Vísir - 22.03.1975, Qupperneq 6
6
Vísir. Laugardagur 22. marz 1975.
vísib
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Bírgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: 'SIðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
t lausasöiu 35 kr. eintakiö. Blaðaprent hf.
Ætti að tryggja frið
Ef frumvarp rikisstjórnarinnar um efnahags-
aðgerðir nær fram að ganga, hefur náðst það
mikilvæga markmið, að almennar launatekjur
verði tekjuskattsfrjálsar. Hjón með tvö börn og
1.216.500 króna árstekjur, einhleypingar með
555.000 króna árstekjur og einstæð foreldri með
eitt barn og 906.400 króna árstekjur greiða engan
tekjuskatt samkvæmt frumvarpinu.
Þegar útsvarið er tekið með i reikninginn, má
sjá, að skattbyrði fólks með almennar launatekj-
ur lækkar verulega frá þvi, sem nú er. Hjón með
tvö börn og 1.200.000 króna árstekjur fá lækkun
skatta, sem nemur 25.766 krónum. Einstæð for-
eldri með eitt barn og 500.000 króna tekjur fá
lækkun, sem nemur 35.272 krónum. Og hjón á elli-
launum og með 700.000 króna tekjur fá 13.425
króna lækkun.
Þessi dæmi sýna skýra mynd af áhrifum frum-
varps rikisstjórnarinnar á lifskjör almennings.
Skattalækkanirnar vega mjög þungt á móti þeirri
kjaraskerðingu, sem þjóðin hefur mátt þola á
undanförnum mánuðum. Einkum bæta þær hag
þeirra fjölskyldna, sem minnstar hafa tekjurnar
og flest börnin, enda eiga þessar fjölskyldur erf-
iðast með að taka á sig byrðar efnahagsástands-
ins.
1 stórum dráttum má segja, að frumvarpið
tryggi, að almenningur hafi sömu lifskjör og
hann hafði árin 1971 og 1972. Til viðbótar koma
svo láglaunabæturnar, sem aðilar vinnumark-
aðsins munu væntanlega bráðlega semja um.
Með frumvarpinu nýja og væntanlegum lág-
launabótum ætti að takast að slá virka skjaldborg
um lifskjör þeirra, sem minnst mega sin i þjóðfé-
laginu.
Þessar aðgerðir kosta að sjálfsögðu stórfé.
Tekjur rikisins af tekjuskatti munu lækka um
850—900 milljónir og tekjur sveitarfélaga af út-
svari munu lækka um 360 milljónir. Tekjur rikis-
ins af tollum og söluskatti, sem einnig verða
lækkaðir á ýmsum nauðsynjavörum, munu lækka
um 600 milljónir.
Til viðbótar við þennan tekjumissi þarf rikið að
gera ýmsar ráðstafanir til að tryggja f jármögnun
fjárfestingarsjóða og þróun orkumála i landinu.
Eru þær ráðstafanir innifaldar i frumvarpinu og
fela meðal annars i sér flugvallargjald, skyldu-
sparnað hátekjufólks og lántökuheimildir.
Til þess að skattalækkunardæmið og fjárfest-
ingardæmið gangi upp þarf rikið að skera niður
fjárlög sin um þrjá og hálfan milljarð króna. Er i
frumvarpinu gert ráð fyrir, að rikisstjórninni
verði i samráði við fjárveitingarnefnd alþingis
heimilað að skera niður að þessu marki.
í þessum niðurskurði felst langviðtækasta til-
raun, sem gerð hefur verið til að hafa hemil á út-
þenslu rikisbáknsins og draga úr ofþenslu þess.
Niðurskurður þessi verður ekki létt verk né virí-
sælt. En þegar illa árar verður útþensla opin-
berrar þjónustu að vikja fyrir vörninni fyrir lifs-
kjörum þjóðarinnar og getu atvinnuveganna til
að halda uppi fullri átvinnu i landinu.
Ef aðilar vinnumarkaðsins lita af fullri sann-
girni á viðleitnina, sem felst i frumvarpi rikis-
stjórnarinnar, ætti þeim að takast að ná án verk-
falla samkomulagi um láglaunabætur, er tryggi
vinnufriðinn i náinni f ramtið. —JK
Bláfátœkur 17 ára
milljónari 25 ára
Persónutöfrar, mikil
vinna og gott kaupsýslu-
vit hjálpuðust að við að
skapa velgengni
Aristotle Onassis, sem
lézt i Paris fyrir viku.
En þrátt fyrir allan glaésibrag-
inn og munaðinn, sem einkenndi
llf hans, lifði hann siðasta árið i
sorg og söknuði eftir missi einka-
sonar sins, Alexandros, sem fórst
I flugslysi 1973, aðeins 24 ára að
aldri.
Griski skipajöfurinn varð
aldrei samur maður eftir. Vinir
og vandamenn sögðu svo frá, að
hann hefði misst allan áhuga á
fjármálaumsvifum sinum og lif-
inu yfirleitt.
„Ari” Onassis auðgaðist á
skipaútgerð, einkanlega þó oliu-
flutningum. Bláfátækur var hann
17 ára að aldri, en fyrstu milljón
dollarana sina hafði hann eignazt
áður en hann var orðinn 25 ára.
Þessi milljón hlóð síðan utan á
sig, unz hann varð einn af
auðugustu mönnum veraldar.
Kubbslegur i vexti með
gleraugu, sem gerðu ekki að
frikka hann, laðaði hann samt að
sér glæsilegustu og frægustu
konur heims. Aður en hann gekk
að eiga Jacqueline Kennedy,
ekkju John F. Kennedys forseta,
árið 1968, hafði hann staðið i nán-
um kunningsskap við Mariu Call-
as, óperusöngkonuna frægu.
Skipastóll hans — sem saman-
stóð af fleiri skipum en flotar
margra landa — sigldu um höfin
sjö undir hinum ýmsu fánum.
Hann átti iburðarmestu
skemmtisnekkju heims.
En allur auðurinn gat ekki
megnað að lækna hann af sjúk-
dómi þeim, sem háði honum
siðustu árin. Vöðvarnir tóku að
missa afl, einkanlega i andliti og
á hálsi. Við fráfall sonarins 1973
ágerðust veikindin.
Hann beið annað áfall, þegar
fyrri kona hans Tina, sem gifzt
hafði öðrum griskum skipakóng,
Stavros Niarchos, dó I París i
október i haust. Hún var móðir
beggja barna hans.
Andlát hennar og missir
Alexandros er sagt að hafi komið
Onassis til að afráða að slita öll
tengsl við Grikkland. Fyrsta
skrefið steig hann, þegar hann I
nóvember I vetur ákvað að segja
upp samningum sinum við Grikk-
landsstjórn, þar sem hann hafði
einkaleyfi á rekstri Olympic
Airways, griska flugfélagsins,
fram til ársins 2006. Um leið
„Ég eyddi ekki ævinni I að syrgja
það, hvað ég væri ljótur,” sagði
Onassis.
spurðist, að Onassis vildi selja
einkaeyjuna sina, Scorpios, á
Eyjahafinu, en hana keypti hann
1962 fyrir 2 milljónir dollara.
Það var heilræði Onassis til
þeirra, sem vildu auðgast: ,,Ef
þig skortir fé, fáðu þá lán, en
biddu þá aldrei um smálán. Taktu
alltaf stórlán, en þú verður þá
lika að standa fullkomlega i skil-
um.”
Trúlofunartilkynning þeirra
Jacqueline Kennedy kom heimin
um til að standa á öndinni. Hann
varþá 62 ára, en þessi dökkhærða
glæsikona var 39 ára. Þau létu
vigja sig til hjónabands nokkrum
dögum siðar, 20. okt. 1968, fimm
árum eftir að Kennedy forseti var
myrtur. — Auk aldursmis-
munarins, sem fólki fannst
meinbugur á hjónabandinu, var
Jacqueline kaþólsk og Onassis
var fráskilinn.
Griskkaþólskur prestur gaf þau
saman á Scorpios, og ekki voru
aðrir viðstaddir en fjölskyldur
beggja og nánustu vinir.
„Vist lit ég ekki út eins og
griskur guð,” sagði Onassis ein-
hvem tima. „En ég hef ekki eytt
árunum I að gráta það, þótt ég
fæddist svona ljótur.”
Auður hans er metinn á 800
milljónir dollara.
Hann sagði, að ein leið til að
komast I álnir væri sú, að taka sér
bólfestu I auðsmannshúsi, jafnvel
þótt það væri uppi á kvisti.
„Nuddaðu þér utan I þá riku og
eitthvað af peningum þeirra kann
að loða við þig.”
Gjarnan bætti hann við: „Ekki
sofa of mikið. Ef þú sefur þrem
stundum minna á sólarhring yfir
árið, hefur þú fengið einn og hálf-
an mánuð auka til að starfa.”
Aristotle Socrates Onassis
fæddist 15. janúar 1906 i Smyrna i
Tyrklandi. Faðir hans var
auðugur griskur tóbakssali.
En árið 1922 náðu tyrkneskir
þjóðernissinnar undir forystu
Kemal Ataturks borginni frá
griska hernum, en hann hafði
stjórnað þar frá lokum fyrri
heimsstyrjaldar.
Þrjá frændur Onassis hengdu
Tyrkir og eina frænku hans.
Kornabarn hennar fórst i brenn-
andi kirkju, og faðir Onassis var
hnepptur i fangelsi.
Siðar tókst Onassis með tilstilli
bandarisks varakonsúls að fá
föður sinn lausan. Fjölskyldan
sameinaðist i Aþenu.
Onassis afréð að fara til Suður-
Ameriku og freista þess að hressa
upp á fjárhag fjölskyldunnar.
Skipið, sem flutti útflytjendurna,
lagði upp til Buenos Aires i ágúst
1923.
Hann kom til Argentinu
bláfátækur. Þótt hann kynni ekki
orð I spænsku, fékk hann sér
þegar starf sem næturvörður við
simaborð. Þar fékk hann tækifæri
til að æfa sig i spænskunni.
Hann kom sér upp tóbaksinn-
flutningsfyrirtæki, sem hann
starfaði við á daginn. Aður en tvö
ár voru liðin hafði hann nurlað
saman 100 þúsund dollurum.
Kreppan var timi tækifæranna
fyrir Onassis. Arið 1932 keypti
hann sex flutningaskip af fyrir-
,tæki einu i Montreal á smánar-
'verði. Hann steypti sér út i sitt
nýja starf, útgerðina. 1936 var svo
komið fyrir honum, að þá var
unnið við að smiða handa honum
oliuskip. Hann varð með fyrstu
mönnum að koma auga á gildi
oliunnar sem aðalorkugjafa
heims. Oliuflutningarnir færðu
milljónir dollara.
Hann auðgaðist einnig á hval-
veiðum og flugfélag Grikklands
rak hann til ársins 1974.
1953 eignaðist hann meirihluta i
Monte Carlo Societe des Bains de
Mer, sem á og rekur spilavitið.
En 1966 tapaði hann máli, sem
furstinn af Monaco, Rainier,
höfðaði gegn honum, svo að hann
neyddist til að selja meirihluta
sinn.
Það var i desember 1946, sem
hann gekk að eiga hina 17 ára
gömlu Tinu Livanos, dóttur eins
hinna grisku skipakónga. En þau
skildu 1960 i júni.
Hann og griska óperusöngkon-
an, Maria Callas, voru miklir
Þau Onassis og Jacqueline visuðu bæði á bug öllum orörómi um, aö hjónabandssælan væri á enda.
(Þessi mynd er tekin á Scorpios á brúðkaupsdögum.)
mi