Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1942, Side 16
112
LESBÖK M0RGUNBLAÐSIN9
Fjaðrafok
BRIDGE M
Bæjarstjórnin í Canterbury,
Conn. ákvað á fundi sínum ný-
lega, að ekki skyldi leggja nein
útsvör á bæjarbúa næsta fjárhags-
ár^ þar sem bæjarsjóður hefði
meira en nóg af fje í sjóði.
★
Ræningi einn í Kaliforníu kom
inn í verslun til að ræna. Áður en
hann fór helti hann úr fullri blek-
byttu yfir forstöðukonuna.
★
Nýlega komst það upp um ó-
breyttan hermann í ameríska
hernum, að hann hafði gengið í
skátafjelag. Þar gekk honum svo
vel, að á skömmum tíma vann
hann tíu viðurkenningarmerki og
var gerður að „arnarskáta“ en það
þykir hinn mesti heiður í Ame-
ríku. En nú komu hernaðaryfir-
völdin til skjalanna og ráku pilt-
inn úr hernum. Ástæðan: Hann
var of ungur.
Framh. af bls. 103.
TJÖRNIN.
að altaf sje nægilega hátt í
Tjörninni svo að engar leirur
nyndist út frá landi, eins og nú
má sjá öðru hvoru.
Þar sem ekki er þjettbýlla en
svo, að einn maður er á hverjum
ferkílómetra, ætti ekki að verða
nein vandræði með land undir
eina og eina höll, þó að ekki væri
gengið á náttúrufegurð Reykja-
víkur og henni spillt.
En teljist það af einhverjum
mjer óskiljanlegum ástæðum
nauðsynlegt að byggja Rauða-
kross höll eða hverja aðra höll í
borginni, sem nefnd er miðbær,
þá held jeg væri heillaráð að rífa
einhverja hálffúna timburhjalla,
heldur en að ráðast á fegursta
blettinn í bænum og eyðileggja
hann.
Reykvíkingar þurfa að standa
vörð um Tjörnina engu síður en
Austurvöll og kveða niður í eitt
skifti fyrir oll þá firru að hjer
sje orðið svo lítið um land til
bygginga að nú verði Tjörnin að
hverfa.
Þorl. ófeigsson.
Þegar spilað er í lit, borgar sig
ekki altaf best að svara meðspil-
ara sínum í sama lit; það verður
að fara eftir atvikum. Hjer eru
tvö dæmi, sem sýna þetta ljós-
lega.
Suður spilar 4 spaða og Vestur
spilar út hjartakóngi. Norður
leggur upp.
S. D, G, 6, 2.
H. 6, 5.
T. K, D, G, 8, 6.
L. K, 9.
Þjer eruð í austri og hafið á
hendinni:
S. 8, 7, 4.
H. Á, 8, 4, 2.
T. 4. v
L. 10, 8, 6, 5, 3.
Það er sennilegt, að þjer fáið
2 slagi á hjarta, en vafasamt um
fleiri slagi, nema Vestur eigi tíg-
ulás. Eina vinningsleiðin virðist
því vera sú, að drepa hjartakóng
og spila tígli. Vestur sjer strax,
að tígulfjarkinn hlýtur að vera
einspil, annars hefðuð þjer aldrei
farið að fría tígulinn hjá blind-
um. Vestur spilar því öðrum tígli,
sem þjer tromfið og spilið Vestri
inn á hjartadrotningu, sem hann
hlýtur að eiga. Vestur spilar aft-
ur tígli, sem þjer tromfið, og ef
Suður á þá enn tígul, eru þarna
komnir 5 slagir. Ef þetta mis-
hepnast, þá er nærri því fullvíst,
að ekki er hægt að láta Suður
tapa spilinu.
Svarið meðspilara ekki í sama
lit, ef þjer gefið blindum fríspil
með því: Suður spilar 4 spaða,
Vestur spilar út hjartafimmi.
Blindur leggur upp:
S. G, 9, 6, 4.
H. D, 8, 7.
T. K, D, 6.
L. 8, 4, 2.
Þjer sitjið í Austur og hafið
á hendinni:
S. 10, 8, 3.
H. Á, 4, 2.
T. G, 9, 7.
L. D, 10,. 9, 6.
Þjer takið með ásnum og sjá-
ið strax, að ef þjer spilið aftur
hjarta og Vestur tekur á kóng
(ef hann á hann), þá er drotn-
ingin frí í blindum og Suður get-
ur kastað af sjer. Það er ljóst, að
gagnslaust er að spila tromfi eða
tígli. Því mun best að spila*lauf-
tíu. Ef Vestur á þar kóng, en
Suður Á, G, x, hlýtur hann að
gefa 2 slagi í laufi, og 4. slaginn
fáið þjer, ef Vestur á hjartakóng
(eða tígulás). Annars hlýtur
Suður að vinna spilið, hvernig
sem spilað er.
Hjer er loks dæmi, hvernig
Suður fær óverðskuldaðan vinn-
ing við það, að blindi er gefið frí-
spil. Suður spilar 4 spaða, en
Vestur hafði áður sagt 2 hjörtu.
Vestur spilar út hjartakóngi og
hafði á hendinni:
S. 3.
H. Á, K, G, 9, 7, 4.
T. 10, 9, 5.
L. K, 9, 8.
Blindur leggur upp þessi spil:
S. D, 10, 9, 7.
H. D, 8, 2.
T. D, G, 6, 3.
L. 7, 2.
Austur gefur í hjartatíu, Suð-
ur hjartasex. Vestur sjer nú helst
til bjargar, að tían sje einspil og
spilar ásnum, Austur lætur þrist
og Suður fimmið. Nú eru Austur
og Suður báðir hjartalausir, og
Vestur hugsaf sem svo, að gagns-
laust sje að spila enn hjarta.
Hann spilar nú laufáttu. Suður
hafði upphaflega:
S. Á, K, G, 8, 6.
H. 6, 5.
T. Á, 7, 2.
L. Á, G, 6.
Suður tekur á laufás, tekur 3
slagi á tromf, spilar hjartadrotn-
ingu og kastar tígultvisti. Spilar
laufi, og Vestur tekur á kóng.
Það er sama, hverju Vestur spil-
ar, því að Suður svínar gegnum
tígulkóng.
Austur var ekki ánægður með
þessa frammistöðu og benti hóg-
værlega á, að ef Vestur hefði spil-
að hjarta í þriðja sinni, hefði
hann látið gagnslaust tromf í
það. Suður hefði þá ekki getað
losnað við tígultvist og hlotið að
gefa slag á tígul.