Tíminn - 14.09.1966, Qupperneq 13
I
Á sunnudaginn leikur íslenzka
landsliðið í knattspyrnu í fyrsta
skipti landsléik við áhugamanua
lið Frakklands og verður laikur
inn á Laugardalsvelli og hefst
kl. 4. Tveir nýliðar. þeir Siaurður
Dagsson, Val og Óskar Sigurðs
son, KR, munu þá leika sinn
fyrsta leik í íslenzka lands'iðinu
en alls eru gerðar fjórar breyt
ingar á landsliðinu, sem gerði jafn
tefli við Wales á dögunum
íslenzka landsliðið verður þaun-
ig skipað: Sigurður Dagsson( Val,
Árni Njálsson, Val, fyrirliði Ósk
ar Sigurðsson, KR Magnús Torfa
son. Keílavík, Anton Bjarnason.
Fram, Sigurður Albertsson, Kefla
vík, Reynir Jónsson, Val, Kári
Árnason, Akureyri, Hermann
Gunnarsson, Val, Ellert Schram,
KR, og Karl Hermannsson, Kefla
vík. — Varamenn eru Kjartan
Sigtryggsson, Keflavík Þorsteinn
Friðþjófsson, Val, Einar Magnús-
son, Keflavík, Gunnar Felixson K
R og Ingvar Elísson, Val.
Eins og áður segir eru fjórar
breytingar á liðinu. Sigurður Dags
son kemur í markið, Óskar Sig-
urðsson leikur í stað Ársæls Kjart
anssonar, sem er meiddur, og í
framlínuna koma Kári og Karl í
stað Gunnars Felixsonar og Jóns
Jóhannssonar, Keflavík. — Það,
sem mest kemur þó á óvart, er, að
Anton Bjarnason er valinn eftir
slaka leiki undanfarið, og virðist
hann í sérstakri náð hjá lands
liðsnefnd. Mun sterkara hefði
verið að hafa Sigurð Albertsson
á miðjunni og draga Ellert aftur
en síðan að velja annan hvorn
Gunnar Fel. eða Jón Jóhanns-
son í framlínuna. Einnig virðist
misráðið að velja Reyni, en hafna
Gunnari, sem hefur átt ágæta leiki
í framlínu KR, einkum þó gegn
Nantes á dögunum. Þeir Kári og
Karl hafa oft leikið í landsliðinu
áður. Báðir hafa sýnt góða leiki
með liðum sínum undanfarið, og
því eru þeir valdir. Val Óskars
kemur mjög á óvart, en erfitt er
að benda á betri mann í stöð-
una, eftir að-Ársæll gekk úr skaft-
inu.
Um franska liðið er lítið sem
ekkert vitað, en frönsku meistar
arnir frá Nantes telja það sterkt
lið og vel leikandi. Dómari í leikn
um verður frá írska frírikinu
0‘Neill að nafni, en hann hefur
dæmt landsleik hér; á landi áður.
Forsala á aðgöngumiðum hefst
á föstudag og verður sama verð á
miðum eða 150 kr. sæti, 100 Kr.
stæði og 25 kr. fyrir börn. — hsím.
Þríggja
lantiú
keppni
í tilefni af 20 ára afmæli
KSÍ í sumar, munu
Iandslið Noregs og Svíþjóð-
ar, leikmenn innan við 23
“ra aldur, koma hingað og
verður þriggja landa keppni
eins og var á 10 ára afmæli
sambandsins, en þá komu
dönsku og nórsku landslið-
in. Þá er ákveðið, að lands
leikur verði við Dani hinn
23. ágúst næsta sumar, og
Framhald á bls. 15.
MATSTBNNINN KOMINN AFTUR
IÐNISYNINGIN
<EQSV
MÁTSTEINNINN MÆLIR MEÐ SÉR SJÁLFUR! — Sterkur — traustur — öruggur. — Sparið timburkaup
tíma — fé og fyrirhöfn og hlaðið húsið strax úr MÁTSTEININUM úr Seyðishólarauðamölinni.
Þér fáið MÁTSTEINNN ásamt flestu öðru byggingarefni með hagkvæmum greiðsluskilmálum.
Skoðið sýningarbás 371 á Iðnsýningunni!
JÓN LOFTSSON HF.
HRINGBRAUT 121 — SÍMI 10600