Vísir - 22.07.1975, Blaðsíða 8
8
Vlsir. Þriöjudagur 22. júli 1975.
Vlsir. Þriðjudagur 22. júil 1975.
9
Jóhann Torfason — sést ekki
á myndinni — hefur skotið á
mark Vals og Sigurður Haralds-
son kemur engum vörnum við.
Nafnarnir Atli Þór Héðinsson og
Atli Eðvaldsson fylgjast með
ásamt fleirum. Mynd: Bj. Bj.
— Jæja, beinið nú hljóðnemanum--
að vitanum. Ég þykist gera við vélina á
meðan ,---■*-----''
tg) Kmg Feaiuref Syndicate. Inc., 1974. World righti reterved
Yfir 100 í
Max Factor-
golfmótinu
Yfir hundrað keppendur tóku
þátt I fyrsta opna golfmótinu á velli
GR i Grafarholti á þessu sumri —
Max Factor keppninni sem háð var
þar um helgina. Leiknar voru 18
holur I sjö flokkum og var keppnin
jöfn og skemmtileg I þeim flestum.
Orslit I einstökum flokkum urðu
sem hér segir:
Meistarafl. karla:
Jóhann 0. Guðmundss,
NK 38:40=78
Július R. Júliusson GK 40:39 = 79
Óskar Sæmundsson GR 43:37 = 80
AtliArasonGR 41:39 = 80
1. fl. karla:
Svan Friðgeirsson GR 41:40 = 81
Kjartan L. Pálsson NK 40:42=82
Guðmundur S. Guðmundss.
GR 47:38=85
2. fl. karla:
Eggert ísfeld NK
Guðm. Ófeigsson GR
Elias Kárason GR
45:42 = 87
44:45 = 89
48:41 = 89
3. fl. karla:
Reynir Vignir, GR 45:44 = 89
Þorsteinn. J. Þorsteins.
GR 47:46 = 93
Halldór Sigmundsson GR 46:47 = 93
Unglingafl.:
Kristinn Ólafsson GR 44:39 = 83
Gunnar Þ. Finnbjörnss.
GK 44:44 = 88
Kári Knútsson GK 45:47 = 92
Einar B. Indriðason GR 43:49 = 92
Meistarafl. kvenna:
Jóhanna Ingólfsd. GR 42:43 = 85
Jakobina Guðlaugsd. GV 44:44 = 88
Elisabet Möller GR 47:48 = 95
1. fl. kvenna:
Kristin Þorvaldsd. NK 49:43 = 92
Inga Magnúsdóttir GK 53:47= 100
Svana Tryggvadóttir GR 50:50 = 100
Konur pg unglingar léku af
fremstu teigum — 2. og.3. flokkur
karla af miðteigum og meistarafl.
og 1. flokkur karla af öftustu teig-
um, eða eins og hver braut getur
orðið lengst.
Næsta stórmót I golfi hér á
Suðurlandi er „Ambassador: Mal-
boro” keppnin hjá Golfklúbbi Ness
sem verður á laugardaginn kemur
á Nesvellinum. Er hún opin öllum
félögum I Golfklúbbi Ness en einnig
er þeim kylfingum — eldrien 18 ára
— sem hafa forgjöf 13 eða lægra,
boðið að taka þátt i henni. Keppnin
hefst kl. 9 f.h. og siðan aftur kl.
13.00, en þetta er 18 holu keppni
með og án forgjafar. — klp —
Ararat og
Zarya í úrslit
Ararat Yerevan og Zarya Voros-
hilovgrad leika til úrslita i bikar-
keppni Sovétrlkjanna 1975. Undan-
úrslitaleikir keppninnar fóru fram
um siðustu helgi og sigraði þá
Ararat Dinamo Tbilisi 3:1 og Zarya
sigraði liðsovézka hersins 2:l,eftir
framlengdan leik.
Strákarnir
komust
áfram!
tslenzka unglingalandsliðið i
körfuknattleik komst áfram 116
liða úrslit i Evrópukeppninni i
Grikklandi ásamt Póllandi,
Tékkóslóvakiu og Sovétrikjun-
um úr sinum riðli.
i gær léku piltarnir við tsrael
i 16 liða keppninni og töpuðu
118:69. í hálfleik var staðan
63:30 fyrir ísrael. —klp—
Tvö mörk á tveim mínútum
og Valur náði öðru stiginu
KR hafði algjöra yfirburði í fyrri hálfleik en fœrði Valsmönnum tvö mörk á silfurbakka í þeim síðari
„Ég neita þvl ekki, að KR-ing-
arnir voru mun betri en við I fyrri
hálfleik, og þaö heföi ekki verið
ósanngjarnt, að þeir hefðu haft
fjögur mörk yfir I hálfleik,” sagði
Joe Gilroy, þjálfari Valsmanna,
eftir leik KR og Vals i 1. deildinni
á Laugardalsvellinum i gær-
kvöldi.
„Ég er þvi ánægður með að
hafa náð öðru stiginu úr þessum
leik — minir menn börðust vel i
siðari hálfleik, sérstaklega ungu
piltarnir i liðinu, og við gátum
eins skoraði þriðja markiö og
unnið, eftir aö við vorum búnir aö
jafna.”
Tony Knapp, þjálfari KR-
inganna, var heldur óhress, þegar
við töluðum viö hann. „Strákarn-
ir færðu Val annað stigið á silfur-
bakka i þessum leik,” sagði hann.
„Þeir léku frábærlega i fyrri hálf-
leik — þaö bezta, sem ég hef séð i
deildinni hér i Reykjavik I ár, en
gáfu svo þessi heimskulegu mörk
i siðari hálfleiknum.
Ég sagði þeim að halda áfram
at spila eins og I fyrri hálfleik,
þegar þeir fóru út á I þeim siðari,
en það gerðu þeir ekki, og þvi fór
sem fór.”
Já, KR-ingarnir voru óheppnir
að sigra ekki Valsmenn I þessum
leik — og þó heppnir að sleppa
með annað stigið eftir slæman
siðari hálfleik.
Þeir tóku leikinn þegar I sinar
hendur og tættu Valsvörnina —
sem var án Dýra Guðmundssonar
— i sundur hvað eftir annað.
Fyrsta markið skoruðu þeir á 14.
minútu leiksins og var Jóhann
Torfason þar að verki.
Árni Steinsson átti þá skot i
þverslá en þaðan hrökk knöttur-
inn fyrirfætur Jóhanns, sem þeg-
ar afgreiddi hann I netið fram hjá
Sigurði Haraldssyni, markveröi
Vals.
Annað mark KR kom fimm
minútum siðar. Stefán Orn
Sigurðsson sendi þá langa send-
ingu þvert yfir völlinn á Hauk
Ottesen, sem kom siglandi með
fram öllum og inn fyrir vörnina,
þar sem hann fékk gott ráðrúm tií
að skjóta — og skora...
Eftir þetta áttu KR-ingar
ógrynni tækifæra og léku Vals-
mennina grátt. Var farið að
hlaupa svo i skapið á sumum
þeirra, að fólskulegustu brögð
voru notuð, en dómari
leiksins Hinrik Lárusson haföi llt-
il tök á leiknum og beitti ekki sin-
um gulu og rauðú spjöldum,
nema þegar emhver ságöi eitt-
hvað við hann.
í siðari hálfleik snerist dæmið
við. KR-ingar misstu öll völd á
vellinum og Valsmenn tóku leik-
inn i sinar hendur. Menn höfðu
það á tilfinningunni, að þeir yröu
fljótir að skora — og það reyndist
rétt vera. Eftir hornspyrnu á 14.
minútu hálfleiksins missti
Magnús Guðmundsson mark-
vörður KR boltann frá sér —
sagði á eftir, að sér hefði verið
hrint — og Guðmundur Þor-
björnsson fékk hann i dauðafæri
og skoraði.
Tveim minútum siðar voru
Valsmenn búnir að jafna. KR-
ingar voru að gaufa með boltann
og Atli Eðvaldsson tók hann af
þeim á auðveldan hátt. Þrátt
fyrir „veika tá” tókst honum að
koma skotiá markið af löngu færi
og boltinn skoppaði alla leið I net-
ið. Þarna var Magnús fjarri góðu
gamni og átti auðveldlega að geta
varið skotið.
KR-ingarnir komust aldrei i al-
mennilegt færi I siðari hálfleik, en
aftur á móti Valsmenn i nokkur —
það bezta, er Hermann Gunnars-
son komst einn inn fyrir, en skaut
framhjá.
Ungu strákarnir i Valsliðinu
'voru beztu menn liðsins i þessum
leik — Atli Eðvaldsson, Albert
Guðmundsson, Guðmundur Þor-
björnsson og Magnús Bergs, sér-
staklega þó I siðari hálfleiknum.
KR-liðið var jafnara — þeir,
sem skáru sig einna helzt úr, voru
Stefán örn, Ottó Guðmundsson,
og Baldvin Eliasson og svo Arni
Steinsson i fyrri hálfleik. — klp
Hinir hlaupararnir voru eins og
„trimmarar" á eftir Yifters
— Þrjú heimsmet og ýmislegt annað markvert gerðist í frjálsíþrótta-
keppninni á milli Afríku, Þýzkalands og Bandaríkjanna um helgina
Þrjú heimsmet voru sett i
landskeppni, sem fram fór I Dur-
ham i Bandarikjunum um helg-
ina, en þar kepptu Vestur-Þjóð-
verjar, Bandarikjamenn og
Afrikubúar. Heimsmetin voru
sett i 4x110 yarda boðhlaupi
kvenna, þar sem vestur-þýzku
stúlkurnar hlupu vegalengdina á
44.07 sekúndum. Eldra metið átti
landslið Rússa 44.15, sett I lands-
keppni i Bandarikjunum í fyrra á
sama stað.
Þá bættu þýzku stúlkurnar
heimsmetið i 4x440 yarda boð-
hlaupinu, hlupu á 3:30.25 minút-
um. Eldra metið átti sveit Banda-
rikjanna, 3:33.90, sett 1972.
Þriðja heimsmetið i keppninni
settu svo Bandarikjamenn i 4x440
yarda boðhlaupi karla, hlupu á
3:02.40. Eldra metið áttu þeir
sjálfir, 3:02.80, sett 1966.
Að öllu jöfnu er hlaupið 4x100 m
og 4x400 m i boðhlaupum, en
merkingarnar á vellinum i
Durham leyfðu ekki slik hlaup,
Helztu úrslit önnur i keppninni
urðu þessi: Hástökk kvenna,
Meyfarth V-Þýzkalandi, sigur-
vegarinn á ÓL 1972, stökk 1.89-m
og er það hæsta hæð, sem kven-
maður hefur stokkið i Bandarikj-
unum. 100 m gr. Koschinski V-
Þýzkalandi 13.14 sek. Og I
kringlukastinu var Maritu
Schuran V-Þýzkalandi dæmdur
sigur, eftir að landa hennar, Ilse
Gaede, sem kastaði lengst hafði
verið dæmd úr keppninni fyrir að
nota ólöglega kringlu.
Heimsmethafinn i spjótkasti
karla, V-Þjóðverjinn Klaus
Wolferman varð að gera sér að
góðu þriðja sætið, — kastaði 76.60
m. Sigurvegari varð Afrikubúinn
Jacques Aye, kastaði 79,40 m og
annar varð Bandarikjamaðurinn
Richard George, kastaði 78.92 m.
I 5 og 10 km hlaupinu hafði
Afrikubúinn Miruts Yifter mikla
yfirburði. I 5 km hlaupinu, segir i
fréttaskeyti Reuters að hinir
keppendurnir hafi verið likastir
„trimmurum” i samanburði við
Yifters. Timi hans var 13:38.93
min i 5 km og 28:44.2 i 10 km.
Annar Afrikubúi, Akii-Bua,
sigraði i 400 m grindahlaupinu,
hljóp á 48.95 sekúndum. Akii-Bua
varð sigurvegari i þessari grein á
ÓL 1972.
t 800 m hlaupinu fékk Banda-
rikjamaðurinn Rick Wohlhuther
timann 1:44.12 min. og er þetta
jafnframtbezti tlminn, sem náðst
hefur á vegalengdinni I ár.
I stigakeppninni sigruðu Vest-
ur-Þjóðverjar, hlutu 266 stig,
Bandarikjamenn fengu 263,5 stig
og Afrikubúar ráku lestina með
150.5 stig.
EVROPUMOW
í BRIDGE
Siguryfir Belgíu
island vann Belgiu 14-6 i
fimmtándu umferð Evrópu-
mótsins i bridge hér i Brighton.
Leikurinn var vel spiláður af
beggja hálfu. — Fyrri hálfleikur
fór 21-17 fyrir okkur og siðari
hálfleikur sömuleiðis, 35-34.
Jakob Möller og Jón
Baldursson, Simon Simonarson
og Stefán Guðjohnsen spiluðu
allan leikinn.
italska sveitin hefur nú
sannfærandi forystu I mótinu
eða 227 stig, en Pólverjar og
Frakkar, sem eru jafnir i öðru
og þriðja sæti, hafa fengið 200
stig. Bretland hefur 190 st„
Noregur 186 st. Stefán.
HM-kep|MMN í sumfi:
Haukur Ottesen KR er aö vonum kampakátur, enda nýbúinn aö skora sitt fyrsta mark f 1. deild f sumar.
Sigurður Haraldsson, flatmagar, en Grimur Sæmundsson virðist ekki vera sáttur viö staösetningar
sinna manna þegar Haukur skoraði. Ljósmynd Bj. Bj....
Haukarnir skutu í stöng
— en Blikarnir skoruðu!
Breiðablik bætti stöðu sina I 2.
deild I gærkvöldi með þvi að sigra
Hauka á Kópavogsvellinum með
fjórum mörkum gegn engu. Þar
með misstu Haukarnir af öllum
möguleikum til að komast I eitt af
baráttusætunum I deildinni, þar
eru Blikarnir nú I efsta sæti. En á
hæla þeim koma Þróttur, Ár-
mann og Selfoss, sem enn eru
með I slagnum.
Mikið var um að vera við mörk
beggja liðanna á fyrstu minútu
leiksins I gærkvöldi. Haukarnir
byrjuðu með boltann og endaði
upphlaup þeirra með skoti i þver-
slá. Þaöan var spyrnt frá marki
og út til Gisla Sigurðssonar, sem
tók á sprett i átt að marki Hauk-
anna og skoraði — 1:0 fyrir
Breiöablik.
Aður en dómarinn flautaði i
leikhlé, höfðu Blikarnir bætt við
tveim mörkum. Ólafur Friðriks-
son skoraði það fyrra, en Hinrik
Þórhallsson þaðsiðara — hans 11.
mark I deildinni I ár.
1 siðari hálfleik sóttu Haukarfír
heldur i sig veðrið, en náðu aldrei
að skora. Blikarnir bættu einu
marki við i þeim hálfleik — Gisli
Sigurðsson úr vitaspyrnu, eftir að
Hinrik hafði verið brugðið innan
vitateigs, þegar hann var kominn
i gegn, og þannig endaöi þessi
leikur... —klp-
OLL HEIMSMETIN VERÐA HER
I HÆTTU
# # — segir bandaríski þjálfarinn um keppnina
miklu sem hefst í dag
„Sund er ung iþrótt og ég á von
á, að öll heimsmetin verði i hættu
þegar að slagurinn byrjar,” sagöi
þjálfari bandariska sundlands-
liðsins, Ron Hallatore, um þau
átök, sem framundan eru á
heimsmeistaramótinu i Cali i
Columbiu. t sama streng tekur
Mark Spitz, sundkappinn, sem
hlaut sjö gull á slðustu ólympiu-
leikum og telur, að flest met sin
komitil með að falla i keppninni.
Fram að þessu hefur einungis
verið keppt i dýfingum og sund-
knattleik i Cali, en i dag hefst
sjálf sundkeppnin og er það álit
allra, að Bandarlkjamenn muni
einoka karlagreinarnar, en Aust-
ur-Þjóðverjar kvennagreinarnar.
En þessi lönd deila með sér 22 af
þeim 33 heimsmetum, sem
standa I dag.
Á siðasta HM móti i Belgrad
urðu Bandarikjamenn hlut-
skarpastir i stigakeppninni og
hafa aldrei verið með jafngott
landslið og nú.
Austur-Þjóðverjar, sem urðu i
öðru sæti i Belgrad hafa heitið að
gera betur núna en þá.
Fyrsta sundgreinin i dag verð-
ur 200 m skriðsund og þar er
heimsmethafanum Bruce
Furniss og Tim Shaw, báðum frá
Bandarikjunum, spáð að vinna
gull og silfur.
Næsta grein þar á eftir, sem er
200 m fjórsund kvenna, ætti að
geta orðið góður mælikvarði á
stöðu þessara stórvelda. Þar
keppir eini heimsmethafinn frá
Baridarikjunum, Shirley Baba-
shoff, og biða menn spenntir eftir
þvi, hvort henni tekst að rjúfa
sigurgöngu stúlknanna frá Aust-
ur-Þýzkalandi.
önnur lönd, sem talin eru eiga
möguleika á gullverðlaunum i
keppninni eru: Bretland, Ung-
verjaland, Japan, Kanada og
Rússland, — en þau verða varla
mörg.
Undankeppninni I sundknatt-
leik er lokið og komust þessi lönd
áfram: Júgóslavia, Kúba, Ung-
verjaland, Rúmenia, Rússland,
Bandarikin, ítalia og Holland.
í dýfingakeppni karla stendur
slagurinn milli Phil Boggs frá
Bandarikjunum og ítalans Klaus
Dibiasi. Boggs, sem er heims-
meistari i greininni, hafði foryst-
una eftir fyrri daginn, en Italinn
fylgdi honum fast eftir.
m
u.
AM
Ætlið þið aðsleppa/Ef kærastinn þinn ^
mér? Pabbi í'gerir eins og við viljum,
getur greitt hvað! þá kemur þetta ekki-d
sem pr / vtil með að kosta föður
— Inni I bilnum
— Furðulegt hvað þeir ná
gegnum þykka
STAÐAN
123 mörk
í 2. deild
Staðan I 2. deild Islandsmótsins f
knattspyrnu eftir leikinn i gær-
kvöldi en þar hafa nú verið skoruð
123 mörk, þegar einn leikur er eftir
úr 9. umferð.
Breiðablik — Haukar
Breiöabliik
Þróttur
Ármann
Selfoss .
Haukar
Reynir A
Völsungur
Vikingur ó.
36:6
20:8
15:8
18:11
13:18
11:23
6:20
4:29
Markhæstu menn:
Hinrik Þórhallsson Breiðabl. 11
Sumarliði Guöbjartsson Selfoss 9
Ólafur Friðriksson Breiöablik 7
Þorvaldur í. Þorvaidsson Þrótti 6
Næstu leikir:
Vfkingur ó — Selfoss I ólafsvik
annaö kvöid. Haukar—Þróttur á
föstudagskvöldið og Reynir A—Sei-
foss, Völsungur—Ármann og
Vikingur Ó—Breiðablik á
laugardaginn.
77 mörk
í 1. deild
Staðan i 1. deild tslandsmótsins I
knattspyrnu eftir leikinn i gær-
kvöldi, en þarhafa nú verið skoruð
77 mörk, þegar einn leikur er eftir
úr 9. umferð:
Valur —KR
Akranes
Fram
Vikingur
Keflavik
Valur
KR
FH
IBV
Markhæstu menn:
Guðmundur Þorbjörnsson Val
Matthias Hallgrimsson Akran.
örn Óskarsson IBV
Teitur Þórðarson Akranes
Atli Þór Héðinsson KR
Kristinn Jörundsson Fram
Atli Eðvaldsson Val
Steinar Jóhannsson Keflav.
Næstu leikir:
Fram—Keflavik á Laugardalsvell-
inum I kvöld kl. 20.00. Viking-
ur—Valur sama stað á föstudags-
kvöldið. FH—Akranes og
ÍBV—Fram á laugardaginn og
KR—ÍBK á sunnudaginn.
Dregið á
fimmtudag
A fimmtudaginn mun verða
dregið um hvaða lið mætast i fyrstu
umferö I aðalkeppni bikarkeppn-
innar i knattspyrnu, en þá koma
inn öll 1. deildarliðin svo og þau lið,
sem hafa unnið sér rétt með sigri I
forkeppninni.
Slðasti leikurinn þar verður á Ár-
mannsvellinum I kvöld,
Armann—Fylkir, og á morgun
verða úrslitaleikirnir i riðlunum úti
á landi. Þar eigast við Þór—Reynir
á Akureyri, Þróttur—Valur á Nes-
kaupstað og HVI—IBi á ísafirði.
A morgun verða einnig úrslita-
leikirnir i bikarkeppni 1. og 2.
flokks. Á Melavellinum leika til úr-
slita i 2. flokki Breiöablik og Akra-
nes og á Kaplakrikavelli leika Vik-
ingur—Keflavik til úrslita i bikar-
keppni 1. flokks. —klp—