Tíminn - 14.09.1966, Qupperneq 3
3
MroVIKUDAGUR 14. september 1966
TÍMINN
Konungshjónin frá Thai-
landi hafa nú undanfarið verið
á heimsókn um Evrópu og er
þess skemmst að minnast, að
þau voru einkagestir dönsku
konungshjónanna, þegar þau
tóku á móti tilvonandi tengda
syni sínum. Annars hafa kon-
ungshjónin hugsað sér að dvelj
Franska leikkonan Jeanne
Moreau kom fyrir skemmstu á
nýopnaða snyrtistofu. Vildi
starfsfólkið þar auðvitað allt
fyrir hana gera meðal annars
setja kampavínsbakstra á and-
litið á henni og þvo hár hennar
úr bjór. Leikkonan forðaði sér
sem skjótast út og sagði á eftir:
— Þetta er alls engin snyrti-
stofa, þetta er bara knæpa.
Zsa Zsa Gabor hefur fyrir
skemmstu selt kvikmyndarétt-
inn á ævisögu sinni. Lét hún
það skilyrði fylgja sölunni, að
hún fengi sjálf að leika aðal-
hlutverkið, það er að segja sig
sjálfa og samþykkti kvikmynda
félagið, sem keypti réttinn það,
enda þótt þeim hafi nú ef til
vili ekki þótt Zsa Zsa nógu
ung í hlutverkið. En ekki nóg
með það, Zsa Zsa vildi líka
fá að ráða því, hver léki móður
ast nokkurn tíma í Lundúnum
og eru þau nú að efna loforð
sem þau gáfu yngstu dóttur
sinni, Ghulabhorn prinsessu,
en þau höfðu lofað henni að
sýna henni Evrópu .Hér sjáum
við Sirikit drottningu og Ghul
abhorn prinsessu.
hennar í hinni væntanlegu
kvikmynd, og tók hún sig til
og fór til Marlene Dietrich og
spurði hana í mesta sakleysi
hvort hún vildi ekki taka að
sér hlutverkið. Svar Marlene
við þessari málaleitan er hins
vegar ekki prenthæf.
Alfred Hitchcock var spurð-
ur að því eitt sinn, hvers vegna
hann sýndi aldrei hinn full
komna glæp á kvikmyndatjald
inu. — Ég hef ekki hugsað
mér að kenna óhemingjusöm
um giftum konum neitt slæmt,
var svarið.
Tony Curtis varð svo glaður,
þegar kona hans tilkynnti hon
um, að hún ætti von á barni
að hann rauk til og keypti
handa henni Rolls Royce bif-
reið. Þegar farið var að fetta
fingur út í það, að þetta væn
nú ekkert sérlega frumleg gjöí
sagði hann, að Elizabeth Eng-
landsdrottning hefði átt bif-
reiðina og aðeins væru' til 10
slíkar í heiminum. Auk þess
hefði hún kostað þrisvar á
við það, sem síðasta gerð af
Rolls Royce kostar.
Franski vísnasöngvarinn
Charles Aznavour, (ljótasti
maður heims), sem margir
kvikmyndahúsagestir kann-
ast við úr kvikmyndinni Skjót
ið píanóleikarinn borgaði hæst
an tekjuskatt allra franskra
iistamanna árið 1965. Á eftir
honum komá Maurice Cheval-
ier Fernandel og Jean Gabin.
Aðalútlfutningsvara þeirra
Frakkanna, Brigitte Bardot
kemur ekki fyrr en í fimmta
sæti.
Margaret prinsessa af Eng-
landi fór fyrir nokkru til Cann
es með viðkomu í París, en
þangað kom hún til þess að
sjá nýjustu tízkufötin hjá
Pierre Cardin. Ætlaði hún að
sjá 70 klæðnaði og setti það
sem skilyrði að sýningin tæki
ekki nema 1 klukkustund.
Flest láta Frakkar fara í
í taugarnar á sér. Fyrir
skemmstu kom De Gaulle fram
í sjónvarpinu og tóku sjón-
varpsáhorfendur eftir því, að
hann bar giftingarnring sinn
á hægri hendi, en ekki þeirri
vinstri. Varð mörgum Frakk-
anum ekki um sel og varð ein-
um þeirra að orði: — Ætli,
hann sé ekki lengur eins
vinstri sinnaður og hann var.
Ursula Andress og Brigitte
Bardot hafa nú í hyggju að
halda upp á það, að þær hafa
þekkzt í 15 ár og ætla þær að
borða saman í rómversku
knæpunni II Redigli Amici. Ár-
ið 19'51 voru þær vanar að
borða þar báðar á meðan þær
voru ekki orðnar þekktar í
kvikmyndaheiminum og enga
höfðu peningana. Einnig bjuggu
þær saman í einn mánuð i litlu
þakberbergi og þá gengu þær
í sömu fötunum og notuðu
sama varalit.
1
Greta Garbo hefur nú gert
erfðaskrá sína, og er sagt, að
bróðir hennar, Sven, muni ekki
erfa einn eyri af eigum hennar
sem nema 120 milljónum. Er
sagt að þssi auðæfi eigi að
ganga til sjúkra og vangefinna
barna í Svíþjóð.
Ringo, Paul og George á blaða
mannafundi.
— Af hverju ertu með svona
marga hringi á fingrunum,
Ringfo, var spurt. Og svarið
kom um hæl: — Af því að ég
hef ekki pláss fyrir þá í nef-
inu.
Á VÍÐAVANGI
Undir merki Framsókn
arflokksins.
Fyrir rúmri viku héldu
ungir Framsóknarmenn í Norð
urlandskjördæmi eystra kjor
dæmisþing sitt að Laugum. Var
það hið myndarlegasta þing, og
kom gerla í ljós, hve Fram-
sóknarflokkurinn á nu vaska,
og vaxandi sveit ungs fólks und
ir merki sínu. Þar komu fiam
margir snjallir ræðumenn,
glæsilegir fulltrúar uppvax
andi kynslóðar, er höfðu þeg-
ar aflað sér mikillar þekking
ar á þjóðmálum.
Formaður sambands unga
fólksins í kjördæminu var kjör
inn ungur Akureyringur, Ing-
ólfur Sverrisson, og hefur
hann nú tekið að sér þátt, sem
helgaður er ungu fólki í Degi
blaði Framsóknarmanna á Ak-
ureyri. í þætti, sem hann ritar
um kjördæmisþing unga fólks
ins á Laugum í Dag nýlega, læt
ur hann falla þessi athyglis-
verðu lokaorð: „Forystumenn
ungra Framsóknarmanna hafa,
orðið áþreifanlega varir við
þann vaxandi áhuga alls þorra
ungs fólks á málefnum og
stefnu Framsóknarflokksins.
Þeim vex við það ásmegin og
munu ekki láta sitt eftir liggja
til að gera kosningasigur flokks
ins sem glæsilegasta næsta vor.
Ungu fólki verður það æ ljós-
ara, að hið eina, sem getur
veikt íhaldið, er þróttmikil og
vaxandi áhrif Framsöknarfl.
Það gerir sér einnig grein fyrir
því, að aðrir svonefndir vinstri
flokkar hafa ekki til að bera
hina jákvæðu málefnabar-
áttu Framsóknarflokksins, sem
byggist á þjóðlegum grunni, en
ekki annarlegum erlendur hug
myndafræðum, sem oft eru
blóði litaðar. Þegar þetta er
haft í huga, þarf engan að
undra, þótt hin uppvaxandi
kynslóð skipi sér í æ ríkara
mæli undir merki Framsóknar
flokksins.“
Trygging í lagi
Morgunblaðið segir svo f
forystugrein í gær:
„En á hinn bófíinn er svo á
á það að Iíta, að launþegar
fengu fyrir tveimur árum trygg
ingu fyrir því, að verðlags
hækkanir gleyptu ekki þær
kjarabætur, sem þeir hafa
fengið. Með vfsitölubindingu,
kaupgjalds er launþegum bætt
ar upp fjórum sinnum á ári
þær verðlagshækkanir, sem
verða, og enginn hefur talað
um að fella þá vísitölubindingu
úr gildi nú.“
Hvað segja launþegar um
þennan „sannleika“? Ætli
þeim þyki þetta ekki „trygg-
ing“ í lagi? Morgunblaðið mun
eiga hér við „júnísamkomu-
lagið“ 1964, sem beinlínis var
byggt á loforðum ríkisstjórn
arinnar um að stöðva verðbólg
una, eins og samkomulagið um
vísitölu á húsbygglngalán sýndi
bezt. En ríkistjórnin brást svo
gersamlega öllum sínum þátt-
um í því samkomulagi, að jafn
vel Guðjón í Iðju og Óskar
Hallgrímsson, sjálfir höfuðleið
togar stjórnarflokkanna I
verkalýðsmálum, lýstu því hik
laust yfir 1. maí í vor, að öll
fyrirheit ríkisstjórnarinnar í
þessu júnísamkomulagi hefðu
reynzt „marklaus“.
Það er svo ekki við öðru að
búast af Mogga en því, að
hann skrökvi því, að launþeg
ar fái samkvæmt þessu sam-
Framhald á bls. 15