Vísir - 11.08.1975, Page 9
Vísir. Mánudagur 11. ágúst 1975 9
Ekkert félag nóði að
ógna ÍR í bikarkeppninni
ÍR varð bikarmeistari Frjáls-
iþróttasambandsins 1975 I 1.
deild. Hlaut félagið 133 stig, i öðru
sæti varð UMSK með 115 stig, og
KR varð i þriðja sæti með 104 stig,
HSK i fjórða með 96 1/2 stig og I
fimmta sæti varð Ármann með 81
1/2 stig.
Neðsta félagið varð HSH (Hér-
aðssamband Snæfells- og
Hnappadaissýslu) hlaut 71 stig og
fellur þvi i 2. deild.
Eitt tslandsmet var sett á
Laugardalsvellinum i gær, en þá
var keppt i 1000 m boðhlaupi
kvenna sem aukagrein. Var það
sveit ÍR, sem setti metið, hljóp á
2:22,6 min.
Þá voru sett tvö drengjamet og
eitt telpnamet. Drengjametin
setti Sigurður Sigurðsson, Ar-
manni, I 100 og 200 m hlaupunum
og má búast við, að unglingamet
Bjarna Stefánssonar og Hauks
Clausens i greinunum falli áður
en langt um liður. Bjarni á metið i
100 m 10,5 sek, en Haukur á 200 m
21.6 sek.
Þá setti Ingibjörg ívarsdóttir
HSK telpnamet i 400 m hlaupinu,
hljóp á 60,9 sek, en eldra metið
átti Ingunn Einarsdóttir ÍR 62
sek.
Það kom strax i ljós i upphafi
keppninnar, að fátt yrði til að
ógna sigri ÍR, en eftir fyrri dag
keppninnar virtist baráttan um
fallið ætla að verða á milli KR og
HSH. KR-ingum gekk hins vegar
mjög vel seinni daginn — unnu
hverja greinina á fætur annarri
og tryggðu sér þriðja sætið i
keppninni.
Fyrsta keppnisgreinin var 200
m hlaup karla og þar kom Sigurð-
ur Sigurðsson Ármanni fyrstur i
mark á nýju drengjameti, hljóp á
21.7 sek, annar varð Vilmundur
Vilhjálmsson KR á 21,9 og þriðji
Elias Sveinsson á 22,8 sek.
Það kom mönnum á óvart að
sjá Bjarna Stefánsson KR á með-
al keppenda I 800 m hlaupinu.
„Ég varð að prófa”, sagði Bjarni
eftir hlaupið. ,,Ég hef litið fundið
fyrir að hlaupa 400 m og langaði
þvi að reyna við eitt 800 m hlaup.”
Allt virtist ætla að ganga vel
hjá Bjarna i fyrstu, en þegar 200
m voru eftir i mark var hann
greinilega búinn að fá nóg, en
kom samt þriðji I markið. Hlaup-
ið vann Július Hjörleifsson ÍR á
1:56,9 min, annar varð Markús
Einarsson UMSK á 2:01,0 min og
Bjarni varð þriðji á 2:02,1 min.
Agúst Ásgeirsson átti ekki I
miklum erfiðleikum I 3000 m
hlaupinu — kom langfyrstur i
mark á 8:39,9 min. Annar varð
Gunnar Snorrason UMSK á 9:37,0
mln og þriðji varð Leif österby
HSK á 9:42,0 min.
Siðasta hlaupgreinin fyrri dag-
inn var 4x100 m boðhlaup — þar
sigraði sveit KR, hljóp á 43,8 sek,
i öðru sæti varð sveit UMSK á 45,3
sek og þriðja sveit 1R á 45,4 sek.
Elias Sveinsson stökk hæst
allra i hástökki, 1,99 m og átti
mjög góðar tilraunir við 2,02 m.
Annar varð Karl West UMSK
stökk 1,96 m og þriðji varð Þráinn
Hafsteinsson HSK, stökk 1,90 m.
Öllum á óvart varð Islands-
meistarinn i langstökki, Friðrik
Þór Óskarsson 1R, að sætta sig
við fimmta sætið, en það var
greinilegt, að hann gekk ekki heill
til skógar og stökk aðeins 6,64 m.
Sigurði Jónssyni HSK gekk hins
vegar allt i haginn og varð fyrstur
— stökk 6,91 m, en þeir Sigurður
Hjörleifsson HSH og Karl West
UMSK deildu með sér öðru og
þriðja sætinu, stukku báðir 6,71
m.
1 kúluvarpinu og spjótkastinu
hafði Óskar Jakobsson 1R mikla
yfirburði. óskar kastaði kúlunni
16.30 m og var það nær 2 1/2 m
lengra en næsti maður. 1 spjót-
kastinu kastaði Óskar 75,44 — og
kastaði rúmum 25 m lengra en
næsti!...
Keppnin hjá kvenfólkinu var oft
jöfn og spennandi, I fyrstu grein-
inni, 100 m hlaupi kvenna, sigraði
Erna Guðmundsdóttir KR á 12,5
sek en Maria Guðjohnsen 1R varð
önnur á 12,6 sek.
Lilja Guðmundsdóttir 1R átti i
litlum erfiðleikum I 400 m hlaup-
inu hljóp á 59,3 sek. önnur varð
Ingibjörg Ivarsdóttir HSK á 60,9
sek, sem er telpnamet.
1 4x100 m boðhlaupinu varð
sveit IR fyrst, hljóp á 50,3 sek, en
Ármann varð I öðru sæti á 50,9
sek.
öllum á óvart tapaði Þórdis
Gisladóttir 1R i hástökkinu fyrir
Mariu Guðnadóttur HSH, báðar
stukku sömu hæð, 1,63 m en
María notaði færri tilraunir.
Maria sigraði einnig i spjót-
kasti, kastaði 34,60 m. Gunnþór-
unn Geirsdóttir UMSK varð fyrst
i kúluvarpi, kastaði 10,10 m.
Seinni daginn gekk KR-ingum
mjög vel og öllum á óvart sigraði
Vilmundur Vilhjálmsson KR i 100
m hlaupinu, en annar varð Sig-
urður Sigurðsson Armanni, báðir
Kaupfiu
Kana sfirax
Þegar skólinn-hefst þarftu
peninga til margra hluta
Þess vegna kaupir þú hina full
komnu Tatex 834 SR strax.
8 stafa grænt Ijósaborð
Minni
Prósenta
Fljótandi komma og föst
Konstant
Og auk hinna venjulegu
reikniaðferða inniheldur
Tatex 824 SR kvaðratrót
x2 og 1/x Árs ábyrgð -
tengjanlégur straumbreytir
oliuelli
skrifstofutækni h.f.
tryggvagötu simi 285II
Lið 1R varð Bikarmeistari FRÍ í 1. deild 1975. Fjórði frá vinstri er þjálfari iiðsins Guðmundur Þórarins-
son, en fremstur er fyrirliði liðsins, Friðrik Þór óskarsson með bikarinn. Myndina tók Bjarnleifur eftir
keppnina i gær.
fengu sama timann 10,6 sek og er
timi Sigurðar nýtt drengjamet.
Vilmundur gerði sér litið fyrir
og vann einnig 400 m hlaupið á á-
gætum tima 48,9 sek.
Lengri hlaupin voru sérgrein
ÍR á mótinu, i 1500 m hlaupinu
sigraði Gunnar Jóakimsson á
4:05,6 min. og i 5000 m Sigfús
Jónsson 1R á 15:57,9 sek.
Valbjörn Þorláksson sannaði
enn getu sina, vann 110 m grinda-
hlaupið á 15,0 sek og I stangar-
stökkinu tók hann hina á ,,taug-
um” stökk 4,20 m.
KR-ingarnir urðu langfyrstir i
1000 m boðhlaupinu — fengu tim-
ann 2:01,8 min.
Friðrik Þór óskarsson náöi á-
gætum árangri i þristökkinu —
stökk 15,40 m sem var nærri 2 m
lengra en næsti maður.
Óskar Jakobsson 1R var örugg-
ur sigurvegari i kringlukasti,
kastaði 52,30 m. 1 sleggjukasti
sigraði Óskar Sigurpálsson Ar-
manni — kastaði 46,64 m.
Erna Guðmundsdóttir KR varð
fyrst i 100 m grindahlaupinu á 14,9
sek og i 200 m hlaupinu varð hún
einnig öruggur sigurvegari, hljóp
á 26,3 sek.
Lilja Guðmundsdóttir 1R hafði
mikla yfirburði i 800 m hlaupinu,
hljóp á 2:15,7 min, en Ragnhildur
Pálsdóttir UMSK varð önnur á
2:21,0 min.
Hafdis Ingimarsdóttir UMSK
tryggði sér sigur I langstökkinu i
siðasta stökkinu — stökk 5,44 m,
en önnur varð Erna Guðmunds-
dóttir KR, stökk 5,35 m.
I kringlukasti kvenna sigraði
Ingibjörg Guðmundsdóttir HSH,
kastaði 35,95 m, en i öðru sæti
varð Anrdis Björnsdóttir UMSK,
kastaði 29.08 m.
nýkomnar
[hljómfagrar
amerískar
dyrabjöllur
í úrvali /
I eins, tveggja
'og þriggja
hljóma.l
[vörur í sérflokkil
SÉRVERSLUN
MEÐ
HÚSGÖGN
OG
RAFTÆKI