Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1946, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1946, Page 3
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 159 lífsylinn í huga sjer. Þessi eining þjóðarinnar hefir komið fram í innanlandsmálunum. Stjórnmál landsins eru í fastari rás en þau voru fyrir styrjöldina. Flokkarnir háðu sína kosningabar- áttu. En hún varð aldrei eins hvat- skeytleg eins og hún hafði áður verið, því að takmörkin, sem þeir höfðu sett sjer voru mjög svipuð og aðferðirnar, sem þeir ætluðu að viðhafa til þess að ná þeim, voru áþekkar hjá stærstu stjórnmála- flokkunum. Verkamannaflokkurinn fekk meirihlutann í Stói;þingskosning- unum. Er hjer komið að aðalatrið- inu í starfi þjóðarinnar eftir styrj- jöldina. í þessu liggur aðalmismun urinn á aðstöðu Norðmanna og flestra annarra sameinuðu þjóð- anna. Ósamlyndið innbyrðis tefur fyrir og gerir erfiðara hið geysi- mikla starf, sem leggja þarf fram, til þess að koma þjóðunum aftur á rjettan kjöl. Það sem frjettist frá mörgum þjóðum í dag ber vott.um ískyggilegt ástand. Útlimirnir gera verkfall allir í einu, og vilja rífa sig lausa frá líkamanum, rjett eins og þeir ætli að fara sína leið upp á eigin spýtur. Stundum er höfuðið ósanngjarnt, enda þótt það skilji oftast nær, að það komist aldrei langt áleiðis út af fyrir sig. Þetta er hin dapurlega mynd af heims- þjóðum: höfuðlausir kroppar og kropplaus höfuð. Hin lýðræðislega meirihlutastjórn í Noregi hefir hingað til komið í veg fyrir slíka andstyggilega limlesting. Útlit er fyrir, að núverandi stjórn fari stjórn landsins vel úr hendi. Hún hefir almenning sjer hliðhollan og stjórnin treystir þjóðinni til styrkr ar framgöngu í endurreisnarstarf- inu, er virðist miða vel áfram. Fjárhagsgrundvöllurinn. Hin fjárhagslega endurreisn verður erfiðasti hjailinn. Hagstofa NoregS hefir reiknað út, að þjóðar- auðurinn hafi á stríðsárunum minkað úr 31,4 miljörðum 1 25,8 miljarða króna, sje reiknað með sama krónugengi og var 1939. Þetta samsvarar einum árstekjum þjóð- arinnar fyrir. stríð. En nú verður þjóðin að leggja grundvöllinn að endurreisnarstarfinu með mikið minni tekjum en hún áður hafði. Takmark nýsköpunarirínar er að auka þjóðartekjurnar og þá um leið eignir þjóðarinnar. Ef þetta á Ólajur ríkisarji. Gerhardsen, jorsætisráðherra. að takast, er nauðsynlegt að alt vinnuafl landsins komi að fullum notum. Atvinnuvegir þjóðarinnar hafa notfært sjer vinnuaflið betur en búist var við að óreyndu. Sem stendur er ekkert atvinnuleysi að heitið geti. Hækkun framfærsluvísitölunnar varð 58% frá því 1938 þangað til í maí 1945 Vinnulaunin hjeldust því nær óbreytt á þessu tímabili, ncma við sveitavinnu og hergagnafram- leiðslu. Eftir frelsun landsins hefir tímakaupið hækkað um 50 aura. Með núverandi framfærslukostn- aði verður útkoman sú, að verka- launin ei'u að kaupmætti 90% á við það sem þau voru á árunum fyrir styrjöldina. Stjórnin vill ekki láta dýrtíðina aukast. Fjármálin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.