Vísir - 05.11.1975, Qupperneq 6
6
Visir. Miðvikudagur 5. nóvember 1975
vísir
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guðmundsson,
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
•y Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
t lausasöl u 40 kr. eintakiö. Blaðaprent hf.
fnn um annað eyra
þingmanna og út um hitt
Lengi hefur það þótt ljóður á ráði stjórnmála-
flokka að þeir hafa haft tilhneigingu til að binda
þingmenn sina og ýmsa aðra trúnaðarmenn heldur
fast á flokksklafann. Þingmenn hafa þvi oft á tiðum
haft heldur litið svigrúm til þess að koma opinber-
lega fram með sjálfstæðar skoðanir á einstökum
málum. Þær koma helst fram bak við luktar dyr
þingf lokksherberg j anna.
Að visu er það oft á tiðum nauðsynlegt fyrir
tlokka að samræma afstöðu sina og koma fram sem
ein heild. Lýðræðiskerfið er i eðli sinu þjóðfélag
sátta. Eigi að siður sakna menn þess að þingmenn
skuli ekki oftar kveða upp úr um eigin afstöðu, ekki
sist, þegar flokkarnir hverfa frá yfirlýstum mark-
miðum og vinnubrögðum. Hér er ekki átt við
flokkakljúfa hinnar pólitisku auglýsingamennsku,
heldur þá sem kveða sér hljóðs af augljósum mál-
efnalegum ástæðum.
Það vekur jafnan athygli, þegar þingmenn rjúfa
flokksböndin með málefnalegum rökum. Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn t.a.m. skipaði af sinni hálfu
pólitiskan eftirlitsmann yfir Framkvæmdastofnun
rikisins reis einn þingmanna flokksins upp til þess
að mæla gegn þeirri ráðstöfun. Það var Ellert B.
Schram. Hann gat sýnt fram á að þessi skipan gengi
þvert á grundvallarhugmyndir sjálfstæðismanna
og yfirlýsingar forystumanna hans um þetta efni.
Nú hefur einn af þingmönnum Framsóknar-
flokksins, Jón Skaftason, andmælt þessum
stjórnarháttum á Alþingi. Jafnframt hefur hann
upplýst að á sinum tima hafi hann i þingflokki
framsóknarmanna gagnrýnt, að svonefnt fram-
kvæmdaráð yrði sett á fót. Hann segir að sér hafi
fundist það bera keim af þeirri áráttu islenskra
stjórnmálamanna um margra áratuga skeið að
hugsa i of miklum mæli um það hvernig þeir geti
tryggt sér fylgi við sig og sina flokka með ails konar
fyrirgreiðslupólitik sem hljóti að koma niður á al-
mennum hagsmunum landsmanna.
Það er sérstaklega athyglisvert að þessi rödd
skuli heyrast úr röðum framsóknarmanna, þvi að
sá flokkur hefur lengst af viljað halda i flokkspóli-
tiska stjórnarhætti af þessu tagi. Jón hefur nú kveð-
ið upp úr um afstöðu sina sem hann hélt áður fram
innan veggja þingflokksherbergisins.
Jón Skaftason hefur einnig vakið athygli Alþingis
á skýrslu Framkvæmdastofnunarinnar fyrir sið-
asta ár, en hún er samþykkt bæði af stjórn og hinum
pólitisku eftirlitsmönnum. I þeim þætti sem fjallar
um áætlanadeild stofnunarinnar segir m.a., að
kraftar stjórnkerfisins fari i langdregin fundahöld
til þess að vega og meta styrk þess atfylgis, sem
hvert mál nýtur.
í þessari skýrslu er ennfremur sagt að stórfelldar
framkvæmdir og tækjakaup einkaaðila komi til af-
greiðslu pólitiskra yfirvalda án skipulegs mats á
væntanlegum árangri fjárfestingar af hálfu stofn-
lánasjóða eða annarra faglegra aðila.
Þessi alvarlega og harða gagnrýni virðist hafa
farið framhjá flestum, og þegar hún er lesin upp á
Alþingi sýnist hún aðeins fara inn um annað eyra
þingmanna og út um hitt. í fljótu bragði hefðu menn
e.t.v. haldið, að þingmenn kipptust við i sætum sin-
um við slikan lestur. En það var varla við þvi að bú-
ast. Alltént hefur verið þægilegra að láta sér renna i
brjóst á ný.
Umsjón: GP
systur ungfrú Hearst i barátt-
unni,og að lokum úr samtali við
Patty sjálfa sem tekiðvar upp
á segulband,-án hennar vitund-
ar.
Viðtalið hefur nú verið tekið
inn i réttarskýrslur, en fram-
burður Yoshimura var lagður
fyrir réttinn nú i þessari viku.
Ungfrú Hearst hefur hótað þvi
að verði hún ekki látin laus gegn
tryggingu muni hún gefa út yfir-
lýsingu frá sjónarhorni
„byltingarsinnaðrar kven-
réttindakonu.”.
Grunnreif og glaöhiakkaleg Tania, skæruliðastúlkan (Patty) eftir
bandtöku við hlið baráttusystur sinnar, Emiliu Harris, á leið á lög-
reglustöðina. — Það er erfitt að gera sér grein fyrir að þessi stúlka
hafi aöeins látið leiðast tii samstarfs viö ræningjana vegna afar-
kosta þeirra og heilaþvottar, eins og verjandi hennar vill meina.
Þann tima er Patty Hearst
var fangi sýmbionesiska frelsis
hersins breyttist hún úr litilli
rikismannsdóttur I byltingar-
sinnaða kvenréttindakonu.
Þetta stangast mjög á viö
það, sem verjandi hennar hélt
fram fyrir hæstarétti. En hann
sagöi að hún hefði sætt svo illri
meðferð af hendi ræningja sinna
að hún gæti varla munað hvað
gerðist þessa 19 mánuði, þvi þá
hefði hún naumast verið meö
sjálfri sér.
Dómari sá sem er I forsæti
fyrir réttarhöldum þeim er nú
hefjast, Oliver Carter, telur
þann . framburð m jög vafasam-
an.
Réttarhöldin hefjast nk.
föstudag, þar eð sálfræðingar
álita ungfrú Hearst of óstöðuga
á geðsmunum til að geta mætt
fyrr.
Það litla sem vitað er um
betta skeið i ævi Patty Hearst
gefur til kynna að hún hafi
breyst úr skólanema af rikum
ættum i árásarhneigðan
borgarskæruliða, og kallaði hún
foreldra sina „svin” aftur
og aftur.
En loks áður en hún var hand-
tekin hafði hún fengið nóg af
„karlmannaveldinu” og gerðist
„róttæk kvenréttindakona”
vegna áhrifa kvenna þeirra er i
kringum hana voru.
Að sögn timaritsins Rolling
Stone urðu tvennskonar
breytingar á Patty eftir að
henni var rænt þann 4. febrúar
árið 1974, og fram til þess er hún
var handtekin 18. september sl.
Þessar upplýsingar bárust i
fyrsta lagi frá Wendi Yoshi-
mura sem var handtekin um
leið og Hearst, og frá
Soliah-systrum sem nú eru tald-
ar fara huldu höfði, en voru
Ungfrú Yoshimura sem er
áköf kvenréttindakona hafði
mikil áhrif á ungfrú Hearst. 1
lok sumarsins hafði Patty tapað
miklu af hrifningu sinni fyrir
neðanjarðarstarfsemi og fór að
lita á SLA sem karlmannaveldi.
Patty hugsaði oft um að snúa
aftur til fjölskyldu sinnar á
meðan „Teko hershöfðingi”
eins og Harris nefndi sig, gaf
henni og Emily fyrirskipanir.
Nokkrum dögum áður en
Patty og Yoshimura voru hand-
teknar var önnur Soliah-systir-
in, Kathy, fengin til að miðla
málum, og lögreglunni til
mikillar undrunar voru þeir
sem eftir voru af SLA handtekn-
ir.
Það er almennt álit manna að
Kathy og systir hennar
Josephine séu höfundar
bæklings nokkurs er komút fyrir
skömmu.
„Byltingin og mannréttinda-
barátta kvenna eru alveg sam-
ofin” stendur þar, „vopnuð
bylting er aðeins fyrir karl-
mennina.”
En þessi stúlka aftur á móti, Patricia Hearst, ieiksoppur örlaganna
á lciö til dómarans aö svara til saka sem henni voru aldrei sjálf-
ráðar, smellur bctur inn í þá mynd sem verjandinn hcfur dregið
upp.
Námsmærin og auðmannsdóttirin, Patricia Ilearst eins og hún leit
út áður en henni var rænt.
Pabbastelpan
breyttist
í byltingar-
stólku
Að sögn blaðsins „Rolling
Stone” var ungfrú Hearst
greymd i litlu herbergi með
bundið fyrir augun og mann-
ræningjarnir skiptu sér ekkert
af henni.
Að sjö vikum liðnum um-
breyttist hún svo skyndilega,
jafnt tilfinningalega sem"
stjórnmálalega, og fór þess á
leit við ræningja sina að hún
fengi að ganga i lið með þeim.
Eftir að sex af átta upphaf-
legum meðlimum SLA vofu
skotnir af lögreglunni i Los
Angeles i mai 1974 ók félagi
ungrú Hearst henni til felustað-
ar á bóndabæ i Pennsylvanfu.
„Þú þarft ekki endilega að
fara til Pennsylvaniu. Ég skal
far með þig hvert sem þú vilt”,
sagði hann.
„Ég vil vera hjá vinum min-
um” svaraði Patty önuglega.
Þá um sumarið fór Patty að
kalla yfirvöldin „svin” og birti i
blaðinu New York Times lista
yfir þá sem SLA hygðist reyna
að drepa næst.
En skap hennar virtist batna
þegar á sumarið leið og hún
hætti að kalla yfirvöldin svin,
kvartaði sjaldan undan slæmum
aðbúnaði, og birti ekki fleiri
lista i New York Times. Þegar
hún sneri aftur til Kaliforniu var
hún óviss hvort hún ætti að
helga sig byltingunni áfram, en
ákvað að fela sig þar ásamt
ungfrú Yoshimura og Bill og
Emily Harris.