Vísir


Vísir - 01.03.1975, Qupperneq 5

Vísir - 01.03.1975, Qupperneq 5
Vfsir. Laugardagur 1. marz 1975 5 „VIÐ HÖLDUM AFRAM EF ÞIÐ KLAPPIÐ OKKUR UPP”. Frá vinstri: Magnás K. — Vignir — Finn- bogi — Hrólfur — Clyde. SETTLERS fengu fólk i smástuö meö aöstoö laga er flestir kunna utanbókar, svo sem Cottonfields, Top of the World og Jambaiaya. Já og þar koma SETTLERS hinir langþráðu. Ekki ætla ég mér aö lýsa SETTLERS og þvi sem þau buðu upp á i þær fátæklegu tutt- ugu minútur er þau komu fram á staðnum, þvi mér fannst það i einu orði sagt litilfjörlegt. Þau tóku fimm lög þetta kvöld og heföu fullt eins getað látið Verzlunarskólakórnum eða JCDAS eftir þann tima er þau eyddu i þau lög. Lögin voru „Cottonfields- Banks of Ohio — (The Ryhm of life the lightning tree)„ og svo tvö lög I Carpenters stil „Top of the world” og „Jambalaya”. Að visu var röddun þeirra á öllum lögunum til fyrirmyndar, en vart það góð að kalla megi SETTLERS heimsfræg. Þetta voru þau allra einföldustu lög, sem til eru, til að fá fólk til að syngja með og klappa, en örfáir tóku undir. Hvers vegna? Jú, ég býst fastlega við þvi að flestallir hafi búizt við öðru en afbökunum, og þó að baksturinn hafi nú ekki verið sem verstur, þá erum við bara með nóg af bökurum hérlehdis, þó að við förum ekki að sækja þá til Eng- lands lika... Þetta er sumsé mitt álit á SETTLERS, má ég þá heldur biöja um almennilegan handboltalandsleik, þó svo að við töpum. Afram með söguna, Settlers gengu af sviði, og örfáir gerðu örvæntingarfullar til- raunir til að klappa þá aftur upp, en fyrir þvi fékkst skiljan- lega litill hljómgrunnur. Þá var aftur beðið og beðið i fimmtán minútur meðan kórinn var að laga á sér hárið. Þá kom kórinn (ofsa fjöldi), Júdas sá um undirleik og Maggi stjórnaði með hreyfingum er meira að segja Páll P. myndi roðna yfir. En kórinn stóð fyrir sinu, án þess að ég sé að orðlengja það nokkuð, enda enginn sérfræö- ingur i kórsöng. Kórinn tók til meðferðar lög eftir félagana i Beach Boys með góðum ár- angri. En það var bara ekki fyrr en i siðustu lögunum að hann náöi til fólksins, það vel að fólk fór að dansa, já dansa viö kórsöng, detti af mér allar dauðar lýs.?.. Magnús Kjartansson hefur ber- sýnilega lagt mikla vinnu i þennan kór og næstum synd að hann lognist svona fljótt út af aftur, þvi maður hefur það á til- finningunni að hann sé ekki al- mennilega kominn I rétta „fil- ingu” ennþá. Allavega varð enginn fyrir alvarlegum von- brigðum með frammistöðu hans þetta kvöldið. Kórinn kom mjög liflega fram, og klæðnaður og hár- greiðsla vöktu verðskuldaða at- hygli. Að þvi loknu kom svo JÚDAS fram aftur með nokkur lög, og fólk I banastuði fyllti dansgólfið. Klukkan var orðin hálftólf þegar Maggi tilkynnti: „VIÐ HÖLDUM AFRAM... EF ÞIÐ KLAPPIÐ OKKUR UPP” Og klappið vantaði ekki. Þeir félagar tóku þá tvö lög til viðbótar og sýndu þaö aö þeim er fleira til lista lagt en að flytja tónlist, en þau atriði þurftu ber- sýnilega meiri æfingu, allavega hvað hittni og jafnvægi á magn- araboxum snerti. Þá kom að þvi að hann Sigmar varð leiður á þessu, enda orðinn syfjaður, og hann „slökkti á þeim”, það þýð- ir tók af þeim rafmagnið. Það þurfti þó meira til en þaö, og balliö var ekki búiö fyrr en Sigmar kippti kjuðunum úr höndum Hrólfs. Magnús I banastuði viö stjórn VERZLUNARSKÓLAKÓRSINS — Ijósmyndir JIM oo 3 g) ra Bóka mark aöur inn Fimmtudaginn 27. febr. frá kl. 9—18 Föstudaginn 28. febr. frá kl. 9—22 Laugardaginn 1. marz frá kl. 9—18 Mdnudaginn 3. marz frá kl. 9—18 Þriðjudaginn 4. marz frá kl. 9—22 Miðvikudaginn 5. marz frá kl. 9—18 Fimmtudaginn 6. marz frá kl. 9—18 Föstudaginn 7. marz frá kl. 9—22 Laugardaginn 8. marz frá kl. 9—18 Bókamarkaðurinn Í HÚSI IÐNAÐARINS VID INGÓLFSSTRÆTI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.