Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1946, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1946, Blaðsíða 1
11. tölublað. Jttrogtmfrlfitom* Sunnudagur 7. apríl 1946 XXI. árg. l<«ura<nil|kM — HIN mikla styrjöld er um garð gengin. Menn hafa nú fastari jörð undir fótum. Öll gæði náttúrunnar streyma nú mönnum í skaut, og þeir taka á móti opnum örmum. Þeir rjetta sig við, líkt og liljur vallarins, er fá vökvun, eftir brennandi þurk. Það er morgun- roði yfir jörð vorri. En lágsól, hvort heldur er á morgni eða kvöldi, varpar löngum skuggum. Við, sem lifum í ljósinu, sjáum skuggadrög heimsins og skelfumst. En okkar eigin skugga sjáum við ekki, því að við snúum okkur í áttina til hinnar upprennandi sólar. Nú er dögun yfir alla jörð, eftir hið hræði lega syndaflóð. Fólkið gengur út úr örkinni, og þjóðirnar hverfa heim til bústaða sinna, til þess að endurreisa í friði fallin heimili sín. Norðmenn eru meðal þeirra þjóða, er byrjað hafa endurreisnar ASTAND OG HORFUR I NOREGI í DAG £ftir d-due J3nm, ótud. philot\ óencliiueitam tam Morgunblaðið hefir snúið sjer til hr. Bue Brun, sendisveit- Ý arritara við norsku sendisveitina hjer og beðið hann um grein í J! Lesbók, þar sem lýst er í stuttu máli ástandi og horfum í Noregi í dag á hinu andlega sem hinu efnalega sviði. Hefir hann fyrir tilmæli blaðsins ritað meðfylgjandi grein. — Hr. B. Brun hefir dvalist hjer síðan í stimar. Hann hefir í frítímum sínum frá rit- arastarfinu lagt stund á að kynna sjer íslenskar bókmentir, sjer- staklega Ijóðagerð. < > starfið. Þeir þurfa ekki að vinna það verk með þeim vopnum í hönd um, er þeir notuðu við frelsun landsins. Vopnin fá að hvíla sig með fram landamærunum. í dag er dagur vinnunnar. Þær dáðir sem voru drýgðar eru ekki gleymd ar, þótt eigi sjeu þær gerðar að umtalsefni. Aldrei skyldu menn miklast af eigin verkum. Þau geym ast í huga þjóðarinnar, og bera þar ávexti, á nýju sumri í sögu Noregs. Hvernig er hinn innri þróttur norsku þjóðarinnar eftir marg- þætta baráttu styrjaldaráranna? Hefir kjarkurinn bilað við áreynsl una? Er þjóðin veikari fyrir nú, en hún var, eða er hún sterkari eftir en áður? Hefir taugaáreynslan bor- ið hana ofurliði? Svörin við þessum spurningum verða því aðeins fundin, að athuga með gaumgæfni þau áhrif, sem einstakir menn hafa orðið fyrir og þjóðin í heild. Þjóðin þoldi þrengingarnar. Áreynslan var mest fyrir þá, sem voru heima í Noregi meðan á styrj öldinni stóð. Jeg hef setið á nálum svo nálgast hefir örvinglan og beð- ið, beðið og hlustað, hvort heyrð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.