Vísir - 05.11.1975, Síða 17
Visir. Miðvikudagur 5. nóvembcr 1975
17
f>AB í DAG | í KVÖLD [ í DAG
Sjónvarp, kl. 18.40:
Hvað
er list-
dans?
Nýr myndaflokkur
hefur göngu sína
Það má búast við því
að fleiri en börn og
unglingar hafi áhuga á
myndaflokknum sem
hefur göngu sina í sjón-
varpinu i dag. Listdans
heitir sá.
Hér er um að ræða breskan
fræðslumyndaflokk um list-
dansinn, sögu hans og þróun. I
dagskrárkynningu er þess getið
að myndaflokkurinn sé fyrir
börn og unglinga.
Fyrsti þátturinn sem sýndur
verður í dag, heitir Hvað er list-
dans? Hann hefstklukkan 18.40.
— EA
Hessi niynd er úr fræðsluinyndaflokknum sem hefur göngu sina i
sjónvarpinu i dag. Sjálfsagt hafa margir áliuga á þvi að fræðast um
listdans.
Barnatíminn í útvarpi fimmtudag kl. 16.40:
Dagskrá úr verkum
Jóhannesar úr Kötlum
í barnatimanum á morgun
verður flutt samfelld dagskrá úr
verkum Jóhannesar úr Kötlum.
Jóhannes úr Kötlum hét fullu
nafni Jóhannes Bjarni Jónas-
son. Hann fæddist 4. nóvember
1899 að Goddastöðum i Dölum.
Hann tók kennarapróf árið
1921 og var siðan kennari á ýms-
um stöðum, meðal annars i
Austurbæjarskólanum i
Reykjavik.
Ýmis önnur störf stundaði
hann einnig. Jóhannes var um
tima formaður félags byltingar-
sinnaðra rithöfunda.
Hann átti sæti i stjórnum Rit-
höfundafélags íslands, Rit-
höfundasambands Islands og
Bandalags islenskra lista-
manna.
Hann hlaut önnur verðlaun
fyrir Alþingishátiðarljóð 1930 og
fyrstu verðlaun fyrir lýðveldis-
hátfðarljóð 1944.
Meðai rita hans eru ljóðabæk-
urnar Bi bi og blaka, Alftirnar
kvaka, Ég læt sem ég sofi, Samt
mun ég vaka, Hrimhvita móðir,
Hart er i heimi, Eilifðar
smáblóm og fleiri.
Meðal skáldsagna hans eru:
Og björgin klofnuðu, Verndar-
englarnir, Dauðsmannsey,
Siglingin mikla og Frelsisálfan.
Hann skrifaði einnig mikið af
ljóðum og sögum handa börn-
um, meðal annars: Jólin koma,
ömmusögur, Fuglinn segir,
Bakkabræður, Ljóðið um
Labbakút, Visur Ingu Dóru og
margt fleira.
Bacnatimanum á morgun
stjórnar Gunnar Valdimarsson,
en flytjendur auk hans eru:
Guðrún Birna Hannesdóttir,
Þorsteinn V. Gunnarsson og
Barnakór Akureyrar. ___eA
Útvarp, fimmtudag kl. 14.30:
Fjallað um
olnbogabörn
nútímaþjóðfélagsins
„Vettvangur” er á dagskrá
útvarpsins á morgun. Það er
Sigmar B. Hauksson sem er
umsjónarmaður þáttarins, en
þátturinn er fastur liður á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Sigmar hefur þegar séð um
tvo slfka þætti, en alls eru
þættirnir 10, og eru ýmis mál-
efni tekin fyrir.
■<— --------------------«K
Þáttur Sigmars B. Haukssonar
„Vettvangur” er á dagskránni á
morgun. Alls verða fluttir 10
þættir.
A morgun verður fjallað um
olnbogabörn nútimaþjóðfélags-
ins. Það eru heyrnarlausir og
málefni þeirra sem Sigmar tek-
ur fyrir.
Hann ræðir meðai annars við
Vilhjálm Vilhjálmsson varafor-
mann félags heyrnarlausra og
formann þess sama félags, Her-
vöru Guðjónsdóttur. Þá ræðir
hanneinnig við Jón Erling Jóns-
son, formann foreldra og
styrktarfélags heyrnardaufra.
Þátturinn hefst klukkan 14.30
á morgun og stendur til klukkan
15.00.
— EA
iÍTVARP •
IVIiðvikudagur
5. nóvember
13.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Árna Gunnarssonar og
Sveins H. Skúlasonar.
14.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 M iðdegissagan : „A
fullri ferð” eftir Oscar Clau-
sen. Þorsteinn Matthiasson
les (15).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
15.25 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri”
eftir Gunnar M. Magnúss.
Höfundur les (5).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tiikynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Úr atvinnulifinu.
20.00 Kvöldvaka.
21.30 Útvarpssagan: „Fóst-
bræður" eftir Guiinar
G u n n a r s s o n . J a k o b
Jóhannesson Smári þýddi.
Þorsteinn 0. Stephensen
leikari les (11).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(10).
22.40 Nútimatónlist.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÚNVARP m
Miðvikudagur
5. nóvember 1975.
18.00 Glatt á lijalla. Þrjár
stuttar, sovéskar teikni-
myndir. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
18.15 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Einhvers staðar er hún.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Listdans. Breskur
fræðslumyndaflokkur fyrir
börn og unglinga um þessa
listgrein, sögu hennar og
þróun. 1. þáttur. Hvað er
listdans?
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Nýjasta tækni og visindi.
Vistfræði plantna. — Ósýni-
legir geislar ljósmyndaðir.
— Jarðhiti i Frakklandi. —
Skurðaðgerðir á höndum. —
Rafmagnaðir fiskar.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.20 „Koke No Niva”. Tón-
verk i japönskum stil eftir
Alan Hovhaness. Flytjend-
ur: Kristján Þ. Stephensen,
enskt horn, Árni Scheving,
pákur. gong, Reynir
Sigurðsson, marimba,
klukkuspil, Janet Pechal,
harpa.
21.20 McCloud. Nýr banda-
riskur sakamálamynda-
flokkur um leynilögreglu-
manninn Sam McCloud.
Aðalhlutverk Dennis
' Weaver. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.35 Dagskrárlok.
-y*