Vísir - 17.03.1975, Qupperneq 15
HAGSYN HJON LATA KENWOOD VINNA ERFIÐUSTU HEIMILISSTÖRFIN
KYNNIÐ YKKUR HINA OTRULEGU MÖGULEIKA, SEM
KENWOOD-HRÆRIVÉLARNAR HAFA YFIR AÐ RAÐA.
KONAN VILL KENWOOD
HEKLA HF.
Laugavegi 170 -172 — Sin'i 21240
Reykvíkingar
voru beztirl
Rcykvískir unglingar hlutu
samtals 14 gull og 11 silfurverh-
laun á unglingameistaramótinu i
badminton, sem háö var i KR-
heimilinu nú um helgina. Þeir
einu, sem veittu þeim einhverja
keppni að ráði voru unglingarnir
frá Siglufirði, en þeir hlutu 10
gullverðlaun og 13 silfur á þessu
mikla móti.
Einstök úrslit urðu sem hér
segir: Ottó Guðjónsson TBR sigr-
aöi Þórð Björnsson TBS i einliða-
leik pilta 16 til 18 ára með 10:15 —
15:8— 15:12. 1 einliöaleik stúlkna
sigraði Kristin B. Kristjánsdóttir
TBR Auði Erlendsdóttur TBS 11:2
og 11:1. 1 tviliðaleik pilta sigruðu
Siglfirðingarnir Þórður Björns-
son og Sigurður Blöndal þá Ottó
Guðjónsson og Jóhann G. Möller
TBR 15:9 og 15:6. Tviliðaleik
stúlkna sigruðu þær Ragnhildur
Pálsdóttir og Kristin B.
Kristjánsdóttir TBR og tvenndar-
leikinn þau Jóhann Kjartansson
og Kristin.
1 flokki 14 til 16 ára sigraði Jó-
hann Kjartansson TBR i einliða-
leiknum og þeir Friðrik Arn-
grimsson og Guðni Aðalbjörnsson
TBS i tviliðaleik pilta. t tviliðaleik
stúlkna sigruðu þær Sóley Er-
lendsdóttir og Lovisa Hákonar-
dóttir TBS. Lovisa tapaði svo fyr-
irSóley i úrslitunum i einliðaleik.
1 tvenndarkeppninni sigruðu svo
þau Lovisa og Friðrik Arngrims-
son.
1 keppni 14 ára og yngri sigraði
Kristin Magnúsdóttir TBR i ein-
liðaleiknum i meyjaflokki en
Guðmundur Adolfsson TBR i ein-
liðaleik sveina. Þau voru saman i
tvenndarkeppninni og þar sigr-
uðu þau Daða Arngrimsson og
ölmu Möller TBR.
t tviliðaleiknum sigruðu þeir
Gylfi Óskarsson og Gunnar Jóna-
tansson TBR og þær Kristin
Magnúsdóttir TBR og Sigrún Jó-
hannesdóttir TBS i tviliðaleik
meyja. —klp—
Visir. Mánudagur 17. marz 1975.
Ottó Guöjónsson, TBR, sýndi mikla leikni og sigraði einliðaleik pilta.
Ljósmynd Rafn Viggósson.
-HRÆRIVELAR
Furðustaða komin upp í
keppni heimsbikarsins!
— Thoeni
Gustavo Thoeni, ttaliu, sigraði I
svigkeppninni i Sun Valley i
Bandarikjunum á iaugardag i
keppninni um heimsbikarinn —
en samkvæmt reglum keppninnar
hlaut hann ekki nema 14 stig.
Ingimar Stenmark, Sviþjóð, varð
þriðji og hlaut 15 stig, svo
kapparnir eru nú jafn#að stigum
með 240 stig og aðeins tvö mót eft-
ir — i Val Gardena á ttaliu 21.-24.
marz.
Furðuleg staða er nú komin upp
i keppninni. Ef Thoeni og Sten-
mark ná ekki fyrsta eða öðru sæti
i stórsvigi á mótinu á Italiu fá
þeir ekki stig, þar sem þeir hafa
fyllt kvóta sinn hvað öðrum sæt-
um viðkemur. Ef þeir verða jafn-
ir i lokin með 240 stig verður farið
eftir sigrum — en báðir hafa
og Stenmark jafnir o
fimm sigra i vetur. Svo ekki dug-
ar það — en þá ráða önnur sætin
úrslitum. Þar er Stenmark betri
— fimm sinnum annar, en Thoeni
þrisvar.
Hvorugur kappanna ætlar að
keppa i bruni á Italiu og þar kem-
-ur Franz Klammer, Austurriki,
inn i myndina. Hann hefur 215 stig
nú og ef hann sigrar i bruni I Val
Gardena kemst hann i 240 stig —
og hann hefur verið nær ósigrandi
i bruni i vetur. Ef Thoeni eða
Stenmark ná ekki fyrsta eða öðru
sæti i stórsviginu verður Klamm-
er meistari. Hann hefur sigraö i
sjö mótum i vetur — en ekkert
nema sigur nægir honum i brun-
inu. Það yrði þá áttundi sigur
hans. Slik staða hefur aldrei kom-
ið upp i keppninni um heims-
efstir
bikarinn fyrr — taugaspennan
verður gifurleg á Thoeni og hin-
um unga Stenmark, ef Klammer
sigrar i bruninu 21. marz i Val
Gardena.
Úrslitin i Sólardalnum á
laugardag urðu þessi:
1. Thoeni, Italiu, 109,88
2. Gros, Italiu, 110,06
3. Stenmark, Sviþjóð, 110,49
4. Ochoa, Spáni, 111,33
5. Frommelt, Lichtenst. 112,05
6. Hinterseer, Aust. 112,14
og stigatalan er nú.
1. Ingimar Stenmark og Gustavo
Thoeni 240 stig. 3. Franz Klamm-
er 215 stig 4. Piero Gros 186 stig 5.
Erik Haaker, Noregi, 127 stig og
6. Hans Hinterseer, Austurriki,
117 stig. —hsim.
Jjfé/TIVOOtf-Mini
Kjenwaod
-CHEFETTE
enwaod -chef
Blaðburð-
arbörn
óskast
VISIR
Simi 86611
Hverfisgötu 44
MEST SELDA SAUMAVÉL Á fSLANDI
NECCHI
16 sporgerðir. — Saumar allan
vanalegan saum, teygjusaum, overlock
og skrautsaum, þræðir, faldar,
gerir hnappagöt og festir tölur.
-^ii
^-ll
'^JI
^ii
^ji
i'*
:?;4
•i:
vi
1
Hin fullkomna sjálfvirka saumavél
FULLKOAAINN ISLENZKUR LEIÐARVÍSIR
Fæst með afborgunum. Sendum gegn póstkröfu.
KYNNIÐ YÐUR HIÐ ÓTRULEGA HAGSTÆÐA VERÐ.
Margra óratuga reynsla tryggir góða þjónustu.
FÁLKINN
Suður la ndsbrau* 8
keyk/aviK Sim 8-4t 7u
Útsölustaðir
víða um land