Vísir - 29.07.1975, Blaðsíða 8
ígainst
Don Murray,
Vlsir. Þriöiudagur 29. júli 1975.
Vísir. Þriðjudagur 29. júli 1975.
íslandsmótið í golfi:
Tveir
krýndir
,Stóra
bola"
Fyrstu islandsmeistararnir I golfi á
þessu ári voru krýndir I gærkvöldi, en
þá lauk keppni I tveim flokkum á
íslandsinótinu I golfi á Akureyri. Það
var I unglinga- og drengjaflökki, en
þeir luku I gær við að leika slðustu 18
holurnar af 72, sem leiknar eru I öllum
flokkum á islandsmótinu I ár.
Islandsmeistarar i þessum flokkum
1975 urðu Eirikur Þ. Jónsson Golf-
klúbbi Reykjavikur i unglingaflokki og
Sveinn Sigurbergsson Golfklúbbnum
Keili Hafnarfirði i drengjaflokki.
Sveinn varð átta höggum á undan
'næsta i sinum flokki, en Eirikur, sem
verður 16ára i næstu viku varð fjórum
höggum á undan Gylfa Garðarssyni
frá Vestmannaeyjum, sem var fyrstur
, eftir fyrsta dag mótsins. Lék Eirikur á
328 höggum, en Gylfi á 332.
Annars urðu þessir piltar fimm
fyrstu i þessum tveim flokkum:
Unglingaflokkur:
Eirikur Þ. Jónss. GR 328
Gylfi Garðarss. GV 332
i Sigurður Péturss. GR 334
Gunnar Finnbjörnss.GK 341
Guðni ö. Jdnss. GL 343
i Drengjaflokkur:
Sveinn Sigurbergss. GK 333
I Gylfi Kristinss. GS 341
Björn Björnss. GL 357
Hilmar Björgvinss. GS 357
Kristján Þorkelss.GR 366
Þeir Björn og Hilmar urðu að leika
I sex aukaholur um 3ju verðlaunin i
mótinu og hafði Akurnesingurinn þar
1 sigur.
1 dag lýkur keppninni i 3. flokki
1 karla og kvennaflokki, en staðan þar
fyrir siðasta daginn er þessi:
Kvennaflokkur:
1 Kristin Pálsd. GK
INGA Magnúsdóttir GK
1 Katrin Frimannsd. GA
Svana Tryggvad GR
1 Alda Sigurðard. GK
305
313
325
335 1
338
Engin af beztu golfkonum landsins
— þær, sem eru i meistaraflokki —
1 mætti i þetta mót, og var þvi geröur
einn flokkur úr 1. flokki kvenna og
telpnaflokki og keppa þær um íslands-
meistaratitilinn.
3. flokkur karla:
Jóhann Guðmundss. GA 292
Gunnlaugur Höskuldss GHorn 294 1
Tryggvi Sæmundss GA 295
Þorsteinn Þorsteinss GR 296
Sæmundur Pálss. GR 305,
1 morgun klukkan sjö hófst keppnin i
2. flokki karla, og á morgun hefst1
öldungakeppnin svo og keppni á milli
golfklúbbanna — 8 manna sveitir frá
hverjum — svo Einherjakeppnin, en
það er árleg golfkeppni þeirra kylf-1
inga, sem hafa farið „holu i höggi”.
A fimmtudaginn hefst svo aðalslag-1
urinn — en þá byrjar keppnin i
meistara- og 1. flokki karla, og verða
1 flestir beztu golfmenn landsins með i
þeirri baráttu, sem mun standa fram á
1 sunnudagskvöld.
-klp-
Svo til
það sama!
Hörður Hilmarsson, Val, og Grétar
Magnússon, IBK, hafa verið settir út
úr landsliðshópnum, sem valinn hefur
verið fyrir landsleikinn við Sovétrikin
á Laugardalsvellinum annað kvöld.
Þeir voru báðir með i ferðinni til
Noregs en fá nú „hvlld”. 1 þeirra stað
hafa verið valdir Karl Hermannsson
ÍBK og Elmar Geirsson, Eintracht
Trier, en þeir hafa báðir verið I hópn-
um fyrr i sumar.
Landsliðsnefndin tilkynnti 16 manna
hópinn I gær og er hann þannig skip-
aður: (Fyrir aftan er landsleikjafjöldi
’þeirra)
Arni Stefánsson Fram 2
Þorsteinn ólafsson ÍBK 10
Jón Pétursson Fram 9
Marteinn Geirsson Fram 24
Jóhannes Eðvaldsson Holbæk 14
Gisli TorfasonÍBK 16
Teitur Þórðarson 1A 15
Elmar Geirsson Eintract Trier 17
Björn Lárusson ÍA 8
Jón Alfreðsson ÍA 4
Matthias Hallgrlmsson ÍA 34
Arni Sveinsson iA 2
Örn óskarsson ÍBV 7
Karl Hermannsson ÍBK 8
Ólafur Júliusson ÍBK 13
Guðgeir Leifsson Viking 26
Landsliðið er nú á Þingvöllum og
mun æfa sig þar og á Laugarvatni
fram að leiknum, sem hefst á Laugar-
dalsvellinum annað kvöld. Er það siö-
asti landsleikurinn i knattspyrnu hér á
landi I sumar, og veröa örugglega
margir, sem ekki vilja sleppa tæki-
færinu að sjá hann. -klp-
bílí
aukaverðlaun!
Guillermo Vilas frá Argentlnu sigr-
aði Bandarlkjamanninn Harold Solo-
mon i úrslitum I „VVashington Star”
tenniskeppninni, sem lauk i gærkvöldi.
Var það sama keppnin og Rúmeninn
var rekinn úr fyrir að henda skónum
sínum i annan Hnuvörðinn eins og við
sögðum frá I gær.
Verðlaunin I þessari keppni voru 100
þúsund dollarar. Vilas, sem er 22 ára
gamall, fékk 16.000 af kökunni og auk
þess nýjan b II, sem „aukaverð-
laun”.... —klp—
Leeds fékk
skell
Leeds United tapaði fyrir vestur-
þyzka 1. deildarliðinu Hamburger SV I
æfingaleik i Þýzkalandi I gærkvöldi
með fimm mörkum gegn tveimur.
Þjóðverjarnir komustl 5:0, en á sið-
ustu minútum ieiksins skoraði Allan
Clarke tvö mörk fyrir enska liöiö —
þar af annað úr vitaspyrnu.
Fyrir Hamburger SV — sama félag
og Einar Magnússon leikur handknatt-
leik fyrir — skoruðu Georg Volker þrjú
mörk og Hans Ettmayer og Horst
Bertl eitt mark hvor. —klp—
Góð byrjun!
Bandarikjamaðurinn George Burns,
sem gerðist atvinnumaður I golfi fyrir
þrem vikum, sigraði I stærstu golf-
keppni, sem haldin er á Noröurlöndun-
um ár hvert —„Skandinavian Open” á
laugardaginn.
Þá lauk þessari 72 holu keppni með
aukakeppni á milli Burns, sem er 25
ára gamall, og Graham Marsh frá
Astraliu — bróðir enska knattspyrnu-
mannsins fræga Rodney Marsh.
Þeir voru jafnir eftir 72 holurnar á
279 höggum og léku svokallaðan
„bráðabana” um fyrstu verðlaunin,
sem voru 5.400 sterlingspund. Þurftu
þeir aðeins að leika fyrstu holuna —
þar sigraði Burns — lék á 5 höggum en
Marsh á 6 höggum.
Þriðji i keppninni varð Brian Hugg-
et, Bretlandi, á 280 höggum og fjórði
Bob Gilder, USA, á 281 höggi. Keppnin
fór fram i Malmö i Sviþjóö og fylgdust
með henni allt að 20 þúsund manns
hvern dag. —klp—
Leikmaður sem Celtic
mó ekki missa af...
Segja skozku blöðin um Jóhannes Eðvaldsson, sem hefur fengið fróbœra
dóma fyrir þó tvo leiki, sem hann hefur leikið með liðinu — hefur verið
valinn í lið Celtic ó móti Derby ó laugardaginn kemur
l>aö fer ekki fram hjá
neinum, sem séð hefur
skozku blöðin að undan-
förnu, að til er maður,
sem heitir Jóhannes Eð-
valdsson, og að skozka
liðið Celtic sé á eftir
honum.
Hvert blaðið af öðru hefur
skrifað langar greinar um íslend-
inginn og hrósað honum á hvert
reipi fyrir þá tvo æfingaleiki, sem
hann hefur leikið með Celtic.
Fyrirsagnir eins og „BOY OH
BHOY” og aðrar álika, sem lýsa
hrifningu blaðamannanna á hon-
um eru yfir þverar siðurnar og
stórar myndir af honum i alls
konar stellingum fylgja með.
Blöðin segja, að Celtic hafi ekki
efni á þvi að missa þennan
islenzka víking, þvi hann komi
örugglega til með að styrkja liðið
mikið. Hann sé verðugur arftaki
Billy McNeill, sem var fyrirliði
Celtic þar til I fyrra. Ekki aöeins
knattspyrnulega heldur einnig á
ýmsan annan hátt. Hann likist
honum á allan hátt — sé svipaður
á leikvelli, gangi og hlaupi eins,
og gefi ekkert eftir frekar en
Billy.
Eitt blaðið heldur þvi örugglega
fram, að Jóhannes muni skrifa
undir samning við Celtic eftir
leikinn við Rússland á tslandi á
miðvikudaginn. Muni hann fá á
milli 20 og 30 þúsund sterlings-
pund i sinn vasa fyrir þann samn-
ing —c.a. 10 milljónir islenzkar —
og ekki undir 200 sterlingspund-
um i laun á viku.
Það sé ekki mikið miðaö við
hvað þessi fyrirliði islenzka
landsliðsins geti i knattspyrnunni
— hann sé öruggur, ákveðinn og
nákvæmur i öllu, sem hann geri,
og slikir knattspyrnumenn séu
ekki auðfundnir nú til dags.
Jóhannes kom heim i gær-
kvöldi, og hittum viö hann hjá
föður sínum, Eðvald Hinrikssyni,
i gufubaðstofunni 1 Hátúni, þar
sem hann var ásamt félaga sinum
I landsliðinu, Birni Lárussyni, að
koma úr baði og búa sig undir að
halda austur á Þingvöll til að æfa
með landsliðinu.
„Það hefur ekkert verið gengið
frá neinum samningi á milli min
og Celtic,” sagði hann. „En eins
og málin standa núna, er ekkert
fjarri lagi, að ég fari til þeirra.
Mér leizt mjög vel á mig hjá þeim
og mannskapurinn þarna er alveg
stórkostlegur.
Ef ég meiðist ekki i leiknum við
Rússa á miðvikudaginn, held ég
til Glasgow á fimmtudag og verö
hjá Celtic fram yfir helgi. Það er
búið að velja mig i liðið i leik við
Englandsmeistarana Derby, sem
á að fara fram á Parkhead I
Glasgow á laugardaginn, en það
er fyrsti stórleikurinn i Skotlandi
á þessu keppnistimabili.
Ég vona, að ég nái þeim leik —
þvi það er ekki á hverjum degi,
sem maður fær tækifæri til að
mæta öðru eins liði og Derby og
það með eins góðu liði og Celtic
er.
Ég hef fleiri tilboð, sem ég á
eftir að kanna betur — m.a. frá
Hollandi og Vestur-Þýzkalandi —
en ég efast um, að þau geti verið
betri en þetta, sem ég hef fengið
frá Celtic, og að þar sé eins gott
að vera. Þvi má vel vera að ég
slái til, en úr þvi fæst skorið um
eða eftir næstu helgi”.
-klp-
Þessi glaðlyndi hópur skipaði islenzka frjálslþróttalandsliöiö, sem tók þátt I Kalottenkeppninni I Noregi um helgina. Island sigraöi i keppninni,
hlaut samtals 328 stig, gestgjafarnir Norömenn uröu I ööru sæti meö 301,5stig, Finnar uröu þriöju meö 272,5 stig og Svfar ráku lestina meö 266
stig. Mynd: Bj.Bj.
Bjarni Stefánsson kemur fyrstur f markiö i 100 m hlaupinu og fékk
tímann 10.7 sek. Bjarni náÖi afar lélegu starti og varö langslöastur I
byrjuninni. Seinni hluti hlaupsins var hins vegar mjög góöur hjá
Bjarna, sem viröist vera I mjög góöri æfingu um þessar mundir.
Siguröur Sigurösson varð fyrstur I sfnum riöli og fékk sama tlma og
Bjarni. Þeir kepptu líka hvor I sínum riðlinum i 200 m hlaupinu og þar
fengu þeir llka sama timann, 22.4.!!!
Mynd: Bj.Bj.
-r'l9".tniont
Smm
»2*2
the BIG pictures.
^ ^ — B,G paper
BHOÝf
Oundal. n . T^UrSt^ar *”
star
calms
Celtic,
then they turn
on goal style
Joöannoi Edvildnon
_Oundalk 0. Celtic
01
m
J Ícelander set
for Parkhead
By ALAN DAVIDSON
|oii\\m;s covAiu-
SO\ niiM look. Ukcly 1« 1
' 1 ,ul1' CcIir-
„Var eiginlega
búinn að fó nóg'
— sagði gullmaðurinn fró Kalottenkeppninni í Tromsö
„Þetta var anzi erfitt I lokin,”
sagði Bjarni Stefánsson, sem
hlaut fimm gullverölaun I Kalott-I
enkeppninni. Bjarni varö fyrstur I
Erna Guömundsdóttir fékk nóg aö gera I Kalottenkeppninni. Hún
keppti i sex greinum, 100 og 200 m hlaupum, þar sem hún varö önnur á
12,4 og 26,2 sek. Mynd: Bj.Bj.
100 m og 200 m hlaupinu ásamt
Siguröi Sigurössyni og vann 400 m
hlaupið meö yfirburöum, auk
þess sem hann var I boöhlaups-
sveitunum, sem sigruöu I 4xl00m
og 4x400 m boðhlaupunum. „Mað-
ur var ekki upp á marga fiska eft-
ir slöustu greinina, 4x400 m boö-
hlaupið, þvl aö stuttu áður var ég
búinn aö hlaupa 100 og 400 o og
var þvl eiginlega búinn að fá
nóg.”
Bjarni og Lilja Guðmundsdóttir
voru kosin beztu Islendingarnir I
keppninni. Lilja keppti i 800 og
1500 m og hafði algjöra yfirburði
yfir aðra keppendur. Hún kom
heim með landsliðshópnum á-
samt Júliusi Hjörleifssyni, en þau
hafa stundað æfingar I Sviþjóð i
sumar, og ætla þau að keppa á
Meistaramótinu, sem hefst á
þriðjudaginn.
„Ég bjóst ekki við meti við
þessar aðstæður,” sagði Stefán
Hallgrimsson eftir að hafa sett
nýtt íslandsmet I 400 m grinda-
hlaupinu i Kalottenkeppninni I
Tromsö. „Vindurinn var 6,2 m á
sekúndu og það gerði mér mjög
erfitt fyrir I hlaupinu. Við betri
aðstæður á ég að geta mun bet-
ur.”
Stefán hljóp 400 m grindahlaup-
iö á 52,4 sek og nálgast nú
Olympiulágmarkið óðum.
Agúst Asgeirsson náði mjög
góðum árangri I 3000 m hindrun-
arhlaupinu. Hann varð þriðji,
hljóp á 8.58,4 min, sex brotum frá
Ólympiulágmarkinu.
Þetta er aðeins lltill hluti af fyrirsögnum og greinum um Jóhannes Eövaldsson úr skozku blööunum aö
undanförnu — allt af baksiðum blaöanna, sem eru meðal þeirra stærstu á Bretlandi.
Imsjón: Kjartan L. Pálsson