið
spurt um jólagjafirnar nefndi
það varla annað. — Hefði aðeins
það, sem gekk út I öfgar, verið
fyrir hendi, er sennilegt, að
jólagleðin hefði farið fram hjá
þessu barni. Og þannig held ég
að fari allt of viða á þessum
vandlega undirbúnu jólum. Þvi
eins og eitt sinn var sagt, ,,að
þegar gera á betur en vel, þá
verður það kannski verr heldur
en illa!”
Förum við þannig á mis við
jólin og fáum ekkert nema
undirbúninginn og þreytuna frá
þeim.
Ég sagði llka, að hver mann-
leg viðleitni, sem ekki er I sam-
ræmi við eðli sitt væri frekar
byröi en gleðigjafi. Þetta allt
helst I hendur. Kristnir menn
halda jól vegna atburöar sem
gerðist suður I Betlehem fyrir
löngu slðan. Þaö vitum við, og
sjálfsagt lika það, aö kristnir
menn segja, aö þá hafi sjálft al-
mættið gengið inn I mannleg
kjör til að bæta þar um, enda
Hann keypti þá og stakk þeim
með I einn pakkann.
Barnið gladdist furðulega lltið
Biblían og þú
Það er staðreynd, að andi
mannsins er mikils megnug-
ur. Allar þær framfarir, sem
orðið hafa bera þess glöggt
vitni. Já, honum má þakka
allar þær framfarir, sem orðið
hafa I læknavísindum og I
tækni til þess að bjarga mönn-
um úr ógöngum og sjávar-
háska. Starf sjómannsins hef-
ur þannig ekki litið breyst frá
fyrri dögum. Þar má telja rat-
sjá og fiskileitartæki og góð og
sterk skip.
En þótt upp séu taldar allar
þær framfarir, sem við njót-
um I dag, þá má ekki gleyma,
að margt fer aflaga I mann-
heimi. Þulurinn i sjónvarpinu
var til dæmis að segja frá
miklum Iþróttaleikjum er
hann komst þannig að orði:
„Ýmislegthefur skyggt á leik-
ana eins og alltaf, þegar um
mannleg samskipti er að
ræöa”.
Já, andi mannsins þarf að
frelsast. Það er vegna þess að
þrátt fyrir allar framfarir er
innræti mannsins samt við sig.
Þess vegna er það, að fegurst
skin mannsandinn, þegar
hann helgast af anda Guðs.
Og þegar dýpst er skoðað er
allt þaö likamlega og andlega,
sem við njótum i lifinu gjafir
algóðs Guös. „Sérhver góð
gjöf og sérhver fullkomin gáfa
er ofan að og kemur niður frá
föður ljósanna, en hjá honum
er hvorki umbreyting né um
hverfingarskuggi”. (Jak. 1.
17).
(O.Th.)