Vísir - 25.03.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 25.03.1975, Blaðsíða 9
Ali lá, en rotaði Wepner í lokin! — Muhammad Ali sigraði í ellefu lotum af 15 í keppni sinni við Wepner í nótt, en tapaði tveimur. Var sleginn niður í níundu lotu Þýzkættaði vlnsölumaðurinn Chuck Wepner, Bandarikjunum, sem er I áttunda sæti á áskor- endalistanum I þungavigt, gaf heimsmeistaranum Muhammed ísafjörður í 2. deild — en ó ekkert hús til að keppa í Fram tapaði úrslitaleikjunum I 3. og 4. flokki á tslandsmótinu I körfuknattleik, sem fram fóru nú um helgina. t 4. flokki hafnaði Fram i neðsta sæti — þar sigraði Tindastóll frá Sauðárkróki — Ilaukar urðu i öðru sæti, Hörður, Patreksfirði, I þriðja og Fram I fjórða. t 3. flokki lék Fram til úrslita við Njarðvík og tapaði 30:28. Njarðvikurstrákarnir uröu meistarar, Fram I öðru sæti, ísafjörður I þriðja og Tindastóll I fjórða. tsafjörður sigraði I úrslita- keppninni I 3. deild og ieikur þvi I 2. deild næsta ár — alla leikina hér fyrir sunnan, þar sem ekki er til löglegt hús á ísafirði. í öðru sæti kom Breiðablik, og leikur við Grindavfk I kvöld um fi. sætið í 2. deild næsta ár, en Eiðar urðu I 3ja sæti. —klp- Hafðu þetta fyrir — Ali varð mjög vondur, þegar Wepner sló hann i nlundu lotu svo kappinn steinlá á bakinu i hringnum. Þaut upp á þrem- ur og lét höggin dynja á mót- herjanum —hægri, vinstri — og á myndinni að neðan er höfuö Wepner út á öxl eftir mikið hægri handar högg heimsm eistarans. Sima- mynd AP í morgun. Ali miklu meir: keppni, en reikn- að hafði verið með I Cleveland I nótt. Sló Ali flatan á bakiö I 9. lotu og þá varð heimsmeistarinn virkilega reiður — þaut upp á þremur og lét svo höggin dynja é mótherja slnum. t 15. lotu og þeirri siöustu sló Ali keppinaut sinn I gólfið —- og dómarinn stöðv- aði leikinn, þegar Wcpner, alblóð- ugur með hálflukt augu, reyndi að krafla sig á fætur I köðlunum. Ali sigraöi þvi á tækuilegu rothöggi — og heldur heimsmeistaratitli sinum. Það mcrkilega er, að leik- urinn sem slikur var talinn vörn Alis á heimsmeistaratitlinum þó svo heimssambandið hafi neitað að viöurkenna rétt Wepner til að keppa um titilinn. Fimmtán þúsund áhorfendur horfðu á leikinn og honum var sjónvarpað viða. Fyrir snúð sinn hlaut Ali eina og hálfa milljón dollara, Wepner 100 þúsund. „Hvað ég vildi, að ég hefði sleg- izt betur” sagði Ali eftir leikinn, „en Wepner kom öllum á óvart. Hver hefði trúað þvi, að hann gæfi mér meiri keppni en George Foreman”, bætti hann svo við. Allar likur eru á, að næsti leikur meistarans verði við Evrópu- meistarann Joe Bugner, Bret- landi, snemma i júni. Ali byrjaði með miklum leik- araskap i fyrstu lotunum, en mót- staða Wepners kom honum greini lega á óvart, það svo, að hann varö að taka leikinn alvarlega. Fyrsta lotan var talin jöfn — en Ali vann næstu fjórar, og stund- um lá hann þá I köðlunum meö hanzkana fyrir andlitinu og lét högg Wepners dynja á þeim. SIÖ- an renndi hann sér á brott — hristandi höfuðið skælbrosandi til að sýna, að höggin heföu engin áhrif á hann. En það átti eftir að breytast — i fjórðu lotu sótti Wepner mjög, og einnig i þeirri fimmtu, þó svo Ali væri talinn sigurvegari i þeim. En siöttu lotuna vann Wepner — kom þá tveimur höggum á maga Alis og þau höfðu áhrif. Þá lagðist Ali i skel sina i köölunum — notandi sömu aðferð og reynd- ist svo vel gegn Foreman. Sjö- undu lotu vann Ali og Wepner virtist vera að þreytast — en hann náði sér á strik. Sú áttunda var jöfn og þá slapp Ali frá „villtum” höggum, en niundu vann Wepner. Ali byrjaði með að opna skurð yfir vinstri augabrún Wepners, en varð svo fyrir miklu hægri hand- ar höggi á líkamann og steinlá — flatur á bakinu. Hann þaut beint á fætur — dómarinn lét þá byrja á ný eftir að hafa taliö upp að þremur. Ali, reiður og ergilegur, geystist að Wepner og lét höggin dynja á honum. Blóðið streymdi niður andlit Wepners, en hann vann' lotuna. Ali vann loturnar, sem eftir voru — og i þeirri tiundu byrjuðu augu Wepners að lokast. Hann hékk á Ali til að safna kröftum. I þeirri elleftu tókst honum aö hrekja Ali út i kaðlana, og nú fór Ali ekki sjálfviljugur. En Wepner átti i erfiðleikum með sjónina — og i þeirri 12. virtist Ali eiga i jafnmiklum erfiðleikum með andardráttinn og Wepner. Æfing- in litil — en svo kom hann öllum á óvart i þeirri 13. Fór að dansa — og stuttu, beinu höggi lentu miskunnarlaust á andliti Wepn- ers. Rétt I lokin 114. lotu, kom Ali miklu höggi á hann — en Wepner féll þó ekki. Það skeði hins vegar i þeirri 15. þegar Ali hóf leiftursókn — greinilega ákveðinn i þvi að af- greiða mótherjann með rothöggi — og tvivegis var Wepner næstum fallinn áður en Ali sendi hann i gólfið og leikurinn var stöðvaður. A sama tima kepptu Ken Nort- on og Gerry Quarry I Madison Square Garden i New York og var leikur þeirra stöðvaður I fimmtu lotu. Quarry var þá með mikinn skurð yfir hægra auga — og Norton gat leikið sér að honum að vild. —hslm. Einar Magnússon var I strangri gæzlu Dana I leiknum I gærkvöidi og öörum leikmönnum tslands tókst ekki aðnýta að ráöi þá veikingu sem það skapaöi á dönsku vörninni. A myndinni að ofan hefur Einar sloppiö frá gæzlumanni sinum — og tveir aðrir Danir eru til varnar. Þeir brutu á honum og dæmt var vitakast, en þaö var misnotaö. Einar skoraði sjö mörk I ieiknum á sunnudag — ekkert I gærkvöldi. Ljósmynd Bjarnleifur. SAGAN ENDURTOK SIG! Fylgja islenzks handknattleiks brást ekki á fjöium Laugardalshallarinnar i siöari landsleiknum viö Dani I gær- kvöldi. Sagan endurtók sig og Danir stóöu uppi I lokin sem sigurvegarar i leiknum — sigruöu meö 21-19 — og tókst þvi aö hefna fyrir tapið á sunnu- dag. Þaö er næstum jafnt öruggt og dagur kemur á eftir nótt, aö tap fylgir sigri i islenzkum handknattleik. Menn • eru orönir svo vanir þessum sveiflum aö þaö er hætt aö kippa sér upp viö slikt. Þannig hefur þaö veriö nær und- antekningarlaust alla tiö frá þvi Is- lenzk landsleikjasaga hófst. Eitt i dag — annað á morgun, og Islenzka lands- liöiö brá ekki út af venjunni i gær- kvöldi. En ekki verður þó gengið framhjá þeirri staðreynd, að ill örlög gripu i taumana að þessu sinni. ólafur Bene- diktsson, snilldarmarkvörður, tognaði illa I læri eftir aðeins 13 minútna leik — fór draghaltur af velli og gat ekki leik- ið meira. Það var mikið áfall og þegar Ólafur fór út hafði tsland tvö mörk yf- ir, staðan 7-5, og þá virtist ekkert benda til þess, að Danir færu meö sig- ur af hólmi. Sigurgeir Sigurðsson varði markið það, sem eftir var og þó Vlkingsmarkvörðurinn væri alls ekki veikasti hlekkur Islenzka liðsins, fer hann ekki frekar en aðrir islenzkir markveröir i skóna hans Óla Ben. Sigurgeir varði vel i lokin — og kom meöal annars I veg fyrir, að Danir skoruðu úr þremur vltum i leiknum. En það kom fleira til I leiknum — markvarzlan snerist við frá fyrri leiknum. Nú var Kay Jörgensen i miklum ham i danska markinu og varði um tuttugu skot i þessum lll. landsleik sinum — helmingi fleiri en Islenzku markverðirnir. Þar skipti sköpum, en þó var napurt að tapa þessari viöureign við Dani. Islenzka liöiö, sem hafði verið yfirburðalið i fyrri landsleiknum langa kafla, var nú I hlutverki statistans, þegar Danir gerðu út um leikinn um miðjan siðari hálfleikinn — skoruðu fjögur mörk i röð og breyttu stööunni úr 14-15 i 14-19. Sænsku dómararnir áttu talsverðan hlut að velgengni Dana — þeir voru þeim ótrúlega hagstæðir, þegar danska liðið var að vinna upp muninn i fyrri hálfleiknum. Það jafnaöist hins vegar talsvert út, þegar á leikinn leið. En dómgæzlan var það hörmulegasta I þessum leik — Sviarnir, annar þeirra er nýbúinn að fá réttindi til að dæma landsleiki — misstu algjörlega tök á leiknum. Ráku menn miskunnarlaust út af og dæmdu viti á viti ofan. Þar stóð ekki steinn yfir steini og flestir þeirra islenzku dómara, sem horfðu á leikinn, voru beinlinis gáttaðir á dóm- gæzlunni. Ahorfendur áttu bágt með að stilla sig eftir leikinn — gerðu aðsúg að dómurunum og þeir gerðu sér litiö fyrir. Kærðu islenzka áhorfendur til alþjóðasamtakanna fyrir framkom- una. Þrjár breytingar voru gerðar á is- lenzka landsliðinu frá sigurleiknum, arrisinn Magnús Guðmundsson, þó svo Birgir Björnsson liggi þar undir höggi að velja Magnús svo fljótt i landslið. Danir settu strax mann til höfuös Einari Magnússyni — mann, sem elti Einar hvert sem hann fór. Einari tókst ekki að rifa sig lausan, en hins vegar kom á óvart hve illa öðrum sóknar- mönnum íslenzka liðsins tókst að nýta þá veikingu á dönsku vörninni, sem þetta hafði i för með sér. Danir sýndu þar grimmd og fengu að komast upp arleikur hans — og vel kom fram, að Ólafur gengur ekki heill til skógar. öðrum tókst ekki að hef ja upp merkiö — og enginn gat tekið upp merki Ein- ars frá fyrri leiknum, nú, þegar hann var tekinn úr umferð. Danir fóru að saxa á forskotið með góðri aöstoö Svia, sem dæmdu þeim fjögur vitaköst á stuttum tima. Staðan varö 8-8 og fór upp I 8-10 fyrir Dani. Þeir skoruðu fjögur mörk i röð, en Páll, Viggó og Stefán komu íslandi aftur, yfir, 11-10. — Danska landsliðið hefndi tapsins frá landsleiknum á sunnudag og sigraði ísland með 21 —19 í Laugardalshöllinni í gœrkvöldi en þær skiptu engu höfuðmáli. Út fóru leikmenn sem litlu hlutverki höfðu gegnt i fyrri leiknum — en þeir, sem inn komu gerðu heldur ekki neinar stórar rósir. Sýndu þó ýmislegt gott, einkum Gunnar Einarsson, og greini- legt, að Gunnar og Viggó Sigurðsson eru menn framtiðarinnar i islenzkum handknattleik — jafnvel einnig varn- með það — en markvarzla Jörgensen var þó Islendingunum erfiðust. 1 byrjun gekk þó allt vel. Eftir sex min. var staðan 4-1 fyrir Island — siðan 5-2 og 7-5, þegar Ólafur Bene- diktsson hvarf af velli. Ólafur fyrirliöi var stórgóður framan af — skoraði þrivegis — en hvarf svo að mestu eftir það. Mest kom þó á óvart slakur varn- Stefán Gunnarsson reynir markskot af linu, en dönsk hönd kom I veg fyrir rétta stefnu — og aukakast var dæmt. Ljósmynd Bjarnleifur. Danir jöfnuðu rétt fyrir leikhlé. Framan af siðari hálfleik var barningur, en svo náðu Danir afger- andiforustu — fjögurra marka forustú — og von að jafna þann mun hvarf alveg, þegar Viggó var visað af velli i fimm minútur fyrir brot, sem ekki var alvarlegra en mörg önnur I leiknum, þar sem leikmenn jafnvel sluppu meö áminningu. Fjórum Islendingum var visað af velli — fjórum Dönum, Bock tvivegis I tvær minútur. En munurinn minnkaði aðeins i lokin — Ólafur Einarsson skoraði þrjú siðustu mörk Islands I leiknum úr vitum. Hann var markhæstur með 8 mörk (6 viti), Ólafur H. skoraði 3, Gunnar einnig, Páll 2, Viðar, Viggó og Stefán H. eitt hver. Eitt vitakast brást hjá Islandi — Stefán Halldórsson. Erik Bue Peder- sen var markhæstur Dana með 6 mörk (1 viti), Dahl-Nielson skoraði 4.Svend Ove Schink, sem lék ekki i fyrri leikn- um, fjögur og Ole Eliasen fjögur, tvö viti. —hsim. Vel heitt í kolunum í landsflokkaglímu Nýja viðvörunarreglan veldur hörðum deilum og skiptum skoðunum meðal glímumanna „Þessar nýju reglur eru að gera þessa annars skemmtilegu iþrótt, eins og gliman getur verið, liálfgerðum skripaleik. 1 þessu móti keyrði þó alveg um þverbak, og man ég ekki eftir öðru eins um mina daga” sagði gamall glimu- maður, sem við hittum að máli fyrir utan tþróttahús Kennara- skólans eftir Landsflokkaglimuna á laugardaginn. Það er aðallega strangari regla um viðvörun — viti — á glimu- menn, sem harm og fleiri sætta sig ekki við og finnst vera misnot- uð af dómurunum. Upp úr sauð, er Jón Unndórsson KR fékk við- vörun á móti Ingva Ingvasyni HSÞ, þannig að hann tapaði glim- unni — eftir að hafa lagt Ingva á bragði, sem dæmt var af, en margir töldu að hefði verið hreint og löglegt — eins og kom i ljós á sjónvarpsmynd siðar um daginn. Mótmælti Jón með þvi að hætta i mótinu — ákvörðun, sem mörg- um þótti rétt, en öðrum alröng. Sögðu margir eftir mótið, að hann og margir aðrir glimumenn hefðu ekki kynnt sér reglurnar nægi- lega vel, en annar hópur, að nú sé ekki lengur glimt við menn, held- ur glimulögin. Pétur Ingvason UV var sigur- vegari I yfirþungavigt, hlaut 3 vinninga. Siðan komu þrir jafnir, og i aukaglimu milli þeirra hlaut Guðmundur Ólafsson Ármanni annað sætið, Ingvi Ingvason HSÞ þriðja og Guðni Sigfússon Ar- manni fjórða sætið. 1 milliþyngdarflokki sigraði Gunnar R. Ingvarsson UV Þing- eyinginn Kristján Ingvason — bróðir Péturs og Ingva — eftir niu mlnútna aukaglimu um fyrsta sætið. Pétur Sigurðsson varð þriðji — tapaði „jafnteflisglimu” á umdeildri viðvörun. Guðmundur Freyr Armanni sigraði I léttþyngdarflokki eftir harða viðureign við Rögnvald Ólafsson KR. Þriðji varð Halldór Konráðsson UV, en þeir þrir voru jafnir og þurftu að glima auka- glimu um verðlaunasætin, og siðan þeir Guðmundur og Rögn- valdur til þrautar um fyrsta sæt- ið. t unglingaflokki varð íslands- meistari Eyþór Pétursson HSÞ, drengjaflokki Auðunn Gunnars- son UtA og sveinaflokki Helgi Bjamason KR, en þar er mikið efni á ferð. Ómar úlfarsson KR hætti við að taka þátt i mótinu, þegar hon- um var meinað að nota olboga- hllfar, en þáð er eitt af þvi, sem bannað er i glimunni. Ómar kom þó með bréf frá trúnaðarlækni IBR, þar sem þess var óskað að hann fengi að keppa með hlifar til að verjast meiðslum — en bréfið var ekki tekið til greina. — klp — IS einni hrinu frá íslandsmeistaratitli Síðustu leikirnir í íslandsmótinu í blaki í Laugardalshöllinni í kvöld „Við erum staðráðnir I aö verða Islandsmeistarar I ár, enda þurf- um við ekki að sigra nema I einni hrinu i leiknum viö Þrótt I kvöld til að tryggja okkur titilinn.” Þetta sagði Halldór Jónsson þjálfari og leikmaður með blak- liði IS, sem i kvöld mætir Þrótti I úrslitaleiknum I tslandsmótinu i blaki i Laugardalshöllinni. Leikirnir i kvöld verða þrir — sá fyrsti hefst um kl. 18,30 og er á milli ÍMA og UMFB. Þar á eftir leika Vfkingur og UMFL, en siö- asti leikurinn, sem hefst um kl. 20,30, verður á milli IS og Þróttar. Ef Þróttur sigrar i öllum þrem hrinunum, er Þróttur tslands- meistari, en IS nægir að sigra i einni til að hljóta titilinn. A sunnudaginn lék 1S við IMA og sigraði 3:1 — 15:8 — 12:15 — 15:4 og 15:6. Eftir þann leik er 1S með 8 stig — alla leiki unna — en annars er staðan kvöld þannig: fyrir leikina i IS Þróttur Vikingur IMA UMFL UMFB 4 4 0 199:119 8 (12:5 4 3 1 217:167 6 (11:5 4 2 2 168:164 4 ( 8:6 4 2 2 168:163 4 ( 7:8 4 1 3 145:200 2 ( 4:11) 4 0 4 122:206 0 ( 2:12) —klp— Skœðustu keppendur Akureyrar úr leik — á landsmótinu á skíðum, sem hefst á ísafirði í dag. Árni Óðinsson veikur — Margrét Baldvinsdóttir brotin „Þaö er þegar kominn mikill fjöldi fólks hingað og margir eru á leiðinni — bæði keppendur og áhorfendur,” var okkur tjáð, er viö höfðum samband við Skið- heima í Seljalandsdal i morgun, en þar hefst skiðalandsmót ts- lands I dag. „Mótið var formlega sett i gær- kvöldi, en keppnin i fyrstu grein- unum hefst i dag klukkan þrjú. Þá er keppt I 10 kilómetra göngu 17 til 19 ára og 15 kílómetra göngu 20 I ára og eldri. Veðrið hér er gott — svolitið kalt, en annars ágætis keppnisveður.” Flest af bezta skiðafólki lands- ins er komiö til Isafjarðar og hefur verið að æfa sig i brekkun- um i Seljalandsdal siðustu daga. Akureyringarnir komu þó án tveggja sinna beztu — Margrét Baldvinsdóttir er viöbeinsbrotin, og Arni Óðinsson veiktist af hettusótt um helgina og getur þvi ekki keppt i þessu móti, sem hann var búinn að æfa af svo miklum krafti fyrir. A morgun verður keppt I stökki á landsmótinu — fimmtudaginn i stórsvigi og boðgöngu, — laugar- daginn i svigi og á sunnudaginn i flokkasvigi og 30 km göngu. Unglingameistaramótið á skið- um fer fram á Akureyri og Ólafs- firði um páskana. A Akureyri verður keppt i alpagreinunum, en á Ólafsfirði i norrænum greinum. Þarna verða um 200 keppendur — mun fleiri en á Islandsmóti þeirra eldri á Isafirði. —klp— B O s !V1 ! IVl 1 MARK, loksins tókst það!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.