Vísir - 07.12.1974, Side 15
Vísir. Laugardagur 7. desember 1974
15
Sýna tízkuföt á
söguslóðum Skúla
— í Miðbœjarmarkaðnum gefst í dag kostur á
að staldra við á spaninu og fara á tízkusýningu
Það er alltaf gaman að
fá smávegis tilbreyt-
ingu i hversdagsleik-
ann, ekki sizt þegar
maður röltir dauð-
þreyttur um bæinn
fyrir jólin, að kaupa
jólagjafir, og reynir að
fullvissa sig um að ekk-
ert gleymist svo að
enginn fari nú jólakött-
inn og allt geti verið
sem fullkomnast.
1 Aöalstræti 9, á slóðum Skúla
gamla Magnússonar, gefst
mönnum kostur á að staldra að-
eins við á spaninu og sjá ungt og
fallegt sýningarfólk sýna tizku-
klæðnað sem þar er á boðstól-
um.
Þessar sýningar verða á
laugardögum fram til jóla, og
ll\lf\l
SÍÐAN
Umsjón:
Júiía Hannam
þykir áreiðanlega mörgum
skemmtilegra að geta séö
flikur, sem ef til.vill eru tilvon-
andi jólagjafir vina eða vanda-
manna, öðruvisi en útbreiddar á
af greiösluboröinu.
Laugardaginn 7. des. verður
sýning kl. 2-4,14. og 21. des. kl. 3-
6. Verða sýningarnar i kaffiteri-
unni, svo fólk getur yljað sér
yfir sopanum meðan það sér
sýninguna. Vörurnar sem sýnd-
ar verða eru frá Fatadeildinni,
Peysudeildinni Mömmusál,
Linsunni, og Herragarðinum.
Fatadeildin verður með nátt-
fatnaö, baðföt og undirfatnað og
peysudeildin með mikið úrval af
blússum og peysum. Margar is-
lenzkar 'peysur eru þar á
boðstólum, mjög fallegar og á
sérlega góðu verði. Hefði Skúli
gamli, vissulega orðið glaður ef
hann hefði vitað að islenzkur
iðnaður ætti eftir að eiga upp á
pallboröið á hans gömlu slóðum.
Mömmusál kynnir barnafata-
tizkuna, frá Linsunni veröa
sýnd gleraugu og Herragarður-
inn mun svo sýna herraföt
samkvæmt nýjustu tizku.
Er enginn vafi á þvi að slik
uppátæki eiga eftir að verða
vinsæl i framtiðinni, og á með-
fylgjandi myndum er sýnishorn
af þeim fatnaði sem kynntur
veröur á sýningunum.
Það veröur virðulegri svipurinn á rómantikinni ef viö förum f
svona fallegum náttklæðnaði I bóliö.
Það er notalegt að eiga eina svona hlýja peysu f kuldanum. Sú til
vinstri er fslenzk. Jakkinn er upplagöur i fslenzkri veðráttu.
BÍLAVARÁ-
HLUTIR
ÓDÝRT - ÓDÝRT
NOTAÐIR VARAHLUTIR í.
FLESTAR GERÐIR ELDRI BILA
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5
laugardaga.
AAetnaður okkar er að selja á sem
hagkvæmlistu verði og veita eins
góða þ jónustu og unnt er.
Verslunin