Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1941, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1941, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 319 skaparfræði, kenslubók handa ungum skáldum. 1 fornum skáld- skap var stundum ort undir Ijettum háttum og einföldum. En þeir hættir, sem nálega þóttu einir hæfa lofkvæðum um kon- unga og aðra höfðingja, voru mjög erfiðir viðfangs. Til forms- :ns voru gerðar afarstrangar kröfur, sem hveri mátti slaka á; þar mátti hvorki vera á blettur nje hrukka. Skáldskapurinn var rnetinn eftir búningnum miklu fiemur en andanum. Frá því sjónarmiði er Háttatal stórkost- legt kvæði. En til þess að fullnægja hin- um ströngu bragreglum reyndist mælt mál ónógt. Skáldin sköp- uðu því sjerstakt hjálparmál, sráldskaparmálið. Án þess gátu þau ekki ort. Menn litu ekki 4 það sem illa nauðsyn, að þurfa að grípa til kenninga og Íík- ingamáls, því fór fjarri; í því var einmitt íþrótt skáldanna fólgin, að kunna skil á skáld- skaparmálinu, geta beitt þvi með hagleik og hugkvæmni. Það berk út ór orðhofi majrðar timbr máli laufgat, segir Egill. Skáldskaparmálið, það er laufskrúðið. Kenningar voru uppistaða skáldskaparmálsins. Til þess að geta haft þær á takteinum, kunna að búa þær til og beita þeim, þurfti kunnáttu, lærdóm. Skáldin þurftu að ganga í skóla; skóli þeirra var skáldskapur fyrri skálda, höfuðskálda, svo langt sem menn mundu, alt frá Braga hinum gamla. Það var nauðsynlegt að vera margfróð- ur í þessum vísindum, bæði skáldunum, sem ortu og hinum, sem áttu að hlýða á kvæðin, nema þau og njóta þeirra. Það er ljóst af fornum kveð- skap, að skáldin hefir ekki skort þekkingu í fræðum sínum. En erfitt hefir það oft og tíðum verið ungum mönnum, er vildu „gerast skáld“, að viða að sjer af vörum annara þeirri geysi- legu kunnáttu, sem til þurfti. Snorri, er var alinn upp í hinu mikla mentasetri Odda og var umfram aðra „námgjarn og minnugur“, hefir þekt þessa erf- iðleika af eigin raun. Hann tókst á hendur að bæta úr þess- um vandræðum ungra skálda, og var enginn betur til þess fallinn. Snorra-Edda er í 3 hlutum: Gylfaginning, Skálpskaparmál og Háttatal. Gylfaginning er safn fornra goðsagna. Margar kenningar voru dregnar af sögnum um goðin, og var ekki unt að beita þeim nje skilja þær, ef menn vissu ekki grein á sögnunum. Þegar hjer var komið, hafði þjóðin verið alkristin í tvæx aldir, en goðsagnirnar gleymd- ust ekki, gátu ekki gleymst, af því að skáldskapurinn hjelt þeim við, skáldin máttu ekki við því, að láta þær týnast. Skáldin hafa varðveitt oss til handa þenna dýrmæta fjársjóð. Annar þátturinn, Skáldskap- armál, er meginhluti Eddu. — Rekur Snorri þar „hvernig höf- uðskáldin hafa látið sjer sóma að yrkja eftir þessum heitum og kenningum“. Nefnir hann fyrst dæmi um Óðinskenningar, þá skáldskaparkenningar, Þórs- kenningar og annara goða, kenningar himins, jarðar, sjáv- ar, sólar, vinds, elds, árstíða, manns, gulls o. s. frv. Styður hann mál sitt með goðsögnum, sem ekki voru áður ritnar í Gylfaginningu, sögnum um forn- aldarmenn, en mest með dæm- um úr kvæðum höfuðskálda. Af þeim hefir hann kunnað feiknin öll, og auðvitað miklu meira en hann notar hjer; sjest það berlega af Heimskringlu. Alls vitnar Snorri í um 60 skáld, og væri ófult skarð í þekkingu vora um fornan skáldskap, ef Snorri hefði ekki miðlað oss lít- ilsháttar af gnótt þekkingar sinnar. Hvílíkur sjór Snorri hef- ir verið um kvæðakunnáttu geta menn gert sjer í hugarlund, þegar þess er gætt, að nú þekkj- um vjer af Snorra-Eddu eða Heimskringlu aðeins einn eða tvo vísuhelminga af fjölda kvæða, en þau voru flest mjög löng, en Snorri hefir vitanlega kunnað kvæði þau, er hann vitnar til, frá upphafi til enda. III. 1 frásögn sinni um viðskifti Snorra og Sturlu Sighvatssonar kemst Sturla Þórðarson svo að crði: „Nú (1230—31) tók að batna með þeim Snorra og Sturlu, og var Sturla þá löngum í Reykjaholti og lagði mikinn hug á að láta rita sögubækur eftir bókum þeim, er Snorri setti saman“. Á því er nú ekki talinn leika vafi, að hjer sje átt við Norges- konunga sögur þær, sem nefnd- ar hafa verið Heimskríngla eft- ir upphafsorðum Ynglinga sögu í handritinu Kringlu: „Kringla heimsins, sú er mannfólkið byggir------“. En ekki var það fyr en á 16. öld, að Snorra var eignað rit þetta í tveim norskum þýðingum af Heimskringlu. — Önnur þýðingin var prentuð 1633, og stendur nafn Snorra þar á titilblaði. Hafa menn síð- an haft fyrir satt, að Heims- kringla sje rit þáð um Noregs- konunga eftir Snorra, sem oft- sinnis er vitnað til í yngri gerð- um af sögum Noregskonunga. Hvergi er nafn Snorra nefnt í handritum þeim, sem nú eru til af Heimskringlu. Nú hallast menn helst að því, að Snorri hafi verið tilnefndur höfundur bók- arinnar í upphafi handritsins Kringlu, en það handrit var í Noregi og notað við aðra norsku þýðinguna. En þegar handritið barst til Kaupmannahafnar á 17. öld, vantaði framan af því. Heimskringla hefst á for- mála. Þá kemur Ynglinga saga, það er saga forfeðra Haralds hárfagra. Var ætt hans rakin til Óðins að langfeðgatali, og er sagan sett saman eftir kvæði Þjóðólfs úr Hvini um Ynglinga (Ynglingatal) og jafnan til þess vitnað. Þá taka við sögur Hálf- danar svarta og Haralds hár- fagra og síðan sögur annara konunga, hvers af öðrum, til ársins 1177. Þar tekur við saga Sverris konungs eftir Karl ábóta Jónsson, og þurfti Snorri ekki að rita lengra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.