Vísir - 03.06.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 03.06.1975, Blaðsíða 5
Vlsir. Þriftjudagur 3. júni 1975 5 JTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖf Umsjón: Óli Tynes Enn óeirðir í Ródesíu: Vopnaðir lögreglumenn fara eftirlitsferðir Vopnaðar sveitir lögregiu- manna fóru eftirlitsferöir um götur Salisbury I nótt og i morg- un eftir aft nýjar óeirftir brutust lít i svertingjahverfi borgarinn- ar i gærkvöldi. Ekki kom þó til neinna vopna- viftskipta og óeiröirnar voru ekkert I likingu viö það, þegar lögreglumenn skutu 12 svert- ingja til bana og særðu 28 um síöustu helgi, en þeir voru þá aö reyna að stöðva götubardaga milli striðandi ættbálka. Stjórn Ródesiu hefur ekkert sagt opinberlega um þetta mál, heldur ekki um atburði helgar- innar. Það eru tvenn samtök blökkumanna, sem eiga i deil- um, Zapu og Zanu. Þau samein- uöust undir einn fána i desem- ber siðastliðnum til að eiga samningaviðræður við stjórn hvitra um að flytja völdin I hendur hins svarta meirihluta. Það hefur þó ekki verið átaka- laus sambúð. 1 gær sagði einn af talsmönnum Zanu, að samtök hans væru andvíg þvi að hefja undirbúningsviðræður við Ian Smith, forsætisráðherra. Ætlun- in var, að undirbúningsviðræð- umar leiddu til fundar viö Bret- land um tafarlausa valdatöku svartra manna. Fyrrnefndum talsmanni var fleygt út um glugga, þegar hann mælti á móti fundinum og þar með brutust óeirðirnar út. Svíar herðo öryggis- gœzlu við sendiróðin Sænska sendiráðift i London nýtur nú sérstakrar varftgæzlu, eftir aft sænska utanrikisráðuneytift sendi út tilskipanir um að herfta allt öryggiseftirlit. Venjulega er götulögreglumaftur á verði vift erlend sendiráft, en þaft sænska hefur fengift sérstak- an mann frá Scotland Yard. Sænski sendiherrann i London staöfesti blaða- fregnir um þetta. Hann sagði, að þessu væri þó ekki einungis beint að sendiráð- inu i London, heldur hefði öryggisgæzla verið aukin við allar opinberar sænskar stofnanir erlendis. Þetta er i beinu framhaldi af innrás hryðjuverkamanna i vestur- þýzka sendiráðið i Stokk- hólmi og vegna sprengjunn- ar, sem sprakk I húsi sænsku verzlunarnefndarinnar i Paris. Biðu björgunar í 24 klukkust. Froskmönnum hefur tekizt að bjarga fimm mönnum úr oliu- borturni, sem hvolfdi á Mexikó- flóa á sunnudag. Mennirnir fimm höfftust vift i Ibúftarhluta turnsins, þar sem loftþrýstingur hélt sjónum úti. Þeir voru búnir aft bifta björgunar I 24 tfma og loftift orftift hálf fúlt hjá þeim. Sjötta mannsins er leitað áfram. Á myndinni er björg- unarskipift komift á vettvang og froskmennirnir eru aft búa sig á afturþilfarinu. Afbrot CIA eru ekki stór- vœgileg — Rockefeller róðleggur þó ýmsar breytingar Bandaríska leyniþjón- ustan CIA hefur gert sig seka um ýmiss konar ólög- legt athæfi en hefur ekki framið nein stórkostleg lögbrot/ miðað við heildar- starfsemina og grundvall- artilgang leyniþjónustunn- ar, að sögn Nelsons Rocke- fellers, varaforseta. Fyrir fimm mánuðum skipaði Ford forseti Rockefeller formann átta manna nefndar, sem átti aö kanna starfsemi CIA. Það var gert eftir að komið höfðu fram á- sakanir um, að leyniþjónustan hefði ólöglega njósnað um banda- riska þegna. „Leyniþjónustan hefur gert hluti, sem hún hefði ekki átt aö gera,” sagði Rockefeller. Hann sagði, að ekkert væri þó i skýrsl- unni, sem hann mun afhenda for- setanum, sem honum myndi bregða sérlega við. Það þýddi þó ekki, að ástandið yrði óbreytt: „Við höfum ráðlagt ýmsar endurbætur til að koma i veg fyrir ólöglega starfsemi i framtiðinni”. r ■ Harðri EBE baróttu að Ijúka í Bretlandi — úrsögn veikir mjög efnahaginn,segir Jenkins Áróðursbaráttan vegna ar um hvort Bretland skuli þjóðaratkvæðagreiðslunn- vera áfram í Efnahags- Roy Jenkins, innanrikisráftherra, ásamt brezkri húsmóður, á einum fundanna sem verkamannaflokkurinn hefur haldift vegna EBE. Hús- móðirin Vicki Crankshaw var aft sýna mönnum, hversu mikift dýrara væri aft vera utan bandalagsins, hún haffti verift I innkaupaferft I Noregi, þar sem matvörur eru helmingi dýrari. bandalagi Evrópu er nú á lokastigi, en gengið verður til kjörs næstkomandi fimmtudag. Búizt er við miklum átökum um þetta mál innan Verkamanna- flokksins, en þótt spenna hafi ver- ið mikil, hefur flokkurinn þó ekki sundrazt, að sögn Roy Jenkins, innanrikisráðherra. „Flokkurinn kemur til meö að sleppa betur frá þessu en ég þorði að vona. Skað- inn innan hans verður minni en ég bjóst við.” Jenkins sagði, að það myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Bretland að segja sig úr bandalaginu. „Við yrðum miklu veikari á eftir. Traust á okkur myndi dvina og það hefði slæm á- hrif á atvinnulif, fjárfestingu og útflutning. Baráttan milli andstæðinga og stuðningsmanna aftildar að EBE hefur verið geysilega hörð undan- farnar vikur. I byrjun reyndu stjórnmálamenn að taka á mál- inu með festu og rökhyggju, en ekki leið á löngu þar til öllum brögðum var beitt til að koma eigin málstað á framfæri og gera litiö úr málstað andstæöingsins. Þaö er enda ekki svo litið i húfi. SADAT VAR OVENJU MJÚKMÁLL UM ÁKVÖRDUN ÍSRAELA Anwar Sadat, forseti Egyptalands, var óvenju mjúkmáll um israela eftir að Yitzha Rabin, forsætis- ráðherra israels tilkynnti, að í tengslum við opnun Suez-skurðar myndi israel fækka um helming í liði sinu á bakka skurðarins og flytja burtu stórskotalið sitt og meginhluta skrið- drekasveitanna. Það var áreiðanlega engin til- viljun, að Rabin tilkynnti um þetta á sama tima og Sadat og Ford Bandarikjaforseti ræddust við I Salzburg. Sadat hefur á und- anförnum mánuðum notið vax- andi virðingar vegna siendurtek- i.nna yfirlýsinga sinna um æski- leika þess að ná samningum um varanlegan frið. Israel hefur orð- ið undir i þeirri baráttu, séð frá pólitisku sjónarmiði. ísraelar hafa auðsjáanlega ætl- að sér að opna dyrnar a.m.k. i hálfa gátt, nú þegar Ford forseti er persónulega að hefja þátttöku i friðarumleitunum. Sadat sagði i sjónvarpsviðtali, að þessi ákvörðun Israela væri mjög jákvætt skref i friðarátt. Aðspurður um, hvort Egyptar myndu leyfa israelskum skipum að sigla um Suez-skurð, sagði for- setinn, aö héldu ísraelar áfram á sömu braut og sýndu fleiri merki um raunverulegan friftarvilja, þá yrði það ekkert vandamál. Skip- um þeirra yrði þá velkomiö að nota skuröinn. Suez-skurður veröur opnaður i þriðja sinn með hátiðlegri athöfn næstkomandi fimmtudag. Hann hefur tvisvar lokazt vegna hern- aöarátaka, siðan hann var fyrst opnaður fyrir 106 árum. HÆGFARA VALDATAKA KOMMÚNISTA í LAOS Kommúnistar i Laos eru nú smámsamanað taka öll völd i sínar hendur. Litrik plaköt eru hengd upp á vissum opinberum bygg- ingum, þar sem þess er krafizt, að einhverjum hægri manni verðí vikið úr embætti. Plakötin eru sögð komin frá óánægðum verkamönnum. Viðkomandi hægri manni er þá vikið úr embætti og i hans stað settur einhver, sem er leiðitamari viö Pathet Lao. Þótt Pathet Lao neiti þvi, að samtökin hyggist taka öll völd I landinu, eru menn i litlum vafa um það, hver I raun- inni gefur skipanirnar. Þeir hafa þó farið sér óvenju hægt, þvi að það er enginn vafi á, að þeir geta gert nákvæmlega þaö, sem þeir vilja og gætu verið búnir að mynda hreina kommún- istastjórn, ef þeir kærðu sigum. Það má og sjá merki þess, að nokkur átök séu innan Páthet Lao, milli „hægfara” og harð- linumanna. Þeir fyrrnefndu sjá enga ástæðu til að kalla yfir sig for- dæmingu heimsins meö þvi að „fleygja út um gluggann” sam- komulaginu frá 1974,sem gert var til að binda enda á 10 ára strið I landinu. Hinir sjá enga ástæðu til að hugsa neitt um það og vilja hrifsa til sin öll völd fyrst þeir geta þaö. Búast má við aö bilið milli þessara afla breikki enn næstu daga, eftir þvi sem kommúnistum tekst betur og betur að hreiðra um sig i fleiri og fleiri stjórnunarstólum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.