Vísir - 22.03.1975, Síða 5
Vlsir. Laugardagur 22. marz 1975.
5
Myndin
kom úr
geimn-
um
Klukkusturtdu og
þrem stundarf jórðung-
um áður en Mariner 10
átti sittþriðja stefnumót
við Merkúr, tók gervi-
hnötturinn þessa ijós-
mynd af yfirborði plá-
netunnar. — Þá var
hann staddur í 40 þúsund
mílna fjarlægð frá
Merkúr.
Gigarnir sjást greini-
lega. Sumir eru allt að
því 31 míla í þvermál.
Myndin var hálffram-
kölluð í gervihnettinum,
en send síðan sjálfkrafa
til móttökustöðvar i
Canberra í Ástralíu.
SLOKKNUÐ STJARNA
Islenzkir bíógestir munu margir minnast leikkonunnar Susan Hay-
ward. Hún lézt núna fyrir skör.'mu af völdum heilaæxlis. Var hún
aðeins 56 ára að aldri. Þessi mynd var tekin, þegar hún fékk Óskar-
inn 1959 fyrir leik sinn i myndinni „I want to live”.
Stœrsta
vœnghaf
dýra merk-
urinnar
Douglas Lawson, námsmaður
við Kaliforniuháskóla, sést hér
halda á jarðneskum leifum
skepnu einnar, sem sveif yfir
Texas fyrir 60 inilljón árum.
Hann fann beinin við Big Bend-
þjóðgarðinn. Vænghaf flugeðlu
þessarar, sem visindamenn
kalla Texas Prerosaur, var 51
fet, eða það mesta; sem menn
vita um.
FEGURÐARDROTTN-
ING Á SÍNUM TÍMA
Lizailota R. Valeska var kjörin fegurðardrottning Finnlands 28 ára,
og þá var myndin hér t.v. fyrir neðan tekin af henni. — Nú er hún 72
ára stolt amma, sem telur sig ekki þurfa aö fyrirverða sig fyrir lln-
urnar. Sjálf segir hún: ,,Ég er betur vaxin núna en þá”.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson