Tíminn - 18.08.1966, Page 13
FIMMTUDAGUR 18. áeúst 1966
TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
Atta belgískir landsliðs-
menn í liði Standard Liege
Flugfélagið gefur
GR veglegan bikar
-sem íslandsmeistarar keppa um
- sem leikur á móti Valsmönnum n.k. mánud:kv. í Laugardal
Alf-Reykjavík. — Hvorki meira
né minna en 8 belgískir iandsiiðs-
Kærir
Keflavík?
Alf—Reykjavík. — Allar iíkur
eru til þess, aS Keflvíkingar
kæri síðari leikinn, sem þeir
léku gegn Akureyringum í 1.
deild, ,og lauk með jafntefli,
1:1, og krefjist þess að fá bæði
stigin. Kæruna ætla þeír að
byggja á því, að Akureyri hafi
leikið með ólöglegan mann, þ.e.
Magnús Jónatansson, en hon-
um var vísað af leikvelli á móti
Þrótti 9 dögum áður — og átti
samkvæmt því að fara í 10 daga
keppnisbann. Mun Magnús því
hafa verið í keppnisbanni, þeg-
ar hann lék gegn Keflavík.
Fari svo, að Keflvíkingar
vinni kæruna, aukast möguleik-
ar þeirra í mótinu, en vart
þýddi fyrir Akureyringa að
hugsa um sigur.
Flugfélag íslands li.f. hefur sýnt
þá rausn að gefa Golfklúbbi
Reykjavíkur veglegan verðlauna-
bikar, sem keppt verður um í
fyrsta sinn n.k. laugardag og
sunnudag á velli G.R við Grafar-
holt, 18 holur hvorn dag (högg-
leikur).
Marfcmið þessarar keppni er efl
ing starfsemi G.R. og stuðningur
við golfíþróttina á íslandi. Verð-
launagripurinn er farandbikar, en
1. og 2. maður hljóta viðurkenn-
ingar frá Flugfélagi íslands til
minja.
Keppnin hefst eins og áður segir
n.k. laugardag 20. ágúst kl. 13.30
en dregið verður í riðla kl. 13.10.
Að þessu sinni verður nægilegt að
menn eru í liði Standard Liege,
sem mætir Val í fyrri leik liðanna
í Evrópubikarkeppninni n.k. mánu
dagskvöld á Laugardalsvellinum.
Standard Liege er eitt sterkasta
félagslið Evrópu og hefur lagt
mörg fræg lið af velli, t.d. Glasgow
Rangers. Leikurinn á mánudags-
kvöld hefst klukkan 19.30 og hefst
sala aðgöngumiða á morgun, föstu
dag.
f gær boðuðu Valsmenn frétta-
menn á sinn fund og gáfu þeim
upplýsingar um belgíska liðið
og fara þær hér á eftir, en upp-
lýsíngar um sjálfa ledkmenn-
ina birtast í blaðinu á morgun:
Knattspyrnufélagið Standard var
stofnað af nokkrum skólapiltum
í Saint Servais skólanum í Liege
árið 1898. Með tímanum varð
Standard eitt af stærst^ félögum
landsins og meðlimum þess fjölgar
sífellt. Auk knattspyrnudeildar
með 1300 leikmönniun, eru í fé-
laginu deildir fyrir hockey, körfu-
knattleik, sund, sundknattieik,
borðtennis, judo, blak og rugby.
Árið 1921 var Standard komið
tilkynna þátttöku fyrir þann tíma
í Golfskálanum, Grafarholtsvelli,
sími 14981.
Það er mjög sérstætt við keppni
þessa, að þátttökurétt eiga aðeins
fyrrverandi og núverandi íslanda-
meistarar og klúbbmeistarar viður
kenndra golfklúbba á íslandi (í
meistaraflokki). Er þegar fyrirsjá-
aníegt, að allir helztu meistarar
síðastliðinna ára í golfi verða með
í móti þessu, og er því vænzt
spennandi og skemmtilegrar
keppni.
Til athugunar fyrir þá félaga,
sem hefja ætla leik upp úr hádegi
á laugardag, ber þess að gæta,
að völlurinn verður lokaður frá
kl. 13.15 — 14.30, og einnig á
sunnudagsmorgun kl. 8.45 — 10.00.
í fremstu röð í belgískri knatt-
spyrnu, og þar hefur félagið verið
æ síðan. Aðeins tvö önnur félög
í Belgíu geta státað af svipuðum
árangri, en það eru félögin Ant-
werpen og Beersehot í Anvers.
Miili styrjaldanna eða í tuttugu
Leon Semmeling, h. útherji Liege
og belgískur landsliSsmaSur.
ár var Standard einasta vallónska
félagið í 1. deild.
Framhald á bls. 15
Brezku samveldisleikunum, sem fram fóru í Kingston á Jamaica er
lokiS og hlutu Englendingar flest gullverðlaunin. Á myndinni. hér aS
ofan sést hin fræga enska íþróttakona, Mary Rand — gullkona á Ol. í
Tokíó — ilangstökkskeppni kvenna, en í þeirri grein sigraði hún örugg-
lega með því aS stökkva vel yfir sex metra.
Fram
sigraöi
í Eyjum
Alf-Vestmannaeyjum.
í gærkvöldi fór fram þýð-
ingarmikill lcikur í 2. deild
íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Vestmannaeyingar
og Fram léku í Eyjum og
lauk leiknum með eins
marks sigri Fram 2:1.
Leikurinn var hörku-
spennandi og hafði Fram
yfirleitt undirtökin og voru
úrslitin sanngjörn. Fyrra
mark Fram skoraði Helgi i
(Númason eftir glæsilegan
einleik á 31. mínútu leiks
ins. í síðari hálfleik dæmdi
dómarinn, Magnús Péturs-
son, vítaspyrnu á miðvörð
Vestmannaeyinga, Viktor
Helgason og skoraði Hlegi
Numason örugglega úr víta
spyrnunni. Aðeins mínútu
síðar barst knötturinn hratt
upp vallarhelming Fram
og siandu Vestmannaeyingar
knöttinn í átt að marki. Þor
bergur Atlason markvörður
Fram kom út hlaupandi á
móti og sló til knattarins, en
snerti um leið Bjarna Bald
urSson framherja ÍBV og
eftir viðtal við línuvörðinn,
Grétar Norðfjörð dæmdi
Magnús dómari vítaspyrnu.
Viktor tók vítaspyrnuna og
skoraði örugglega, 2:1.
Fleiri urðu mörkin ekki,
en Fram átti ótal tækifæri
lil þess að auka bilið, en
markvörður Vestmannaey-
Framhald á bls. 14.
■■■■..i,-,,. - J
Markmaður
inn skoraði!
Á sunnudaginn fór fram leikur
í Litlu bikarkeppninni á Akranesi
milli heimamanna og Breiðabliks
úr Kópavogi. Leikinn unnu Skaga-
menn örugglega, 5:0, eftir að hafa
haft yfir í hálfleik 2:0. Það þar
til tíðinda í leiknum, að Helgi
Daníelsson, Akraness-markvörður
skoraði 4. markið fyrir lið sitt —
úr vítaspymu. Það er óvenjii
legt,að markverðir framkvæmi víra
spyrnur, en Helgi skoraði örugg-
lega.
ÓDAUÐLEGAPÓLSKASKÁKIN
Pólski stórmeistarinn, Miguel
Najdorf var meðal þátttakenda
í Buenos Aires skákmótinu
1939. Er styrjöldin brauzt út
í Evrópu óskaði hann eftir að
vera kyrr í Argentínu ásamt
mörgum öðrum sterkum skák-
mönnum úr Evrópu. Síðan hef-
ur Najdorf unnið margan góð-
an sigur.
Eitt megin einkennið á Naj-
dorf er hið mikla sjálfstraust
hans. „Ég ætla að verða heims-
meistari11 sagði hann í blaða-
viðtali á Spáni 1947, og síðan
hefur hann ekki sparað kraft-
ana en án árangurs — ennþá.
Þá hefur verið haft eftir Naj-
dorf. „Ég held ég hafi minnstu
bóklegu þekkingu í skák allra
skákmeistara: „allir eru þeir
mér fremri í „teóríunni." En
eins og Kmoch og Tartakower
(kennari minn) hafa sagt sann
ar góður skákmaður getu sína
í mið- og endatafli."
Heimsmet í blindskák setti
Najdorf í Brazilíu 1947, þegar
hann tefldi við 45 samtímis.
Najdorf vakti fyrst heimsat-
hygli 1935 er hann vann skák
sem kölluð hefur verið „ódauð-
lega pólsika skákin“ og fer liér
á eftir:
Hvítt svart
Glucksberg Najdorf
Varsjá 1935
Hollenzk vörn-
1. d4 f5
2. c4 Rf6
3. Rc3 e6
4. Rf3 d5
5. e3? (Ef. 10.Kxbh2, þá Rg4t m
(Veiking á stöðunni 5.g3 er máthótun.)
's/.jlegn) 10. . . . Rg4
5. . . c6 11. f4 De8
6. Bd3 Bd6 12. g3 Dh5
7. 0—0 0—0 13. Kg2 Bgl!!
8. Re2 Rbd7 14. RxBgl- Dh2t
9. Rg5? Bxh2t 15. Kf3 ...
10. Khl . . . Framhald á bls. 15
tturT.R.