Tíminn - 14.09.1966, Blaðsíða 2
MIÐV|KUDAGUR 14. september 1966
-*-r-
TÍMINN
Gréta Sigfúsdóttir
Leikfangahappdrætti Thorvaldsens
félagsins 15. sept. til 15. okt.
Thorvaldsensfélagið efnir nú í
þriðja sinn til hins vinsæla leik-
fangahappdrættis síns. Hagnaðin-
um verður varið til fyrirhugaðr-
ar viðbótarbyggingar við Vöggu-
stofu Thorvaldsensfélagsins við
Sunnutorg. Eins og kunnugt er,
er mjög aðkallandi að byggja
heimili fyrir börn frá 2—6 ára,
sem tekur við börnum frá Vöggu-
stofum bæjarins, þ.e. þeim börn-
um, sem ekki eiga heimili
foreldra sem geta annazt þau.
eða
Thorvaldsensfélafið yæntis þess
að foreldrar, gefi börnum sínum
tækifæri til að styrkja gott má!-
efni, með því að kaupa happdrætt-
ismiða. Þeir kosta aðeins 10 krón-
ur, og verða til sölu á Thorvalds-
ensbazar — í Háskólabíói eftir kl.
4, í Kjörgarði og víðar um bæinn.
„Bak vii byrgða
- Ný skáldsaga
glugga
//
Á síðustu árum hafa furðu-
margar konur bætzt í hóp ís-
lenzkra skáldsagnahöfunda og
hafa sumar þeirra þegar í upphafi
eignazt mjög álitlegan lesenda-
hóp. Og nú þessa dagana er ein
kona komin til skjalanna á sama
vettvangi og kveður sér hljóðs með
myndarlegri skáldsögu, sem A1
menna bókafélagið gefur út og
er septemberbók félagsins.
Bak við byrgða glugga, ftir
Grétu Sigfúsdóttur, gerist und
ir lok síðustu heimsstyrjaldar og
fjallar að meginefni um samskiptí
ungra kvenna við þýzkt setulið í
Noregi. Höfundurinn, sem þar-
dvaldist árum saman lætur þess
Ljósmyndasýning
PB-Reykjavík, þriðjudag.
Um þessar mundir stendur yfir
Ijósmyndasýning á Mokka kaffi.
Myndirnar hefur Jón Eiarsson tek
ið, og eru þær 19 að tölu. Flestar
þeirra eru 30x40 að stærð, en
nokkrar heldur stærri. Jón sagði
í viðtali við blaðið, að hann hefði
tekið mestan hluta myndanna á
Spáni, en nokkrar eru þó héðan,
þar á meðal myndir af leikurun
um Haraldi Björnssyni, Briet Héð
insdóttur og Sigríði Hagalín.
getið framan við bókina, að hún
sé byggð á raunsönnum iúðburð-
um, en vitanlega hefur nöfnum
verið breytt. í sjálfu sér telst ekki
til nýlundu, að slíkt efni sé tek-
ið til meðferðar, en hitt er sjald-
gæfara, að sjá það rakið frá sjón
arhóli þeirra einstaklinga, „er
reyndust veikari fyrir“, eins og
komizt er að orði í nýnefndum
formálsorðum.
f frétt frá AB um bókina segir:
„Ætla mætti í fljótu bragði, að
efni sem þetta mundi umfram allt
kalla á allmikla b'ersögli, og satt
er það, að hér er ekki beitt neinni
launung til að fegra hlut ,hinna
veikari" eða berja í brestina fyrir
þeim ógæfusomu konum, sem í
trássi við þjÓðlegan metnað og
ættjarðarást létu freistast til fylgi
lags við hið erlenda setulið. En
frásögnin miðast samt öllu frem
ur við að skýra hinar innri stað
reyndir og leiða í ljós þau sál
fræðilegu rök, sem lágu að baki
hegðum þessara kvenna, og fyrir
þeim var hinn eini persónulegi
sannleikur. Hér er sáarlífi og sá-
arflækjum hinna kvenegu aðal-
persóriu lýst af þeirri nærfærni
og skilningsfullu samúð, sem naum
ast yrði vænzt af nokkrum skáld-
sagnahöfundi úr hópi karla. Eink
um stendur Irma, höfuðsögu
hetjan, lesendum fyrir sjónum í
KJOT OG NYTING ÞESS -
NÝ BÓK A MARKAÐINUM
Frumsmíð á íslenzku má telja
rit, sem er nýkomið út og fjallar
um kjöt og nýtingu þess. Að riti
þessu hafa ýmsir aðilar unnið, svo
sem kjötiðnaðarmenn og hús-
mæðrakennarar og ennfremur hafa
málfræðingar verið þar að verki,
þar eð leitazt hefur verið við að
skapa íslenzk heiti á ýmsum þeim
iðnaðarvörum úr kjöti, sem til
þessa hafa verið nefnd afbökuð-
um erlendum nöfnum.
Ef litið er á orðalistann, aftast
í ritinu, mæta auganu nýyjrði, svo
sem spikpylsa, sem til þessa hef-
ur verið nefnd spæipylsa, krydd-
spað sem nefnt hefur verið ragú,
vafsteik í stað rúllaði, kjötkurl í
stað hassí og hvítspað í stað frikka
sé, svo að nokkuð sé nefnt.
Þá hafa einnig verið grafin upp
gömul íslenzk heiti, sem almenn-
ingi hafa verið að mestu glöt-
uð, svo sem þæri, para og höm.
Rit þetta er 4örk að stærð
innan kápu, prentað á gljápappir
og prýtt fjölda- mynda, sem sýna
brytjun kjöts af nær öllum teg-
undum búfjárins og kápan er ’it-
prentuð.
Ritið fjallar um slátrun skepna,
meðferð kjötsins og sláturafurð-
anna, varðveizlu þeirra á ýmsa
vegu og svo matseld, sem dæmi eru
valin um með ýmsum forskrift-
um.
í inngangi er frá því greint, að
mest hafi unnið að ritinu: Adda
Geirsdóttir, húsmæðrakennari,
Stína Gísladóttir kennari, Guðjón
Guðjónsson og Vigfús Tómasson
kjötiðnaðarmenn og nýyrðanefnd
Háskóla íslands, með Halldór Haíl
dórsson, prófessor sem ritara, en
ritstjórn og útgáfu annaðist Gísli
Kristjánsson, ritstjóri.
Um það var samið í upphafi,
að með Búnaðarfélagi íslands
stæðu Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga og Sláturfélag Suður-
lands að útgáfu ritsins, og hefur
upplaginu verið skipt milli stofn-
ana þessara og Búnaðarfélagsins,
enda aðilar frá þeim öllum að því
unnið.
Rit þetta er skrifað og ætlað
til almennra nota og þá fyrst og
fremst handa hýsmæðrum í bæj-
um og sveitum. Það fæst aðeins
hjá ofangreindum stofnunum, er
standa að útgáfu þess.
skýru og oft hrollvekjandi ljósi,
og fleiri eru þær stallsystur henn
ar, á ástum og umkomuleysi, sem
bregður eftirminnilega í glær-
ingabirtu hins annarlega sögu-
sviðs.“
Sr. Sigurpáll Óskars
son prestur í Hofs
ósprestakalli
Prestskosning fór fram í Hofsós
prestakalli í Skagafjarðarpró-
fastsdæmi 4. sept. sl. Umsaekj
andi var einn, séra Sigurpáll Ósk
arsson, sem verið hefur settur
prestur á HofSósi um tveggja mán
aða skeið. Atkvæði Voru talin á
skrifstofu biskups í dag. Á kjör-
skrá í prestakallinu voru 311, þar
af kusu 164, umsækjandi hlaut 160
atkv. en auðir seðlar voru 4. Kosn
ingin var lögmæt, og séra Sigur-
páll Óskarsson löglega kosinn
sóknarprestur í Hofsóspresta
kalli.
ORÐSENDING
Orðsending frá Bernharð
Stefánssyni til Eggerts Davíðs-
sonar og Steins Snorrasonar.
Þar sem úrskurður sakadóm-
ara í Möðruvallamálinu liggur
nú fyrir og séra Ágústi hefur
verið veitt prestsembætti, hljóta
þeir Eggert og Steinn að sjá,
hver málstaður þirra er. Um
persónulegan skæting til mín
hirði ég ekki og tel málið því
útrætt.
Bernharð Stefánsson.
Athugasemd ritstj.
Blaðið mun ekki veita rúm
frekari umræðum um þetta mál.
Sýning á Keflavíkurflugvelli
Sunnudaginn 18. september
mun varnarlið Atlantshafsbanda-
lagsins á íslandi halda sýningu á
Keflavíkurflugvelli fyrir almenn-
ing. Sýningin hefst kl. 1 e.h. og
eru allir íslendingar velkomnir.
Þessi sýning var tilkynnt í blöð-
um og útvarpi 28. ágúst sl., en
henni varð að fresta vegna óhag-
stæðs veðurs.
Sýndar verða ýmsar gerðir flug-
véla og margs konar annar bún-
aður og tæki. Auk þess verður
sýningargestum heimilt að skoða
ný skólahús, íþrótta- og leiksvæði
og annan aðbúnað, svo og ýmsa
aðra staði stöðvarinnar, þar á með-
al slökkvistöð vallarins, en slökkvi
liðið er skipað bæði íslendingum
og Bandaríkjamönnum. Slökkvilið
ið mun sýna slökkvistarf og verð-
Eimreiðin, maí-ágúst
KT—Reykjavík, þriðjudag.
Blaðinu hefur borizt eintak af
Eimreiðinni, maí-ágústhefti, og
flytur það að venju ýmsan fróð
leik, smásögur og Ijóð.
í hinu nýja hefti eru ljóð eftir
Sigurð Einarsson í Holti, Helgu
Þ. Smára, Steinar J. Lúðvíksson,
Skugga og Þórarin frá Steintúni,
auk þýddra Ijóða eftir William
Wortsworth og Gustaf Fröding. Þá
eru í heftinu greinar og sögur eft
Framnaid á bls. 14
TVEIR 7 ÁRA VEIDDU MfNK
Fyrrihluta ágústmánaðar fóru
tveir sjö ára snáðar á silungsveið-
ar frá bænum Höfða í Presthóla-
hreppi, og var ferðinni heitið í
Hólsá sem er þar skammt frá
Hundur var með þem í frðinni
og allt í einu komst hann á
snoðir um minkagreni. Fældi hann
læðuna úr greninu en forðaði sér
síðan. Læðan stoppaði þó skammt
frá snáðunum, sem slógu til ne.nn
ar með veiðistönginni og festist
iþá spúnninn i iæðunni. Snaðarn-
ir gengu síðan frá læðunni með
grjóti, og héldu með hana heim
þar sem meðfylgjandi mynd var
tekin. Páll Helgason frá Húsavík
er vinstra megin á myndinni og
Magnús Þór Rósenbergsson er
hægra megin, en á miíli sín nalda
þeir á minknum. Magnús Þór
hafði farið með frænda sínum til
að athuga dýraboga nokkrum dög-
um áður og vissi því hvers kon-
ar kvikindi var hér á ferðinni.
ur notuð skemmd þota við það
atriði. Ennfremur geta gestir sýn
ingarinnar fengið að skoða veð-
urstofuna, en þar starfa íslending-
ar og Bandaríkjamenn saman.
Verði veðurskilyrði hagstæð er
ráðgerð mikil flugsýning klukkan
3 e.h. ásamt fallhlífarstökki. Einn
ig munu björgunarsveitir vallarins
sýna björgunarstörf með þyrlu.
Við vallarhliðið verður afhentur
leiðbeiningabæklingur og í honum
eru sýndir m.a. þeir staðir, sem
opnir eru sýningargeestum.
Verðlaunagarður í
Garðahreppi
Á þessu sumri hefur Rotary-
klúbburinn Görðum, en félags-
svæði hans nær yfir Garðahrepp
og Bessastaðahrepp, gengist fyrir
því að beitt væri viðurkenning fyr
ir fegursta garð á félagssvæði
klúbbsins. Viðurkenningu hlaut
garðurinn að Faxatúni 21, Garða
hreppi en eigendur hans eru hjón
in Erna Konráðsdóttir og Svein
björn Jónsson.
A fundi klúbbsins mánudaginn
12. sept. sl. var þeim hjónunum
afhent viðurkenningarskjal fyrir
bezt hirta og fegursta garðinn á
félagssvæði klúbbsins sumarið
1966.
Þetta er í fyrsta sinn, sem slík
viðurkenning er veitt á þessu
svæði, en ætlunin er að halda því
áfram og þá jafnframt ráðgert að'
veita viðurkenningu fyrir snyrti-
legasta bændabýlið á félagssvæð
inu.
Það er von forráðamanna,
klúbbsins, að viðurkenningar sem
þessar verði garðeigendum 0g
bændum hvatning til snyrtilegr
ar umgengni við heimili sín.
HUNDAHALD
BANNAÐ í
KÓPAVOGI
Undanfarin ár hefur hundaha’.d
verið bannað í Kópavogi. Heí'ur
lögreglan séð um að þessu banni
væri framfylgt, eftir því sem kost
ur hefur verið á.
Þrátt fyrir bann þetta og eftir
lit með framkvæmd þess, hafa fá
einir einstaklingar brotið þessi
ákvæði um lengri eða skemmvi
tíma. Hefur lögreglan stundum
sætt nokkru aðkasti vegna afskipta
af þessum málum og krafa um að
settum reglum sé hlýtt, talin of
sókn á hendur saklausu fólki.
Nú fyrir skömmu síðan gerðist
það, að einn af þessum óleyfilegu
hundum beit framan af fingri
barns úr nærliggjandi húsi. Var
sagt frá þessu atviki í dagblöðum
daginn eftir.
Lögreglan vill að gefnu tilefni
aðvara bæjarbúa stranglega um að
hlýða settum reglum um bann við
hundahaldi, sem gildir undantekn
ingarlaust fyrir alla, aðra en ábú
endur lögbýla. Mun lögreglar
framvegis láta aflífa alla þá hundí
sem ekki er leyfi fyrir, án frel
ari viðvörunar.