Vísir - 07.12.1974, Side 24
vism
Laugardagur 7. desember 1974
Úr rœðu iðnaðorróð-
herra ó fundi
iðnrekenda:
Auðlinda-
skattur
kemur til
greina
— yfir 12 milljarða
halli ó vöruskipta-
jöfnuði
— sœlgœti ófram ó
kvóta
Gunnar Thoroddsen iönaöar-
ráðherra sagði á fundi með iön-
rekendum i gær, að hann teldi
rétt, aö rikisstjórnin léti athuga,
hvort taka ætti upp auölindaskatt.
Með lokaðrí vatnskœlingu
fer ekkert í sjóinn
— hugsanleg sjávarmengun frá málmblendiverksmiðjunni aðeins af hreinlœtisaðstöðu
„Mér er illa við að tala um
þessi mál, þegar búið er að
þyrla um þau pólitisku mold-
viðri og flest veröur umsnúið og
rakalaust”, sagði Vilhjálmur
Lúðvíksson efnaverkfræðingur,
er Visir sneri sér til hans og
spuröi hann um hugsanlega
mengun af völdum fyrir-
hugaörar máimblendiverk-
smiðju á Grundartanga við
Hvalfjörð.
„En miðað við, að I verk-
smiðjunni eigi að vera lokað
kælikerfi, getur tæpast orðið
um aðra vatns- og sjávar-
mengun að ræða en frá hrein-
lætisaöstööu. 1 svona verk-
smiðju er engin votefnameð-
ferö, og þegar vatnskælingin er i
lokuöu kerfi fer ekkert I sjóinn.
Annars hef ég ekki séö hönnun
verksins í smáatriöum, en eftir
þvi sem ég bezt veit er mein-
ingin að kæling ofnanna fari
fram f lokuðu kerfi. Mér þykir
óliklegt, að uppi séu hugmyndir
um kælingu með gegnum-
rennsli, þvf það er erfitt aö laga
þannig sýrustig og efnainnihald
mýrarvatnsins, að þaö sé not-
hæft þannig. Það myndi valda
útfellingu og tæringu.
Hvað snertir umtal um fenól,
veit ég ekki nákvæmlega,
hvemig það á að fara gegnum
kerfiö. Eftir þvi, sem mér hefur
skilizt, er það notaö til þess að
binda rykið i köggla, þannig að
það verði nothæft til endur-
vinnslu. Fenól er lifrænt efni, og
þegar það kemur i stálbræöslu-
ofn, 2000 gráða heitan, klofnar
það i sln upprunalegu sambönd
og veröur að koldioxiði og vatni.
Það á hvergi að geta orðiö
þekkjanlegt sem fenól.
En það er mitt álit, aö þessum
málum hafi ekki verið gerð
nægilega góð skil á undir-
búningstimanum, til dæmis með
formlegri umsókn um starfs-
leyfi fyrir verksmiðjuna til
Heilbrigðiseftirlitsins ’.
A miðvikudaginn boðuöu ráð-
herrarnir Gunnar Thoroddsen
og Halldór E. Sigurðsson til
fundar um málmblendiverk-
smiöjuna að Leirá i Leirársveit,
sem reyndist hinn fjörugasti.
Þar voru menn langt að reknir,
alla leið norðan úr Mývatnssveit
og kom helzt fram, að samning-
ar um málmblendiverksmiöju
hafa verið mikið deilumál innan
Alþýðubandalagsins.
A fundinum kom fram, að ef
Borgfirðingar visuðu þessari
starfsemi frá sér, væru aörir,
sem ekki hefðu á móti henni.
Kom þetta fram I máli Gunnars
Thoroddsens iðnaðarráðherra,
en ekki vildi hann tilgreina,
hvaða staðir aðrir kæmu til
greina.
Gunnar Sigurðsson verk-
fræðingur sem gerði á siðast-
liðnum vetri áætlanir um höfn
fyrir verksmiöjuna, sagði VIsi i
gær, aö i áætlunum heföi verið
gert ráð fyrir fjórum mis-
munandi hafnarstæöum. Voru
þau i Straumsvik, sunnan
vikurinnar, i Geldinganesi viö
Reykjavik, við Grundartanga
og við Galtalæk i Hvalfirði, sem
er á likum slóöum og Grundar-
tangi.
Aætlanir þessar, miðaöar við
verðlag i febrúar, voru upp á
200-300 milljónir, og voru þær i
Hvalfirði ódýrari en i Straums-
vik og Geldinganesi. 1 áætlun-
unum var gert ráð fyrir öllum
kostnaði við mannvirkin.
—SH
Sjálfstœðishúsið nýja
komið undir þak
Fiskkaupmenn verða að fylgjast með tímanum:
Fljúga sjálfír
eftir síldinni
Það er ein krafa iönrekenda, að
skipuð verði nefnd til að athuga,
hvort ekki sé nauðsyniegt að
taka upp einhvers konar auð-
lindasköttun hér á landi með til-
liti til sérstööu sjávarútvegsins
sem hvaö mest nýtir auðlindir
þjóöarinnar. Þetta yrði iðn-
aðinum hagstætt.
Ráðherra sagði, að liklega yröi
i ár 12 til 12,5 milljarða halli á
vöruskiptajöfnuöinum við útlönd
og 5 milljarða halli á greiðslu-
jöfnuöi.
Þá yrði gerður samanburður á
þvi rafmagnsverði sem iðn-
aðurinn greiðir hér og sambæri-
legu verði á öörum Norður-
löndum. Iðnaðurinn notar 30% af
allri raforku i Reykjavlk. Honum ,
hefur þótt súrt að greiða mun
hærra verö en hið almenna.
Endurskoðun á skattalög-
gjöfinni væri i gangi. Ráðuneytið
stefnir aö þvi að söluskattur á
vélum falli niöur.
Möguleikar iðnaðarins á af-
urðalánum hafa til þessa reynzt
til litils gagns vegna erfiöleika i
framkvæmd.
Fundurinn var fjölsóttur og
spurningar til ráðherrans
margar.
—HH
Fiskkaupmaðurinn i Sörlaskjóli
heldur þarna á Hornaf jaröar-
siidinni. Efst er grófsöltuð sild, þá
kryddsild og ncöst glæný flugsild.
Ljósm. Bj. Bj.
dag. Þar var haldið reisugilli að
gömlum og góðum sið. Þar
mættust þeir fjöldamörgu sem
unnið hafa að þvi undanfarin
misseri að koma húsinu upp.
Fjöidamargir sjálfboðaiiðar
hafa unniö við húsið i fristund-
um sinum og var þeim að sjálf-
sögðu boðiö til veizlunnar öllum
öðrum fremur. Næsti áfangi er
að innrétta hiuta af húsinu,
þannig að þar fáist aöstaða til
ýmissar starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins.
— JBP —
Nú væri i gangi athugun á stöðu
iðnaöarins, eins og iðnrekendur
hafa krafizt, svipuð athugun sem
gerð er á stöðu sjávarútvegsins.
Liklega yrði innflutningskvót-
um haldiö áfram á sælgæti vegna
annarlegra aðstæðna, sem hin
mikla sveifluhækkun á sykri
veldur.
Byggðalina fyrir rafmagn yrði
væntanlega lögö norður i land,
þótt það væri einhver dýrasta
lausnin á geysilegum rafmagns-
vandræöum norðanlands. Vand-
kvæðin sköpuöust af drætti á
virk junarframkvæmdum.
A slysstað við gatnamót EUiðavogar og Skeiöarvogar. Ljósm. VIsis
JB.
Ekið í veg fyrir skellinöðru
Skellinöðrustrákur varð fyrir
bil á Elliðavogi um 5 leytið I gær.
Skcliinaöran kom norður Elliða-
voginn. Við gatnamót Elliðavog-
ar og Skeiðarvogar mætti hjólið
fólksbil er kom akandi I suður.
A gatnamótunum beygði fólks-
bfilinn I veg fyrir hjólið og varð
þar allharður árekstur. Pilturinn
á hjólinu meiddist nokkuð og fót-
brotnaði meðal annars. Hann var
fluttur á slysadeiid og siðan
lagöur inn á Borgarspitalann.-JB
Það hafa farið þrjár sendingar
af ferskri sild flugleiðis til
Reykjavikur,” sagði Hermann
Hansson hjá Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga, aðspurður um
sildarflutningana, sem átt hafa
sér stað flugleiðis milli Hafnar i
Hornafiröi og Reykjavikur að
undanförnu.
„Það eru tvær fiskverzlanir I
Reykjavik, sem staðið hafa fyrir
þessum flutningum með
áætlunarvélunum,. Það er þó ein-
göngu ferska sildin, sem þannig
hefur verið flutt. Kryddsfldin og
saltsildin hefur hins vegar veriö
flutt héðan á bílum,” sagði
Hermann.
Mikil eftirspurn hefur verið
eftir sildinni, sem landaö hefur
verið I Höfn, og hefur saltsfldin og
beitusildin verið send um allt
land. Eins fer nokkuö af sildinni á
Bandarikjamarkaö fyrir milli-
göngu sfldarútvegsnefndar.
Sildaraflinn hefur verið tregur ■
undanfarið og sennilega stutt I lok
sildveiðanna I bili. Aðkomubátar
á Höfn, sem stunduðu þessar
veiðar, eru nú snúnir til sins
heima, en reiknað er með að
heimabátar haldi veiðunum
áfram fram I næstu viku.
Stefán Tyrfingsson, fiskkaup-
maöurinn i verzluninni i Sörla-
skjóli, hefur nýtizkulegar .
aðferðir til að útvega viðskipta-
vinum sinum nýjan fisk. Hann er
einn af þeim, sem boðið hafa upp
á Hornafjarðarsildina. Hann
lætur sér þó ekki nægja að nota
áætlunarvélar við flutningana.
Hann er sjálfur með flugréttindi
og flaug til Hornafjaröar I fyrri-
nótt og sótti fersksild, sem hann
gat boðið upp á við opnun
verzlunarinnar I gær.
—JB
Nýja Sjálfstæðishúsið við
Skipholt var fánum prýtt I gær-
FENGU UM 8 MILLJONIR TIL
SKIPTA Á SPÆRLINGSVEIÐUM
Bærilega hefur veiðzt af
spærlingi frá Þorlákshöfn I
sumar og haust, og munu þar
komin um 8000 tonn af þessum
fiski á land. Aflahæsti báturinn
á þessum veiðum er Gissur AR
6, og hefur hann komið með um
2700 tonn aö iandi.
Þótt verð á spærlingi sé ekki
hátt, koma um átta milljónir
króna til skipta fyrir þennan
afla Gissurar, en á bátnum
munu vera sex menn. Alls voru
fimm bátar á spærlingsveiðum
þegar flest var, en lengst af
fjórir.
Spærlingurinn er veiddur i
sérstakt troll, og er vel fylgzt
með þvi, að ekki komi yfir
ákveðið magn af öörum fiski,
sem er helzt langa, skata og
litilsháttar af þorski.
Spærlingurinn er bræddur og
fæst úr honum mjög gott mjöl.
Hins vegar er geymsluþol hans
mjög lítið, og verður að bræða
hann mjög fljótt eftir að hann er
veiddur.
Flestir bátanna eru nú hættir
veiöum, enda hefur ekki gefiö á
sjó undanfarið, en til spærlings-
veiða þarf gott sjóveður. Búizt
er við, að þessir bátar fari slðan
á net. Þeir bátar, sem undan-
farið hafa verið á netaveiöum,
hafa fiskað misjafnlega, yfir-
leitt heldur tregt, en glæðzt með
köflum. — SH