Vísir - 05.11.1975, Side 14
14.
Visir. Miðvikudagur 5. nóvember 1975
Fjallgöngur ekki síður
erfiðar en maraþonhlaup
Areynsla sú er fjallgöngu-
menn leggja á sig, svarar fylli-
lega til áreynslu maraþon-
hlaupara. Þetta kemur fram i
rannsóknum sem gerðar voru
við læknisfræðideild háskólans i
Munchen. Þótt einkennilegt
kunni að hljóma var hægt að
gera mælingar á fjallgöngu-
mönnum meðan þeir
klöngruðust upp austurhlið
tindsins Watzmann sem er 2,713
m hár. A meðan á uppgöngunni
stóð, misstu báðir mennirnir tvö
kiló af þyngd sinni — og voru
þeir þó báðir reyndir fjall-
göngumenn, miðlungs fjall-
göngumaður hefði verið
helmingi lengur. Það er von
visindamannanna aö árangur-
inn af þessari rannsókn auki
þekkingu manna á starfsemi
hjartans við mikla likamsá-
reynslu. Og það sem þá kemur i
ljós, kemur að miklu gagni við
þjálfun iþróttamanna i ýmsum
greinum.
„Þetta er ekki bara
líkamlegs eðlis"
Leikarinn William Holden,
sem löngum hefur verið talinn
einfari i Hollywood er ekki einn
sins liðs lengur — hann hefur
unnið hug og hjarta leik-
konunnar Stephanie Powers.
„Ég elska Bill, segir hin 32
ára gamla Stephanie Powers.
„Mér finnst ég vera hamingju-
samasta stUlkan i öllum heimin-
um.”
Holden,semer 57 ára gamall
sagði að hann vonaði að fólk
teldi ekki samband þeirra litil-
fjörlegt. „Þetta er ekki bara
likamlegs eðlis. Okkur þykir
lika innilega vænt hvoru um
annað. Og það er nU það sér-
stæða við það.”
Stephanie Powers er þekkt
sjónvarpsmyndaleikkona. HUn
segir að hér sé ekki um að ræða
venjulegt Hollywood-ástar-
ævintýri. Ég hef ekki gert
neinar sérstakar áætlanir fyrir
framtiðina. Þetta samband
okkar er það mikilvægasta i lifi
minu? „Þá er bara að spá
hjónaleysunum gæfu og gengis.
Guð hjálpi mér
kíló til viðbótar
Sæljónið Adolf horfir áhyggjufullt á vigtina sædýrasafninu i
Essex i Englandi.
Offituvandamál Adolfs stafar af þvi að i hvert sinn sem hann hefur
lokið sýningaratriði sinu, fær liann sild að launum. Adolf hefur
sannarlega ástæðu til að vera áhyggjufullur út af þyngdinni — þvi
sæljón geta orðið 550 kg. að þyngd.
Svifdrekaflug
Nýlega var haldin keppni i svifdrekaflugi á vegum lýðháskólans
i Glénhausen i Þýskalandi. Keppnin var haldin i Rhön-hásléttunni
i Bæheimi sem ér mjög vinsæl meðal þeirra er stunda drekaflug.
Hér er um að ræða námskeið fyrir fullorðið fólk og þar eru þvi
m.a. kenndar ýmsar tómstundaiþróttir þar á meðal drekaflug, og
kostar námskeiðiö 210 mörk.
Fræðsla fyrir fullorðna er rikisstyrkt og talin mikill þáttur hins
almenna menntakerfis . Þarna eru kennd tungumál, sjUkraþjálf-
un og alls kyns skapandi störf, og Utskrifaður fjöldi manns á ári. 1
mörgum tilfellum er svo framboð á fólki mun meira en eftirspurn
Aldinn hnefaleikari
Þann 28. september varð
hnefaleikakappinn fyrrverandi
Max Schmeling sjötugur. Liðin
eru 45 ár siðan Schmeling vann
sigur á Bandarikjamanninum
Jack Sharkey þ. 12. jUni 1930 og
varð þar með heimsmeistari.
Myndin t.v. sýnir hinsvegar at-
riði Ur leik hans við blökku-
manninn Joe Louis þ. 19. júni
árið 1936, sem vann hann á
knock-out. Schmeling er giftur
kvikmyndaleikkonunni frv.
Anny Ondra. Hann er nU orðinn
vel efnaður maður af bjórkollu-
verksmiðjum er hann á. Hann
hefur m.a. keypt sér 10.0000
fermetra sveitasetur i
Hollenstedt i N.-Þýzkalandi. 1
afmælisveislunni voru honum
færðar margar gjafir i
þakklætisskyni, fyrir þá miklu
hjálp sem hann hefur veitt við
þjálfun iþróttamanna Þýska-
lands.